Morgunblaðið - 10.10.1993, Blaðsíða 4
4 FRETTIR/YFIRLIT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. OKTÓBER 1993
ERLENT
INNLENT
Rekstrarhalli
ríkissjóðs
áætlaður 9,8
milljarðar
FJ ÁRMÁLARÁÐHERR A lagði
Qárlagafrumvarp fyrir næsta ár
fram á Alþingi á mánudag. Heild-
arútgjöld ríkissjóðs verða 113,3
miíljarðar á riæsta ári sem er 4
milljarða lækkun að raungildi frá
yfirstandandi ári og heíldartekjur
eru áætlaðar 103,5 milljarðar og
lækka um rúmlega 1 milijarð að
raungildi. Rekstrarhalli ríkissjóðs
er áætlaður 9,8 milljarðar kr.
200 milljónir úr Smugnnni
AFLAVERÐMÆTI íslenskra tog-
ara í Smugunni var í vikunni talið
vera orðið hátt í 200 milljónir króna
á þeim rúmlega rúma mánuði sem
liðinn er frá því að veiðamar hóf-
ust. Skipveijar á skipi Grænfrið-
unga, Solo, hafa reynt að stöðva
veiðar íslensku skipanna með því
að sigla i veg fyrir þau á gúmbát-
um. Landssamband íslenskra út-
vegsmanna íhugar að kæra Græn-
friðunga fyrir brot á alþjóðlegum
siglingareglum. Sjópróf vegna að-
gerða Solo fara fram í vikunni og
næstu daga ætla útgerðarmenn að
ræða framhald veiða í Smugunni.
Yfírvinna greidd dómurum
við Hæstarétt
YFIRVINNA hefur verið greidd
hæstaréttardómurum frá því í sept-
ember á síðastliðnu ári fyrir 40
tíma á mánuði í 10 mánuði á ári.
Launahækkun þessi er að upphæð
um 100 þúsund kr. á máiiuði og
ERLENT
Uppreisn
harðlínu-
manna bar-
in niður
STJÓRN Borísar Jeltsíns Rúss-
landsforseta barði niður vopnaða
uppreisn harðlínumanna í Moskvu
á mánudag. Forsetinn leysti upp
þingið 21. september og hafði ver-
ið þrátefli í deil-
um hans við
þingmenn síðan.
A sunnudag
ruddust um
15.000 stuðn-
ingsmenn þing-
manna í gegnum
fylkingar lög-
reglu að Hvíta
húsinu, þinghúsi
Rússlands, og síðar reyndu vopn-
aðir menn á vegum harðlínuaf-
lanna að leggja undir sig sjón-
varpsstöðvar og fleiri íjölmiðla.
Við sjónvarpshúsið kom til
harðra átaka og féllu nær 70
manns. Á mánudagsmorgun’gerðu
hermenn ríkisstjómarinnar árás á
Hvíta húsið og tókst sérveitum á
nokkrum klukkustundum að
leggja undir sig neðstu hæðir þess.
Þingmenn og stuðningsmenn
þeirra gáfust upp síðdegis og
gengu út, margir með hendur á
lofti. Þeir Alexander Rútskoj,
sem þingið gerði að forseta í stað
Jeltsíns, og Rúsl-
an Khasbúlatov
þingforseti voru
helstu forsprakk-
ar uppreisn-
arinnar og voru
þeir settir í Lef-
ortovo-fangelsið
í Moskvu. Hund-
ruð annarra
stjómarand-
stæðinga voru einnig fangelsuð
en flestír voru fljótlega látnir laus-
ir. Aðfaranótt þriðjudags átti lög-
regla enn í höggi við leyniskyttur
er greidd samkvæmt reikningum
frá Hæstarétti. Launahækkun ák-
vörðuð af Kjaradómi fyrr á árinu
1992 var endurskoðuð og dregin
til baka í framhaldi af bráðabirgða-
lögum rikisstjómarinnar í byijun
júlí 1992. Hrafn Bragason, vara-
forseti Hæstaréttar, rökstyður
greiðslumar með auknu álagi á
Hæstarétt síðastliðið haust.
Biðlistar vegna
bæklunaraðgerða lengjast
SJÚKRADEILD A-5, ein þriggja
skurðlækningadeilda Borgarspít-
alans, verður lokuð til áramóta.
Að sögn Jóhannesar Pálmasonar,
framkvæmdastjóra spítalans, var
ákveðið að fresta opnun deildar
sem í ágúst var lokað vegna sum-
arleyfa til áramóta að minnsta kosti
vegna erfiðrar fjárhagsstöðu.
Brynjólfúr Mógensen, yfirlæknir
slysa- og þæklúnardeildar, segir
að lokunin segi mjög fljótt til sín,
biðlistar lengist og nú sé bið eftir
ákveðnum aðgerðum allt að því
eitt ár.
