Morgunblaðið - 07.10.1993, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 1993
13
Hvers vegna reka
sjúkrahús leikskóla?
eftirlnguJ.
Arnardóttur
Hvers vegna eiga sjúkrahús að
reka leikskóla? Af hveiju eiga
sumar starfsstéttir að njóta sér-
réttinda? Spurningar í þessum dúr
hafa heyrst víða síðustu daga og
þær lýsa þeirri vanþekkingu sem
ríkir um þessi mál.
Sveitarfélögin
Staðreyndin er sú að sveitarfé-
lögin sinna ekki þeirri þörf, sem
er fyrir leikskólapláss í dag. Og
það lítur ekki út fyrir að það breyt-
ist í nánustu framtíð. Það er erfitt
að átta sig á því hvaða skoðun
stærsta sveitarfélagið, Reykjavík-
urborg hefur á málinu. Anna K.
Jónsdóttir stjórnarformaður hjá
Dagvist barna lýsir ánægju sinni
á tillögu ráðherra um leið og hún
talar m.a. um bruðl í rekstri leik-
skóla sjúkrahúsanna. Hún dró þau
orð að vísu til baka í fiölmiðíum
daginn eftir. Leikskólar Borgar-
spítalans hafa verið og eru mjög
vel reknir og það eru 1-2 ár síðan
gjaldskrá og fjöldi barna á starfs-
mann var samræmt við Dagvist
barna. Það er miður að hún skuli
ekki hafa kynnt sér málið betur
áður en hún tjáði sig opinberlega.
Hún lýsir því einnig yfir að Reykja-
víkurborg sé tilbúin að taka við
rekstrinum á sínum eigin forsend-
um. Aftur á móti virtist borgar-
stjóri líta á málið frá öðru sjónar-
horni, hann gerði sér grein fyrir
að sveitarfélögin gætu aldrei sinnt
þessu þannig að það nýttist sjúkra-
húsunum.
Leikskólarekstur
sjúkrahúsanna
Stærri sjúkrahúsin og flest
hjúkrunarheimili hafa farið út í
leikskólarekstur eða svokallaða
milligjöf, þ.e. að borga mismun
þess sem leikskólapláss kostar á
sjúkrahúsunum og hjá dagmömm-
um eða einkareknum leikskólum.
Þetta er gert til að laða til sín fólk
í vinnu, sem ella léti ekki sjá sig.
Ef sveitarfélögin tækju við rekstr-
inum á sínum forsendum yrði fljót-
lega skortur á starfsfólki á flestum
sjúkrahúsanna og loka þyrfti
deildum. Það er e.t.v. þannig sem
háttvirtur heilbrigðisráðherra ætl-
ar að spara! Hann segir að sveitar-
félögin eigi að reka leikskóla en
ríkinu beri að reka sjúkrahús og
hjálpa sjúkum. Til að reka sjúkra-
hús þarf sérmenntað starfsfólk.
Leikskólarnir voru stofnaðir vegna
þess að það vantaði fólk til starfa
á sjúkrahúsin, þeir virkuðu sem
gulrót. Með því að fá góða og ör-
iigga gæslu fyrir börnin sín fékkst
fólk til vinnu. Á þeim tíma voru
gjöldin mun lægri en þau eru í
dag, en þau voru samræmd við
Dagvist barna fyrir ca. 2 árum.
Ég held að ráðherra sé að notfæra
sér atvinnuástandið í þjóðfélaginu
þegar hann leggur þessar breyt-
ingar til í dag. Hann trúir því
ekki að fólk muni hætta vinnu.
Starfsfólk sjúkrahúsanna er yfir-
leitt ekki talið til hálaunafólks og
meirihluti þess eru konur. Margar
þeirra munu hætta og láta eigin-
menn sína fá skattkortin sín ef
gjöldin hækka verulega. Og það
gera þau örugglega ef farið verður
út í einkarekstur.
Leikskólar sem sljórntæki
Ráðherra hefur mótmælt þessu,
og sagt að leikskólar séu forskóli,
sem allir eigi rétt á að njóta en
ekki bara stjórntæki. Ég vil full-
yrða að leikskólar spítalanna eru
síst verri forskólar en aðrir leik-
skólar, og það hefur ekkert með
það að gera hvort hægt sé að
nota þá sem stjórntæki _ líka.
