Morgunblaðið - 10.10.1993, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 10.10.1993, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. OKTÓBER 1993 Elín Krisíjáns- dóttir - Minning Fædd 14. júní 1912 Dáin 5. október 1993 Mér varð ljóst fyrir nokkrum vik- um að amma ætti ekki langt eftir. Eftir fréttaútsendingu síðastliðinn þriðjudag var hringt og mér sagt að mjög væri af henni dregið. Þeg- ar ég kom upp á Landakotsspítala var það of seint, amma hafði dáið fyrir tíu mínútum. Mig hefði langað að hitta hana í síðasta sinn, en ég hugsaði með mér hve mikill léttir '!það væri fyrir hana að fá að deyja. Þetta var ekki búið að vera neitt líf síðustu mánuðina. Amma var ein þeirra sem mér þótti vænst um. Hjá henni og í hennar umsjá leið mér vel. Þegar foreldrar mínir fóru til útlanda var mér komið fyrir hjá ömmu og afa á Laufskálum, að eigin ósk, bæði þegar ég var bam og unglingur. Hjá ömmu gat ég haft mína henti- semi, boðið til mín vinum, enda nóg pláss, og ekki þótti mér verra hversu oft hún hafði uppáhaldsmat- inn minn, eins og fyrir hreina tilvilj- un. Það var ekki bara að ég fengi >gott atlæti hjá ömmu, við vorum líka góðar vinkonur. Amma hafði Fædd 10. október 1895 Dáin 14. júlí 1993 í dag lO.október eru liðin 98 ár frá fæðingu Rósu frænku minnar, en hún lést í sumar eftir skammvinna sjúkrahúslegu. Hún var fædd á Króksstöðum í Kaup- angssveit í Eyjafirði, dóttir búandi hjóna þar, þeirra Stefáns Jónsson- ar og Rósu Margrétar Sigurðar- dóttur. Rósa var sú þriðja í röð- inni af sex systkinum og lifði hún þau öll. Elst var Svafa, svo Sigurð- ur, Jón, Unnsteinn og Stefán ^yngstur. Þegar Rósa var um ferm- ingaraldur missti hún föður sinn, í framhaldi af því fara hún og tvö systkini hennar að heíman til vandalausra til að vinna fyrir sér. Síðar flytjast Rósa Margrét og þrír synir hennar í Ytri-Tjarnir í Eyjafírði til föðurforeldra minna, þeirra Kristjáns Helga Benjamíns- sonar og Fanneyjar Friðriksdóttur, og réð hún sig þar í húsmennsku eins og algengt var á þeim árum. Ytri-Tjarnar-fólkið var henni ná- skylt, en hún var tvímenningur við bæði hjónin. Var sambýli þeirra með miklum ágætum og reyndist Rósa Margrét föður mínum og systkinum hans ekki síður vel en ‘ sínum eigin börnum. Rósa frænka var mikil athafna- kona, henni var mjög sýnt um matargerð og hússtjórn. Hún vann við ráðskonustörf á Akureyri um nokkurra ára bil, á sjúkrahúsinu og við menntaskólann. Síðan dríf- ur hún sig til Danmerkur ti! náms við hússtjórnarskóla þar. Var það á ijórða áratugnum og má það kallast þrekvirki á þeim árum af fullorðinni konu sem aðeins hafði bamaskólamenntun, sem þá var öllu minni en í dag tíðkast. * Eftir að námi lýkur kemur Rósa heim og hefst handa sem mat- reiðslukennari við húsmæðraskól- ann á Syðra-Laugalandi í Eyja- fírði, í næsta nágrenni við æsku- stöðvar sínar. Þar sem þetta var fyrsta starfsár skólans, má segja að Rósa hafi lagt grunninn að amatreiðslukennslunni þar. Móðir skoðanir á því sem ég tók mér fyr- ir hendur og henni þótti t.d. nóg um hvað ég skipti oft um kærasta á unglingsárunum. Okkur þótti gaman að ræða það sem stóð í dönsku blöðunum, en þau voru í miklu uppáhaldi hjá ömmu og mér í þá daga. Danska konungsfjöl- skyldan skipaði sérstakan sess hjá ömmu enda átti hún ættingja í Danmörku. Eitt sinn þegar ég kom inn á Laufskála, kom amma á móti mér og ég sá að eitthvað var að. „Ella mín, hún Anna María er búin að missa fóstur," sagði amma. Mér var auðvitað brugðið