Vandi vegna uppsagna
svæfingalækna
LÆKNARÁÐ Landspítalans sendi
á fpstudag frá sér ályktun þar sem
ýfirlæknar spítalans átelja harð-
lega aðgerðarleysi stjómvalda
vegna þess alvarlega vanda sem
kommn er upp vegna uppsagnar
átta svæfingalækna við spítalann.
Rúmlega 100 sjúklingar eru nú
komnir á biðlista vegna hjartaað-
gerða, meira en helmingi fleiri en
um áramót, og þar af eru 17 sem
þola ekki bið, að sögn læknanna.
Samningamenn ríkisins munu
leggja tillögur til lausnar deilunni
fyrir fulltrúa Jækna á næstu dögum
og telja að þar sé kominn grund-
völlur samkomulags.
á húsaþökum en ró færðist yfir
borgina er leið á þriðjudag.
Jeltsín rak þijá héraðsleiðtoga
sem stutt höfðu uppreisnarmenn
og leysti upp ráðin, sovétin, í
Moskvu. Einnig kom hann á rit-
skoðun ög bannaði stjómmála-
samtök andstæðinga sinna, hann
nam þó þessar fyrirskipanir úr
gildi þegar á miðvikudag. Jeltsín
heitir því að standa við loforð um
frjálsar þingkosningar í desember
og forsetalq'ör í júní. Skýrt var frá
því að herinn hefði í fyrstu neitað
að ráðast á Hvíta húsið en látið
undan er Jeltsín gaf sjálfur fyrir-
skipun um árás. Milli 100 og 200
manns féllu í átökunum. Á mið-
vikudag kröfðust Rússar að þeir
fengju að hafa meira af þunga-
vopnum í Kákasushéruðum sínum
en afvopnunarsamningar við Vest-
urveldin kveða á um.
Deilt um friðargæslu í
Sómalíu
BILL Clinton Bandaríkjaforseti
ákvað á fimmtudag að tvöfalda
fjölda bandarískra friðargæsluliða
í Sómalíu í 10.000 manns þótt
skoðanakannanir sýni að meiri-
hluti Bandaríkjamanna vilji draga
herliðið á brott. Forsetinn stefnir
að því að herliðið hverfi frá Sómal-
iu innan sex mánaða. Á annan tug
Bandaríkjamanna hefur fallið í
Sómalíu í bardögum við skæruliða
stríðsherrans Mohammeds Aide-
eds.
Georgíumenn flýja Abkhaziu
TUGÞÚSUNDIR Qeorgíumanna
eru nú á flótta um fjallaskörð til
Georgíu frá héraðinu Abkhaziu
sem uppreisnarmenn hafa á valdi
sínu. Ottast er að margir flótta-
mannanna láti lífið vegna kulda
og vosbúðar. Átök liðsmanna
Zviads Garnsakhurdia, fyrrverandi
Georgíuforseta, við stjórnarher-
menn Edúards Shevardnadze,
leiðtoga Georgíu, valda því að fólk-
ið kemst ekki ldiðar sinnar úr fjöll-
unum. Stjórnvöld í Georgíu segja
ennfremur að matvæli séu á þrot-
um og óttast hunguróeirðir í höf-
uðborginni, Tbilisi.
Jeltsín
Framtíð Colins Powells, fyrrverandi herráðsforseta
Líklegnr til að geta
sameinað repúblik-
ana í forsetakjöri
Washington. The Sunday Telegraph.
COLIN Powell herhöfðingi lét
fyrir nokkrum dögum af emb-
ætti forseta bandaríska herráðs-
ins, æðstu stöðu sem bandarísk-
ur hermaður getur gegnt. Hann
var fyrstur blökkumanna til að
klifra svo hátt í metorðastiga
hersins og er nú, 56 ára að aldri,
við hestaheilsu og til alls líkleg-
ur. Powell er velmenntaður,
þykir einstaklega traustvekj-
andi, kemur vel fyrir sig orði
og er ágætlega heima í ólíkustu
málum. Margir velta því fyrir
sér hvort hann stefni að frama
í stjórnmálum, jafnvel forseta-
embættinu. Tækist honum að
ná völdum í Hvíta húsinu yrðu
vatnaskil í sögu kynþáttadeilna
í Bandaríkjunum en svertingjar
gætu ekki vænst aukinna ríkis-
styrkja.
„Ég vona að ég geti þjónað land-
inu með einhveijum hætti. Hvort
það verður í stjómmálum mun
koma í ljós,“ segir Powell sjálfur.
