Morgunblaðið - 07.10.1993, Síða 20

Morgunblaðið - 07.10.1993, Síða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LÍF FIMMTÚDAGUR 7. OKTÓBER 1993 Minnst hækkun vöruverðs á Akureyri SAMKEPPNISSTOFNUN gerði í lok ágúst sl. könnun a verð- lagi fjölda verslana á höfuðborgarsvæðinu, Akureyri og Aust- urlandi. Samskonar könnun var gerð í apríl og kom í ljós að verð á þeim 170 vörutegundum, sem kannanirnar náðu til, hækkaði að meðaltali um 3,7% á höfuðborgarsvæðinu á þessu fjögurra mánaða timal 1,7% á Akureyri. Sérstaka athygli vakti að verð á vörum í könnuninni í matvöru- versluninni Kaupangi á Akureyri lækkaði um 6% á tímabilinu. Skýringin á minni hækkun vöru- verðs á Akureyri er að miklu leyti rakin til Kaupangs. Þær vörutegundir, sem hér um ræðir, voru m.a. nýlenduvörur, kjötvörur, drykkjarvörur og í, um 3,4% a Austfjörðum og hreinlætis- og snyrtivörur. Ekki var einungis kannað verð á svo- kallaðri merkjavöru, heldur var einnig kannað verð á ýmsum vörutegundum sem einstaka verslanir flytja inn sjálfar. Við samanburð ber að hafa í huga að gengi íslensku krónunnar var fellt um 7,-5% á þessu tímabili. „Heimilishapp" Hagkaups ÞESSA dagana stendur yfir í verslunum Hagkaups svokall- að „heimilishapp“ Hagkaups. Með hverri kippu af 2 lítra gosi frá Vífilfelli fylgir spurn- ingaseðill með 3 spurningum. í lok hverrar viku er dregið úr réttum lausnum og eru verðlaunin Pasta og sósa frá Batchelor ÚRVALIÐ af tilbúnum réttum í stórmörkuðum er alltaf að aukast og nýlega var verið að kynna pasta og sósu í einum pakka frá Batchelor. Þessir skyndiréttir frá Batchelor innihalda allt nema nauðsynlegan vökva og smjör og á tíu til fimmt- án mínútum er máltíðin tilbúin. Fáanlegar eru sjö tegundir af pasta og að sögn innflytjanda virð- 25 gjafakort með 10.000 króna vöruúttekt og 100 tveggja lítra goskippur. Stendur leikurinn yfir í 3 vikur. í lokin verður dregin út lokavinningurinn, ferð fyrir alla fjölskylduna til Disney World. Innifalið er flug, hótel , bíll og Disney passi sem gildir í fjóra daga. ■ ist jurta- og hvítlaukspasta ein- hverra hluta vegna höfða mest til fólks á höfuðborgarsvæðinu en sterka pastað með tómatbragði til landsbyggðarinnar. ■ VIÐEYJARSTOFA fyrir smærri og stærri hópa qK£> Eftirminnileg ferð fyrir stórfjölskylduna, starfsmannafélögin, niðjamótin, átthagasamtökin, félagssamtökin og alla hina hópana. <=Xs> í hinni sögufrægu Viðeyjarstofu „Slotinu", er rekinn vandaður veitingastaður. Par svigna borðin undan krásunum, rétt eins og þau gerðu fyrir 200 árum. Matseðillinn og matreiðslan er þó með öðrum hætti en þá var. Q>(9 i Má freista ykkar með ævintýralegri ferð og sælkeramáltíð á góðu verði! Sigling út í Viðey tekur aðeins 5 mínútur á afar geðþekkum báti. q)(^ Upplýsingar og borðapantanir í símum 6219 34 og 6810 45 Utfararkostnaður getur numið allt að hálfri milljón kr. ÚTFARARKOSTNAÐUR saman- stendur af mörgum þáttum og getur numið allt frá 100 þúsund- um og upp í 190 þúsund ef frá er talin erfidrykkja. Sé hún með- talin getur heildarkostnaður num- ið allt að hálfri milljón króna mið- að við algengan fjölda kirkjugesta við hverja jarðarför. Algengustu kisturnar eru hvítmál- aðar, smíðaðar hérlendis. Útfarar- þjónustan býður kistur, sem kosta 38.500 kr. og hollenskar eikarkistur á 63.000 kr. Kistur frá Líkkistu- vinnustofu Eyvindar