og hélt að hún væri að tala um einhvern í fjölskyld- unni. En þá hafði amma séð það í dönsku blaði að Anna María, hin danskættaða prinsessa, hefði misst fóstur. Svo ræddum við þetta fram og aftur, báðar af jafnmiklum áhuga. Amma var alltaf boðin og búin að hjálpa mér. Þegar ég lagðist í flensu, tók amma leigubíl til að færa mér gijónagraut. Þegar ég eignaðist eldri strákinn minn og amma var enn við þokkalega heilsu, þvoði hún öll barnafötin og strauj- aði, til þess að tauið liti vel út. Þegar ég var blönk að læra í útlönd- mín var þá nemandi við skólann og talar hún um hversu góður kennari Rósa var, hún hafi lagt svo ríka áherslu á alla nýtni og hagræðingu og sagt að ekki þyrfti að hafa svo mikið á milli handanna til að geta gert góðan mat. Rósa kenndi við fieiri skóla, bæði á Sauðárkróki og í Reykjavík, einnig vann hún sem ráðskona á hóteium á sumrin. Margar veislumar hefur hún undirbúið, bæði fyrir háa sem lága. Arið 1940 giftist Rósa Jóni Þ. Björnssyni frá Veðramóti í Göngu- skörðum, sem var iengi skólastjóri á Sauðárkróki. Þá hafði hún tekið í fóstur nýfædda sonardóttur Jóns, Geirlaugu Bjömsdóttur. Jón var þá ekkjumaður með stórt og anna- samt heimili, þar sem gestkvæmt var hjá skólastjóranum. Rósa reyndist bömunum hans tíu sem besta móðir og samband þeirra var ætíð gott. A þeim tíma er Jón og Rósa bjuggu á Króknum, voru foreldrar mínir, þau Bjartmar Kristjánsson og Hrefna Magnúsdóttir, prests- hjón á Mælifelli í Skagafírði. Þeg- ar farið var á Krókinn var ætíð komið við á Sólvangi, heimili þeirra Jóns og Rósu, og gestristni og vináttu þeirra notið. Einnig voru þau alltíðir gestir á Mæli- felli. Hef ég óljósar minningar frá heimsóknum foreldra minna og okkar systkinanna í Sólvang, en ég var aðeins nokkurra ára gömul þegar Jón og Rósa flytjast búferi- um suður og settust að á Reyni- mel 52. Það var árið 1962, Jón lést svo tveimur ámm síðar, en Rósa bjó áfram á Reynimelnum. Ég fluttist suður fyrir rámum áratug og hef lengst af búið í næsta nágrenni við Rósu frænku. Það var alltaf ósköp notalegt rð koma til hennar á Reynimelinn og þiggja hjá henni kaffí og meðlæti. Rósa var mér alltaf mjög góð og var ævinlega af fyrra bragði reiðu- búin að hjálpa mér með eitt og annað. Þegar ég eignaðist mitt fyrsta barn þá bjargaði hún mér með ýmislegt sem nauðsynlegt er um, þá lét hún senda mér pening. Þegar ég hugsa um það hvað amma lét sér annt um mig, þykir mér fyrir því að hafa ekki getað gert meira fyrir hana. Síðustu vik- umar þegar hún var vart með með- vitund, var ekki hægt að gera ann- að en stijúka henni um höfuðið og biðja til guðs að hún fengi að deyja. Ég vildi óska þess að ég gæti, þegar fram líða stundir, fetað í fót- spor hennar ömmu minnar og sýnt barnabömum mínum jafnmikla ást og umhyggju og hún sýndi mér. Það yrðu lánsöm böm. Elín Hirst. til umönnunar ungbarna. Hún út- vegaði mér góða dagmömmu, hana Öllu á Asvallagötunni, en þær voru mjög góðar vinkonur. 0g margt fleira mætti rekja um hjálpsemi hennar við mig og mitt fólk. Það virtist sem Rósu félli aldrei verk úr hendi, það fylgdi hennar kynslóð að nota tímann vel. Þrátt fyrir vaxandi sjóndepurð var hún sívinnandi, hún heklaði og pijón- aði mikið og nutu margir góðs af því. En hún var ekki að hreykja sér af handavinnunni sinni. Ég þáði af henni vettlinga í vetur, eina af Jjölmörgum, og dáðist ég að því hvað þeir væra fínir. En Rósu fannst þeir óttalega ljótir en það mætti svo sem nota þá, sagði hún. Og svo sannarlega