Starfsfólk á leikskóla Borgarspít-
alans er upp til hópa faglega hugs-
andi og leiðbeinir börnum okkar
vel. Hjá sveitarfélögum eiga allir
rétt á þessari þjónustu að uppfyllt-
um ákveðnum skilyrðum. En þar
eru langir biðlistar og ég get ekki
séð hvernig hægt er að láta 700
börn renna greiðlega inn í það
kerfi. Leikskólar spítalanna eru
reknir á allt öðrum forsendum,
opnunartími og það hveijir fá pláss
fyrir börnin sín er háð þörfum
spítalans. Fólk virðist ekki átta sig
á því hvað þetta þýðir. Með því
að láta fólk sem vill vinna fulla
vinnu ganga fyrir, og einnig þær
stéttir sem helst vantar til starfa
á hveijum tíma tekst betur að
manna stofnunina. Það þýðir
minni yfirvinnu og lækkun launa-
kostnaðar. Þetta er það sem við
höfum kallað stjórntæki. Sjúkra-
hús eru heilbrigðisstofnanir sem
sinna sjúku og oft bráðsjúku fólki.
Það er ekki spurt hvað klukkan
sé þegar fólk leggst inn. Það er
Hljómsveit
Geirmundar Valtýssonar
vinsœlasta danshljómsveit á Islandi
Föstudag 8. október
Lífidansinn
Ort í mdinn
Látum sönginn hljóma
Égsyngþennan söng
Núerégléttur
Bíddu viÓ
Ég hef hara ihuga á jtér
Tifa tímans hjól
ÞjóÓhátió í Eyjum
MeÓfér
HÖTF.Ii jjJAND
sími687111
mikið álag á því fólki sem vinnur
á sjúkrahúsunum, þetta álag hefur
farið stigvaxandi síðustu mánuði
vegna sífellds niðurskurðar í heil-
brigðismálum. Frumskilyrði þess
að bamafólk geti unnið á svona
vinnustað er að það hafi örugga
gæslu fyrir börnin sín. Það er ekki
óalgengt að fólk komist ekki heim,
þó vinnudegi eigi að vera lokið.
Opnunartími leikskólanna gerir
það að verkum að sveigjanleikinn
er mun meiri en hjá sveitarfélög-
unum, þar sem hann er mjög lít-
ill. Það er út í hött að líkja sjúkra-
húsunum við ráðuneyti eða sjón-
varpsstöð þegar verið _er að ræða
rekstur leikskólanna. Ég veit ekki
til þess að á tveim síðarnefndu
stöðunum hafi verið hörgull á
fólki.
Atburðarásin
Mörgum finnst atburðarásin í
þessu máli ansi skrýtin. Þær frétt-
ir „láku út“ fyrir nokkrum vikum
að heilbrigðisráðherra ætlaði að
skerða fjárveitingar til sjúkrahúsa
sem næmi rekstri leikskólanna. í
stjórn sjúkrastofnana Reykjavík-
urborgar og starfsmannaráði
Borgarspítalans var strax farið að
ræða stöðuna og velta upp mögu-
leikum. Einnig var kannaður fjöldi
barna, aldur og búsetuskipting.
Síðan var beðið eftir formlegu
bréfi til að bregðast við. Þann 24.
sept. voru menn farnir að halda
að ráðherra hefði séð að sér og
myndi gefa lengri frest en til ára-
móta. Daginn eftir barst loks
formleg tilkynning frá ráðherra,
sem varð til þess að uppsagnir
voru sendar út með svo stuttum
fyrii-vara. Þann 30. sept. þegar
algjört öngþveiti var orðið á spítul-
unum og enginn vinnufriður þá
sendi ráðherra aftur bréf þar sem
hann segist „muni freista þess í
samráði við væntanlega rekstrar-
aðila, að sem minnst röskun verði
á högum starfsfólks leikskólanna
og þeirra barna sem þar njóti nú
vistar". Ég veit ekki hvort hann
gerir sér grein fyrir hvað svona
Inga J. Arnardóttir
„ Að koma með svo illa
undirbúna tillögu sem
þessa og selja allt að
1400 foreldra og 700
börn í óvissu um hvað
tekur við eftir 3 mán-
uði, er ekki til að
hreykja sér af!“
uppákomur skaða vinnustaði.