Ámasonar kosta 46.762 kr. Útfararþjónusta Kirkjugarða Reykjavíkur er með fjór- ar tegundir af líkkistum, frá 27.177 til 97.150 kr., en langalgengust er kista, sem smíðuð er á verkstæði Kirkjugarðanna og kostar 38.945 kr. Innifalið í verði er líkklæði, sæng, koddi og blæja. Þijár útfararþjónustur eru starf- ræktar í Reykjavík sem aðstoða að- standendur við alla skipulagningu sé þess óskað auk þess sem starfssvið þeirra er m.a. kistulagning, flutning- ur til og frá kirkju, útvegun prests, organista og söngfólks og blóma- skreytingar svo eitthvað sé nefnt. Þjónustugjald útfararstofnana er mismikið. Rúnar Geirmundsson hjá Útfararþjónustunni segist taka 22.500 fyrir heildarpakkann. Davíð Ósvaldsson segir þjónustugjaldið misjafnt eftir því hvaða verk væri unnið, en algengur kostnaður við jarðarför væri 140 þúsund kr. með öllu fyrir utan erfidrykkju. Þjónustu- gjald Útfararþjónustu Kirkjugarða Reykjavíkur hækkaði úr 22.000 í 36.500 krónur síðastliðinn föstudag til þess að þjónustan standi undir eigin rekstri. Samkvæmt nýlegum lögum greiða aðstandendur ekki iengur prestum beint fyrir útfarir, heldur eru greiðsl- urnar innifaldar í kirkjugarðsgjöld- um. Á sama tíma og breytingin gekk í gildi sl. vor hækkaði útfararþjón- usta presta úr 8.800 kr. í 12.200. Tónlistarþátturinn getur numið allt frá 30 þúsundum og upp I 50 þúsund og fer eftir því hvort eingöngu er kór og organisti, eða við bætist ein- söngvari eða einleikari. Verð á blóm- um og krönsum í blómaverslunum er mjög svipað, eftir því sem Dag- legt líf kemst næst. Kistuskreytingar kosta 11 til 13 þúsund og kransar 14 til 16 þúsund. Blóm I vasa á alt- ari kosta um 4 þúsund krónur. Kostn- aður við prentun á sálmum nemur um 13 þúsundum króna. Ein andl- áts- eða jarðarfaratilkynning í Morg- unblaðinu kostar 3.300 kr., en 7.400 sé hún með rhynd. Og í útvarpi kosta andláts- og jarðarfarartilkynningar 2.800 til 6.000 kr. eftir því hversu oft er lesið. Að sögn Rúnars Géir- mundssonar hjá Útfararþjónustunni ræðst aukin kostnaður fyrst og fremst af því hvers aðstandendur óska í tónlistarflutningi og blóma- skreytingum. Algengt er að stéttarfélög greiði dánarbætur, sem hugsaðar eru sem útfararstyrkur. Sem dæmi má nefna greiðir sjúkrasjóður VR 219.767 kr. í dánarbætur fyrir fullgildan félags- mann. Eftirlifandi maki fær 146.512 kr. og ef um er að ræða börn undir 21 árs aldri bætast við 36.328 kr. fyrir hvert barn. ■ Erfidrykkjan er stærsti kostnaðarliðurinn MISMUNANDI er hversu margir eru viðstaddir jarðarfarir hverju sinni. Skv. upplýsingum Daglegs lífs er algengt að við jarðarfarir sitji á kirkjubekkjum 200-300 manns þó fjöldi kirkjugesta geti verið frá 75 og upp í 600. Algengt er að nánustu aðstandendur hins látna bjóði í erfidrykkju að jarðar- för lokinni sem þýðir að leigja þarf sal með tilheyrandi þjónustu og kaffihlaðborði. Verð er misjafnt á kaffihlaðborð- um, en hótel og veitingastaðir eiga það sameiginlegt að reikna verðið miðað við þá hausatölu, sem gæðir sér á veitingunum. Þannig er algengt að kaffihlaðborð á hvern mann kosti öðru hvoru megin við 1000 krónurn- ar sem þýðir 200-300 þús. kr. komi 200-300 manns í erfidrykkjuna, eins og algengt er. Flestir þeir veitinga- staðir, sem Daglegt líf hafði samband við, buðu aðeins upp á eitt verð, óháð fjölda gesta. Hótel KEA á Akur- eyri tekur