Morgunblaðið - 07.10.1993, Page 12

Morgunblaðið - 07.10.1993, Page 12
 H Myndlist Skólavörðustíg 6b. Á sýningunni eru 8 verk og ber sýningin yfirskriftina Vörður. Sýningin stendur til 26. október og er opin frá kl. 12-18 mánudag-föstud. og laugardaga frá ki. 10-14. Jóhannes Long með ljósmyndasýningu Ljósmyndarinn Jóhannes Long verð- ur með ljósmyndasýningu á barnaljós- myndum í Borgarkinglunni út október- mánuð. Tónlist Útgáfutónleikar Orra í Bíóhöllinni Akranesi Orri Harðarson heldur útgáfutón- leika í Bíóhöllinni á Akranesi í kvöld fimmtudagskvöld kl. 21. en „Drög að heimkomu“ fyrsta sólóplata Orra kom út þann 1. október s.l. Þeir sem spila með Orra á tónieikunum eru þeir sömu og spiluðu með honum á plötunni þeir; Jón Ólafsson hljómborð og píanó, Birg- ir Baldursson trommur, Friðrik Sturlu- son bassi og Stefán Hjörleifsson raf- magnsgítar. Sjálfur spilar Orri á gítar og munnhörpu og syngur og semur textana. I nokkrum laganna syngur Valgerður Jónsdóttir með Orra. Heather Ireland á Sól- on íslandus Vestur-ísienska söngkonan Heather Ireland frá Vancouver myn kynna nýja útgáfu á ljóðum afa síns, Guttorms J. Guttormssonar skáldSj á efri hæð veit- ingastaðarins Sólon Islandus í kvöld kl. 17-19. í þessari útgáfu eru nýjar þýðingar á mörgum þekktustu ljóðum Guttorms á ensku, auk íslenskrar frumgerðar ljóðanna. Söngkonan mun syngja lög við nokkur ljóðanna, við undirleik Olafs Vignis Albertssonar og segja frá útgáfunni. MENNING/LISTIR Rebekka Gunn- arsdóttir opnar málverkasýn- ingu Rebekka Gunnarsdóttir opnar mál- verkasýningu í veitingahúsinu Tilver- an, Linnetstíg 1 í Hafnarfirði föstudag- inn 8. október. Rebekka hefúr tekið þátt í ^jórum samsýningum og einnig hefur hún verið með fjórar einkasýn- ingar að Ferstiklu á Hvalfjarðarströnd og á Akranesi. Þetta er fimmta einka- sýning hennar og sú fyrsta í Hafnar- firði. Á sýningunni eru 38 vatnslita- myndir. Sýningin er opin á opnunar- tíma veitingahússins. Hjalti Einar sýnir í „Hjá þeim“ Hjalti Einar Sigurbjömsson hefur opnað sýningu á handþrykktum tré- ristum í Galleríinu „Hjá þeim“ að Eitt verka Hjalta Einars Sigur- björnssonar. Jóhannes Long sýnir ljósmyndir í Borgarkringlunni. Camerartica ________Tónlist____________ Jón Ásgeirsson Félag íslenskra hljómlistar- manna (FÍH) stóð fyrir tónleikum í sal félagsins að Rauðagerði 27, sl. þriðjudag. Flytjendur nefna sig Camerartica en það er mjög í tísku, að leikhópar velji sér hin merkilegustu nöfn og gjarnan á útlensku. Að þessum hópi standa Ármann Helgason (klarinett), Gréta Guðnadóttir (fiðla), Guð- mundur Kristmundsson (lágfiðla), Hallfríður Ólafsdóttir (flauta), Hildigunnur Halldórsdóttir (fiðla) og Sigurður Halldórsson (selló), allt ágætir og vel menntaðir tón- listarmenn. Flutt voru verk eftir Hildigunni Rúnarsdóttur, Walter Piston, Alberto Ginastera og Max Reger. Tónleikarnir hófust með frumflutningi verks eftir Hildi- gunni Rúnarsdóttur, sem hún nefnir Marr og eins stendur í efn- isskrá, er það forn nefnifallsmynd- ar af orðinu mar. Marr, eftir Hildigunni, er skemmtiiega unnið verk og er skipan efnis þríþætt. Grunnefni. verksins er sótt til tveggja ís- lenskra þjóðlaga og þau notuð sem eins konar „Cantus firmus" en síðan er spunnið um