Morgunblaðið - 07.10.1993, Side 14

Morgunblaðið - 07.10.1993, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 1993 Verkalýðsfélög: Frelsi eða helsi? eftir Aðalstein J. Magnússon og Runólf Agústsson Dómur Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Sigurðar Siguijónsson- ar hefur orsakað heita umræðu um skylduaðild að verkalýðsfélögum. Telja sumir að hér sé um brot á mannréttindum að ræða, en aðrir segja núverandi fyrirkomulag for- sendu tilvistar stéttarfélaga og um- ræðuna til þess fallna að grafa und- an valdi verkalýðshreyfingarinnar. Umræða um aðild að stéttarfélög- um er ekki einskorðuð við ísland. í fáum löndum hefur þannig verið deilt jafn hart um verkalýðsmál og í Bandaríkjunum, en þar hafa tak- markanir á starfsemi verkalýðsfé- laga verið meiri en víðast annars staðar í hinum vestræna heimi. Það er því athyglisvert að bera íslenskar reglur um þessi mál saman við þær bandarísku. Forgangsréttarákvæði í Bandaríkjunum em svonefnd forgangsréttarákvæði ólögleg. Þá er átt við að samningur sé gerður á milli fyrirtækis og verkalýðsfélags um að nýir starfsmenn þurfí að vera í félaginu áður en þeir eru ráðnir. Þar er slíkt fyrirkomulag nefnt „closed shop“ og var bannað með Taft-Hartleylögunum árið 1947. Hérlendis þekkjast lík forgangs- réttarákvæði samanber 5. kafla kjarasamnings Verkamannasam- bandsins við VSÍ. Þar skuldbinda atvinnurekendur sig til að veita fé- lagsmönnum verkalýðsfélaga for- gang til vinnu, enda sé félaginu skylt að veita nýjum starfsmönnum aðild, nema að slíkt brjóti í bága við sam- þykktir félagsins. í lögum félaga inn- an VMSÍ er algengt að félagar geti þeir einir orðið sem eigi lögheimili á félagssvæðinu. Kjarasamningar og samþykktir gefa því stéttarfélög- unum tækifæri til að útiloka utan- sveitarmenn frá vinnu. Fólki í at- vinnuleit er með slíku gert erfitt fyr- ir og bundið í átthagafiötra með óeðlilegri mismunun. Hugsanlega bijóta forgangsréttarákvæði einnig gegn 11. gr. Mannréttindasáttmáia Evrópu eins og haldið hefur verið fram. í öllu falli virðast hér vera um að ræða atriði sem hefur slæm áhrif á atvinnulífið og er ósanngjarnt gagnvart launafólki. Því væri athug- andi hvort ekki ætti að fara að dæmi Bandaríkjamanna og afnema for- gangsréttarákvæði. Skylduaðild Taft-Hartleylögin banna ekki aðil- um vinnumarkaðarins að gera samn- inga sem skylda starfsmenn til inn- göngu í stéttarfélag eftir ráðningu en slíkt er kallað „union shop“. At- vinnurekandi hefur þá fijálst val um það hvern hann ræður án tillits til samþykkta eða vilja stéttarfélags. Samt sem áður hindra Taft-Hart- ley alríkislögin ekki einstök fylki í að banna skylduaðildarsamninga. Lög sem banna slíkt nefnast „right to work laws“ og eru mjög umdeild. Þau er aðallega að finna í Suðurríkj- unum og fylkjum í vesturhluta lands- ins. Bandarísk verkalýðsfélög halda því fram að lægri laun þar en í öðr- um hlutum landsins orsakist af þessu banni. Hérlendis þekkist skylduaðild og er Verslunarmannafélag Reykjavík- ur dæmi um slíkt. Þar eru þeir sem hefla versluparstörf í Reykjavík skyldaðir til að greiða