Morgunblaðið - 10.10.1993, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. OKTÓBER 1993
13
svo veik að hún hefði neyðst til að
vopna óbreytta borgara, þá hefðu
ráðin úti á landsbyggðinni gengið
harðar fram. Allt sem gerist í
Moskvu í þessum efnum bergmálar
landsbyggðin.
En til þess kom ekki sem betur
fer. Eftir því sem næst verður kom-
ist var loksins ákveðið að senda
herlið inn í Moskvu um, tvöleytið
aðfararnótt mánudagsins. Á fundi
herráðsins þá var einnig ákveðið að
gera árás á Hvíta húsið í dögun.
Fram að því mun ekki hafa verið
til nein áætlun um aðgerðir hersins
í Moskvu. Jeltsín hafði enga trygg-
ingu fyrir því þegar hann lýsti yfir
neyðarástandi klukkan fjögur á
sunnudaginn að nokkur fengist til
að framfylgja því. Hann fékk ekki
stuðning hersins í valdabaráttunni
fyrr en eftir að bardagar voru búnir
að geysa í Moskvu í 6 klukkutíma.
Þessi tregða sýnir betur en flest
annað að uppreisnarmennirnir höfðu
ríka ástæðu til að ætla að þeir gætu
haft betur í viðureigninni við Jeltsín.
Eftir að fréttist af hreyfingum
hersins í átt að borginni, á fjórða
tímanum aðfararnótt 4. oktber, varð
flestum ljóst hvernig bardögunum
mundi lykta. Við sjónvarpshúsið
höfðu víkingasveitarmennirnir tutt-
ugu sýnt ótrúlega hetjulega mót-
spyrnu þótt þeir væru nokkrum
sinnum færri en árásarmennirnir,
nú fengu þeir liðsauka sem dugði
til að hrinda árásinni endanlega.
Þrátt fyrir allt hafði ekki verið ráð-
ist til inngöngu í Kreml og verkefni
hersins var því fyrst og fremst árás-
in á Hvíta húsið. Það efaðist enginn
um að Rútskoj og félagar hefðu
tapað baráttunni. Hins vegar var
strax á sunnudagskvöldið hafin óöld
í borginni, sem erfitt hefur reynst
að kveða niður.
Það er líklega hægt að fullyrða
að eftir að dagur reis mánudaginn
4. október hafi spurningunni um
hollustu hersins endanlega verið
svarað. Herinn var neyddur til að
velja á milli valdhafa og valið var
Jeltsín. Enn einu sinni hefur hin
mikla lýðhylli Jeltsíns líklega bjarg-
að honum. Nokkur þúsund manns
voru tilbúrn til að fara niður í mið-
borg Moskvu seint um kvöld, eyða
þar nóttinni og jafnvel leggja sig í
lífshættu fyrir lýðræðið. Það var
alveg ljóst, að uppreisnarmenn
mundu ekki þegjandi og hijóðlaust
geta tekið völd í Kreml.
Stjórnkerfið var lamað
Þess vegna var óvissan stutt.
Þrátt fyrir allt voru það ekki nema
fáeinir klukkutímar sem framtíð
Rússlands hékk á bláþræði. En þeir
voru samt of margir. Ef fyrr hefði
verið brugðist við og byssumönnum
ekki verið leyft að leika iausum
hala í borginni marga daga fyrir
uppreisnina, er ótrúlegt að 150
manns hefðu þurft að láta lífið. En
allt stjórnkerfið var iamað, vegna
þess að það var ekki ljóst hver færi
með völdin í landinu, mikilvægar
stofnanir höfðu ekki gert það upp
við sig hvern valdhafanna þær kysu.
