Morgunblaðið - 07.10.1993, Síða 38

Morgunblaðið - 07.10.1993, Síða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 1993 Pétur Ingi Þorgils- son — Minning Mig langar til að minnast góðs vinar míns Péturs Inga Þorgilsson- ar. Pétur lést af slysförum hinn 26. september. Pétur var mikill lista- maður og var það hans aðal svið. Pétur samdi mörg lög og var mjög kröfuharður um eigin lagasmíð. Einnig teiknaði Pétur mikið og var hann í Myndlista- og handíðaskóla Isiands og gekk ye!. Ég sakna Péturs og munu þær stundir sem við áttum saman seint gleymast. Ég sendi öllum ættingjum Péturs samúðarkveðjur mínar. Brynjar Már Ottósson. Fundum okkar Péturs bar fyrst saman í grunnskóla hér í borg og var það fyrir tilstuðlan gífurlegs tónlistaráhuga beggja. Upp frá því hélst mjög svo ánægjuleg vinátta allt til þess dags er hann lést. Pétur var einn af þeim sem verða að kallast „listamenn af Guðs náð“. Það var alveg saman hvert við- fangsefnið var, ávallt var um skap- andi afstöðu að ræða. Útgeislun hans einkenndist af gífurlegri glað- værð og lífsgleði hvort heldur var í blíðu eða stríðu, þetta var einfald- lega allt svo sjálfsagt. Hann var óhræddur við að viðra sínar skoðan- ir um málefni líðandi stundar eins og andinn blés honum í brjóst og vakti þannig bæði kátínu og um- ræðu meðal viðstaddra. Svo fram- andi gat hans þankagangur verið, að menn spurðu sjálfa sig undrandi hvar hans innblástur væri að fínna. Þær voru margar samverustund- imar sem ég varð þess heiðurs að- njótandi að fá að eiga með kappan- um, þar sem við annaðhvort sátum með hljóðfæri okkar við hönd eða ræddum um menn og málefni. Sök- um persónutöfra hópaðist að honum fólk og hann varð mjög vinamargur sem hann unni öllum vel. Það er og verður mönnum alltaf erfítt að missa vini sína, og sér í lagi þvf yngri sem þeir hverfa manni af braut. En burtséð frá manns eig- ingjömu ást á persónuleikum manna, megi minningin um góðan dreng og það sem hann gaf okkur verma sál okkar um ókomna tíð. Og að endingu votta ég aðstand- endum og vinum Péturs mína dýpstu samúð á þessum erfiðu tím- um. Bjarni Davíðsson. Kæri Pétur. Þín stutta ævi var stórbrotinn kokteill gáskafullra ævintýra og Vegna lasleika gat ég ekki fylgt Önnu Árnadóttur síðasta spölinn. Það hefði ég ella gert, því að hún átti það skilið af mér. Ég þekkti hana þó ekki mikið. Hafði raunar ekki séð hana í 33 ár þegar við hittumst í fámennri móttöku í ág- ústmánuði síðastliðnum. Hún vék sér að mér, heilsaði glaðlega og spurði hvort ég myndi eftir sér. Það þóttist ég gera, en var ekki alveg viss í minni sök og bað hana því að hjálpa mér að riija upp. „Ég var á Landakoti í eina tíð,“ sagði hún. Og þá mundi ég allt. Árið 1960, um vorið, veiktist fað- ir minn. Næstu mánuði lá hann öðru hverju á Landakoti þar sem hann lést í lok október það ár eftir að hafa átt þar sínar síðustu vikur. Og þar var Anna vökukona. Hún var okkur í fjölskyldunni ómetanleg og föður mínum einstaklega nær- gætin í erfíðustu veikindum hans. Margar nætumar var ég á Landa- koti þetta haust. Þar var oftast Anna, hæglát, en alltaf að hjálpa hinum sjúka. Ég gleymi aldrei hversu Ijúf og hjálpsöm hún var við mig og móður mína og systkini, og þó alveg sér- undarlegra uppátækja. Þér var