Hann hefur komið á stað mikill
óánægjuöldu og óöryggi meðal
starfsfólks, sem tekur langan tíma
að laga aftur. Og það er alveg
öruggt að við komum til með að
missa ejtthvað af góðu fólki úr
vinnu. Ég er alveg sannfærð um
að enginn annar vinnuveitandi en
ríkið, myndi líða svona vinnubrögð
starfsmanna sinna, eins og ráð-
herra hefur haft í frammi í þessu
máli. Að koma með svo illa undir-
búna tiliögu sem þessa og setja
allt að 1400 foreldra og 700 börn
í óvissu um hvað tekur við eftir 3
mánuði, er ekki til að hreykja sér
af. Ég held að allir sem eru eitt-
hvað inni í þessum málum séu
sammála um að þau leysast varla
á þeim stutta tíma sem okkur er
gefinn.
Lokaorð
Ráðherra hefur sagt að hann
sé einungis að fylgja þeim lögum
sem í gildi séu, um að sveitarfélög-
in eigi að sjá um þennan rekstur.
Það sem við skiljum ekki, er af
hveiju málið var ekki rætt við við-
eigandi aðila áður en allt var sett
í háaloft? Ráðherra sagðist hafa
rætt þetta í sínu sveitarfélagi. Þar
er um fá börn er að ræða, ætli
honum hafi fundist raunhæft að
heimfæra þá niðurstöðu yfir á öll
hin sveitarfélögin?! Þetta mál hefði
átt að undirbúa betur, til að losna
við óþarfa óánægju og fjaðrafok.
Það má vel vera, að það sé tíma-
bært eða rétt að breyta rekstrar-
fyrirkomulaginu á einhvern hátt,
við höfum ekki fengið neinn tíma
til að ræða það. Ráðherra virðist
þó vera farinn að gera sér grein
fyrir að þetta er ekki eins einfalt
og hann hélt í upphafi og er tilbú-
inn til að veita þá aðlögun sem til
þarf. Hann vonast eftir góðri sam-
vinnu við alla aðila og ætlar að
vinna vel næstu 3 mánuði. Þetta
er tónninn nú síðustu daga. Við á
Borgarspítalanum erum nú þegar
í fullum gangi með að finna alla
mögulega fleti á þessu máli með
það að markmiði að leysa það,
enda eru það hagsmunir okkar
allra sem hér vinnum. í dag sjáum
við ekki hvernig er hægt að leysa
þetta mál. Með tilvísun í bréf sem
m.a. undirrituð sendi ráðherra f.h.
starfsmannaráðs Borgarspítalans
24. sept. vil ég skora á ráðherra
að endurskoða afstöðu sína um
skerðingu á ljárveitingu til leik-
skóla sjúkrahúsanna. Við vitum
að hann vill veita eins góða og
ódýra heilbrigðisþjónustu og völ
er á en þessar sparnaðartillögur
stuðla því miður ekki að því.
Höfundur er varaformuður
starfsmannaráðs Borgarspítalans
og situr í stjórn sjúkrastofnana
Reykjavíkurborgar sem fulltrúi
starfsmanna.
DtSERD EN ŒRAMICA
StórhöWa 17 vlö GulUnbrú. sími 67 4* 44
r
joppskó
1 VELTUS
rinn
VELTUSUNDI • SIMI: 21212
A >1 ie it i:
Tegund: 251
Litur: Svartur
Stæröir: 40—47
Verð
5.495,-
Tegund: 259
Litur: Svartur
Stærðir: 40—46
Verð
4.995,-
Tegund: 8010
Litur: Svartur
Stærðir: 40—47
Verð a EKni/
3.995,-
ATH: AMBRÉ eru breiðir og þægilegir herraskór frá Danmörku
POSTSENDUM SAMDÆGURS • 5% STAÐGREIÐSLUAFSLATTUR
Tökum við notuðum skóm til handa bágstöddum.