Samkvæmt skoðanakönnunum
er Powell, sem er sonur fátækra
innflytjenda frá Jamaíka, einn af
vinsælustu mönnum í Bandaríkjun-
um. Á ferli sínum í hemum virðist
hann hvergi hafa misstigið sig,
hann hlaut tvisvar heiðursmerki
fyrir hraustlega framgöngu í Víet-
nam og er hann var yfirmaður 11.
herfylkisins upplýsti hann hryðju-
verkið er William Calley ofursti
myrti tugi óbreyttra borgara í þorp-
inu My Lai.
Powell hefur margþætta reynslu
auk starfa fyrir herinn. Á áttunda
áratugnum vann hann fyrir orku-
málaráðuneytið og Ronald Reagan
forseti gerði hann síðar að öryggis-
málaráðgjafa sínum, þar næst að
forseta herráðsins. Powell hefur því
undanfarin 15 ár gefið forsetum
góð ráð á degi hveijum og athyglis-
verðast þykir að hann hefur aldrei
lent í kvöm illgjamra fjölmiðla eins
Colin Powell.
og svo margir aðrir áhrifamenn.
Tilfinningar Bills Clintons for-
seta hafa án efa verið blendnar er
hann kvaddi Powell í síðustu viku.
Herráðsforsetinn barðist leynt og
•ljóst gegn tveim mikilvægum mál-
um forsetans. Powell vildi ekki
leyfa hommum og lesbíum fullan
aðgang að hernum og var í ársbyij-
un andvígur öllum hugmyndum um
að senda bandarískt herlið til Bosn-
íu. Á hinn bóginn telja margir að
Powell gæti, þrátt fyrir hörundslit-
inn, orðið skæðasti mótframbjóð-
andi Clintons í forsetakjörinu 1996.
Repúblikanar em margklofnir, þeir
deila um fóstureyðingar, fríverslun
og innflytjendalög; Powell gæti
orðið maðurinn sem sameinaði
flokkinn að baki sér og slægi vopn-
in úr höndum, Ross Perots sem
báðir flokkarnir óttast, einnig
myndi hershöfðinginn vafalaust ná
til sín fylgi margra svertingja sem
annars kjósa langflestir demókrata.
Hefðbundnir stjómmálamenn eru
ekki í háum metum en herinn nýt-
ur virðingar eftir Persaflóastríðið
þar sem herráðsforsetinn gegndi
lykilhlutverki.
Gott gengi Jamaíkamanna
Hershöfðinginn, sem nú státar
af fjórum stjörnum, telur að þakka
megi gott gengi blökkumanna frá
Jamaíka, sem sest hafa að í Banda-
ríkjunum, sterkum fjölskyldubönd-
um. Meðaltekjur þessa innflytj-
endahóps em hærri en meðaltekjur
hvítra Bandaríkjamanna. Hann
nefnir fleira, bendir á ólíkan menn-
ingaruppruna, einnig mennta-
stefnu bresku nýlenduherranna á
Jamaíka. Þrælar á Jamaíka fengu
jarðir í sinn hlut og urðu að selja
afurðir á fijálsum markaði. Talið
er að vegna þessa hafi framkvæði
þeirra ekki farið forgörðum og
hugsunarhátturinn sé því ólíkur því
sem algengast er hjá bandarískum
blökkumönnum. Hinir síðarnefndu
þræluðu flestir á búgörðum hvítra
og síðustu áratugina hafa þeir van-
ist umfangsmiklum, opinberum
styrkjum, orðið háðir þeim.
Hvom flokkinn?
Powell hefur ekki skýrt frá því
hvort hann sé repúblikani eða
demókrati. Skoðanir hans virðast
nær fyrrnefnda flokknum, hann
hefur lagt áherslu á hefðbundin
gildi þegar hann hefur rætt við
svarta unglinga. Hann er andvígur
þeirri stefnu margra blökkumanna-
leiðtoga að hvetja stanslaust til
þess að svertingjar fái aukna styrki
og aðstoð frá stjómvöldum án þess
að krafíst sé endurgjalds af ein-
hveiju tagi. „Eflið fjölskylduna og
munið að versta tegund fátæktar
er ekki hin efnalega heldur skortur
á gildum", segir Powell við ungling-
ana. Hann segir að blökkumenn
verði að bjarga sér sjálfir, efla með
sér sjálfsaga, vinna, mennta sig og
sýna ættingjum og vinum tryggð.
Reuter
Maó á geisladisk
RÆÐUR Maó Tsetungs fyrrum kommúnistaleiðtoga Kína komu í vikunni út á geisladisk í alþýðulýðveldinu
og er nýi diskurinn rækilega auglýstur þar í Iandi svo sem sjá má á myndinni sem tekin var í hljómplötu-
verslun í Peking í gær.