þau með kontrapunktformgerðum barok- manna og tónmálið er svo af nýrri gerðinni varðandi samhljóman og tónbilaskipan. Margt í verkinu, einkum fúgan, er mjög vel gert en í miðhlutanum eru þjóðlögin ekki nógu vel „falin“ svo að þau draga athyglina mjög frá öðrum tónferl- islínum verksins. Seinni verkin voru þrír kvintett- ar, tveir fyrri, eftir Piston og Gin- astera, fyrir flautukvintett . og lokaverkið, eftir Reger, fyrir klari- nettukvintett. Flautuleikarinn, Hallfríður Ólafsdóttir lék vel á flautuna sína, sérstaklega_ í kvint- ett Pistons og sömuleiðis Ármann, sem átti góðar stundir í kvintett Regers, sérstaklega í hæga þætt- inum og tilbrigðunum. Strengja- kvartettinn er ágætlega mannaður en þarf líklega lengri tíma en eina tónleika, til að intónera sig sam- an, sem er jú eitt af meginvanda- málunum í samleik strengja. Það skemmtilegasta við flutn- ing unga fólksinS, var að leiknum var oft stefnt í hættulegan hraða og leikið ótæpilega með styrkleika andstæður, er gaf leiknum líf og innri kraft, sérstaklega í kvintett Regers og seinni köflunum hjá Piston. Af efniskránni má ráða, að FÍH ætli sér að stofna til tónleikahalds í sal sínum og er það vel til fund- ið, að styðja við þá sem ekki kunna því að sitja heima. Ósérplægni ís- lenskra hljóðfæraleikara er megin- ástæða þess fjörleika sem ein- kennir íslens'kt tónlistarlíf og þar um vitnar ótrúlegur fjöldi fjöl- breytilegra tónleika, sem tónlist- araðdáendum gefst færi á að sækja. A Sinfóníuhljómsveit Islands Fyrstu áskrift- artónleikarnir ÞÓ að nú séu að nálgast fyrstu reglubundnir ákriftartónleikar Sinfóníuhljómsveitarinnar er hljómsveitin þegar búin að leika á 8 tónleikum nú í september. Fyrst er að geta þriggja Ópnunar- tónleika sem allir voru leiknir fyr- ir fullu húsi áheyrenda, tónleika í Seltjarnarneskirkju, tónleika- ferð um Vesturland, Tónvakatón- leikar o.fl. Fyrstu áskriftartón- leikar á starfsárinu eru í Gulu röðinni. H(jómsveitarstjóri er nýr- áðinn aðalhjómsveitarstjóri S.í. Osmo VánskS. Einleikari er Auður Hafsteinsdótt- ir. Hún lauk einleikaraprófi frá Tón- listarskólanum í Reykjavík en þar nam hún undir handleiðslu Guðnýjar Guðmundsdóttur konsertmeistara S.í. Meistaragráðu í fiðluleik hlaut hún árið 1991 frá New England Conservatory í Boston. Hún var full- trúi íslands í keppni ungra einleikara í Finnlandi árið 1991 og það sama ár var hún valin borgarlistamaður Reykjavíkur til þriggja ára. Auður er félagi í kammermúsíkhópnum Caput og Ými, en einnig hefur hún komið fram sem einleikari víða s.s. í Bandaríkjunum, Kanada, Svíþjóð, Skotlandi, Færeyjum, Kína og Japan. Þetta er í fyrsta skiptið sem Auður kemur fram á tónleikum með Sinfón- íuhljómsveit íslands. Á efnisskránni eru þijú verk; Ad Astra eftir Þorstein Hauksson, Fiðlu- konsert eftir Carl Nielsen og Sinfón- ía nr. 7 eftir Ludvig v. Beethoven. Ad Astra var samið fyrir og frum- flutt á Listahátíð 1982. Tónskáldið Þorsteinn Hauksson stundaði fram- haldsnám í tónlist í Bandaríkjunum og síðar tónsmíðar og rannsóknir við IRCAM í Pompidou listamiðstöðinni í París. Hann kennir nú tónsmíðar, tölvutónlist og tónfræðigreinar við Tónlistarskólann í Reykjavík jafn- framt því að veita forstöðu sam- starfsverkefni Tónlistarskólans í Reykjavík og Háskóla íslands um tal og tölvutónver. Fiðlukonsert Carl Nielsens sem saminn var árið 1911 hefur aðeins einu sinni heyrst hér áður á tónleik- Aaður Hafsteinsdóttir. um. Var það árið 1975 er Arve Tell- efsen flutti hann ásamt S.