Síðan „Októberuppreisnin" var
bæld niður hefur Jeltsín gengið
skjótt til verks. Hann er búinn að
losa sig við alla pólitíska andstæð-
inga sem eitthvað kveður að í höfuð-
borginni og nokkrir svikulir sveitar-
stjórar úti landsbyggðinni hafa
fengið að fjúka. Hann hefur leyst
upp borgarráð Moskvuborgar og
látið fangelsa forsprakka stjórnar-
andstæðinga þar. Sömuleiðis hefur
hann ráðlagt borgar- og héraðsráð-
um um allt Rússland að leggja sjálf
sig niður. Stjórnarskrárdómstóllinn
hefur verið lýstur óhæfur til starfa
og forseti hans neyddur til að segja
af sér. Formenn ótal nefnda og
starfshópa sem forsetanum var í nöp
við eða sýndu honum mótþróa hafa
ýmist verið reknir eða sagt af sér
sjálfir.
Til eru þeir sem hrista höfuðið
og tauta „einræðisherra“ yfir þess-
um aðgerðum forsetans. En þeir eru
þó fleiri sem horfa á það með létti
að stjórnvöld byiji loksins að stjórna
landinu. Eftir meira en eins árs lam-
andi valdabaráttu sem kom í veg
fyrir að stjórn eða stjórnarandstaða
reyndu af alvöru að glíma við vanda-
mál iandsins, er loksins starfsfriður.
Aðgerðir Jeltsíns síðustu daga
sýna að hann ætlar sér að uppræta
allar leifar ráðstjórnarinnar úr rúss-
nesku stjórnkerfi. Fram að þessu
hefur alls ekki verið hægt að gera
grundvallarbót á kerfinu því í raun
hafa kommúnistar haft töglin og
hagldirnar víðast hvar. Að minnsta
kosti nægilega mikil völd til þess
að stöðva umbreytingu þjóðfélagsins
og krefjast þess að flestum venjum
sovétríkisins sé haldið.
Nauðsynlegar aðgerðir
Aðgerðír Jeltsíns eru nauðsynleg-
ar hvort sem þær eru einræðislegar
eða ekki. í Moskvu var starfandi
fjögur hundruð manna borgarráð
og auk þess hverfisráð í öllum hverf-
um borgarinnar. Þessi ráð voru öll
meira og minna á bandi þingsins
og studdu það með ráðum og dáð-
um. Það er ekki kostnaðarlaust að
skipuleggja uppreisn gegn stjórn
ríkisins og það er ljóst að einkum
tvö hverfisráðanna tóku verulegan
þátt í kostnaði þingsins við að skipu-
leggja andspyrnuna gegn Jeltsín.
Til þess voru notuð gjöld íbúanna í
hverfinu og gróði af verslunarfyrir-
tækjum sem sett voru á stofn í því
skyni að útvega þinginu og hverfis-
ráðinu fé.
Ráðin bera ábyrgð á hinni full-
komnu óreiðu sem ríkir í allri götu-
og markaðsverslun í Moskvu. Þau
hafa kynt undir spillingu og glæpa-
starfsemi, því þau telja verkefni sitt
ekki vera stjórn og velferð umdæm-
isins, heldur áhrifín á valdabarátt-
una í ríkinu. Þau þurftu að mala
gull fyrir stjórnarandstöðuna. Því
kom það engum á óvart að Jeltsín
skyldi láta það verða sitt fyrsta verk
að leysa upp öll ráð Moskvuborgar.
í fyrsta skipti síðan stjórn Jeltsíns
hratt efnahagsumbótum sínum af
stað í janúar 1992, hefur hún nú
afl til að fylgja þeim eftir. I fyrsta
skipti er á hreinu hver fer með völd-
in í landinu, hveijum lögregluþjón-
ar, hermenn, embættismenn og svo
framvegis eiga að hlýða. „Einræðis-
aðgerðirnar" vekja því veika von hjá
mörgum: Fækkar glæpum á götun-
um? Getur stjórnin tekið í hnakka-
drambið á bröskurum og götusölu-
mönnum og tryggt með einhveijum
hætti að verslun sé eðlileg en ekki
rekin af mafíunni? Verður bráðum
hægt að búast við því að lögreglu-
menn hugi að velferð borganna
fremur en að hagsmunum mafíósa?