era þeir nothæfír. Ég á mjög vandað og fallegt rúmteppi sem Rósa hekl- aði, en það er víst eitt af mörgum teppum sem hún gerði um. dag- ana. Upp á síðkastið gerði hún gólfmottur og notaði hún í þær gamafganga sem henni áskotnuð- ust, því engu mátti henda, allt skyldi nýta sem best. Ég leit meira á Rósu sem vin- konu mína en gamla frænku úti bæ. Þó hún væri rúmlega sextíu áram eldri en ég, fann ég ekki fyrir neinu svokölluðu kynslóðabili okkar á milli. Það var hægt að ræða við hana um allt milli himins og jarðar. Hún var greind kona og vel lesin og var afar minnug á alla skapaða hluti, bæði það sem gerðist fyrir mörgum áratugum Elsku Ella mín er látin og minn- ingamar streyma fram. Eg var aðeins 14 ára gömul er ég kom á heimili hennar á Laufskálum, sem var glæsilegt hús á fögram stað með útsýni í allar áttir. Hjá Élínu var ég í þeim besta skóla sem ég gat fengið í heimilis- haldi og framkomu, því að hún var öllum bestu kostum búin og yndis- leg við alla. Þau vora glæsileg hjón Elín Kristjánsdóttir og Vilhjálmur Bjamason, nú bæði farin á sama árinu. Blessuð sé minning þeirra. Ef vorið kemur sunnan yfir sund með söng í hjarta, gneistaflug um brár, þá breytast öll hin löngu liðnu ár í ljósan dag, í heiða morgunstund. (Davið Stefánsson) Ég votta bömum Elínar og fjöl- skyldum þeirra samúð mína. Guðbjörg. Hinsta stund Elínar Kristjáns- dóttur húsfreyju í Laufskálum í Reykjavík var 5. október sl. er hún lést á öldranardeild Landakotsspít- ala. Vistaskiptin vora henni líkn við þraut. Það var árið 1936, sem þau reistu hús sitt, Laufskála, í Langholts- sókn, Elín og Vilhjálmur G. Bjama- son. Glæsileg hjón með yndislega góða nærvera. Heimilið þeirra var vé sem allir fengu að njóta er þar knúðu dyra. Glæsilegt, fágað og gestrisni mikil. í Laufskálum var hlúð að heimili, kirkju og skóla, og það sem nýlega hafði gerst. Hún hafði mikla ánægju af kveð- skap og kunni ógrynnin öll af vís- um og ljóðum. Ymislegt af því hefur aldrei birst á prenti, en var skrifað niður eftir henni af dóttur- dóttpr hennar og nöfnu. Kynslóðir koma og kynslóðir fara, það er víst lífsins gangur að gamalt fólk deyr. En það er miss- ir af gamla fólkinu, því það býr oft yfír svo mikilli reynslu og fróð- leik um liðna tíð. Við sem yngri eram verðum að varðveita þennan fróðleik svo hann glatist ekki og gæta okkur á því að verða ekki svo upptekin af amstri hversdags- ins að við gleymum því. Ég er nú svo eigingjöm að ég hefði helst viljað hafa Rósu frænku lengur okkar á meðal, en ekki fæst við það ráðið. Við viljum helst hafa ættingja okkar og vini sem lengst hjá okkur, en lífíð er hverf- ult, við vitum ekki hvað morgun- dagurinn ber í skauti sér og okkur er hollt að hafa það í huga og taka ekki það sem við höfum í dag sem sjálfsagðan hlut. Það var í sumar að við mamma vorum að aka eftir Suðurgötunni og tókum eftir því að litla húsið Klöpp, sem þar hafði staðið í ára- tugi, var horfíð. Þá rifjaðist upp fyrir mömmu lítil saga sem hún sagði mér. Það var að vetri til í snjó og kulda að Rósu datt í hug að fara í heimsókn til Ingibjargar vinkonu sinnar frá Löngumýri, sem bjó í sömu götu. Ingibjörg verður undrandi að sjá Rósu og spyr hvort það sé ekki mikil hálka, en Rósa kvaðst ekki hafa orðið vör við það. Rósa hafði stutta við- dvöl, en ákveður að ganga út að Klöpp. Þar bjó þá vinkona Rósu, Fæddur 30. júní 1976 Dáinn 25. september 1993 Kjartan vinur okkar er dáinn. En þó að hann sé farinn burt úr þessu lífí þá mun hann