Morgunblaðið - 07.10.1993, Qupperneq 32
32
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. OKTOBER 1993
RADAUGl YSINGAR
v».
Umboðsmenn
óskast
Bolungarvík, Grundarfjörður, Reyðarfjörður,
Fáskrúðsfjörður og Helgalandshverfi
í Mosfellsbæ.
Upplýsingar í síma 691113.
Lögfræðingur
Lögfræðingur óskast til starfa hálfan eða
allan daginn, tímabundið fram að áramótum.
Um framtíðarstarf gæti verið að ræða.
Starfið felst í þjónustu við félagsmenn hags-
munasamtaka og fleira.
Öllum umsóknum verður svarað.
Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl.,
merktar: „L - 4758“.
Þroskaþjálfar
Framhaldsaðalfundur Félags þroskaþjálfa
verður haldinn fimmtudaginn 28. október
1993 kl. 20.30 á Grettisgötu 89, 3. hæð.
Dagskrá:
• Kosning í stjórn og nefndir.
• Framhaldsumræður um stofnun stéttar-
félags.
• Breytingar á siðareglum.
• Önnur mál.
Stjórnin.
Við útvegum frá Þýskalandi
★ Nýjar og notaðar vélar og tæki.
★ Notaða bíla, vinnuvélar og varahluti.
★ Alls konar vörupartí.
Trompvörur,
Freyjugötu 1, Reykjavík,
sími - fax 91-18542.
Félagsmálafulltrúi
Siglufjarðarkaupstaður óskar eftir því að ráða
félagsmálafulltrúa í 50% stöðu.
Frekari upplýsingar um starfið veitir undirrit-
aður á bæjarskrifstofu eða í síma 96-71700.
Umsóknir skulu berast fyrir 15. þ.m.
Bæjarstjórinn á Siglufirði,
pósthólf210,
580 Siglufirði.
Sölufólk
Fróði hf. leitar að kraftmiklu sölufólki í síma-
sölu á kvöldin. Föst laun + sölulaun í boði.
Nánari upplýsingar í síma 685380.
FRÓDI
BÓKA & BLAÐAÚTGÁFA
Ármúla 18,
108 Reykjavík.
Til leigu
130 fm gott atvinnuhúsnæði við Höfða-
bakka. Mjög snyrtilegt húsnæði með góðum
innkeyrsludyrum.
Upplýsingar í síma 673830.
Greiðsluáskorun
Hér með er skorað á gjaldendur í Ölfus-
hreppi að gera nú þegar skil á ógreiddum
gjöldum til sveitarsjóðs Ölfushrepps og
stofnana hans, sem gjaldféllu fyrir 1. október
1993.
Um er að ræða eftirfarandi: Útsvar, aðstöðu-
gjöld, fasteignaskatt, sorphirðugjald, lóðar-
leigu, gatnagerðargjöld, hundaleyfisgjald,
hafnargjöld, vatnsskatt, gjöld fyrir heitt vatn,
leikskólagjöld og reikninga áhaldahúss.
Hafi gjöldin ekki verið greidd innan 15 (fimmt-
án daga) frá dagsetningu þessarar áskorunar
má við því búast að fjárnáms verið krafist
hjá skuldurum án frekari fyrirvara.
Þorlákshöfn, 7. október 1993.
Sveitarstjóri Ölfushrepps.
KÓPAVOGSBÆR
Nónhæð - breytt deili-
skipulag við Gullsmára
Tillaga að breyttu deiliskipulagi á Nónhæð,
nánar tiltekið við Gullsmára (reitir 12, 13 og
14), auglýsist hér með samkvæmt grein 4.4
í skipulagsreglugerð nr. 318/1985.
í breytingunni felst m.a. eftirfarandi:
Við Gullsmára 1, 3 og 5 (reitur 12) er í tillög-
unni gert ráð fyrir 3 stakstæðum íbúðarhús-
um (2 þriggja hæða og 1 átta hæða) með
54 íbúðum samtals. Áætlað byggingarmagn
5.800 fm.
Við Gullsmára 7, 9 og 11 (reitur 13) er í tillög-
unni gert ráð fyrir 3 stakstæðum húsum (8,
10 og 12 hæða) með samanlagt 120 íbúðum
fyrir aldraða ásamt möguleika á þjónustu-
miðstöð fyrir aldraða. Áætlað byggingar-
magn 13.500 fm.
Við Gullsmára 2, 4, 6, 8 og 10 (reitur 14) er
í tillögunni gert ráð fyrir 5 stakstæðum íbúð-
arhúsum (3 þriggja hæða, 1 fimm haeða og
1 sex hæða með samtals 78 íbúðum. Áætlað
byggingarmagn 9.200 fm.
Deiliskipulagsuppsdráttur í mkv. 1.500,
ásamt skipulagsskilmálum og líkani verða til
sýnis á Bæjarskipulagi Kópavogs, Fannborg
2, 4. hæð, frá kl. 9.00 til 15.00 alla virka
daga frá 7. október til 4. nóvember 1993.
Athugasemdir eða ábendingar, ef einhverjar
eru, skal skila skriflega til Bæjaskipulags inn-
an auglýsts kynningartíma.
Skipulagsstjóri Kópavogs.
