Morgunblaðið - 10.10.1993, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 10.10.1993, Blaðsíða 1
72 SIÐURB/C STOFNAÐ 1913 230 tbl. 81. árg. SUNNUDAGUR10. OKTOBER1993 Prentsmiðja Morgunblaðsins Bandaríkjamenn freista þess að semja við Aideed Washington. Reuter. BANDARÍSK stjórnvöld freista þess að semja við sómalska stríðsherrann Mo- hamed Fara Aideed um vopnahlé en öflugpir liðsauki bandarískra hermanna streymir nú til Sómalíu til þess að verða til taks ef skæruliðar Aideeds ráðast á hersveitir Sameinuðu þjóðanna (SÞ) í landinu. Robert Oakley, sérlegur sendifulltrúi Bandaríkjastjórnar, hefur hafið viðræður við fulltrúa Aideeds um vopnahlé í Mogadis- hu, höfuðstað Sómalíu. í þessum viðræðum hefur því verið heitið að tilraunum til þess að hafa hendur í hári Aideeds verði hætt gegn því að skæruliðar hans hætti árásum á herlið SÞ. Þegar síðast fréttist í gær, laugardag, höfðu samningar ekki tekist. Himinninn logaði yfir Mogadishu í fyrri- nótt er skæruliðar skutu á bandarískar árás- arþyrlur á könnunarflugi. Sömuleiðis kváðu við miklir hvellir er þyrlur gerðu árás á nokkrar meintar vopnageymslur skæruliða. Engar fregnir fóru af manntjóni. Talsmaður bandaríska varnarmálaráðu- neytisins sagði í gær að bandarískar her- sveitir myndu freista þess að koma ekki af stað bardögum við sveitir Aideeds. Jafn- framt yrðu ugglaust gerðar tilraunir til að Moskvu.^ Reuter. MIKHAIL S. Gorbatsjov fyrrum sovétleið- togi segist reiðubúinn að „koma þjóðinni til bjargar" ef ástandið í Rússlandi kref- ur. Kemur þetta fram í viðtali sem birtist við hann í blaðinu Komsomolskaja Pravda í gær, laugardag. Gorbatsjov var spurður að því hvort hann sneri sér hugsanlega aftur að stjórnmálum og voru svör hans túlkuð þann veg að hann væri reiðubúinn til að bjóða sig fram við forsetakosningarnar sem ráðgerðar eru í júní 1994. bjarga þyrluflugmanni í haldi skæruliða Aideeds tækist ekki að semja um lausn hans. í samtalinu segist Gorbatsjov fremur gera ráð fyrir því að Borís Jeltsín Rússlandsfor- seti verði undir bæði í væntanlegum þing- kosningum \ desember nk. og í forsetakosn- ingunum. í skoðanakönnunum undanfarið hefur Jeltsín þó notið meira fylgis en Gorb- atsjov. Og samkvæmt skoðanakönnun sem birt var í vikulok styðja 71% þjóðarinnar Jeltsín og stjórn hans og 78% sögðu þá ákvörðun hans að bijóta' aftur uppreisnartil- raun harðlínumanna réttlætanlega. Fer Gorbatsjov í forsetaframboð? Morgunblaðið/RAX Á SELTJARNARNESI Vilja fækka mistökum flugmanna MANNLEG mistök eru orsök 80% allra óhappa í farþegaflugi og verður að ráða bót á þessum vanda til þess að ná fram raunverulegri fækkun flug- slysa, að sögn Pierre Jeanniots, for- sljóra Alþjóða flugmálastofnunarinn- ar (IATA). Jeanniot sagði það ásetning stofnunarinnar að vinna bót á þessum vanda. Hann sagði að tækist að fækka slysum af völdum tæknilegra galla, bilana eða smíðisbresta um 50% myndi flugslysum fækka um einungis 10% þegar á heildina væri litið. Tækist hins vegar að helminga óhöpp af völd- um mistaka flugmanna fækkaði flug- slysum um 40% í heildina. Að jafnaði hafa 19 farþegaþotur farist á ári und- anfarin fimm ár. Samkvæmt tölfræði IATA, sem nær þó hvorki til Kína né ríkja fyrrum Sovétríkjanna, verða 500 dauðsföll að jafnaði á ári i farþega- flugi en 1,3 milljarður manna ferðast með farþegaflugvélum árlega. Jafn- gildir það einu mannsláti á hveija milljón flugstunda. Til samanburðar fórust 48.000 manns í bílslysum í Bandaríkjunum í fyrra. Kennarar leita til lýtalækna BRESKIR kennarar eru viðkvæmir fyrir gagnrýni frá nemendum sem gera athugasemdir við útlit lærifeðra sinna. Hafa um 80 nef- og eyrnarstór- ir eða sköllóttir kennarar farið undir hnífinn hjá einum og sama lýtalæknin- um í sumar til þess að losna undan háði og spotti nemenda. Þar á meðal er kennari sem uppnefndur var „heimsbikarinn" þar sem eyrun voru risastór og líktust handföngum á verð- launabikar. Einnig var gerð aðgerð á nefstórum landafræðikenna sem gekk undir nafninu „Nefpal“. * Afram neyð- arlög í Moskvu BORÍS Jeltsín Rússlandsforseti fram- lengdi í gærmorgun, laugardag, neyð- arlög og útgöngubann í Moskvu um átta daga. Aður höfðu embættismenn tjáð vestrænum stjórnarerindrekum að neyðarlögum yrði aflétt um helg- ina. UPREISN, BYLTIN6, BORGARASTRH)! VELDISSPROTANN FRÁ SÉR--------m~ SVIFFLUGÍIR H 06SK0TFLMM íslenskir flugóhugamenn heimsóttu rúss- neska flugsýningu og sóu þar meóal annars að Island er merkt sem skotmark kjarnorkuflugskeyta v

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.