Morgunblaðið - 07.10.1993, Síða 50

Morgunblaðið - 07.10.1993, Síða 50
50 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 1993 Michael Jordan hættur Löngunin er horfin ENGINN körfuknattleiksmaður hefur flogið hærra en Michael Jordan. Þrjú ár í röð varð hann meistari með Chicago Bulls í NBA-deildinni í Bandaríkjunum og nú hefur hann fengið nóg. „Löngunin er horfin," sagði Jordan, þegar hann tilkynnti að hann væri hættur, á blaðamannafundi í Deerfield f lllinois í gær, þar sem fyrrum félagar hans hefja æfingar fyrir komandi leiktfð í dag. „Ég hef alltaf sagt að þegar ég hefði ekkert að sanna lengur á vellinum myndi ég hætta. Nú er þeim áfanga náð.“ Margir eru slegnir vegna þessarar ákvörðunar leikmannsins, sem kenndur var við loftið vegna þess að hann virtist þeirri náttúru gæddur að geta yfirunnið þyngdarlögmálið, og má segja að þetta sé áfall fyrir meistara Chicago Bulls og körfuknattleikinn í heild. Dregið hefur verið í riðla fyrir heimsmeistarakeppni karla í körfuknattleik, sem fram fer í Tór- ontó í Kanada næsta sumar. Riðl- arnir eru sem hér segir: A-riðill: Bandaríkin, Brasilía, Spánn og fyrsta Asíiiþjóð. B-riðill: Króatía, Ástralía, Kúba, önnur Asíuþjóð. C-riðill: Rússland, Argentína, Kanada, Angóla. D-riðill: Puerto Rico, Grikkland, Þýskaland, Egyptland. Tvö efstu lið úr hveijum riðli komast áfram í átta liða úrslit. Yfirburðir Jordans á leikvellin- um hafa verið með ólíkindum, en lífíð hefur ekki verið eins ein- falt utan vallar. Sagt hefur verið að hann hafi hegðað sér eins og einræðisherra hjá Kgrl Chicago Bulls. Blöndal Ásakanir um sjúk- skrifar frá lega fjárhættuspila- Bandarikjunum mennsku gátu af sér vægðarlausa umfjöllun í fjölmiðlum og leiddu til þess að NBA-deildin hóf rann- sókn á málinu. En mesta áfallið kom í sumar, þegar tveir unglingar myrtu föður hans í bifreið sinni á sveitavegi í Louisiana. Þegar kvisaðist að Jordan hygð- ist leggja skóna á hilluna í gær- kvöldi upphófust miklar vangavelt- ur um ástæður. Morðið á föður hans vóg þyngst á metunum hjá pennum og orðhákum úr röðum íþróttafrétamanna, en einnig mátti heyra að Jordan gæti ekki lengur sætt sig við það að aðrir leikmenn í NBA væru hærra launaðir og hann vildi komast úr sviðsljósi fjöl- miðla vegna veðmála. Jordan sagði hins vegar að það eitt hafi skipt máli að áhuginn og getan væru óskert. „Ég hugðist hætta, þegar ég missti innri hvöt- ina,“ sagði hann ablaðamanna- fundinum. „Ég ætlaði aldrei að hætta að spila eftir að hæfileikar mínir byijuðu að minnka, ég fyndi þrýstinginn í bakið og fólk færi að ýta mér útúr íþróttinni. Ég vildi snúa baki við kjörfubolta á toppn- um og nú er rétti tíminn.“ helgan stein þýðir að ég get gert það sem mér sýnist,“ sagði hann. „Ég vil ekki útiloka að ég spili aftur. Orðið aldrei er ekki til í mínum trúarbrögðum og ég loka engum dyrum.“ Hann sagðist vilja veija tíma sínum með fjölskyldunni og taka lífinu með ró. „Ég veit að margir krakkar eiga erfitt með að skilja að „stjarnan" Michael Jordan skuli vera hætt á hátindi frægðar sinnar, en vonandi skilja þeir í framtíðinni að ég þarf að vera meira en bara körfuknattleiksmað- ur,“ sagði Jordan. „Ég ætla að horfa á grasið gróa,“ sagði Jordan aðspurður um framtíðaráætlanir sínar, „og svo fer ég út að slá.