til félagsins og skulu þeir jafnframt samkvæmt lögum þess, jafnframt án umsóknar, skráðir félagsmenn. Vinnuréttargj ald Þrátt fyrir skylduaðild er í raun ómögulegt að neyða fólk til þátttöku í fundum stéttarfélags og erfitt að neyða fólk til þátttöku í aðgerðum þess. I Bandaríkjunum er því að hámarki krafist fjárhagslegrar aðild- ar „fiduciary membership“. Rökin fyrir greiðsluskyldu eru að þær kjarabætur sem félögin ná eru al- menningsgæði. Allir njóta vinnu stéttarfélaganna án tillits til þess hvort þeir greiða til þeirra eða ekki. Sé ekki brugðist við þeirri tilhneig- ingu manna að reyna að losna undan greiðslu gjalda til félaganna, en hagnast samt af starfseminni, er hætt við að félögin verði óstarfhæf og ófær um að sinna hlutverki sínu. Hérlendis hafa slíkar greiðslur verið nefndar vinnuréttargjald. Greiðsla þess er lögbundin með 6. grein laga nr. 55/1980 og atvinnu- rekendum er skylt að halda gjöldum til verkalýðsfélaga eftir af launum starfsmanna sinna. Þannig á það að vera tryggt að þeir sem njóti starf- semi verkalýðsfélaga greiði til þeirra. Sú greiðsla er eins konar afnotagjald fyrir veitta þjónustu kjarasamninga og annarra félagslegra réttinda. Niðurlag Iðnaðarfylki Bandaríkjanna heim- ila skylduaðild og auðvelda þannig fólki að starfa saman og ná fram hagsmunamálum í skjóli fjölda og góðrar skipulagningar. Einnig er staðfest með mörgum bandrarískum rannsóknum að verkalýðsfélög ekki einungis hækka laun heldur auka þau oftast einnig framleiðslugetu. Al- mennt séð hafa verkalýðsfélög því ekki neikvæð áhrif á starfsemi fyrir- tækja. Á hinn bóginn eru aðilar í Banda- ríkjunum sem halda því fram að öll Aðalsteinn J. Magnússon „Ljóst er að verkalýðs- hreyfingin þarf að end- urskoða afstöðu sína til f organgsréttarákvæða. Hins vegar má spyrja hvort eðlilegt sé að leggja meiri hömlur á starfsemi verkalýðsfé- laga hérlendis en tíðk- ast vestanhafs.“ skylda til aðildar að verkalýðsfélög- um sé brot á tjáningarfrelsi, grund- vallarmannréttindum og stjórnar- skránni. Slíkt er ekki niðurstaða ai- ríkisdómstóla. Þeirra afstaða er að skylduaðild sé heimil og að verka- Runólfur Ágústsson lýðsfélögin geti innheimt gjald fyrir veitta þjónustu. Þetta er athyglisvert í ljósi þeirrar umræðu sem átt hefur sér stað hér- lendis. Því hefur verið haldið fram að ekki eingöngu forgangsréttará- kvæði séu brot á mannréttindum, heldur einnig samningsbundin skylduaðild og greiðsluskylda á vinnuréttargjaldi. Ljóst er að verka- lýðshreyfingin þarf að endurskoða afstöðu sína til forgangsréttará- kvæða. Hins vegar má spyija hvort eðlilegt sé að leggja meiri hömlur á starfsemi verkalýðsfélaga hérlendis en tíðkast vestanhafs. AðaJsteinn MBA erlektor við Samvinnuháskólann á Bifröst og Runólfur er lögfræðingur og lektor við Sainvinnuháskólann á Bifröst. Útivist - Ofbeldi eftir Sigrúnu Hv. Magnúsdóitir Á fundi foreldrafélags Gagn- fræðaskóla Akureyrar sl. fimmtudag voru opinskáar umræður um þau málefni sem einna hæst ber í umræð- unni í dag: Ofbeldi unglinga og vímuefnaneyslu. Umræður snerust um það að for- eldrar þurfi