ótrúlega margt gefið nema ef til vill bókvitið því að fyrir þér átti ekki að liggja að verða litlaus skrif- finnur. Manstu Pétur, bara í tímum hins háttvirta menntaskóla þá gast þú aldrei tekið heilstæðar glósur því að skrift þín krafðist svo mikill- ar natni að þú tapaðir ætíð þræðin- um í miðri kennslustund og gleymdir þér svo við að teikna myndir af Gulla gulrótarhaus og Stephan í draumalandi. Skapferli þitt, Pétur, kímnigáfa þín, snilligáfa þín á sviði myndlistar og tónlistar og já manngæskan, allt þetta sem og fleira gerði það að verkum að við bæði elskuðum þig og virtum. Þú ert sá yndisleg- asti maður og vinur sem við höfum nokkru sinni kynnst og er það ekki of fast að orði kveðið. Vinátta þín breytti okkur öllum; að hafa þekkt þig voru forréttindi. Ekki var til vottur af eigingirni né svartri hugs- un í sál þinni, Pétur, umgengni við þig gerði okkur alla að betri mönn- um. Það mun því alltaf lifa í hjarta okkar lítill Pétur sem kennir okkur að snúa hveijum hversdagslegum atburði upp í leik, lifa lífinu mátu- lega létt sem og að meta fegurð heimsins. Manstu til að mynda eftir laginu „Viltu dansa“ sem þú samdir í róðrafélagsferð svo við gætum vaskað upp eða öllum hinum árshá- tíðarlögunum sem styttu samnem- endum þínum í MR stundirnar í svartasta skammdeginu. Eða hin- um sérkennilega „twist“-dansi sem við svo margsinnis báðum þig að stíga til að létta á okkur lundina. Hvert sem þú fórst fylgdi þér lífs- gleði og drifkraftur svo að í hvert sinn sem við hittum þig tók hjartað kipp því að við gátum alltaf verið vissir um að eitthvað skemmtilegt væri í vændum. Manstu Pétur, eftir ógæfuleg- asta ketti í heimi, þeim sem þú hélst uppi úti í Portúgal. Það var lýsandi dæmi um þig og þína sið- ferðiskennd að síðustu dagana þeg- ar fjárráðin voru orðin heldur bág, þá eyddir þú seinustu aurunum þín- um í Whiskas-kattamat. Góð- mennska þín í garð dýra, þitt hreina siðferði og þín sterka réttlætis- kennd voru hlutir í fari þínu sem allir dáðust að. Eftir fyrstu fréttir af fráfalli þínu kom sorgin, en síðan fylltumst við vanmáttugri reiði. Því varst þú af öllum mönnum hrifínn burt frá staklega við föður minn. Þegar hann var borinn til grafar fylgdi Anna honum ásamt annarri vökukonu, sem ég man því miður ekki hver var. Mér er til efs að al- gengt sé að starfsfólk sjúkrahúsa geti gefið sér tíma til þess að fylgja til grafar þeim, sem hafa verið í umsjá þess síðustu ævistundirnar. En þetta vinarbragð sýndi Anna íjölskyldu minni og heiðraði með því minningu föður míns. Fyrir það er ég henni ævinlega þakklátur. Svo hittumst við í ágúst, óvænt eftir öll þessi ár. Skiptumst á nokkr- um orðum, en alltof fáum. Mig lang- aði til að koma til hennar kveðju eftir þennan fund okkar, ri§a upp einmitt það, sem ég hef nú sett hér á blað og þakka henni. En ég vissi ekki hvar hana væri að finna. Gerði því ráðstafanir til að hafa upp á heimilisfangi hennar, en fékk þá þær fregnir að nú væri hún látin. Ég varð því of seinn að segja henni í lifanda lífi það sem mig langaði til og hún átti inni hjá mér. En ég geri það nú. Guð blessi Önnu Ámadóttur og ættingja hennar. Ólafur G. Einarsson. okkur. Enginn var aðdragandinn og þú fórst einmitt á þeim tíma þegar allt gekk þér í haginn. Þú