Morgunblaðið - 07.10.1993, Side 23

Morgunblaðið - 07.10.1993, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LIF FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 1993 23 Prótein- og kalkrík, fitulaus og vítammbætt fjörmjólk á markaðinn frá MS Mjólkursamsalan í Reykjavík hefur nú sett á markað nýja teg- und af mjólk, sem hlotið hefur nafnið Fjörmjólk. Um er að ræða nær fitulausa og vítamínbætta mjólk, ríka af próteini og kalki. Bætist hún við þær tegundir mjólkur, sem fyrir eru, nýmjólk, undanrennu og léttmjólk. Hér er ennfremur um að ræða fyrstu nýjungina á mjólkurdrykkja- markaðnum frá því léttmjólkin kom fram árið 1981. Fjörmjólk er A- og D-vítamínbætt mjólk, auðug af próteini og kalki. Hafin var framleiðsla á Fjörmjólk í fyrradag þegar Guðlaugur Björg- vinsson, forstj. Mjólkursamsölunn- ar, ræsti pökkunarvélar en þessi nýja afurð hefur verið í stöðugri Guðlaugur Björgvinsson, for- stjóri Mjólkursamsölunnar, með fyrsta lítrann af fjörmjólk. þróun hátt á þriðja ár. Að sögn forsvarsmanna MS á þessi nýja mjólkurafurð að verða kjördrykkur fólks, sem hugsar vel um heilsu og útlit, eða eins og þeir orða það: „Fjörmjóíkin verður drykkur dags- ins hjá mörgum“. Fjörmjólkin líkist léttmjólk hvað varðar lit og bragð en er fitulítil eins og undanrenna. Fjörmjólkin er auðug af A-, B- og D-vítamínum og hún er 24% kalkríkari og 30% próteinríkari en önnur mjólk. í þremur glösum af Fjörmjólk er nægur dagskammtur af kalki og tæpur þriðjungur af D-vítamínþörf- inni, að sögn Einars Matthíassonar, framkvæmdastjóra vöru- og tækni- þróunarsviðs Mjólkursamsölunnar. „Drykkjarvörumarkaðurinn á ís- A vítamín er í fjörmjólkinni að því marki sem það er í nýmjólk, en D-vítamínið er um það bil tífaldað. Fjörmjólkin inniheldur um það bil 25% meira kalk en venjuleg mjólk og í þremur glösum af fjörmjólk er nægur dagskammtur af kalki. Fjörmjólkin er um það bil 30% prótein- ríkari en nýmjólk og léttmjólk. landi hefur breyst mjög á síðustu árum. Yngra fólkið neytir nú mun meiri gosdrykkja en áður var og neysla hefðbundinnar mjólkur hefur dregist saman miðað við fólksfjölda. í könnun Manneldis- ráðs hefur m.a. komið fram að um fjórðungur kvenna fær innan við ráðlagðan dagskammt af kalki og neysla D- vítamíns, sem hjálpar likamanum að vinna það úr fæðunni, sé of lítil í fæðu margra landsmanna. Uppal- endur og manneldis- fræðingar hafa áhyggjur af þessari þróun og flestir eru sammála um að nauð- synlegt sé að spyrna við fótum og stuðla að aukinni neyslu bæti- efnaríkra drykkja, að sögn Einars Matthías- sonar, frkvstj. vöru- þróunarsviðis. Að sögn Baldurs Jónssonar, frakvstj. sölu- og markaðssviðs, hyggjast framleiðend- ur styrkja samkeppnis- stöðu mjólkurinnar gagnvart öðrum drykkjum með Fjörmjólkinni og koma um leið til móts við þá fjöl- mörgu sem kjósa breyttan lífsstíl með neyslu léttra mjólkurdrykkja. i Gildir til 30. október ‘93 Gildir til 30. október ‘93 Gildir til 31. október ‘93 Gildir til 30. október ‘93 Gildirtil 15. október ‘93 Gildir til 15. október'93 & ,,ov osu Gildir til 18. október ‘93 »Vx <=■ Gildir til 1. nóvember ‘93 \ 'o _ ______________ ■ V°S°' Gildir til 15. október '93 ^ áP.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.