Morgunblaðið - 10.10.1993, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 10.10.1993, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. OKTÓBER 1993 11 gr. þarf þó ekki að auglýsa stöður í utanríkisþjónustunni. Viðmælendur Morgunblaðsins sögðust yfírleitt ekki skilja þessa reglu. Jónas Fr. Jónsson lögfræðingur Verslunarráðs sagði t.d. að slíkt ákvæði væri skiljanlegt ef um leyniþjónustu væri að ræða en ekki íslensku utanríkisþjónustuna. Fannst honum meira að segja sjálf- sagt mál að auglýsa stöður sendi- herra. Björn Bjarnason sagðist telja sjálfsagt að auglýsa almennar stöður sem heyra undir utanríkisráðuneytið en ekki sendiherraembættin. Jón Baldvin segir að almenn störf í utan- ríkisþjónustunni hafi yfirieitt verið auglýst í sinni tíð. I 3. gr. 1. 38/1954 er ákvæði um almennt hæfi starfsmanna. í 5. tl. er eitt skilyrðið fyrir því að fá skip- un, setningu eða ráðningu í opinbera stöðu orðað svo: „Almenn menntun og þar að auki sú sérmenntun, sem lögum samkvæmt er krafist eða eðli málsins samkvæmt verður að heimta til óaðfinnanlegrar rækslu starfans." Svo virðist sem tilviljun ráði hve- nær þess er getið í lögum hvort sér- stök menntun er skilyrði. í grein í Úlfljóti eftir Pál Hreinsson og Ingvar Þóroddsson (3.-4. tbl. 1986) eru tald- ir upp tugir forstjóra og forstöðu- manna ríkisstofnana þar sem beinlín- is er krafist háskólamenntunar. Stundum eru í lögum miklar kröfur gerðar til tiltölulega lágt settra starfsmanna en engar sérstakar kröf- ur til æðstu forstöðumanna. Því hefur verið haldið fram að rétt sé að geta í eyðurnar og gera menntunarkröfur þótt það sé ekki tekið fram í lögunum. Iðulega er nefndum, ráðum eða stjómum falið að veita umsögn eða gera tillögu um vai á umsækjendum. Umsögn álitsgjafa er ekki bindandi nema svo segi í lögunum og er það sjaldgæft. Dæmi um að langt hafí verið gengið í að takmarka vald ráð- herra eru Háskólalögin, nr. 131/1990, þar sem segir í xi. gT. að engum megi „veita prófessors- stöðu, dósents- eða lektorsstarf við háskólann nema meiri hluti dóm- nefndar telji hann hæfan og meiri hluti viðstaddra á deildarfundi greiði honum atkvæði í embættið eða starf- ið ... Nú fellst menntamálaráðherra ekki á tillögu deildarfundar og skal þá auglýsa embættið eða starfíð að nýju.“ Annað dæmi er val á héraðsdóm- urum. Dómnefnd fer rækiiega yfir umsækjendur, störf þeirra, menntun og skrif, og skilar dómsmálaráðherra skriflegri og rökstuddri umsögn. Afar erfítt er fyrir ráðherra að fara ekki eftir slíku áliti. Tryggingastofnun Þegar embætti forstjóra Trygg- ingastofnunar var laust bar ráðherra að skipa nýjan „að fengnum tillögum tryggingaráðs" samkvæmt því sem segir í 3. gr. 1. 