varst svo ánægður með að vera kominn inn í Myndlista- og hand- íðaskólann og við vorum allir svo stoltir af því hvað þér gekk vel. Að verða að manni er að rækta þá mannlegu eiginleika sem aðskil- ur okkur frá dýrum og þú ræktað- ir þá og þroskaðir svo vel að þú ert vafalaust mesti maður, það er sá mennskasti sem við höfum kynnst. Því er það svo að ef eitt- hvað er til fyrir handan þetta líf þá erum við sannfærðir um að þar ert þú, þér líði vel og vonum við bara að útsýnið sé fagurt á himn- urn. Saga þín mun að eilífu lifa og öll þín uppátæki og ævintýr gleym- ast aldrei. Freistandi væri að rita fleiri sögur af þér og gætum við haldið því áfram endalaust. Enda- laust gætum við rifjað upp dýrmæt- ar minningar og um leið gerum við okkur svo átakanlega grein fyrir því hversu sárt við söknum þín og munum gera. Þetta stóra skarð sem þú skildir eftir þig verður aldrei fyllt. Veistu Pétur, að minning þín mun lifa, tónlist þín ekki gleymast og myndir þínar ekki fölna, vina- hópur þinn mun sjá til þess. Við vottum Diddu, Þorgils, Ás- laugu sem og skyldfólki öllu okkar dýpstu samúð. Megi Guð styrkja ykkur í sorg ykkar. Einar Örn, Eyvindur, Ingimar, Páll Geir. Aldur er svo afstæður. Þegar við erum börn tengjumst við á annan hátt en þegar við fullorðnumst. Á bams- og unglingsárum er vináttan mjög sérstök. Þá erum við ákaflega háð vinum og skólafélögum og sá dagur líður vart að við sjáumst ekki og trúum hvert öðru fyrir öllu sem er að gerast og bijótast um í ungum kollum. Pétur var einn úr hópi bekkjarfé- laga á þessum árum. Hann var frændi minna bestu vinkvenna og var af þeim sökum mikið með okk- ur stelpunum. Við buðum hvort öðru heim og kölluðum það bekkjarpartý. Ég sem átti þá tvö heimili í Vesturbænum bæði hjá foreldrum mínum og ömmu hafði því oftar möguleika en hin. Pétur var ávallt hrókur alls fagnaðar þrátt fyrir að vera bæði hæglátur og yfirvegaður. Það var hann sem leysti úr ágreiningsmálum sem upp komu á sinn einstaka hátt. Aldrei var mótmælt og allir gátu sætt sig við þær lausnir sem hann lagði til. Mér finnst ég hafa þekkt hann mjög vel þá. Síðan hafa árin liðið og áhugamálin færst yfir á önnur svið. Það hefur því verið bein og eðlileg afleiðing, að við sem alltaf vorum saman fjarlægðumst hvort annað. Þannig var með vinahópinn í Mela- og Hagaskóla sem Pétur til- heyrði. Hann fór sína leið og ég mína, en ávallt vissum við hvort af öðru. Ég frétti af honum gegnum frænkur hans og móðir mín og amma spurðu gjaman um hann. Þær þekktu til fólksins hans, auk þess sem Pétur var sem smábarn í gæslu í kjallaranum á Kvisthagan- um hjá ömmu. Hjá henni var ég einnig á efri hæðinni á meðan móðir mín stundaði vinnu og víst hjöluðum við saman við leik á okk- ar fyrsta og öðru ári. Seinna þegar skólaárin hófust og Pétur ásamt hinum var heima hjá mér vissi mamma strax hver hann var. Þeir fullorðnu með reynsluna vita sínu viti þegar dæma skal um mann- kosti. Foreldramir eru oft fljótir að sjá hvað býr í hveijum einstakl- ingi og hvaða mannkosti þeir hafa til að bera — jafnvel þó að um ungan aldur.sé að ræða. Móðir mín var fljót að sjá Pétur út og var aldrei í vafa að úr honum yrði vel heppnaður einstaklingur. Sjálf var ég slíkt barn þá að ég hugsaði ekki lengra en um