Morgunblaðið - 10.10.1993, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. OKTÓBER 1993
5
Forsvarsmaður bjórhátíðar í október
Ekki hlutverk
lögreglu að refsa
FORSVARSMAÐUR bjórhátíðarinnar „Oktoberfest" segir ekki rétt
að farið hjá lögreglunni að hafna umsóknum kráareigenda um rýmk-
un reglna um opnunartíma og fjölda gesta á hátíðinni þó eitthvað
kunni að hafa farið úrskeiðis á síðustu hátið. Hlutverk lögreglunnar
sé að leiðbeina en ekki refsa.
„Þetta tókst að okkar mati mjög
vel í fyrra. Auðvitað fór eitthvað
úrskeiðis sem má laga. Lögreglan
metur aðstæður hveiju sinni og
hvaða leyfi eigi að veita. Hún er í
erfiðri aðstöðu. En ég er ósáttur
við að þeir skuli segja að vegna
slæmrar reynslu í fyrra sé öllum
umsóknum veitingamanna hafnað.
Ef eitthvað hefur farið úrskeiðis
ættu þeir að koma með vinnureglur
sem veitingamenn gætu farið eftir.
Mér finnst hlutverk lögreglunnar
vera það að leiðbeina fólki en ekki
að refsa. Hvernig geta menn ann-
ars bætt sig,“ sagði Björgólfur
Guðmundsson, framkvæmdastjóri
Viking Brugg hf., sem stendur fyr-
ir bjórhátíðinni.
Ofgar leiða aldrei til góðs
Stórstúka íslands hefur mótmælt
bjórhátíðinni og sagðist Björgólfur
ekki skilja afstöðu forystumanna
Stórstúkunnar. „Ég vil aðeins segja
að öfgar leiða aldrei til góðs,“ sagði
Björgólfur um mótmælin.
Hann sagði að mikil eftirvænting
hefði verið vegna bjórhátíðarinnar,
fjöldi hópa hefði haft samband og
viljað taka þátt í henni. Þetta væri
greinilega góð viðbót í tilbreyting-
arleysi októbermánaðar sem margir
vildu taka þátt í.
Umboðsmaður finn-
ur að gjaldtöku fyr-
ir hreindýraveiðar
GJALDTAKA vegna hreindýraveiða eins og hún fer nú fram er
óheimil samkvæmt því sem fram kemur í áliti umboðsmanns Alþing-
is frá því í vor. Beindi hann því til umhverfisráðuneytisins að koma
þessum málum í löglegt horf. Samkvæmt því sem Magnús Jóhannes-
son ráðuneytisstjóri umhverfisráðuneytisins segir voru samt engar
breytingar gerðar á fyrirkomulagi hreindýraveiða á því veiðitíma-
bili sem hófst í ágúst. Magnús segir að til standi að flytja frumvarp
á Alþingi á næstunni þar sem óvissu um þetta efni verður eytt.
Hinn 10. september 1992 barst
umboðsmanni kvörtun yfir skipan
á veiðum hreindýra. Einn þáttur
kvörtunarinnar laut að gjaldtöku
fyrir veiðileyfi en samkvæmt regl-
um umhverfisráðuneytisins um
stjórn hreindýraveiða fer hluti inn-
heimtra gjalda til greiðslu kostnað-
ar af hreindýraráði og hluti til að
, standa straum af kostnaði við nán-
ar tilgreind verkefni veiðistjóraemb-
ættisins.
Umboðsmaður tók málið til at-
hugunar og gaf út álit 18. maí síð-
astliðinn. I sjálfu sér er heimilt lög-
um samkvæmt að taka gjald fyrir
veiðileyfi og á arður að renna til
eigenda þeirra jarða sem 'verða fyr-
ir ágangi hreindýra. En sérstaka
lagaheimild hefði þurft til gjaldtöku
í því skyni að reka stofnanir ríkisins
er þessu tengjast. Þar sem slíkri
lagaheimild sé ekki til að dreifa
verði ekki að lögum heimt gjöld
samkvæmt þessum reglum. Um-
boðsmaður getur þess að sam-
kvæmt lögum 28/1940 um friðun
hreindýra beri ríkissjóði að greiða
kostnað af eftirliti með hreindýrum
og hreindýraveiðum. Stjórnvalds-
reglur geti ekki haggað þessu
ákvæði.
Sameiginleg not
Annar þáttur kvörtunarinnar
laut að því hvort hægt væri að
banna landeigendum hreindýraveið-
ar í eigin landi. Umboðsmaður seg-
ir að frá öndverðu virðist hafa ver-
ið á því byggt að hreindýrin ættu
að lifa hér villt og vera til sameigin-
legra nota fyrir landsmenn, einkum
sem veiðidýr. Það er niðurstaða
umboðsmanns að landeigendur
verði að sæta þeirri almennu skerð-
ingu sem hlýst af lögum um hrein-
dýraveiðar þrátt fyrir veiðitilskipun
frá 20. júní 1849 þar sem segir að
veiðiréttur fylgi eignarrétti að landi.
Hins vegar sé ljóst að án samþykk-
is landeigenda verði ekki veitt leyfi
á grundvelli laga um hreindýraveið-
ar til veiða á hreindýrum á land-
svæðum, sem eru háð einstaklings-
eignarrétti.
Magnús Jóhannesson ráðuneytis-
stjóri segir að heimildin til gjaldtöku
sé lögfræðilegt álitaefni og lögfræð-
inga greini á um það. Ekki hafi
verið brugðist við áliti umboðs-
manns áður en það veiðitímabil sem
nú stendur hófst nú í ágúst en frum-
varp verði flutt í haust á Alþingi
þar sem óvissu um þetta efni verði
eytt.
MK»
innbundin:
v«ró Irá
O0 m«A
■» • nóvambvr:
vorA fr*
og meó
-f . nóvambðr:
Stefán Ján Hafstein
f æst í næstu
bókabúð
IVI /V
New York! New Yopk!
New York! New York! er Ameríkuannáll Krislins Jóns Guðmunds-
sonar. 24 ára gamall hélt Kristinn af stað til höfuðborgar heimsins,
New York, til að lenda í ævintýrum — og honum varð svo sannar-
lega að ósk sinni.
Þetta er sönn saga um ævintýri íslendings í ótrúlegu ferðalagi inn í
myrkviði stórborgarinnar. Fjörug bók, sorgleg, fyndin, raunsæ og
stundum átakanleg. Stefán Jón Hafstein heimsótti sögustaði Kristins,
kynntist persónum f ævintýrum hans, fyllti í eyður og tók myndir.
Afraksturinn er þessi ævintýralega bók.
Fæst bæði innbundin og í kilju.
F O R L A G I
1 E N N I N G