SJÁLFSTÆDISFLOKKURINN
!• Ý. I. A (i S S T A R F
AHAND UN(
f s T/EOISMA
Ræðunámskeið
fyrir ungar konur
Ungar konu í Sjálfstæðisflokknum standa fyrir ræðunámskeiði í Val-
höll dagana 12. og 14. október kl. 20.00.
Leiðbeinendur: Gísli Blöndal, Elsa B. Valsdóttir og Jón Kristinn
Snæhólm.
Þátttakendur skrái sig á skrifstofu SUS hjá Þóri Kjartanssyni, fram-
kvæmdastjóra SUS, í síma 682900 eða 686216.
Öllum er velkomið að vera með og kostnaður er enginn.
auglýsingar
Góðtemplarahúsið,
Hafnarfirði
Félagsvist í kvöld, fimmtudaginn
7. október. Byrjum að spila
kl. 20.30 stundvíslega.
Allir velkomnir.
Frá Sálarrannsókna-
félagi íslands
Hið vinsaela nám-
skeið Helgu Sig-
urðardóttur
„í litum Ijóss hug-
ar og handa"
verður haldiö
föstudagskvöldið
8. okt. og laugar-
daginn 9. okt.
Bókanir eru hafnar í símum
félagsins 618130 og 18130.
Stjórnin.
St. St. 5993100719 VIII
I.O.O.F. 5 = 1751078V2 = Br.
I.O.O.F. 11 = 1751007872 =
UTIVIST
[Hallveigarstig 1 • simt 614330
Helgarferð 9.-10. okt.
Fimmvörðuháls. Síðasta ferðin
yfir Fimmvörðuháls á þessu ári.
Fararstjóri Bóthildur Sveinsdóttir.
Nánari upplýsingar og miðasala
á skrifstofu Útivistar.
Dagsferð sunnud. 10. okt.
Kl. 10.30. Þingvallagangan
5. áfangi. Skógarkotsvegur.
Útivist.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Biblíulestur kl. 20.30.
Ræðumaður Frank Martin frá
Memphis, USA.
Allir hjartanlega velkomnir.
Hjálpræðis-
herinn
Kirkjustræti 2
Fimmtudagur kl. 20.30:
Lofgjörðarsamkoma.
Sunnudagur kl. 11.00:
Fjölskyldusamkoma.
Kl. 20.00: Hjálpræöissamkoma.
Foringjar frá Færeyjum taka þátt
í þessum samkomum.
Mánudagur kl. 16.00:
Heimilasamband.
Hjartanlega vejkomin á Hjálp-
ræðisherinn.
Spíritistafélag íslands
Anna Carla Yngvadóttir, miðill,
verður með einkatíma í lækning-
um og fyrri lifum. Einnig er
spámiðili og talnaspekningur.
Heilunarnuddarinn og hug-
læknirinn Bibi Ólafsdóttir.
Sími 40734.
Orð lífsins,
Grensásvegi 8
Almenn samkoma í kvöld kl.
20.30. Allir hjartanlega velkomnir!
fnmhjólp
I kvöld kl. 20.30 veröur bæna-
samkoma í Þríbúðum, Hverfis-
götu 42. Allir velkomnir.
Samhjálp.
Aglow kristileg
samtök kvenna athugið!
Októberfundurinn verður hald-
inn 14. október í Sóknarsalnum,
Skipholti 50a, kl. 20.00.
Gestur fundarinns verður
Guðný R. Jónasdóttir.
Allar konur eru velkomnar.
Þátttökugjald 300 kr.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 - SÍMI 682533
Ferðir um helginga:
Haustlitaferð íÞórsmörk 8.-10.
október. Brottför föstudaginn
kl. 20. Gönguferöir. Síðasta
haustlitaferðin í ár. Góð gisting
í Skagfjörðsskála, Langadal.
Hagstætt verð. Síðasta sunnu-
dagsferðin í Þórsmörk verður
10. okt. kl. 8.00.
Emstrur-Þórsmörk 9.-10. okt.
Brottför laugardag kl. 8. Ekiö inn
á Emstrur, Markarfljótsgljúfur
skoðuð og síðan gengið um Al-
menninga til Þórsmerkur, að
hluta um minna þekktar slóðir
utan „Laugavegarins". Gist í
Skagfjörðsskála. Uppl. og pant-
anir á skrifst. Mörkinni 6.
Laugardagur 9. okt.
Kl. 8 Fljótshlíð-Markarfljóts-
gljúfur, haustlitaferð. M.a. út-
sýni yfir til Þórsmerkur þar sem
haustlitirnir eru í algleymingi.
Markarfljótsgljúfrin eru með
mikilfenglegustu gljúfrum, allt að
200 m á dýpt. Verð 2.500,- kr.
Brottför frá BSÍ, austanmegin
og Mörkinni 6. Einstök ferð.
Ferðafélag Islands.
\T=77
KFUM
V
Aðaldeild KFUM
Holtavegi
Fyrsti fundur vetrarins verður í
kvöld á jarðhæð nýbyggingar-
innar við Holtaveg kl. 20.30.
Jóhannes Ingibjartsson, formað-
ur Landssambands KFUM og
KFUK, sér um fundarefniö:
„Sameiginlegt markmið."
Allir karlmenn velkomnir.