líðandi stund. Meðfædd eðlishvöt sagði mér þó að Pétur væri sérstakur. Hann var afar vel upp alinn af ömmu sinni Áslaugu, en stundum fannst okkur hún heldur ströng. Hann var listamaður af Guðs náð og fljótlega í barnaskóla teiknaði hann myndir sem voru framar því sem nokkurt okkar gat leikið eftir. Ég á vel geymda mynd sem Pétur teiknaði af mér á barnsaldri. Síðast hitti ég hann í tvítugsaf- mæli Ragnheiðar frænku, æskuvin- konu minnar og frænku hans fyrir rúmu ári og þegar við föðmuðumst og spjölluðum fannst mér ég hafa hitt hann síðast í gær. Þá fann ég hvað mér þótti vænt um hann og við töluðum um að hittast oftar. Mig grunaði ekki þá að ég væri að sjá hann í síðasta sinn hérna megin grafar en er ekki í vafa að við eigum eftir að endurnýja vinátt- una þó að síðar verði. Hafi Pétur þökk íýrir árin sem ég fékk að njóta samhliða honum á viðkvæmu skeiði lífs míns. Með eftirfarandi hendingu úr „Söknuði" ljóði Jónasar Hallgrímssonar lang- ar mig að kveðja Pétur. Löngum mun ég, fýr hin ljósa mynd, mér úr minni líði, á þá götu er þín ganga hlýtur, sorgarraun sjá. Foreldrum, ömmu og systrad- ætrum samhryggist ég innilega. Erna Sif Smáradóttir. Min ven han taler inte med mig. Og han kommer inte mer i dag. Svona líta fyrstu ljóðlínur lagsins „Kærligheden blomstrer" út, lag og texti er eftir Pétur Inga Þorgils- son og Kristján Eggertsson. Þó að þessar línur séu slitnar úr sam- hengi við upprunalegan tilgang og framhald lagsins sýna þær glögg- lega hvernig kaldhæðni örlaganna getur breytt hlátri í grát þegar minnst varir. Eftir er að kveðja kæran vin löngu fyrir tímann, en þó skal hans minnst með örfáum orðum, sem geta þó aldrei fyllilega lýst þeim sem við kveðjum. Rétt er að nefna að Pétri verður aldrei líkt við nokkurn mann, ein- ungis vegna þess að hann átti eng- an sinn líka. Pétur var mikill hæfileikamaður jafnt á sviði tónlistar sem myndlist- ar og færa verk hans okkur heim sanninn um það. Við, skólafélagar hans, nutum góðs af þeim hæfileik- um í félagslífi Menntaskólans í Reykjavík, en Pétur samdi nokkur af svokölluðum Árshátíðarlögum og hannaði auglýsingar og skreyt- ingar í tengslum við þær hátíðir. Geysileg vinna lá iðulega þar að baki. Pétur var þekktur fyrir góð- mennsku sína. Gott dæmi um það er nokkuð sem gerðist í ferð 5. bekkinga til Portúgals sumarið Lífíð er margbreytilegt og kemur við okkur mennina með margvísleg- um hætti. Það kemur í hugann nú þegar bekkjarbróðir minn Sverir Þórisson hefur verið kvaddur til lengri ferðar á besta aldri. Við höfuðum ekki hist oft síðustu 25 árin, við Sverrir, en þegar við hittumst var eins og tíminn skrúfað- ist til baka. Sverrir var alltaf jafn hlýr og einlægur. Alltaf sami glað- legi góði drengurinn frá því í gamla dag. Alltaf jafn strákslegur - einn af þeim sem ekkert breyttist. Argangurinn okkar var mjög samheldur og framkvæmdasamur og hefur nú mörg hin síðari ár not- að hvert tækifæri til að hittast og halda upp á hin ýmsu afmæli. Það hefur sífellt orðið styttra á milli hverrar samkomu en því miður verður Sverrir ekki með okkur næst. Þess mun ég sakna. Síðastliðið vor í maímánuði héld- um við upp á 30ö ára fermingaraf- mæli okkar. Þá óraði mig ekki fyr- ir því að það yrði í síðasta skipti sem ég hitti Sverri. Hann brosti sínu hlýja brosi eins og áður en sorg mátti lesa úr andliti hans, þótt hann reyndi að sýnast' glaður. 