í. Nielsen telst án efa til helstu tónskálda Evr- ópu á fyrri hluta aldarinnar. Hann hefur gjaman verið nefndur faðir danskrar nútímatónlistar. Nielsen vildi spyma fæti við viðkvæmni og væmni sem honum fannst einkenna danskt menningarlíf í kringum alda- mótin síðustu. Hann á meðal annars að hafa sagt að „Harpa í hljómsveit er eins og hár í súpunni". Hundrað árum áður en Nielsen samdi fiðlukonsert sinn þ.e. 1811 var Ludvig van Beethoven að fást við sína sjöundu sinfóníu. Sinfónían var frumflutt undir stjórn höfundar í Vínarborg tveim ámm síðar. í einni af ævisögum um Beethoven er sagt um frumflutninginn að hann hafi verið „eitt af stærstu augnablikum í lífí tónskáldsins og flestir voru sam- mála um að honum skyldi veittur !árviðarsveigurinn“. Einhveijir áttu þó að hafa sagt að sinfónían hlyti að hafa verið samin „undir áhrifum" svo hamslaus væri tónlistin. Tón- skáldið Richard Wagner var frá sér numinn af fegurð verksins og kallaði sinfóníuna „Upphafning dansins" og sagt er að hann hafí freistað þess að dansa sinfóníuna frá upphafí til enda við undirleik tengdaföður síns Franz Lizts. Kvikmyndahátíð Listahátíðar Zombie og draugalestin Kvikmyndir Arnaldur Indriðason Zombie og draugalestin („Zombie and the Ghost Tra- in“). Sýnd í Háskólabíói. Leik- stjóri og handritshöfundur: Mika Kaurismaki. Aðalhlutverk: Silu Seppala, Matti Pellonpaa og Marjo Leinonen. Finnland. 1991. Þeir bræður Mika og Aki Kauri- smaki frá Finnlandi draga ekkert undan þegar þeir lýsa utangarðs- mönnum og utanveltulýð ýmiskon- ar í myndum sínum en yfírleitt fylgir því góður skammtur af mannlegum svörtum húmor svona til að létta á eymdinni eða skopast með hana. í Zombie og draugalest- inni eftir Mika er lýst ferðalagi ungs og uppburðalítils tónlistar- manns á botninn og alvarleikinn er í fyrirrúmi. Hér er ekkert til að hlæja að nema ef vera skyidi hljómsveitin „Harri and the Mul- efuckers“ og stórsöngvari hennar, einskonar kúreki norðursins þeirra Finna. Myndin gerist á ísköldum vetri í Helsinki og Mika notar hráslaga- legt, kalt, myrkt og nöturlegt umhverfi vetrarins til að gera aðal- persónuna enn umkomulausari og veiklulegri písl. Gallinn er sá að Mika hefur aldrei fyrir því að skýra hvers vegna þessi ungi maður, sem er svefngengilslegur í meira lagi enda kallaður Zombie, þjáist af fullkominni sjálfseyðingarhvöt og liggur í brennivíni alla daga þar til hann fer suður til Istanbúl og hverfur. Ekkert hefur áhrif á Zombie. Þegar faðir hans deyr orkar það ekki hið minnst á hann. Ekki held- ur þegar móðirin flytur út í sveit, heldur ekki þegar kærastan fær nóg af honum og síst þeg'ar hann missir plássið sitt í hljómsveitinni. Hann tekur þessu öllu með svip- brigðalausu afskiptaleysi en hrak- ar stöðugt þar til hann missir veru- leikaskynið. Maður veit orðið að hveiju mað- ur gengur með þá Kaurismaki- bræður og það er kannski helsti gallinn. Þeir eru farnir að endur- taka sig of oft svo umhverfið og skoplegar persónurnar eru gjör- kunnugar, sóðalegar kytrurnar og eymdarsvipurinn sem umlykur allt. Eitur Eitur („Poison"). Sýnd í Háskóla- bíói. Leikstjóri og handritshöf- undur: Todd Haynes. Aðalhlut- verk: Felicia Meeks, Larry Maxwell, Scott Renderer. Bandaríkin. 