67/1971 um almanna- tryggingar. í umsögn ráðsins frá 15. september 1993 segir: „Tryggingar- áð hefur fjallað um þær 13 umsóknir sem fyrir liggja um stöðu forstjóra Tryggingastofnunar ríkisins. Ráðinu var vandi á höndum þar sem umsækj- endur eru með menntun, starfs- reynslu og sérþekkingu á ýmsum sviðum. Ennfremur er rétt að geta þess að engin sérstök skilyrði um hæfni voru sett við auglýsingu stöð- unnar né heldur er fyrir hendi starf- slýsing á embætti forstjóra. Þá voru umsóknir nokkuð mismunandi að því er varðar upplýsingar og framsetn- ingu og því stundum erfitt um sam- anburð. Tryggingaráðsmenn gáfu sér góðan tfma til þess að fara vandlega yfir allar umsóknir og komu sér síðan saman um ákveðna málsmeðferð. Við umfjöllun sína lagði tryggingaráð áherslu á menntun, starfsferil og reynslu, stjómun og félagsstörf, en fleiri atriði komu einnig til athugun- ar. Allir þessir þættir tóku mið af því sem tryggingaráðsmenn töldu geta nýst vei í starfí forstjóra Trygg- ingastofnunar, en sú stofnun gegnir afar veigamiklu hlutverki í opinberri stjómsýslu.“ Síðan nefndi meirihluti ráðsins (fjórir af fimm) fímm um- sækjendur sem „það taldi uppfylla best það mat er ráðið lagði til grund- vallar í umfjöllun sinni". Einn ráðs- maður af fímm taldi rétt að „krefjast góðrar menntunar, stjórnunarreynslu og þekkingar á málefnum er varða almannatryggingar". Nefndi hann fjóra umsækjendur sem uppfylltu best þessi skilyrði. Það má spytja hvort ekki hefðu verið rétt vinnubrögð að búa fyrst til vandaða starfslýsingu forstjóra fyrst hún er ekki f lögum og fjalla svo rækilega um hvern umsækjanda. Þar hefði mátt taka á því hvort stofnunin þyrfti fyrst og fremst mann menntað- an í tryggingarfræðum eða hvort leit- að væri að manni með reynslu af stjórnmálum og fjárlagagerð. Það er spurning hvort ráðið taldi slíkt til- gangslaust eða hvort það var að skjóta sér undan ábyrgð með því að gefa ráðherra allfijálsar hendur. Yfirleitt er svigrúm fýrir mat ráð- herra á umsækjendum enda má segja að vald hans og ábyrgð á störfum sínum væri tilgangslaus ella. En sam- kvæmt nýju stjórnsýslulögunum er stjórnvaldi skylt að rökstyðja ákvörð- un sína. Samkvæmt því gæti maður sem gengið væri framhjá við veitingu embættis krafist rökstuðnings. Ráð- herra yrði þá að skýra hvers vegna viðkomandi varð ekki fyrir valinu, eftir atvikum þrátt fyrir að dómnefnd teldi hann hæfastan. Eins og áður segir mætti ekki vísa í slíkum rök- stuðningi til pólitískra sjónarmiða. Hæpið er einnig að þau rök sem fram komu hjá Guðmundi Árna Stefáns- syni heilbrigðisráðherra í ríkissjón- varpsfréttum eftir skipun Karls Steinars Guðnasonar í forstjóraemb- ætti Tryggingastofnunar teldust full- nægjandi: „Auðvitað hefur það alltaf. áhrif við ráðningar í störf hvort þú þekkir viðkomandi eða hafir verið samferðamaður hans í vinnu, leik eða störfum.