Morgunblaðið - 10.10.1993, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. OKTÓBER 1993
21
Frá íhlutun í mannúðarskyni til vopnaskaks
Glæst markmið í
Sómalíu víkja fyrir
afturhaldi með sæmd
UM þessar mundir fer fram umræða hér á landi, sem á eftir að
skipta sköpum um stefnu Bandaríkjamanna í utanríkismálum á
næstunni. Talað er um niðurlægingu og 'Sómalíu líkt við Víetnam.
Sómalía er orðin að prófsteini á stjórn Bills Clintons Bandaríkjafor-
seta og lyktir afskipta Bandarikjamanna þar í landi eiga eftir að
ráða miklu um það hvernig þeir munu bregðast við neyðarástandi
annars staðar í heiminum. Nú hefur Clinton ákveðið að senda liðs-
auka til Sómalíu og um leið sagt að hann hyggist kveðja Bandaríkja-
her brott frá landinu fyrir 31. mars. A meðan mun hernum beitt til
að leggja grunn að stöðugleika í landi þar sem stjórnkerfið er í
rúst og ríkisvaldið ekkert. Afskipti Bandaríkjarnanna hófust með
hástemmdum yfirlýsingum um mannúðarhlutverk. Nú er svo komið
að Clinton setur markið ekki hærra en að kveðja herinn heim með
sæmd.
í umræðunni um Sómalíu kennir
margra grasa. Sumir láta stjórnast
af tilfinningum, en aðrir hljóma
eins og bergmál af kalda stríðinu
og vitna til Víetnam-stríðsins í gríð
og erg. Einnig hefur verið gagn-
rýnt harkalega að friðarför Banda-
ríkjahers skuli nú hafa breyst í
vopnuð átök.
Áhrifamáttur sjónvarpsins
Eitt er víst. Sjónvarpið hefur átt
veigamikinn þátt í að móta viðhorf
Bandaríkjamanna til veru hersins
á austurhorni Afríku. Rétt eins og
þegar myndir af sveltandi börnum
bárust inn á stofugólf þjóðarinnar
og knúðu George Bush, forvera
Clintons í emb-
ætti, til að taka
af skarið og
senda 25 þús-
und hermenn til
þess að tryggja
að matur bærist til sveltandi Só-
mala í byrjun desember, hafa
fréttamyndir af því þegar lík
bandarísks hermanns var dregið
eftir götum Mogadishu í upphafi
síðustu viku vakið óhug og lamað
vilja Bandaríkjamanna til að vera
áfram í landinu.
Helsta gagnrýnin er sú að hlut-
verk hersins í Sómalíu var ekki
skilgreint sem skyldi og Banda-
ríkjamenn eiga erfitt með að sjá
hvern tilgang það hefur að úthella
blóði bandarískra hermanna hinum
megin hnattkúiunnar.
Nú skiptast Bandaríkjamenn í
tvo hópa. Annars vegar þá, sem
vilja fá herinn heim nú þegar, og
hins vegar þá, sem vilja safna liði
og ieita hefnda. Forsetinn er í báð-
um hópum. Hann hyggst auka við-
búnað í Sómalíu og segir að Banda-
ríkjamenn megi ekki gefast upp,
þá muni „æsingamenn, óþokkar og
hryðjuverkamenn draga þá ályktun
að besta leiðin til að fá okkur til
að breyta stefnu okkar sé að myrða
okkar fólk“.
Um leið til-
kynnir hann
hvenær herinn
verði kvaddur
heim. Frétta-
skýrendur
segja flestir að hann hafi ekki átt
annars kost vegna almenningsálits-
ins, en það muni hins vegar verða
vatn á myllu Aideeds og annarra
stríðsherra í Sómalíu að vita hve-
nær Bandaríkjamenn hverfi á
braut. Þá geti þeir beðið átekta og
hafist því næst handa við fyrri iðju
þegar þeir hafa fijálsar hendur.
A Bandaríkjaþingi hafa þær
raddir, sem krefiast þess að að-
gerðinni ijúki, breyst í kór. Víetnam
var oft líkt við kviksyndi þar sem
Bandaríkjamenn komust hvorki
aftur á bak né áfram. Nú er rætt
um að Bandáríkjamenn séu að fest-
ast í kviksyndinu í Sómalíu.
John McCain, öldungadeildar-
þingmaður úr röðum repúblikana,
sagði að það byði niðurlægingunni
heim að senda bandarískt herlið á
staði eins og Mogadishu og krafð-
ist undanhalds. Demókratinn John
Breux sagði að Sómalía snerist
ekki um manndóm Bandaríkja-
manna, sem hefði sannast með sigri
í kalda stríðinu og í Persaflóa, og
nú væri um að gera að hypja sig.
Trúverðugleiki
En á þingi heyrist einnig að
Bandaríkjamenn fyrirgeri tilkalli
sínu til forystu í heimsmálum hverfi
þeir of fljótt frá Sómalíu. Clinton
hugsar á sama veg og undanfarið
hafa ýmsir fyrrum frammámenn í
bandarískum utanríkismálum fekið
í sama streng.
Á miðvikudagskvöld sögðu
Zbigniew Braezinski, fyrrum
þjóðaröryggisráðgjafi, og A1 Haig
og Henry Kissinger, fyrrum utan-
ríkisráðherrar, allir þrír að Banda-
ríkjamenn myndu missa andlitið
og þar með glata stöðu sinni á al-
þjóðavettvangi ef þeir hörfuðu við
svo búið. Brzezinsky sagði að
Bandaríkjamenn hefðu vegna mis-
taka sinna í Sómalíu þegar glatað
trúverðugleika sínum í Júgóslavíu
og vildu þeir stöðva átökin í Bosn-
íu dygði ekki lengur að hóta valdi,
þeir yrðu að beita því til að mark
yrði á þeim tekið.