sjálfir að endurmeta uppeldisaðferðir gagnvart börnum sínum. Uppeldisaðferðir í nafni frels- is hafa haft slæm áhrif. Með því að Forvarnastarf Hjartaverndar og stuðningnr almennings eftir Magnús Karl Pétursson Þegar Hjartavemdarsamtökin voru stofnuð fyrir réttum 29 árum voru hjarta- og æðasjúkdómar í mik- illi sókn meðal landsmanna og dán- artíðni af völdum þessara sjúkdóma fór vaxandi ár frá ári. Eitt af fyrstu verkefnum samtakanna var stofnun rannsóknastöðvar og hafín var hóp- rannsókn á 30 þúsund manna úrtaki sem staðið hefur allt fram á þennan dag. Sú rannsókn leiddi í ljós hveijir voru helstu áhættuþættir hjartasjúk- dóma meðal Íslendinga á þeim tíma og á niðurstöðum þeirra rannsókna hefur forvarnarstarf þeirra síðan byggst. Á vegum Hjartaverndar fer nú fram skráning á öllum tilfellum kransæðastíflu á íslandi og er það liður í alþjóðlegu samstarfi á vegum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinn- ar. Sú rannsókn hefur leitt í ljós að tíðni kransæðastíflu fer nú ört lækk- andi meðal fólks á aldrinum 25-74 ára hér á landi. Við samanburð á öðrum þjóðum sem taka þátt í sams- konar rannsókn hefur tíðnin lækkað mun meira en flestra annarra þjóða í Vestur-Evrópu. Sem dæmi má nefna að árið 1981 dóu 245 manns á aldrinum 25-74 ára úr þessum sjúk- dómi en árið 1990 151. Ástæður þessa eru vafalítið margar og má þar m.a. nefna bættar lækningar þeirra sem komnir eru með sjúkdóm- Magnús Karl Pétursson inn, bæði lyfjameðferð, kransæðaút- víkkun og skurðaðgerðir. Enginn vafi er þó á því að forvamarstarf Hjartaverndar á þar stóran hlut að máli og það að koma í veg fyrir að sjúkdómurinn myndist hlýtur að vera það sem stefnt skal að. Nú er það svo að margt það sem veldur kransæðasjúkdómum er enn hulið sjónum okkar. í Hjartavernd er nú unnið að undirbúningi nýrrar rannsóknar sem verða mun á yngri aldurshópi en áður, afkomendum upphaflega rannsóknarhópsins. Er ætlunin að kanna áhrif ýmissa áður óþekktra erfðaþátta á kransæðasjúk- dóma en óvíða er jafngott tækifæri til slíkra rannsókna og hér á landi. Kemur þar ekki eingöngu til smæð þjóðfélagsins og þekking okkar á ættum og búsetu heldur einnig ein- stakur samstarfsvilji íslendinga, ólíkt því sem víða gerist erlendis, til þátt- töku í slíkum rannsóknum. Allt frá upphafi Hjartaverndar hefur starfsemin verið fjármögnuð að langmestu leyti með fjárframlög- um og söfnunarfé frá almenningi og fyrirtækjum í landinu. Á tímum sam- dráttar í þjóðarbúskapnum verður starfsemi samtaka eins og Hjarta- verndar, þar sem mikið starf er unn- ið í sjálfboðavinnu, enn mikilvægara. Enda þótt hagur almennings sé nú þrengri en oft áður leitar Hjartavernd enn á ný til landsmanna með árlegt happdrætti sitt. Þetta er eina skipu- lagða fjársöfnun samtakanna og því mikilvægt að vel takist til. Miðaverð hefur verið óbreytt undanfarin 4 ár, 600 krónur. Við heitum því á þig, lesandi góður, að kaupa miða í happ- drætti okkar sem dregið verður í 8. október nk. og leggja þannig þitt af mörkum til starfsemi sem til almenn- ingsheilla horfír. Höfundur er læknir og formaður Hjarta