“ Hvað segir unga fólkið? Guðlaugur Þór Þórðarson, formað- ur SUS, segir að einfaldasta ráðið til að draga úr valdi ráðherra til emb- ættisveitinga sé að fækka þeim ríkis- fyrirtækjum og stofnunum sem undir hann heyra með einkavæðingu. Hon- um finnst óeðlilegt að ákvörðun- arvald færist út í ríkisstofnanirnar því ráðherrann hafi hið lýðræðislega umboð. Siv Friðleifsdóttir, fýrrver- andi formaður SUF, teiur LIl UUla cU/1. afnema æviráðningu æðstu embætt- ismanna með því að binda ráðningu þeirra við sex ár. Hægt væri að end- urráða ef skynsamlegt þætti. Þá yrði auðveldara að vinda ofan af mistök- um en nú er. Sigurður Pétursson, formaður SUJ, varar við því að upp geti komið sérfræðingaveldi þar sem sérfræðingar velji sérfræðinga og pólitísk reynsla verði einskis metin. En leynimakk flokksmaskína vegna stöðuveitinga grafí undan trausti á stjómsýslunni. Öll töldu þau æskilegt að faglegar kröfur réðu meiru um val á embættismönnum. Okkar árlega BORBDUKA UTSAIA WBWBBSHWBWWKWWhefst mánudagWÍ1 Straufríír matar- og kaffidúkar, allar stærðir Kínverskir handunnir dúkar - Handheklaðir borðdúkar - Blúndudúkar - Flauelisdúkar - Jóladúkar smáir og stórir Smádúkar og borðrenningar Hverfisgðru 74. sími 85270 RAFTÆKNIVERSLUN FALKANS • RAFTÆKNIVERSLUN FÁLKANS • RAFTÆKNIVERSLUN FALKANS • RAFT NOVENCO ÞAKVIFTUR ©G HITABLá$&RAR Staðlaðar einingar hitablásara frá Novenco til loftræsingar og lofthitunar í íbúðarhús, skemmur, bílskúra, veitingahús og verkstæði. Höfum einnig þakblásara og þakhettur fyrir skemmur, skrifstofubyggingar, verkstæði o.fl. PNovenco er dönsK gæoavárá. Veitum tæknilega ráðgjöf við val á loftræsibúnaði og hitablásurum. RAFVÉLAVERKSTÆÐI FÁLKANS HÖFÐABAKKA 9 • SÍMI: 91-685518 Mótorvindingar, dæluviðgerðir og allar almennar rafvélaviðgerðir. Pekking Reynsla Þjónusta FÁLKINN SUÐURLANDSBRAUT 8*108 REYKJAVIK SÍMI: 91-81 46 70 • FAX: 91-68 51 74 RAFTÆKNIVERSLUN FALKANS • RAFTÆKNIVERSLUN FÁLKANS • RAFTÆKNIVERSLUN FALKANS ■ RAFTÆKNIVERSLUN FÁLKANS Föstudag 22. okt. kl. 20.00,1. sýning Sunnudag 24. okt. kl. 20.00, 2. sýning Laugardag 30. okt. kl. 20.00, 3. sýning Sunnudag 31. okt. kl. 17.00, 4. sýning Aðeins örfáar sýningar í haust / UPPSETNINGU EVU EVDOKIMOVU í ÍSLENSKU ÓPERUNNI Fólki gefst nú kostur á að sjá nokkrar sýningar á coppeiíu í íslensku óperunni Miðasala í íslensku óperunni virka daga frá kl. 17.00-19.00, s. 11475. Tekið er á móti miðapöntunum í síma 679188 frá kl. 9.00-13.00. Bréfsími 679197. Sýning sem hlaut einróma lof gagnrýnenda „Heillandi Coppeiia! Hún (Eva Evdokimova) velur einlæga létta og áferöarfallega leið þar sem allt látbragð er svo tært að það I/ er öllum skiljanlegt." ;i „Galdurinn tekst, sýningin lifnar fyrir augum leikhúsgesta og lifir með þeim lengi. Ævintýrið um Coppeliu tendrast lífi á sviðinu." Ólafur Ólafsson, Morgunblaðið. „Ég held að ekki sé djúpt í árina tekið að segja að aldrei hafi hópdansar í sígildu dansverki verið betur skipulagðir, samræmdir, samstilltir á íslensku sviði... Þessi sýning kemur sannarlega til móts við þær vonir sem vöknuðu í brjóstum margra velunnara íslenska dansflokksins eftir sýninguna „Uppreisn" í október. Meira af slíku takk!“ Aðalsteinn Ingólfsson, D V. ISLENSKI DANSFLOKKURINN

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.