Þessi sömu rök, um að Banda-
ríkjamenn yrðu að viðhalda trú-
verðugleika sínum, heyrðust hvað
eftir annað í kalda stríðinu. Bæði
BAKSVIÐ
Karl Bl'öndal skrifar frá Boston
Vígstaðan útskýrð
DAVID Jeremiah, starfandi forseti herráðs Bandaríkjanna, gerir
fréttamönnum grein fyrir stöðu mála i Sómalíu í kjölfar þeirrar
ákvörðunar Bills Clintons forseta að fjölga í herliðinu þar.
Lyndon B. Johnson og Richard
Nixon beittu þeim þegar Víetnam-
stríðið var í algleymingi. Svo fór
að Bandaríkjamenn hurfu frá Víet-
nam með skottið á milli fótanna,
en þeim tókst engu að síður að
halda trúverðugleika sínum og
leiddi það hvorki til hruns Atlants-
hafsbandalagsins, né dró úr áhrif-
um Bandaríkjamanna.
Dómínókenningin réði einnig
miklu um það hvað stríðið í Víet-
nam dróst á langinn. Samkvæmt
henni myndi öll Asía verða komm-
únisma að bráð ef Víetnam félli í
hendur kommúnista. Nú munu
harðstjórar um heim alian sjá sér
leik á borði hverfi Bandaríkjamenn
á braut.
Vanmáttur Sameinuðu
þjóðanna
Aðgerðin, sem í bókum banda-
rískra herstjórnenda gengur undir
nafninu „Vonin endurreist11,. þótti
í upphafi bera nýjum hugsunar-
hætti í kjölfar kalda stríðsins vitni.
Nú voru Sameinuðu þjóðirnar orðn-
ar að stofnun, sem hægt var að
beita hvar sem er í heiminum.
Enginn ágreiningur var þeim óvið-
komandi og friðhelgi sjálfstæðra
og fullvalda ríkja, sem eitt sinn var
óhagganleg, var dregin í efa þegar
mannréttindabrot og aðrar hörm-
ungar voru annars vegar.
Nú blossa hins vegar upp átök
í hveiju ríkinu á fætur öðru. Afríka
logar í ófriði, þar sem eitt sinn var
Júgóslavía eru nú brennandi rústir
ódæðisverka og hörmunga og í stað
Sovétríkjanna blasa við meira eða
minna völt lýðveldi, allt frá Rúss-
landi til Grúsíu.
Sameinuðu þjóðirnar verða aldr-
ei meira en samanlagður vilji aðild-
arríkja til athafna og frammi fyrir
ofantöldum átökum standa þær
mannlausar. Sameinuðu þjóðirnar
hafa friðargæslusveitir til umráða,
en þær búa ekki yfir því afli, sem
þarf til að stilla til friðar. Það er
fyrir þá sök, sem Bandaríkjamenn
skárust í leikinn í Sómalíu, og
vegna sömu ástæðu eiga friðar-
sveitirnar eftir að vera varnar-
lausar þegar Bandaríkjamenn
hverfa á braut ásamt hersveitum
þeirra ríkja, sem einnig hafa tekið
þátt í áðgerðunum. Það er því eng-
in furða að ýmsir embættismenn
Sameinuðu þjóðanna vara nú ákaft
við því að Bandaríkjamenn kalli
hermenn sína heim.
Sómalía er að verða eitt erfið-
asta vandamál Clinton-stjómarinn-
ar og takist ekki að snúa við blað-
inu á næstu sex mánuðum er erfitt
að spá um framhaldið. Þess er nú
ítrekað krafist hér, að Bandaríkja-
menn sendi ekki herinn á vettvang
nema skýrt sé tekið fram í upphafi
hvert markmiðið sé og með hvaða
hætti verði staðið að því að kveðja
hann heim. Nánast ógerningur er
að uppfylla seinni kröfuna og kall-
aði Brzezinsky hana „fáránlega".
Það gieymist oft í umræðunni að
fyrir utan Mogadishu er allt víðast
hvar með friði og spekt og hung-
urvofunni hefur verið stuggað á
braut. Hverfi Bandaríkjamenn á
brott án þess að friður sé tryggður
mun íhlutun þeirra hafa verið til-
gangslaus. Clinton sagðist með
aðgerðum sínum vilja tryggja að
svo færi ekki, en margir efast um
að hann hafi gefið sér nægan tíma
eða sent nægan liðsauka til að ná
því ætlunarverki.
-3-'*
•nn
GOLFHIRÐULINAN
: sci , FRÁ
^Johnson
: yfrtíufll gólf
* nema trégólf
: ÍSLENSKAR
:leiðbeiningar
Það er allt að seljast upp!
Pú getur ennþá komist með í ódýra ferð til einnar vinsælustu verslunar- og
menningarborgar Evrópu.
Fyrsta flokks gisting - spennandi skoðunarferðir - ævintýralegir
verslunarmöguleikar.
7*^9gðu f,ér ,
Verð trá
26.900
miðaö við mann i tveggja
manna herbergi á Hótel
Country eða Crest
Vöruverð er svo ótrúlega lágt að
jafnvel Skotarnir flykkjast þangað til
að versla
Stærsta
verslunarmiðstöd
Evrópu
— og meira tilS
11
'lnnifalið flug, gisting, morgunverður
og öll flugvallagjöld
65 22 66
Ferðaskrifstofan Alís, sími 652266, fax. 6511