Morgunblaðið - 10.10.1993, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 10.10.1993, Qupperneq 30
JMorgtittliIaMfc ATVINNU/RAD- CX3 SMÁAUGLÝSINGAR AUGL YSINGAR LANDSPÍTALINN Reyklaus vinnustaður BARNASPITALI HRINGSINS Aðstoðarlæknir Um er að ræða alm. störf 2. aðstoðarlækn- is. Þátttaka í vöktum skv. fyrirframgerðri áætlun. Bundnar vaktir. Nánari upplýsingar veitir próf Víkingur H. Arnórsson í síma 601050. Umsóknir sendist forstöðulækni á eyðublöð- um lækna ásamt Ijósriti af prófskírteini og upplýsingum um starfsferil, staðfest af yfir- mönnum. LEIKSKOLAR Fóstra - þroskaþjálfi Fóstra eða þroskaþjálfi óskast í 50% starf til 31.12. á leikskólann Stubbasel, Kópavogs- braut 19. Nánari upplýsingar veitir Þóra Sveinsdóttir, leikskólastjóri, í síma 44024. LANDSPITALINN KOPAVOGI Hjúkrunarfræðingur/þroskaþjálfi Óskum að ráða deildarstjóra á deild 8 sem er elli - og hjúkrunardeild. Staðan er laus frá 1. nóvember nk. Upplýsingar gefur Sigríður Harðardóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri, ísíma 602700. RÍKISSPÍTALAR Ríkisspítalar eru einn fjölmennasti vinnustaöur á íslandi með starfsemi um land allt. Sem háskólasjúkrahús beitir stofnunin sér fyrir markvissri meöferð sjúkra, fræðslu heilbrigðisstétta og fjölbreyttri rannsóknastarf- semi. Okkur er annt um velferö allra þeirra, sem við störfum fyrir og með, og leggjum megináherslu á þekkingu og virðingu fyrir einstaklingnum. Starfsemi Ríkissprtala er helguð þjónustu við almenning og við höfum ávallt gæði þjónustunnar, gagn hennar og hagkvæmni að leiðarljósi. Starfsmaður óskast Boðeind leitar að starfsmanni til almennra skrifstofu- og afgreiðslustarfa. Boðeind er reyklaus vinnustaður og því verð- ur aðeins um ráðningu að ræða að viðkom- andi reyki ekki. Leitað er að starfsmanni sem hefur góða framkomu, er stundvís, skipulegur og á auð- velt með að vinna með öðrum. Öðru jöfnu ganga þeir fyrir sem hafa haldgóða þekkingu á einmenningstölvum og notkun þeirra. Nauðsynlegt er að umsækjendur hafi bíl- próf. Ölum umsóknum verður svarað og inn- send gögn endursend að umfjöllun lokinni. Áhugasamir leggi inn umsóknir á auglýsinga- deild Mbl. fyrir 15. október nk. merktar: „Boðeind - 1093“. -BOÐEIND SFr AUSTURSTROND 12 170 SELTJARNARNES SIMI 612061 FAX 612061 Leikskólar Reykjavíkurborgar Leikskólastjóri Staða leikskólastjóra við nýjan leikskóla við Viðarás er laus til umsóknar. Umsóknarfrestur er til 1. nóvember nk. Fóstrumenntun áskilin. Nánari upplýsingar gefa Bergur Felixson, framkvæmdastjóri, og Margrét Vallý Jóhannsdóttir, deildarstjóri, í sfma 27277. Dagvist barna, Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími 27277. Lausar stöður lækna Sjúkrahús Seyðisfjarðar og Heilsugæslu- stöðina á Seyðisfirði vantar lækna frá og með 1. janúar 1994. Um er að ræða tvær stöður sem æskilegt væri að tveir læknar sinntu sameiginlega. Sjúkrahús og heilsugæsla er í nýju og rúm- góðu húsnæði og býður upp á góða vinnuað- stöðu fyrir áhugasamt starfsfólk. Umsóknum skal skila til framkvæmdastjóra, Lárusar Gunnlaugssonar, vinnusími 97-21406 eða Jóhanns Hanssonar, formanns stjórnar, vs. 97-21372, hs. 97-21435 eða Hannesar Sigmarssonar, læknis, í síma 97-21406, fyrir 20. október 1993. Þeir gefa jafnframt allar upplýsingar. Sjúkrahús og heilsugæsla, Seyðisfirði. BORGARSPÍTALINN Sjúkraliðar Öldrunardeildir Borgarspitalans auglýsa eftir sjúkraliðum: Deild E-63, sem er hjúkrunar- og endurhæf- ingardeild, staðsett í Heilsuverndarstöð Reykjavíkur við Barónsstíg, vantar sjúkraliða. Deildin er ætluð einstaklingum sem búa við margvíslega fötlun af völdum sjúkdóma og slysa og þarfnast langtíma hjúkrunar. Starfshlutfall samkomulagsatriði. Hvrtaband, öldrunardeild sem er staðsett á Skólavörðustíg 37, vantar sjúkraliða. Deildin er ætluð einstaklingum með alzheim- er og þarfnast langtíma hjúkrunar. Starfshlutfall samkomulagsatriði. Nánari upplýsingar veitir Erna Einarsdóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri starfsmannaþjónustu í síma 696356. Patreksfjörður Hjúkrunarfræðingar Sjúkrahúsið Patreksfirði óskar að ráða hjúkr- unarfræðing starfa frá 1. desember eða eft- ir nánara samkomulagi. Upplýsingar í síma 94-1291 eða 94-1110. Hjúkrunarframkvæmdastjóri. Endurskoðun Við auglýsum hér með eftir fólki til endur- skoðunarstarfa á skrifstofu okkar í Hafnarfirði. Leitað er að viðskiptafræðingum af endur- skoðunarsviði og/eða starfsfólki með haldgóða reynslu í bókhaldi og við gerð reikningsskila. Um er að ræða störf unnin á höfuðborgar- svæðinu og utan þess. Umsóknir, með upplýsingum um aldur, menntun og starfsreynslu, sendist Endurskoðun hf., Bæjarhrauni 12, 220 Hafn- arfirði, fyrir 22. október nk. Endurskoðun hf. Löggiltir endurskoðendur Reykjavík Borgarnesi Selfossi Hafnarfirði Sauðárkróki Egilsstöðum Samstarfsfyrirtæki: Akureyri, Dalvík. HJ Electrolux ELECTROLUX GOODS PROTECTION A/S Verkfræðingar - arkitektar óskast sem hluthafar Kolaportið hf. er samstarfsaðili Electrolux Goods Protection á íslandi og hyggst stofna nýtt hlutafélag um sölu sérstakrar gerðar stálgrindarhúsa hér á landi. Þessi stálgrindarhús byggja á sérstakri tækni sem þróuð hefur verið varðandi undirstöður og að hluta sérstakrar PVC klæðningar. Þau eru talin hafa ýmsa kosti fram yfir stór mannvirki sem byggð eru með hefðbundnum hætti og eru mjög samkeppnishæf varðandi stofnkostnað og rekstrarkostnað. Kolaportið hf. óskar eftir að komast í sam- band við verkfræðing og arkitekt sem hefðu áhuga á að gerast hluthafar í þessu nýja félagi og vinna í hlutastarfi við það. Áhugasamir aðilar eru beðnir að hafa sam- band við Jens Ingólfsson á skrifstofu Kolaportsins í síma 625030. KOLAPORTIÐ HF.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.