Morgunblaðið - 07.10.1993, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 1993
35
Ide hjá MITI: „Það er greinilegt
að fjölmiðlar hafa í mörgum lönd-
um haft ríka tilhneigingu til þess
að taka afstöðu með Grænfriðung-
um gegn fjölmiðlum, án þess að
kynna sér á vísindalegan hátt
hversu mikið væri óhætt að veiða,
án þess að hvalastofnar væru í
útrýmingarhættu. Fjölmiðlarnir
hafa margir, og þá ekki síst sjón-
varpsstöðvar, höfðað gagnrýni-
laust til tilfinninga fólks og kynt
undir þeirri andstöðu sem Græn-
friðungum hefur tekist að mynda
gegn hvalveiðum. Við slíkt er ekki
auðvelt að kljást.“
Hann segist þó vita til þess að
ákveðnir fjölmiðlar bæði í Evrópu
og Bandaríkjunum hafi lýst þeirri
skoðun sinni að um þetta mál beri
að íjalla af skynsemi og með rök-
um, en ekki af tilfinningahita ein-
um. Hann kveðst vona að slík af-
staða geti á endanum skilað sér í
auknum skilningi almennings,
hvar sem er í heiminum, á því að
hér sé um atvinnugrein að tefla,
sem svo margir hafi átt allt sitt
undir. Þetta gæti að mati Ide leitt
til þess að Alþjóðahvalveiðiráðið
færi að líta hlutlægar á hvalveiðar
og hætti að láta einvörðungu
stjórnast af huglægu mati. „Við
erum ekki sérlega svartsýnir í
þessum efnum,“ segir Ide, „en við
erum ekki heldur bjartsýnir.“
Háttsettur embættismaður jap-
anska utanríkisráðuneytisins,
Koichiro Seki, forstöðumaður fisk-
veiðideildar japanska utanríkis-
ráðunejrtisins, tekur í sama streng
og Ide. Hann segir að þótt hann
sé í hópi fjölmargra Japana sem
gjarnan vildu að hvalveiðar hæfust
á ný, þar sem vemdarsjónarmiða
væri gætt, þá hafi tilraunir japan-
skra stjórnvalda til þess að leita
eftir samkomulagi við aðrar þjóð-
ir, sérstaklega Bandaríkin, svo og
Alþjóðahvalveiðiráðið, enn ekki
borið neinn árangur í þá veru að
unnt sé að hefja veiðar.
Skynsamleg nýting
— ekki rányrkja
„Auðvitað telja flestir Japanir
að eðlilegt sé að strandríki og
eyþjóðir geti nýtt þær auðlindir
sem í þeirra lögsögu eru, hverrar
gerðar sem þær svo eru. Þá er ég
að tala um nýtingu innan skyn-
samlegra marka, en ekki rányrkju.
Hvalkjötsneysla í Japan á sér alda-
gamla hefð að baki, og það er
ins, en við skiljum afstöðu ykkar.“
íslendingar eiga að hefja
hvalveiðar
„Fyrst þið völduð þá hörðu af-
stöðu senr lýsti sér í úrsögn úr
Alþjóðahvalveiðiráðinu, er ég
þeirrar skoðunar að þið ættuð að
fylgja henni eftir með því að heija
hvalveiðar. Aðeins þannig hefur
úrsögn ykkar einhveija þýðingu,
auk þess sem hvalveiðar ykkar
ásamt hvalveiðum Norðmanna
geta rutt brautina fyrir aðra hval-
fangara," segir Abe.
Þremenningarnir segja það
samskonar áhyggjuefni í Japan
og á íslandi hversu mikirin fisk
hvalurinn étur og telja að hluta
til að hvalurinn sé ábyrgur fyrir
minni fiskgengd í landhelgi land-
anna.
Azumi, bæjarstjóri í Ayukawa,
segir að hvalveiðibannið hafi haft
mjög alvarleg áhrif á atvinnulíf
bæjarins. „Að vísu höfum við haf-
ið ostrueldi í kvíum, svo og silfur-
laxeldi og álaeldi, en atvinnulífið
er ekki svipur hjá sjón miðað við
það sem áður var. Hér bjuggu um
13 þúsund manns þar til fyrir um
sex árum, en íbúatalan er nú að-
eins 7 þúsund manns, þannig að
nærri lætur að helmingur íbúanna
hafi flust á brott. Þetta er mikil
blóðtaka, þar sem það eru einkum
þeir sem yngri eru sem hafa leitað
annað og meðalaldur íbúanna hef-
ur í kjölfar þessa stórhækkað,“
segir Azumi.