“ Reuter MICHAEL Jordan kastaði boltanum í síðasta sinn í fyrrakvöld, þegar hann „hóf“ fyrsta úrslitaleikinn í bandarísku hafnaboltadeildinni. Til hliðar er hann með föður sínum eftir að titillinn í NBA-deildinni var í höfn í vor sem leið. ÍÞRÓmR FOLK ■ CHARLES Barkley, leikmaður Phoenix Suns, kvaðst í gær sár yfir því að Michael Jordan hygðist hætta á undan sér. „Við töluðum um að hætta á sama tíma,“ sagði Jordan á blaðamannafundinum í gær. „Nú hef ég náð fram mínum markmiðum, en hann á eftir að gera ýmislegt, sem ég gat ekki beðið eftir vegna þess að ég stóð í vegi fyrir honum.“ ■ BARKLEY sagði að það eina sem skipti máli væri að Jordan væri sáttur við að hætta. „Ég mun sakna hans vegna þess að hann er eini leikmaðurinn í deildinni, sem hefur jafn mikið keppnisskap og ég.“ ■ MICHAEL Jordan kvaðst ekki aðeins hafa átt þátt í að breyta ímynd körfuknattleiksins með snilld sinni heldur einnig.ásjónu Chicago. „Nú geta Chicagobúar gortað sig hvar sem þeir koma,“ sagði Jord- an. „Chicago var lengi þekkt sem glæpamannaborg, en nú er hún meistaraborgin.“ ■ LARRY Johnson, leikmaður Charlotte Hornets, undirritaði á þriðjudag samning, sem talinn vera upp á hæstu fjárhæð í sögu banda- rísku NBA-körfuknattleiksdeildar- innar. Samningurinn nær til 12 ára og er að andvirði 84 millj. dollara eða um 600 millj. kr. Hann nær samt ekki árlegum tekjum Patricks Ewings hjá New York Knicks, sem fær 9,4 millj. dollara eða 640 milljónir. Michael Jeffrey Jordan Fæddur: 17. febrúar 1963, í Brookleyn-hverfínu í New York borg. Hjúskapur: Giftur Juanitu. Þau eiga tvö börn og búa í Chicago. Tekjur: Hefur haft um 30 milljónir dollara á ári, eða um 2,2 milljarða króna og hefur það næstu þijú árin þrátt fyrir að vera hættur að spila . körfukanttleik. Árangur: Háskólameistari með Norður Karolínu-háskóla 1983. Hann hefur leikið 9 ár í NBA og var valinn til að leika í stjömuliði austur- strandar níu sinnum. Tvisvar var Jordan Ólympíumeistari. Var kosinn nýliði ársins 1984-1985. Þrisvar sinnum kjörinn leikmaður ársins; 1988, 1991 og 1992. Kjörinn besti varnarmaður deildarinnar árið 1988. Þrisv- ar orðið NBA-meistari með Chicago Bulls. Stigahæsti leikmaður Chicago frá upphafi, gerði alls 21.541 stig, og stigahæstur í NBA í sjö ár í röð. Hann var með 33,2 stig að meðaltalij NBA-leik utan úrslitakeppn- innar og hefur enginn leikið það eftir. í úrslitakepppni skoraði hann 34,7 stig meðaltali i leik. Var stigahæstur í einum leik á síðasta ári, gerði þá 64 stig. KORFUKNATTLEIKUR / ÚRVALSDEILDIN KORFUKNATTLEIKUR / NBA-DEILDIN Riðlarnir í HM Jordan kvaðst hafa rætt ákvörð- un sína við ýmsa og endanlega sannfærst, þegar hann talaði við þjálfara sinn, Phil Jackson. „Ég spurði hvort ég ætti eftir að sanna eitthvað sem körfuboltamaður og þegar hann hikaði áður en hann svaraði þurfti ég ekki frekari vitna við.