1990. Kvikmyndin Eitur er þriggja ára gömul mynd eftir athyglisverðan bandarískan kvikmyndagerðar- mann að nafni Todd Haynes. Myndin hans byggist upp á þremur sögum sem ekkert virðast eiga sameiginlegt í fyrstu og frásögu- hátturinn er mjög ólíkur. Sýna myndirnar þijár aðferðir eða teg- undir frásagnar í kvikmynd; heim- ildafrásögn, drama og hrollvekju. Eitur er mjög óvenjuleg dg góð mynd, skopleg stundum og stund- um hrottaleg, sérstaklega í hinni dramatísku fangamynd sem leik- stjórinn byggir á verkum Jean Genet. Haynes kýs ekki að segja hveija sögu fyrir sig heldur blandar þeim saman með því að sýna brot úr hverri í einu og skipta svo yfír og brátt kemur í ljós að hann er að fást við sama þemað, eitrið, eins og nafnið bendir til, sem gerir menn að ýmist skepnum, föður- morðingjum eða ófreskju í samfé- laginu. Ein sagan heitir Hetja og hún er í heimildamyndastíl um ungan dreng sem verður föður sínum að bana og hverfur eftir það. Haynes setur upp spaugileg viðtöl við /íá- granna, túberaðar úthverfahús- mæður, skólasystkini og sérfræð- inga, sem minna lítillega á Woody Allen þegar hann fékkst við heim- ildastílinn, en undir niðri er ljót saga af heimilisofbeldi og viðbrögð- um drengsins við því. Önnur sagan, „Homo“, sú sem byggir á Genet, gerist í fangelsi og segir af manni er hefur alla sína tíð ýmist verið á munaðarleysingja- hælum, betrunarhælum fyrir ung- linga eða í fangelsum. Hann fær ást á einum samfanga sínum og minnist í endurliti meðferðarinnar sem samfanginn var beittur á ung- Kl. 5. Trust Hal Hartley leik- stýrir. USA. Suspended Stride of the Stork Theo Angelopulos leikstýrir. Grikkland. Once upon a time cinemaMoh- sen Makhmalbaf leikstýrir. Grikk- land. + Loves me.. Kl. 7. High Hopes Mike Leigh leikstýrir. Bretland. Raining Stones Ken Loach leik- stýrir. Bretland. + Creature Com- forts. Die Zweite Heimat. Dic Hoch- zeit nr. 8.Edgar Reitz leikstýrir. lingahæli þegar hann var yngri. Þetta er átakanleg og myrk saga um mannlega eymd. Þriðja sagan heitir „Horror" og er í tekin í svart/hvítu en það er vísindaskáldskaparmynd í stíl þeirra sem gerðar voru vestra á sjötta áratugnum og segir af vís- indamanni sem gleypir óvart upp- götvun sína - leyndardóma kyneðl- isins í vökvaformi - og afmyndast í andliti. Hann kynnist ungri og fallegri stúlku en afmyndunin er smitandi og vísindamaðurinn verð- ur úrhrak samfélagsins. I heild er Eitur mjög frumleg og sérstök bíómynd og líklega ein af athyglisverðustu myndum hátíð- arinnar. Þýskaland. Kl. 9. Leolo Jean-Claude Lauz- on leikstýrir. Kanada. + Revolver. Simple Men Hal Hartley leik- stýrir. USA. + Nietzsche Pops. Love Valeri Todorovski leik- stýrir. Rússland. Kl. 11.10. Zombie & The Ghost Train Mika Kaurismáki leikstýrir. Finnland. + Steinhjarta. Kl. 11.10. Solo con tu Pareja Alfonso Cuarón leikstýrir. Mexíkó. + Esta nao e sua. Kl. 11. Careful Guy Maddin leikstýrir. Kanada. Kvikmyndahátíð í dag

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.