Morgunblaðið - 07.10.1993, Qupperneq 52

Morgunblaðið - 07.10.1993, Qupperneq 52
Whp% hewlett mLriM packard ------------------ UMBOÐIÐ H P Á ÍSLANDI H F Höfðabakka 9, Reykjavík, sími (91) 671000 Frá möguleika til veruieika MORGVNBLAÐW, KRINGLAN 1 103 REYKJAVÍK SÍMl 691100, StMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3040 / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTÍ 86 FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 1993 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK. Kvartað undan eft- irliti með vsk.-bíl TÖLVUNEFND hefur sent fyrir- spurn til ríkisskattsljóra um hvort eftirlitsskrifstofan hafi elt uppi ökumann á virðisaukabíl og tekið af honum ljósmyndir. Fyr- irspurn Tölvunefndar var send í framhaldi af kvörtun gjaldanda til Tölvunefndar sem taldi að á sér væri brotið með þessu. I lögum um skráningu og meðferð persónuupplýsinga eru skorður sett- ar við því hvernig upplýsingum um einstaklinga er safnað. Þær reglur gilda um svonefnda virðisaukaskattsbíla með rauðum númeraplötum að óheimilt er að nota þá til einkaþarfa. Eftirlitsskrifstofa ríkisskattstjóra hefur um nokkurra vikna skeið tekið myndir af mörgum virðisaukabílum við knattspyrnuvelli, á útihátíðum, við kvikmyndahús og á fleiri stöðum, þar sem talið er að bílarnir séu í einkanotkun. Kannast ekki við þetta Garðar Valdemarsson ríkisskatt- stjóri sagði að Tölvunefnd hefði í framhaldi af beiðni gjaldanda sem óskar nafnleyndar sent embættinu fyrirspurn. „Tölvunefnd hefur fengið fullyrðingu frá manninum um að hann hafi verið eltur af mönnum í merktri ríkisbifreið. Þeir hafi veitt honum eftirför og myndað bifreiðina. Maðurinn telur að allt bendi til þess að þarna hafi verið á ferðinni menn við skatteftirlit. Þetta kannast eng- inn við héma,“ sagði Garðar. Garðar segir að engum sé uppá- lagt að taka myndir að þeim sem eru í bifreiðunum heldur einungis af bif- reiðunum séu þær staddar á ólíkleg- um stöðum. „Lög um skráningu og meðferð persónuupplýsinga fjalla um skrán- ingu á einkamálum. Þessar bifreiðar eru ekki einkabifreiðar og óheimilt að nota þær í einkaþágu. Myndatök- ur af þeim eru því ekki myndir af einkaatferli," sagði Garðar. -----» ♦ ..-.-.- Umferðarslys, • • Okumaður bif- Fyrsta flugvélin í gegnum Dyrhólaey ARNGRÍMUR Jóhannsson flugstjóri og Árni Johnsen alþingismaður flugu fyrstir manna á flugvél í gegn um gatið á Dyrhólaey í gær. Logn er mjög sjaldan við Dyrhólaey en við minnsta blæ skapast mikil ókyrrð í lofti og ávallt er nokkuð af bjargfugli í gatinu. Þeir Ámi og Arngrímur hafa gert nokkrar tilraunir til gegnumflugs á síðustu tveimur árum en þurft frá að hverfa vegna ókyrrðar í lofti og fuglagers. Þeir félagar flugu þrjár ferðir í gegn um Dyrhólaey á eins hreyfils vél, TF-MBL. Á stærri myndinni sést vélin koma undan hamraveggnum en á innfelldu myndinni eru Árni og Arngrímur við vélina í túnfæti Loftsala við Dyrhólaey. Morgunblaðið/RAX Ríkisendurskoðun gerir úttekt á störfum lækna í þjónustu ríkisins Endurmat á gjaldskrám míði að 120 millj. spamaði hjóls slasaðist BIFHJÓL og bifreið lentu í árekstri laust eftir kl. 22 í gær- kvöldi á mótum Flugvallavegar og Bústaðavegar í Reykjavík. Ökumaður bifhjólsins var fluttur á slysadeild Borgarspítalans. Meiðsl hans voru ekki fullkönnuð þegar blaðið fór í prentun. HEILBRIGÐISRÁÐHERRA hefur beðið ríkisendurskoðun að gera úttekt á störfum lækna sem þiggja greiðslur úr ríkissjóði, bæði vegna fastra starfa á sjúkrahúsum og