Morgunblaðið - 10.10.1993, Síða 2

Morgunblaðið - 10.10.1993, Síða 2
2 FRETTIR/INNLENT MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. OKTOBER 1993 EFNI Morgunblaðið/Júlíus Næturlíf í miðbænum LÖGREGLAN kannaði aldur unglinga sem voru á ferli í miðbænum aðfaranótt laugardags og reyndust langflestir hafa aldur til að vera á almannafæri. Starfsmenn lögreglu og ÍTR höfðu lítið að gera í athvarfinu sem opnað var í miðborginni. Unglingarnir héldu sig heima RÓLEGT var í miðbænum aðfaranótt laugardags og mun færri unglingar á ferli en undanfarnar helgar. Fulltrúi lög- reglu og starfsfólk í athvarfi íþrótta- og tómstundaráðs í miðborginni hafði lítið að gera og var athvarfinu lokað á fjórða tímanum. Skúli Skúlason, starfsmaður ÍTR, segir að tveir unglingar undir aldri hafí verið færðir í athvarfið. Annar, 15 ára, kom í athvarfíð um miðnættið og var hann sóttur af föður sínum. Hinn, sem var 16 ára, kom í athvarfið um kl. 2 og fór sjálfur heim. Sem kunnugt er mega 13 til 16 ára unglingar ekki vera á almanna- færi eftir klukkan 22 á þessum árstíma. ' Unglingar í úthverfunum Að sögn Skúla kom talsvert af unglingum í félagsmiðstöðvar borgarinnar um kvöldið og einnig söfnuðust unglingar saman við verslunarmiðstöðvar í úthverfum borgarinnar. Ekki fer neinum sögum af teljandi vandræðum á þeim stöðum. Skúli segir greini- legt að mun færri unglingar hafi verið á ferli í miðbænum en und- anfarnar helgar og nær ekkert af unglingum undir lögaldri. Lögreglan segir greinilegt að unglingar og foreldrar þeirra hafi brugðist vel við áskorunum um að lögboðinn útivistartími væri virtur. Unglingarnir virtust hafa haldið sig á heimaslóðum og farið snemma í háttinn, ættu þeir hrós skilið fyrir viðbrögðin við tilmælum yfirvalda. Framkvæmdastjóri Borgarspítalans um sjálfstæða starfsemi á lokuðu skurðdeildinni Erfitt að mismima fólki innan sömu stofnunar FRAMKVÆMDASTJÓRI Borgarspítalans segir að ýmis vanda- mál myndu fylgja því ef læknum yrði leyft að reka sjálfstæða starfsemi í húsnæði skurðlækningadeildar spítalans sem ákveðið hefur verið að hafa lokaða að minnsta kosti til áramóta. Vegna lokunar hennar hafa biðlistar lengst og er nú allt að ársbið eftir aðgerð á bæklunardeild. Hann segir erfitt að mismuna sjúklingum innan sömu stofnunar. „Það má skoða alla möguleika. En þá yrði líka að spyija: Ef þeir fá fé til að reka þetta, af hveiju fáum við það ekki? Það kostar svipað að reka þessa starfsemi hvort sem spítalinn gerir það eða sjálfstæðir verktakar. Þá vaknar spumingin hvort þeir einstakling- ar sem þama fá þjónustu séu til- búnir til að greiða aukalega fyrir hana og þá er farið að mismuna fólki gagnvart þessari þjónustu. Ég held að það sé ekki heimilt samkvæmt lögum,“ sagði Jóhann- es Pálmason, framkvæmdastjóri Borgarspítalans, þegar hann var spurður hvort hann teldi að spítal- inn vildi leigja húsnæði lokuðu deildarinnar til lækna sem vildu sjálfír reka þessa starfsemi. Hann sagðist vera hlynntur því að skoða alla möguleika til tekju- öflunar fremur en að loka deildum og láta sjúklinga hrannast upp á biðlista. Til dæmis væri hægt að innheimta þjónustugjöld til að halda starfseminni gangandi. Nefndi hann sem dæmi að inn- heimta 10 þúsund kr. innritunar- gjalds myndi gefa Borgarspítalan- um 100 milljónir í viðbótartekjur á ári. Hann sagði að heilsukorta- hugmyndin gæti verið svipaðs eðl- is. ASÍ stefnir VSÍ vegna uppsagnar verkamanns ALÞÝÐUSAMBAND íslands hefur lagt fram stefnu í Félagsdómi gegn Vinnuveitendasambandi íslands vegna uppsagnar Gylfa Páls Hersis verkamanns í Stálsmiðjunni. í stefnunni er því haldið fram að uppsögnina megi rekja til afskipta Gylfa Páls af vinnudeilum við Stálsmiðjuna. Stefnandi kveður það vera sitt mat að málefnalegar skýringar sé ekki að finna á uppsögn Gylfa Páls Hersis. Ástæður uppsagnarinnar séu afskipti og afstaða hans til vinnudeilna og Dagsbrúnar. Aðrar skýringar séu yfirvarp sem sé mót- mælt sem röngum og ósönnuðum. Uppsögnin sé einsdæmi í samskipt- um atvinnurekenda og verkalýðsfé- laga síðustu áratugina og aftur- hvarf til vinnubragða á þriðja og fjórða áratug þessarar aldar. Kröfur stefnanda eru að upp- sögnir. verði dæmd brot á 4. gr. laga um stéttarfélög og vinnudeilur og verði gerð ógild. Að stefnda verði gert að greiða stefnanda skaðabætur að fíárhæð 3.500.000 kr. Að