“ Jordan sagðist hafa tekið ákvörðun sína áður en faðir hans var myrtur, en það atvik hafi hins vegar gert honum grein fyrir gildi lífsins og styrkt hann í ákvörðun sinni. Miklar breytingar hafa orðið í NBA-deildinni á undanförnum árum og skærustu stjörnur íþróttarinnar eru nú hættar. Ear- vin „Magic“ Johnson, leikmaður Los Ángeles Lakers, lagði skóna á hilluna fyrir tveimur árum, þegar hann tilkynnti að hann væri hald- inn alnæmi. Larry Bird, burðarás Boston Celtics, hætti fyrir einu ári þegar bakið sagði hingað og ekki lengra. Og nú Jordan, sem alltaf hefur litið á sig sem keppinaut hinna tveggja. Bird varð þrisvar meistari og Johnson fimm sinnum, en hvorugur afrekaði að verða meistari þijú ár í röð eins og Jord- an. Jordan vildi ekki útiloka að hann myndi spila aftur, en hann myndi ekki spila fyrir annað lið en Chicago Bulls. „Það að setjast í Mörg Ijón verða á veginum - segirValur Ingimundarson, sem er byrjaður að leika með UMFN á ný Morgunblaðið/Þorkell VALUR Ingimundarson, þjálfari Njarðvíkinga, kominn í land eftir Viðeyjar- ferð, en þar var gerð opinber spá leikmanna úrvalsdeildarinnar, en þeir spá Njarðvíkingum Sslandsmeistaratitli. „AÐ sjálfsögðu verður það tak- markið að endurheimta ís- landsmeistaratitilinn, en mörg Ijón verða á vegi okkar, þar sem við leikum í sterkum riðli," sagði Valur Ingimundarson, þjálfari Njarðvíkinga, en þeim er spáð sigri í úrvalsdeildinni í körfuknattleik — af leikmönn- um deildarinnar. Njarðvíkingar voru síðast meistarar 1991, en nágrannar þeirra í Keflavík hafa hampað meistaratitlinum undanfarin tvö ár. Valur er kominn heim á ný, eftir að hafa leikið nokkur ár með UMFT á Sauðárkróki. Valur hefur marg- oft verið meistari með Njarð- víkingum, en hann lék með hinu sigursæla liði þeirra sem varð meistari fjögur ár í röð 1984-87. jarðvíkingar hafa endurheimt tvo gamla samheija — Val og Friðrik Ragnarsson, sem lék með KR, en tveir leikmenn eru farnir; bræðurnir Sturla og Gunnar Örlygssynir, sem leika nú með Val. „Við erum með sterkan tólf manna leikmannahóp, sem er klár í slag- inn. Það verða liðin frá Reykjanesi sem beijast um meistaratitilinn — Njarðvík, Keflvík, Haukar og Grindavík, en ekki má þó afskrifa Reykjavíkurfélögin KR og Val, sem geta hæglega sett strik í reikning- inn,“ sagði Valur Ingimundarson, en hann taldi að B-riðillinn væri sterkari en A-riðillinn. „Við leikum í riðli með Grindavík, Haukum, UMFT og KR. Tindastólsmenn eru alltaf erfiðir heim að sækja. Barátt- an byijar strax á fullu í riðlinum, því að hvert stig er dýrmætt, en tvö efstu liðin komast í úrslitakeppn- ina.“ - Nú hafa Keflvíkingar ekki leik- ið vel upp á síðkastið. Hver er ástæðan fyrir því? „Keflvíkingar hafa ekki náð sér á strik eftir ferðina til Litháen, þar sem þeir léku í Evrópukeppninni. Meiðsl hafa sett strik í reikninginn hjá þeim, en Keflvíkingar eiga eftir að koma upp sterkir. Þeir verða öruggir sigurvegarar í A-riðlinum, þar sem þeir leika ásamt Val, Snæ- felli, Skallagrím og Akranesi."

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.