Yojiro Toba segir áður en við
ljúkum spjalli okkar að hann sem
forstjóri Toba-fyrirtækisins vilji
biðja blaðamann Morgunblaðsins
fyrir þau skilaboð sín til lesenda
að þótt Japan sé efnahagslegt
stórveldi í augum heimsins, þá séu
margir í Japan, sérstaklega fólk
fjarri stórborgunum, sem horfi
einungis til sjávar til þess að afla
sér lífsviðurværis. „Hér eru sjó-
menn sem enga atvinnu geta feng-
ið aðra en sjómennsku. í þeirra
hópi eru margir hvalfangarar, sem
hafa algjörlega farið á mis við
hinn mikla hagvöxt þessa lands.
Við vitum að efnahagur íslendinga
byggist mikið á sjávarfangi, og
því er ég viss um að þeir skilja
þann vanda sem að þessum mönn-
um steðjar. Því væri það mjög í
þeirra þágu, ef Islendingar hæfu
hvalveiðar á ný,“ segir Yojiro
Toba.
Kvíaeldi margs konar er á tilraunastigi í Ayukawa, þar sem íbúarnir reyna að þróa nýjar atvinnugreinar
til þess að taka við af undirstöðuatvinnugreininni sem var, hvalveiðum. Hér má sjá kvíar þar sem ostru-
eldi fer fram, en jafnframt leggja þeir stund á kviaeldi silfurlax og ála.
Höfnin í Ayukawa iðaði áður fyrr af lífi, þar sem ein af aðalland-
stöðvum hvalveiðanna var þar í bæ. Nú er ekki mikið líf við höfn-
ina, en hér býr trillukarl sig undir dagróður.
miður að þessir fordómar Græn-
friðunga gagnvart svo sjálfsagðri
nýtingu skuli koma í veg fyrir
hana. Annars vil ég ekki útiloka
að hér geti orðið breyting á, því
samkvæmt þeim upplýsingum sem
okkur berast eru æ fleiri vestræn-
ir fjölmiðlar að snúast í þessu
máli á þann veg, að sjálfbær nýt-
ing, byggð á vísindalegu mati og
þekkingu á lífkeðju hafsins, sé sá
útgangspunktur sem eigi að
stjórna ákvarðanatökunni, en ekki
tilfinningaleg afstaða, hvorki Al-
þjóðahvalveiðiráðsins né Græn-
friðunga," segir Seki.
Þegar hvalveiðar í Japan voru
umsvifamikil atvinnugrein, fóru
stór móðurskip á miðin við Suður-
skautslandið, eða norður eftir,
ásamt fjölda minni skipa. Þá voru
sjö slíkir hvalveiðiflotar á höfunum
og í hveijum flota voru 3-5 þús-
und manns. Þetta vora úthafshval-
veiðiflotar Japana. í annan stað
voru um 15 landhvalveiðistöðvar
í Japan, meðfram strandlengjunni
að Kyrrahafinu, norðarlega í Jap-
an og ein slíkra aðalstöðva var í
Ayukawa, en þaðan voru einnig
stundaðar hvalveiðar einyrkjanna.
í Ayukawa hitti ég að máli þá
Toshihiko Abe, stjórnarformann
Japan Small Scale Whaling Assoc-
iation (sem gæti útlagst eitthvað
í þessa veru: Samtök hvalfangara
í Japan, þ.e.a.s. einyrkja en ekki
hvalveiðifyrirtækja), Yojiro Toba,
forstjóra Toba-hvalveiðifyrirtæk-
isins, og Shigehiko Azumi, bæjar-
stjóra í Ayukawa. Abe og Toba
eiga sæti í Alþjóðahvalveiðiráðinu
fyrir Japans hönd og sækja reglu-
lega fundi þess.