verndar. veita frelsi hefur aginn gleymst og agaleysið er afleiðing af þessum frejsishugmyndum foreldra. í Ijósi hörmulegra atburða um síð- ustu helgi vega þessar umræður mjög þungt. Ef árangur á að nást verða foreldrar að breyta afstöðu sinni, það á ekki að vera sjálfsagt eða algengt að börn séu undir áhrif- um vímuefna án þess að foreldrar hafi hugmynd um það. Það var til fyrirmyndar þegar borgarstjóri fór í miðbæinn að nóttu til um helgi, kynnti sér málið af eigin raun og beitti sér fyrir aðgerðum. Atburðir helgarinnar kalla á öflugri löggæslu og meira samstarf borgaryfirvalda og foreldra um aðgerðir fyrir ungl- inga yngri en 16 ára sem eru í mið- bænum eftir kl. 22 á kvöldin. Kallað verði á foreldra þessara barna og þeir áminntir fyrir að fara ekki eftir reglugerð. Foreldrum verði kynnt sú starfsemi sem er í boði fyrir ungl- inga, s.s. í féiagsmiðstöðvum, íþróttafélögum o.fl. Eg er nokkuð viss um að flestir foreldrar þessara unglinga í miðbænum hafa ekki hugmynd um hvað börn þeirra eru að gera, því viðkvæðið er að „það eru allir þarna og við vorum bara að tala saman og skoða aðra og þetta er allt í lagi“. Á fundinum á Akureyri kom einn- ig fram að ekki er óalgengt að for- eldrar kaupi kippu af bjór eða pela af áfengi fyrir unglinga. Er það gert til að þau fái sér ekki eitthvað ólöglegt eða séu að snapa þetta eft- ir leynileiðum. Hvað eiga ungling- arnir okkar að halda? Er ekki áfeng- isneysla ungmenna undir 20 ára bönnuð? Það er staðreynd að ungl- ingar taka mark á bönnum og boðum foreldra, þau mótmæla kannski, en það skiptir máli að unglingar viti hvað má og hvað ekki. Hvers vegna er svona mikilvægt fyrir foreldra að vera umfram allt vinir unglingsins, er ekki nóg að vera foreldri sem klæðir, fæðir, sýnir ást og um- hyggju og leiðbeinir börnum sínum á veginum til hamingjuríks lífs? Þau fá vini sína annars staðar. Vináttan kemur þegar unglingurinn er orðinn fullorðinn — ef allt fer vel. Allir þurfa að sameinast um að leysa þetta hörmungarástand í miðbæ Reykjavíkur um helgar. Ef það verður ekki leyst núna versnar það og hvernig verður það þá? Sigrún Hv. Magnúsdóttir „Uppeldisaðferðir í nafni frelsis hafa haft slæm áhrif. Með því að veita frelsi hefur aginn gleymst og agaleysið er afleiðing af þessum frelsishugmyndum for- eldra.“ Reynsla mín á Tindum hefur kennt mér að það verður að grípa inn í þetta vandamál % að foreldrar eru sannarlega áhyggjufullir og allir af vilja gerðir til að ástandið breytist til batnaðar. Foreldrar eru mjög óöruggir um hvernig koma eigi fram við unglinginn sinn og virðast fá lít- inn stuðning frá öðrum foreldrum. Ég fagna framtaki foreldrafélags Gagnfræðaskóla Akureyrar um að sameinast um útivistartíma og skora á önnur foreldrafélög að fara að dæmi þeirra. Það verður að segjast eins og er að þetta ofbeldi varðar ekki unglinga eina. Fólk á öllum aldri neytir vímu- efna og það er skylda þjóðfélagsins að hjálpa þeim sem ánetjast. Höfundur er deildarstjóri á Tindum sem er meðferðardeild Unglingaheimilis ríkisins fyrir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.