1992. Þá tók Pétur að sér flækings- kött, rifínn og tættan, sem gekk undir nafninu Ljótur. Pétur samein- aði eigin næringarneyslu og kattar- ins með því að kaupa kjarngott kattarkex og sáust þeir kumpánar oft saman við sundlaugarbarminn þar sem Pétur tíndi kexið góða ýmist upp í sjálfan sig eða köttinn. Það var ósjaldan sem við hin, skólafélagar hans og vinir, hristum höfuðið eða hlógum að ruglinu í honum og ótrúlegum uppátækjum, en um leið var okkur ljóst að at- hafnir hans voru byggðar á hans eigin heimspeki og við virtum hann fyrir hana og dáðumst að henni. En við, sem lifðum í fábrotnum heimi hlutveruleikans og hugsuðum urn iítið annað en að koma okkur áfram í lífsgæðaskokkinu, skildum ekki alltaf flóknar vangaveltur Pét- urs yfír einföldustu hlutum. Hann átti það til að bijóta hversdagsleg- ustu efni til mergjar, sem okkur virtust liggja í augum uppi, en Pétri fannst hins vegar hin merki- legustu, sem þau e.t.v. voru. Vegna einlægni sinnar, hrein- skilni og „blómstrandi kærleika" tókst Pétri að sá fræjum í hugi þeirra sem hann kynntist á lífsleið- inni. En meðan árin þreyta hjörtu hinna, sem horfðu eftir þér í sárum trega, þá blómgast enn, og blómgast ævinlega, þitt bjarta vor í hugum vina þinna. (Tómas Guðmundsson) Við vottum öllum þeim, sem eiga um sárt að binda vegna fráfalls Péturs, okkar dýpstu samúð. Guðrún, Steinunn, Lilja Dögg og Ása. Við viljum í örfáum orðum minn- ast manns sem var okkur öllum mjög kær. Pétri Inga kynntumst við í Menntaskólanum í Réykjavík. Hann var þeirrar gerðar að öllum þótti vænt um hann. Pétur var hug- myndaríkur og skemmtilegur með afbrigðum, lífsglaður og lífgaði upp á tilveru okkar allra. Það er mikill sjónarsviptir að Pétri, hans skarð verður seint fyllt. Við erum mjög þakklátir fyrir að hafa fengið að kynnast honum. Aðstandendum vottum við okkar dýpstu samúð. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama, en orðstír deyr aldregi hveim er sér góðan getur. Teitur, Bjarni, Ólafur og Örn. Fleiri minningargreinar um Pétur Inga Þorgilsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Margt var breytt frá því vorið 1991 er við hittumst á 25 ára gagnfræða- afmæli okkar. Þetta kvöld, í vor heilsaði ég einn- ig upp á konu hans, Kristínu og dáðist að því að þau skyldu vera með okkur þarna þar sem gleði og glaumur ríkti en skuggi veikinda hans hvíldi yfír samkomunni. Mér fannst svo erfítt að vera glöð þetta kvöld og ég vildi óska að við Sverr- ir hefðu getað spjallað lengur sam- an. Nú geymi ég minningamar um góðan dreng og óska honum góðrar ferðar. Missir manna á besta aldrei er ætíð harmafregn, og vita má að KristTn eiginkona hans, börn þeirra, foreldrar og systkini og aðrir þeir er voru honum nánir, að til þeirra hugsa margir með samúð og góðum óskum. í þeim hópi vil ég vera. „Að eilífðarljósi bjarma ber sem brautina þungu greiðir Vor líf, sem svo stutt og stopult er það stefnir á æðri leiðir Og upphiminn fegri en auga sér mót öllum oss faðminn breiðir“ (Einar Ben.) Gullý Ragnars. Minning Anna Amadóttir Minning Sverrir Þórisson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.