Morgunblaðið - 10.10.1993, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. OKTÓBER 1993
íslenskir f lugáhugamenn heimsóttu
rússneska f lugsýningu og sáu þar meóal annars að ísland
er merkt sem skotmark kjarnorkuf lugskeyta
smm
Sýndar voru
ýmsar gerðir
flugskeyta,
meðal annars
varnarskeyti
gegn eldflaug-
um, og stjórn-
stöðvar fyrir
eldflaugar.
06 SKtmum
eftir Guðna Einarsson/Myndir Þorgeir Yngvason
ÍSLENSKIR flugáhugamenn fóru nýlega á stóra flug-
sýningu í Rússlandi. Þar sáu þeir allt frá heimasmíðuð-
um fisjum til hljóðfrárra orustuþotna og flugskeyta
fyrir kjarnorkuvopn. Meða! annars fengu þeir að líta
inn í stjórnvagn fyrir flugskeyti. Hermaður sem sat
við stjórntækin sýndi þeim á tölvuskjá að nokkrar
kjarnorkueldflaugar hafa verið eyrnamerktar ís-
landi. Rússland gengur í gegnum stórfelldar breyting-
ar sem hafa áhrif á öllum sviðum. Þjóðin býr við
vaxandi fátækt, ótryggt stjórnmálaástand og óvissa
ríkir um hvað framtíðin ber í skauti sér.
Svif-
fluga
Þessi rennilega
sviffluga kost-
ar ekki nema
um 300 dollara,
eða um210þús-
und krónur.
Flugáhugamennirnir fóru í
þeim tilgangi að skoða rúss-
neskar flugvélar og nýjung-
ar á sviði heimasmíðaðra
véla, eða svokallaðra til-
raunaflugvéla, en Rússar hafa
löngum verið framarlega í flugvéla-
smíði. í hópnum voru flugmenn,
flugvélaverkfræðingur, svifflug-
kennari og fiugáhugamenn. Þor-
geir Yngvason áhugaflugmaður og
flugvélasmiður var einn þeirra sem
lögðu leið sína í austurveg. Þorgeir
hefur stundað svifflug og einkaflug
í mörg ár. Einnig hefur hann gert
upp svifflugu og smíðað vélflugur
ýmist einn eða í félagi við aðra.
Nú er hann að smíða tveggja sæta
þyrlu í bílskúrnum.
Þorgeir er ekki alls ókunnugur
í Rússlandi. Fyrir meira en 30 árum
var hann háseti á olíuskipinu
Hamrafelli og sigldi til Batumi við
Svartahaf til að sækja olíu. Merki
stríðsins voru þá hvarvetna aug-
ljós, þótt nokkuð væri umliðið frá
stríðslokum. Þorri vinnuaflsins var
konur og karlarnir sem sáust á
ferli voru flestir bæklaðir. Þorgeir
lærði á þessum árum kyrilíska staf-
rófið og svolítið hrafl í rússnesku
og kom sú kunnátta honum vel
núna. Þorgeir kann vel við Rússa,
hann segir þá elskulegt fólk, yfír-
leitt vel menntaða og stolta af landi
sínu og þjóðerni. Þó hafi verið auð-
fundið nú í byrjun september að
grunnt var á ótta við framtíðina.
Breytingar hafa verið örar í landinu
undanfarin ár og ekki séð fyrir
endann á þeim. Fátækt hefur vax-
ið, í landinu er óðaverðbólga og
glæpaklíkur breiða úr sér. Stjórn-
málaástandið er mjög ótryggt, eins
og atburðir síðustu daga sanna.
Enginn veit hvað framtíðin ber í
skauti sér. Nú nálgast vetur og ef
ekki verður nóg að bíta og brenna
er aldrei að vita hvað fólk tekur
til bragðs.
„Ég var spenntur að sjá Rúss-
land eftir allar breytingarnar,“ seg-
ir Þorgeir. „Moskva er glæsileg
borg og kemur manni á óvart.
Þarna eru stórkostleg mannvirki,
til dæmis neðanjarðarbrautirnar og
hallirnar í Kreml. En mér fannst
áberandi hvað öllu viðhaldi var
ábótavant og margt í niðurníðslu.
Það er auðséð að þá vantar pen-
inga.“ Áður en Þorgeir lagði í
ferðalagið útvegaði hann sér fullan
kassa af niðurlagðri síld í krukkum
og talsvert af reyktum silungi.
Hann segir að Rússarnir hafí kunn-
að vel að meta síldina og silung-
inn, reyndar sögðu þeir að íslensk
síld væri mun frægari en Coca-
Cola í Rússlandi.
Olga i brúnum pels
Orrustuliota
Þorgeir fékk að
setjast undir
stýri á MiG-29
orrustuþotu.
Hann var var-
aður við að ýta
á fjóra rauða
hnappa. Einn
skaut flug-
manninum úr
sæti og hinir
ræstu vopna-
búnaðinn.
Kunningi eins ferðafélaganna
hafði útvegað þeim gistingu á hót-
eli í Moskvu sem kennt er við Rós-
ir vindanna. Það er auðheyrt að
gististaðurinn verður lengi í minn-
um hafður. Það var ekki beinlínis
rósailmur sem mætti þegar komið
var inn á hótelherbergin. Allt var
í mikilli niðurníðslu og auðséð að
hótelið var löngu orðið óboðlegt á
vestrænan mælikvarða. Húsgögnin
voru gömul og lúin, salernin brotin
Hertól
Fjöldi hertóla
var sýndur,
meðal annars
þessi skrið-
dreki, færan-
legar ratsjár-
stöðvar og
stjórnstöð fyrir
eldflaugar.
Súkoj 31 listflugvélin þykir ein sú besta í
heiminum. Þessi flugvélategund hefur notið
mikilla vinsælda á Vesturlöndum, enda hef-
ur verðið stigið í um 200 þúsund dali, eða
14 miiljónir, á skömmum tíma.