stefndi verði dæmdur til greiðslu sektar og gert að greiða stefnanda málskostnað að mati Félagsdóms að meðtöldum virðis- aukaskatti. Mismunun innan sömu stofnunar Jóhannes sagði að erfítt væri að meta það hvort markaður væri fyrir sjálfstæða verktakastarfsemi þar sem fólk borgaði fullt verð fyrir þjónustuna en benti á að á ýmsu hefði gengið með slíka starf- semi í nágrannalöndunum. Hann sagðist hafa efasemdir um að þetta gæti gengið innan sömu stofnunar og breytti engu hvort starfsemin væri á vegum spítalans sjálfs eða annarra. „Það yrði mik- il mismunun innan veggja sömu stofnunar ef fólk gæti komið á eina hæðina og keypt sér aðgerð fyrir tugi þúsunda eða meira en á hinni hæðinni væri allt annað fyr- irkomulag. Það yrði líka erfitt gagnvart starfsfólkinu. Það yrði að skoða það vel hvort þetta gæti gengið en ég hallast frekar að því að slík starfsemi yrði að fara fram annars staðar," sagði Jóhannes. Annir hjá lögreglunni 1 Keflavík Fimm á sjúkrahús eft- ir harðan árekstur FIMM voru fluttir á sjúkrahús eftir að tvær fólksbifreiðar skullu saman á mótum Hring- brautar og Tjarnargötu í Kefla- vík um miðnætti á föstudag. Tveir af fimmmenningunum voru fluttir á Borgarspítalann þar sem meiðsl þeirra voru talin alvarleg og var annar þeirra um tíma talinn í lífshættu. Lögreglan í Keflavík telur að mikill hraði og óaðgæsla hafi orðið til þess að bílamir skullu saman með þeim afleiðingum að flytja varð bæði ökumenn og farþega á sjúkra- hús. Tvennt var flutt á Borgarspít- ala og þrennt á sjúkrahúsið í Kefla- vík. Bílamir skemmdust mikið og voru fluttir af slysstað með dráttar- bfl. Unglingspiltar færðir á lögreglustöðina Á meðan lögreglan var á slysstað trufluðu hana þrír 16 og 17 ára piltar sem höfðu verið að sprengja kínvetja í nágrenninu. Piltarnir voru nokkuð ölvaðir og voru þeir færðir á lögreglustöðina. Tveir gistu þar um nóttina en sá þriðji fékk að fara heim eftir tiltal um kvöldið. -----» ♦ ♦---- Hnífum beitt í Hlíðahverfi TIL RYSKINGA kom milli tveggja hópa unglinga í Hlíða- hverfi um miðnætti aðfaranótt Iaugardags. í hita leiksins dró 15 ára piltur upp hníf og brá honum á tvo andstæðinga, hlaut annar skrámu á enni og hinn á hálsi. Hnífamaðurinn var færður til yfirheyrslu og gert að sárum hinna særðu á slysadeild. Að sögn lög- reglu virðist það orðið býsna al- gengt að unglingar séu vopnaðir hnífum og þeim oft beitt til ógnun- ar. Framinn og fiokkurinn ►Miklar umræður hafa orðið að undanfömu um pólitískar stöðu- veitingar og sæta þær sífellt harð- ari gagnrýni meðal almenn- ings./lO Uppreisn, bylting - borgarastríð! ►Hvað fór úrskeiðis í Moskvu 3. október? /12 Dísin í þokunni ►Morgunblaðsmenn brugðu sér fram á Amarvatnsheiði þar sem fram fer silungsveiði til útflutn- ings./14 Breytingaskeið japan- skra karla ►Japanska konan sækir hægt, en ömgglega, á bratta karlaveldisins. /16 Svifflugur og skot- flaugar ►íslenskir flugáhugamenn heim- sóttu rússneska flugsýningu og sáu þar meðal an’nars að ísland er merkt sem skotmark kjamorku- flugskeyta./18 Mitt sólskin f rá í vor ►Grafíklist Braga Ásgeirssonar gleður augu manna sem skoða yfirlitssýningu á slíkum verkum eftir hann í Listasafni íslands./24 B ► 1-24 >Ur»»«VUM> . II II4!\S VITI BRENIVIIR Hans viti brennur ►Á þessu ári em 100 ár liðin frá fæðingu Páls ísólfssonar. Við minnumst hans sem orgelleikara og tónskálds, stórbrotins tónlistar- manns, sem með starfi sínu setti svip á allt tónlistarlíf á íslandi í áratugi./l Piastgómar bjarga hjónaböndum ►Karl Öm Karlsson lektor við Tannlæknadeild segir frá ýmsum gerðum höfuðverkja sem tengjast kjálkum og tönnum./8 Tjásur í tísku ►Vetrarlínan í hártískunni./lO C BÍLAR ► l-4 Dodge Ram pallbíll ►Pallbíllinn sem keppinautamir dáðust að í Detroit./l í höfuðstöðvum Toy- ota ►Toyota er ríki í ríkinu með eigin skóla og sjúkrahús. Engu að síður kannast menn við P. Samúelsson, umboðsmanninn á íslandi./2 FASTIR ÞÆTTIR Fréttir 1/2/4/6/bak Dægurtónlist 13b Kvikmyndahúsin 20 Fólk í fréttum 14b Leiðari 22 Myndasögur 16b Helgispjall 22 Brids 16b Reykjavíkurbréf 22 Stjömuspá 16b Minningar 26 Skák 16b íþróttir 38 Bió/dans 17b Útvarp/sjúnvarp 40 Bréftilblaðsins 20b Mannlífsstr. 6b Veivakandi 20b Kvikmyndir 12b Samsafnið 22b INNLENDARFF ÆTTIR: 2-6-BAK ERLENDAR FRÉTTIR: 1-4

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.