Morgunblaðið - 10.10.1993, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 10.10.1993, Blaðsíða 44
FORGANGSPÓSTUR UPPLÝSINGASÍMI 63 73 00 N ÁM A N Landsbanki íslands MORGUNBLADIÐ, KRtNtíLAN 1, 103 REYKJAVÍK Stm 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÚLF 3040 / AKVREYRl: HAFNARSTRÆTl 85 SUNNUDAGUR 10. OKTÓBER 1993 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK. Sendiherra Rússlands um hert eftirlit Stenst ekki að sórstakar reglur gildi um Rússa SENDIHERRA Rússlands telur að sérstakt eftirlit lögreglu og tollgæslu með áhöfnun rússneskra togara sem koma inn til hafnar í Reykjavík kunni að stangast á við alþjóðalög. Samkvæmt mannréttindareglum þjóðarréttar mætti ekki mis- muna fólki eftir þjóðerni. Þær hlytu að gilda jafnt um alla. Lögreglan og tollgæslan hafa ákveðið að taka upp sérstakt eftir- —Itft með áhöfnun rússnesku togar- anna. Skipunum verður beint til þeirra hluta Reykjavíkurhafnar þar sem eru afgirt svæði og auðvelt að hafa eftirlit með. Útivistarheim- ildir sjómannanna að næturlagi verða takmarkaðar. Fylgst verður sérstaklega með sjómönnunum og þeim gerð grein fyrir því að þeir geti átt von á að leitað verði í fór- um þeirra áður en þeir fara um borð aftur. Þetta sérstaka eftirlit er haft vegna umræðna um að sjó- 'TSennirnir stundi viðskipti með áfengi og tengist þjófnaðarmálum og viðskiptum með illa fengna vara- og aukahluti í bíla. með Rússum. Þetta hlytu að vera allsherjarreglur. „Þýðir þetta ekki að aðrir útlendingar séu frjálsir að bijóta íslenskar reglur og lög,“ sagði hann. Sendiherrann sagðist hafa þann fyrirvara á ummælum sínum að hann hefði ekki séð reglurnar sjálf- ur. Ef þær gerðu mun á eftirliti með fólki eftir því frá hvaða landi það væri hlytu þær að stangast á við alþjóðalög. Samkvæmt mann- réttindareglum í þjóðarrétti mætti ekki mismuna fólki eftir þjóðerni. Júríj Reshetov sagðist koma til Islands í kvöld og þá myndi hann athuga málið. Morgunblaðið/Jón Sig. * A reki um Húnaflóa STÆRSTI ísjaki sem fólk við Húnaflóa man eftir að hafa séð þar um slóðir hefur síðustu daga lónað um austanverðan flóann, en í haust hefur óvenju mikið verið um staka jaka í Húnaflóanum. Á myndinni sér yfir Króksbjargið og í átt að borgarísnum. Reykjavík skotmark kjamorku- flugskeyta TVEIR íslenskir flugáhugamenn sem heimsóttu nýlega rússneska flugsýningu fengu að fara inn í stjórnvagn fyrir flugskeyti og þar sýndi hermaður þeim á tölvu- skjá að lteykjavík er merkt sem skotmark nokkurra kjarnorku- flugskeyta. Annar maðurinn, Þorgeir Yngva- son áhugaflugmaður og flugvéla- smiður, sagði að þegar foringi her- mannanna hefði heyrt hvaðan þeir væru hafi hann sest við_ tölvuskjá og kallað fram kort af íslandi og síðar Reykjavík. Það vakti athygli íslendinganna að á kortinu voru átta stjörnur merktar með hring og þegar þeir spurðu hvað þetta táknaði sagði foringinn, að þetta væru miðunarpunktar fyrír kjarn- orkuflaugar. Hann gat kallað skot- brautir eldflauganna fram á skján- um og sagði að það tæki um fimm sekúndur að kalla fram stöðuna og þijár sekúndur að senda ræsimerk- ið. Þorgeir sagði að íslendingunum hafi runnið kalt vatn milli skinns og hörunds við að sjá þetta. Sjá bls. 10: Svifflugur ... Kínversk-íslensk verkfræðistofa stofnuð vegna vegafr amk væmda í Kína Aðalverktakar og Phil og Sön sýna áhuga á verkinu Shijiazhuang, Kína. Frá Kristínu Gunnarsdóttur, blaðamanni Morgunblaðsins. Verða að gilda um alla Júríj Reshetov, sendiherra Rúss- lands á íslandi, hefur verið í Rúss- landi undanfarnar þijár vikur og í gær þegar Morgunblaðið hafði samband