ætíð lifa með okkur í minningunni. Manni fínnst svo hrikalega óréttlátt að svo ungur og hraustur strákur þurfi að yfírgefa lífíð svo snemma. Kjartan var góður vinur okkar máttarstoðum þjóðfélagsins, með umhyggju, ástúð og hlýju. Dýrmætum menningar- og sið- ferðisgildum var ekki kastað á glæ. Bænin var kjölfestan. Guðsorðið til halds og trausts í daglegri önn. Vilhjálmur G. Bjamason var einn af framkvöðlum Langholtssafnað- ar. Hann lést 4. febrúar síðastliðinn. Elín gekk til liðs við kvenfélág kirkjunnar og var ein af heiðursfé- lögum þess. Héiðursskjalið sem hún fékk sem þakklætisvott fyrir vel unnin störf í félaginu fylgdi henni á hennar síðasta dvalarstað og minnti hvem þann er þar kom, á, að einn af máttarstólpum kirkjulegs starfs er kvenfélag einS og hún vann. Elín Kristjánsdóttir var glæsileg og mikilhæf kona, sem gaf ríkulega af gnægð hjarta síns og gleði handa í bakstri og hannyrðum til eflingar fjáröflun kirkjunnar. Hún stóð við hlið eiginmanns síns í uppbygging- arstarfí fyrir söfnuðinn. Hvergi var betra að hvílast eða endurmeta gildi lífsins en við hlið þessara hjóna. Kirkjuklukkur Langholtskirkju vora gjöf þessara hjóna sem gengu saman til helgidómsins hvem helg- an dag meðan kraftar leyfðu. Við í Langholtssöfnuði kveðjum nú góðan vin sem við eigum margt að þakka. Og klukkur kirkjunnar munu áfram kalla okkur til helgi- dómsins sem var svo ríkur þáttur í lífí og starfí þessarar konu sem hér er kvödd. Blessuð sé minning hennar. Sigríður Jóhannsdóttir. gömul kona norðan úr Hjaltadal í Skagafirði, sem flust hafði til Reykjavíkur á efri árum. Þegar Rósa kemur að bænum era þar engin ljós í gluggum, en hún geng- ur heim að bænum og tekur í hurðarhúninn. Það reyndist ólæst og gengur Rósa inn. Þar situr gamla konan ein í myrkrinu döpur í bragði, en verður fegin komu Rósu. Fer hún þá að rekja raunir sínar, en henni hafði verið tilkynnt að rífa ætti húsið. Gamla konan kveið flutningnum, því hún var orðin hálfblind og þekkti sig hvergi nema þarna heima hjá sér. Rósa segist þá þekkja vel einn borgar- dómarann og skyldi hún tala máli hennar. Létti þá yfír gömlu kon- unni og skildi Rósa við hana öllu glaðari í bragði. Varð dóttur Rósu um og ó að hún skyldi hafa farið út í þessari hálku. En Rósa sagð- ist aldrei hafa fundið fyrir hálk- unni sem verið var að tala um og trúði hún því að forsjónin hefði leitt sig til gömlu vinkonu sinnar á Klöpp, henni til huggunar. Rósa frænka hélt eigið heimili fram á miðjan tíræðisaldur, en þijú síðustu árin bjó hún hjá Laugu dóttur sinni og naut umhyggju hennar og fjölskyldu hennar. Rósa hélt andlegri heilsu ótrúlega vel og góðu minni, sem einstakt má teljast af svo fullorðinni mann- eskju. En Iíkaminn var orðinn þreyttur eftir langa og annasama ævi. Vil ég fyrir hönd fjölskyldu minnar og ættmenna þakka Rósu samfylgdina og óskum við henni velfamaðar í nýjum heimkynnum. Blessuð veri minning Rósu Stef- ánsdóttur. Hrefna Sigríður Bjartmarsdóttir. beggja og það er sárt að hugsa til þess að hann eigi ekki eftir að vera með okkur oftar. En nú vitum við að vinur okkar hefur átt að gegna öðru hlutverki og vel verður tekið á móti honum. Við munun sakna Kjartans mik- ið og biðjum guð að styrkja Steina og Rósu, Guðný, Kára, Álfheiði og alla ættingja og vini í sorg sinni. Guð blessi ykkur öll. Guðfinna og María. Minning Rósa Stefánsdóttir hússtjómarkennari Kjartan FriðgeirÞor- steinsson — Minning

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.