„Það er ekki hægt að styðja
áframhaldandi hvalveiðibann nein-
um vísindalegum rökum,“ segir
Abe, „og ég tel afar mikilvægt að
því verði aflétt hið fyrsta. Japansk-
ir hvalfangarar myndu vissulega
fagna slíkri ákvörðun, en hún er
því miður ekki á okkar valdi. Þær
vísindaveiðar sem heimilaðar eru,
era náttúrlega engan veginn full-
nægjandi, hvorki fyrir ykkur né
okkur. Japan hefur heimild til þess
að veiða 20 tonn á ári af hrefnu,
sem er jú nánast ekki neitt. Gagn-
stætt ykkur íslendingum völdum
við þann kost að vera áfram í IWC
(Alþjóðahvalveiðiráðinu) og beij-
ast fyrir málstað okkar innan ráðs-
með svipaðan stigafjölda nema þær
hafi spilað saman áður.
Spilatími er laugardagur frá kl. 11
og til u.þ.b. 19.30 og sunnudagur frá
kl. 11 til u.þ.b. 17.
Reglur fyrir þátttakendur eru þær
að spilarar verða að vinna hjá þeim
fyrirtækjum sem þeir spila fyrir og
óleyfilegt er að reyna að styrkja sveit-
irnar með aðila óviðkomandi fyrirtæk-
inu. Þetta er keppni fyrir vinnustaða-
spilara og tilvalið tækifæri til að
spreyta sig á keppnisbridsinum. Spilað
verður í Sigtúni 9. Gullstig eru gefin
fyrir hvern leik. Keppnisgjald er
15.000 á sveit. Núverandi firmameist-
arar er sveit Dagblaðsins.
Vetrar-Mitchell BSÍ
Föstudaginn 1. október var spilaður
eins kvölds tvímenningur með þátt-
töku 34 para. Spilaður var tölvureikn-
aður Mitchell méð 15 umferðum og
tveimur spilum á milli para. Meðalskor
var 420 og efstu pör voru:
NS
Óli Bjöm Gunnarsson - Valdimar Elíasson 514
Þórður Sigfússon - Jón Þór Daníelsson 475
FriðrikJónsson-TómasSiguijónsson 462
AV
Ásgeir H. Sigurðsson - Andrés Ásgeirsson 492
Auðunn R. Guðmundsson - Leifur Kristjánsson471
ísakÖmSigurðsson-HallurSimonarson 468
Vetrar-Mitchell er spilaður öll föstu-
dagskvöld í húsi Bridssambandsins og
byijar stundvíslega kl. 19.30
Félag eldri borgara í
Reykjavík og nágrenni
30. september
Sigurleifur Guðjónss. - Júlíus Ingibergss. 221
Vilhjálmur Guðm. - Kristinn Magnúss. 191
Eyjóifur Halldórss. - Þorleifur Þórarinss. 188
Meðalskor 165 st.
3. október byijaði 5 daga keppni í
tvímenningi.
Eggert Einarsson - Karl Adolfsson 132
Samúel Samúelsson - Jón Hermannsson 123
ÞorieifurÞórarinss. - Gunnþórunn Erlingsd.114
Meðalskor 108 st.
Bridsfélag Suðurnesja
Nú er lokið tveimur umferðum af
þremur í Butiertvímenningnum og
hafa félagarnir Gísi Torfason og
Jóhannes Sigurðsson tekið forystuna,
hlotið 187 stig, en meðalskor er 165.
Næstu pör:
BjömDúason-BirkirJónsson 185
Sturlaugur Ólafsson - Amar Amgrímsson 17 7
Vignir Sigursveinsson - Þorvaldur Finnsson 175
Eyþór Björgvinsson - Ingimar Sumarliðason 173
Síðasta umferðin verður spiluð nk.
mánudagskvöld í Hótel Kristínu kl.
19.45.
Happdrætti
Hjartaverndar
DRÖGUM 8. OKT.
Þú geturgreitt miðann
þinn með greiðslukorti
(D SÍMI 813947 m
Stærðir 31-46
5 litir
Verðfrá
Póstsendum samdægurs
BETRI
BÚÐIN
skoverslun
Akranesi. Sími 93-11165
STEPP
skóverslun
Borgarkringlunni,
sími 91-677267
SKÓVERSLUN
KÓPAV0GS
Hamrabori
sími
nraborn
91-41754