hinsvegar 950 kr. fyrir manninn upp að 100 manns, en 880 fari fjöldi gesta yfir þá tölu. Að sama skapi má ræða afslátt hjá Arnól hf. fari gestir yfir 100. Tíu til tólf tegundir eru algengar á kaffihlaðborðum hótela og veit- ingahúsa, t.d. rjómatertur, marsi- pantertur, súkkulaðitertur, púður- sykurtertur, döðlutertur, jólakökur og aðrar þurrkökur, flatbrauð með hangikjöti, sykur- og ijómapönnu- kökur, 2-3 tegundir af brauðtertum, fjórar til fimm snittutegundir og stundum eru heitir brauðréttir hluti af kaffihlaðborðum. Rétt er að taka Hvað kostar erfi- \ drykkjan? í Reykjavík Kr./mann Arnól hf. 1.250 Holiday Inn 950-1.350 Hótel Borg 890 Hótel Holt 1.100-1.575 Hótel Loftleiðir 895 Hótel Saga 980 Perlan 950 Hótel ísafjörður 850-1.150 Hótel KEA, Akureyr 880-950 Hótel Valaskjálf, Egilsstöðum 800-1.100 fram að hér er eingöngu gerður sam- anburður á verðum án tillits til gæða og þjónustu. Hótel Loftleiðir og Hótel Saga aðgreina erfidrykkjur frá öðrum mannamótum í verðlagi. Kostar kaffihlaðborð í erfídrykkju 895 kr. á manninn á Hótel Loftleiðum, en væri þar pantað kaffihlaðborð í til- efni af afmæli, fermingarveislu, ætt- armóts eða brúðkaups kostaði kaffi- hlaðborð 1.095 kr. á manninn. „Uppi- staðan á hlaðborðunum er mjög svip- uð þó verðin séu ekki eins, en það verður að segjast eins og er að veit- ingar eru mun minni í erfidrykkjum en öðrum veislum, einfaldlega vegna þess að fólk stoppar styttra við í erfídrykkjum. Að meðaltali stoppar það einn til einn og hálfan tíma í erfidrykkju og fer að meðídtali í eitt og hálft skipti að borðinu. í afmælum og ættarmótum stoppar fólk mun lengur og fer tvisvar til þrisvar í hlaðborðið. I þessu liggur verðmun- urinn,“ segir Haukur Ragnarsson, veitingastjóri á Hótel Loftleiðum. Ódýrari kostur Að sögn veitingastjóra hótela og veitingahúsa eru ekki leigðir út salir eingöngu án þjónustu og meðlætis og ekki er fólki leyfilegt að koma með eigið meðlæti. Áftur á móti leyfa safnaðarheimilin slíkt og hafa erfi- drykkjur í safnaðarheimilum færst í vöxt. í safnaðarheimili Langholtskirkju eru t.d. tveir salir. Annar tekur 60 manns í sæti og er leigan á honum 7.000 kr. Hinn tekur 130 manns í sæti og er á 11.500 kr. Aðstandend- ur geta alfarið séð um matföng sjálf- ir eða pantað allt sem til þarf á staðn- um. Hinsvegar er skilyrði að þjón- ustufólk sé hússins. Ef fólk kýs að panta allt sem til þarf í erfidrykkju, þar með talið meðlæti, kostar erfi- drykkjan sem svarar 700 kr. á mann sé miðað við 100 manns. Verðið fer hinsvegar lækkandi hlutfallslega eft- ir því sem fleiri eru og miðað við 200-300 manna erfídrykkju eru 600 kr. á rnann ekki fjarri lagi, skv. upp- lýsingum Daglegs lífs. Hundar í öryggisbelti NÚ GETA hundar setið í öryggisbeltum er þeir fara í bíltúr með eigendum sínum. Belt- in eru meira að segja fáanleg í íslenskum gæludýraverslunum. Beltin eru hönnuð fyrir hunda í öllum stærð- um, frá litlum kjölturökkum upp í Stóra Dana og St. Bernharðshunda, sem eru um 70-80 sentí- metra háir. Í Gullfiskabúðinni, sem nýlega flutti á Laugaveg í Reykjavík, rakst Daglegt líf á ör- yggisbeltin og var tjáð af afgreiðslumanni að þau seldust býsna vel. Hundaeigendur vildu tryggja öryggi allra farþega, hvort sem þeir væru tví-eða fjórfættir. Beltin kosta um 1.500 krónur ■

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.