við hann í Moskvu sagð- ist hann ekki hafa haft tækifæri til að kynna sér þetta eftirlit. Hann sagðist ekki efast um heimild yfir- valda á íslandi til að setja hvaða reglur sem væri en þær gætu ekki náð til borgara eins lands. Þær ættu að gilda fyrir alla menn, en ekki gera mun á því hvort þeir væru frá Rússlandi eða Frakklandi til dæmis. Reshetov sagðist ekki sjá að það gæti staðist að settar væru reglur um sérstakt eftirlit SAMKOMULAG náðist um stofnun kínverks-íslenskrar verkfræðistofu í Shijiazhu- ang í Hebei-fylki í gær, laug- ardag. Aðilar að stofunni eni Verkfræðistofa Sigurðar Thoroddsen, Almenna verk- fræðistofan, Hnit, Hönnun, Línuhönnun, H.I. teiknistofan og Verkfræðistofa Stefáns Olafssonar, auk Vegagerðar ríkisins og yfirvalda í Hebei- héraði. Grundvöllur sam- komulagsins er að sögn þeirra sem að samningnum stóðu, að samningur takist um lagningu vega í fylkinu. Hefur verið undirrituð vilja- yfirlýsing milli danska verk- takans Phil og Sön og kín- verskra yfirvalda þess efnis en íslenskir aðalverktakar hafa einnig sýnt áhuga á að taka að sér framkvæmdina. Gert er ráð fyrir að kínversk- íslenska verkfræðistofan muni taka þátt í undirbúningi og hönnun veg- arins ásamt íslenskum og dönskum verkfræðistofum. Hlutafé stofunn- ar verður 12 milljónir króna og verður eignahlutur íslendinga 60%. Gert er ráð fyrir að kostnaður vegna fyrirhugaðrar vegagerðar verði um 20 milljarðar íslenskra króna. Við undirritun samninganna sagði Guo Shichang, aðstoðarfylkis- stjóri í Hebei, að upphaf samstarfs- ins /negi rekja til heimsóknar hans til Islands, en þar fóru fyrstu við- ræður fram að tilhlutan sendiráðs Kína á íslandi. Halldór Blöndal samgönguráðherra sagði, að vega- áætlun Kínveija gerði ráð fyrir lagningu hraðbrautar frá norður- héruðum til sjávar til að auðvelda kolaflutninga. „Auk danska verk- takafyrirtækisins Phil og Sön hafa íslenzkir aðalverktakar sýnt áhuga á verkefninu," sagði hann. í samkomulagi um verkfræði- stofuna Huadao International Eng- ineering Design & Consulting Co. Ltd., er gert ráð fyrir að verkfræði- stofan vinni að verkefnum í Kína og öðrum samstarfsverkefnum þjóðanna. Miðað er við að stofan veiti verkfræðilega ráðgjöf, hanni mannvirki og auk þess er miðað við að hún sinni fjárfestingarráðgjöf, altækri gæðastjórnun og öðru- því er lýtur að bættum árangri fyrir- tækja. Þrír stjórnarmanna verða íslendingar, þar með talinn stjórn- arformaður. Framkvæmdastjóri verður íslendingur og starfsmenn í byijun ekki fleiri en tíu. Aðsetur verkfræðistofunnar verður í Torch Manison í Shijiazhuang. Samstarf á fleiri sviðum Halldór Blöndal sagði að sam- starfið við Kínveija hefði komið inn á aðra þætti svo sem á sviði sjávar- útvegsmála, mjólkurframleiðslu og í ullariðnaði. „Nákvæmar skilgrein- ingar á viðfangsefnunum liggja enn ekki fyrir,“ sagði hann. „Reynslan verður að leiða í ljós hvort báðar þjóðirnar telji að grundvöllur sé til að stofna til sameiginlegra fyrir- tækja á einstökum sviðum." 3 «1 Bi =* — E*« «í H i; ii n n .1 „ ** li QMHI 23 55 gy Geirsgata opnuð Morgunblaðið/Árni Sæberg MARKÚS Örn Antonsson borgarstjóri opnaði Geirsgötu með formlegum hætti þegar hann fyrst- ur manna ók á grænu ljósi um gatnamót Geirs- götu og Pósthússtrætis kl. 9.30 í gærmorgun. Eftir ökuferðina klappaði borgarstjóri ökutækinu, sem hann fékk til afnota af þessu tilefni, en eins og sjá má var það Buick og er hann 1955 ár- gerð. Geirsgata er nú komin í endanlegt horf og á næstu tveimur vikum verður gengið frá svæðum meðfram götunni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.