framvísaðra reikninga til Tryggingastofnunar. Ráðherra segir úttektina eiga að kortleggja í hversu miklum mæli læknar halda úti þjónustu á tveimur eða jafnvel fleiri stöðum og koma eigi á skýrari og skilvirkari verka- skiptingu þar á milli á grundvelli upplýsinganna til að ná fram 30 miiyóna kr. kostnaðarlækkun. Einnig muni fara fram endur- mat á gjaldskrám vegna rannsókna á röntgenmyndatöku, sem miði að því að draga úr útgjöldum upp á 120 milljónir kr. Samgönguráðherra í opinberri heimsókn í Kína Rætt um samstarf í flugi Peking. Frá Kristínu Gunnarsdóttur, blaðamanni Morgunblaðsins. HALLDÓR Blöndal, landbúnaðar- og samgönguráðherra, átti í gær fund með Zou Jiahua, aðstoðarforsætisráðherra Kína, í opinberri heim- sókn sinni til Peking og Hebei. Þá ræddi ráðherra við Zhu Zhaw, að- stoðarflugmálastjóra Kína, um hugsanlega samvinnu í tengslum við flugáætlun Flugleiða yfir hafið til Bandaríkjanna. í för með ráðherra er Jón Birgir Jónsson aðstoðarvegamálastjóri og fulltrúar sjö íslenskra verkfræði- stofa, en vonast er til að samkomu- lag náist við fulltrúa Hebei-fylkis um stofnun fyrirtækis í meirihlutaeigu íslendinga er sjái um hönnun og framkvæmdir við vegagerð í fylkinu. „Ég geri mér vonir um að þegar við komum til Hebei verði hægt með formlegum hætti að ganga frá sam- komulagi um að íslenskt verkfræði- fyrirtæki standi að og eigi meirihluta í fyrirtæki er verði ráðgjafi í verk- fræðilegri hönnun," sagði sam- gönguráðherra. Flug innan Evrópu Ráðherra sagði að viðræður um samvinnu við Flugleiðir væru skammt á veg komnar en að rætt hafí verið um samskipti þjóðanna í flugmálum. Hugsanlega gætu náðst samningar við Kínverska flugfélagið um flutninga á farþegum innan Evr- ópu. Guðmundur Árni Stefánsson, heilbrigðisráðherra, kveðst halda að breyta megi núverandi fyrir- komulagi í nokkrum skrefum og m.a. sé talið að gera megi göngu- deildir sjúkrahúsanna virkari en nú er þannig að draga megi úr sérfræðikostnaði vegna einkarek- inna læknastofa. „Ég held að það sé öllum til bóta að þessi heildarmynd náist fram, því menn hafa t.d. verið að halda fram að vissir læknar starfi á tveimur eða þremur sjúkrahúsum og séu með læknastofur samtím- is,“ segir Guðmundur Árni og kveðst telja að úttekt ríkisendur- skoðunar muni skýra sannleiks- gildi slíkra sögusagna og hjálpa til við að setja verkaskiptingu í fastari skorður. Hann kveðst ekki telja að koma muni til „stórfelldra uppsagna af þeim sökum, heldur takist að leysa málin í samráði við stjórnendur sjúkrahúsanna og við- komandi lækna, ef svo ber undir“. Guðmundur segir sparnaðar- áform á þessu sviði heilbrigðiskerf- isins ekki eiga að bitna á þjónustu við almenning, þar sem hann náist fram með skilvirkari aðferðum inn- an heilbrigðiskerfisins og nýrri tækni á t.d. röntgendeildum. Furðuljós á himni Grænt blys eða loftsteinn LÖGREGLUNNI á Hvolsvelli bárust í gærkvöldi tvær til- kynningar um torkennilegt Ijós á himni. Fólk í Þórsmörk hafði samband við lögregluna og skömmu síðar menn á ferð í bíl nálægt Þjórsá. Áhorfendur töldu að hér væri um grænt blys að ræða sem hefði svifið til jarðar. Fólkið í Þórsmörk taldi blysið hafa lent í mynni Fljótsdals eða við innsta bæ í Fljótshlíð en mennirnir við Þjórsá töldu ljósið hafa lent rétt sunnan við þjóðveginn. Talið er að ekki hafi verið um blys að ræða því það hefði tæpast sést samtímis á svo stóru svæði held- ur hafí hér verið loftsteinn á ferð.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.