Og svona má áfram telja.
Boris Jeltsín hefur nú fest sig í
sessi. Andstæðingar hans sitja í
fangelsi, sumir eiga yfír höfði sér
þunga dóma og þeir Rútskoj, Khasb-
úlatof og Makasjov mega vænta
langrar fangelsisvistar. Þetta þýðir
samt ekki að öll andstaða við Jelts-
ín sé horfin. Stjórnin á mikið starf
fyrir höndum við að sveigja Rúss-
land af braut borgarastríðs og inn
á braut stjórnmálanna, koma í veg
fyrir að ofbeldi sé talið eðlilegt fram-
hald átaka í fundarsölum.
Það er of snemmt að spá fyrir
um hvort liðsmenn Jeltsíns og hann
sjálfur ráða við verkið. Það skiptir
öllu máli að þá skorti ekki kjark til
að afsala sér sjálfviljugir persónu-
legum völdum í kosningum, að þeir
freistist ekki til að hrifsa til sín völd
í skjóli þess að tímarnir séu erfiðir,
ástandið ótryggt og þjóðin ekki nógu
þroskuð til að axla ábyrgð lýðræðis-
ins.
Það er ekki fyrr en núna, í októ-
ber 1993 eftir ótrúlegar þrengingar
að hægt að að segja með sanni að
Rússland hafi hrist af sér kom-
múnismann. Það er bæði merkilegt
og ógnvænlegt að einn maður skuli
enn standa nokkurn veginn upprétt-
ur eftir allan hamaganginn og að
hann skuli hafa fengið allan heiminn
til að trúa því að hann einn geti
tryggt viðgang lýðræðisins í Rúss-
landi. Framtíð Rússlands veltur á
Boris Jeltsín, því ríkið, það er hann
og ráðstjórnin - henni er lokið.
Haupmamahafnarveisla
™ OO -OA nHnhoi'
3 dýrðlegir dagar frá
q/| Q qc \m*
£4.0 93 KP.
Staögreiösluverð m.v. tvíbýli á Hotel
Cosmopole*** í miðborg Kaupmannahafnar.
Danskt morgunverðarhlaðborð.
Allir skattar innifaldir.
Skosk
22.-24. október
Dýrðaraukar
Einn hádegisverður þar sem borða
má og drekka að vild í 60 mínútur!
! Okeypis á þrjá næturklúbba sem opnir
eru til 9 að morgni. Ókeypis morgun-
verður í klúbbunum fyrir nátthrafna.
! Séretakt hádegisverðartilboð á veitinga-
stað MAGASIN stórverslunarinnar.
Upplýsingablað á íslensku um endur-
greiðslu virðisaukaskatts.
Ókeypis eintak af This week
Copenhagen og listi yfir Top Ten
Restaurants Offers. liggur frammi á
hótelinu við komu.
‘Staðgreiðsluverö gildir ef ferð er greidd a.m.k. viku
íyrir brottför.
4 höggfagrir dagar frá
kr:
solfveisla
Glæsilea hóoferð íslenski
24.-28.
október
Glæsileg hópferð íslenskra kylfinga á
Westerwood, Golf & Country Club.
siáðu tn
• 4ra stjörnu glæsilegt golfhótel.
• Morgunverðarhlaðborð.
Staðgreiðsluverð m.v. tvíbýli. 5.200 kr. auka- • Bókaðir rástímar milli kl. 10 og 11.30.
Höggþétt golffararstjórn
Peter Salmons.
Verð langt undir pari.
Westerwood: Nýr og glæsilegur völlur
við hótelið sem Seve Ballesteros
hannaði.
Murrayshall: Magnaður „links“ völlur
u.þ.b. hálftíma akstur frá hótelinu.
gjald fyrir einbýli. Allir skattar innifaldir.
Einstakt tilboö!
Fjórir hringir á Westerwood vellinum
3.900 kr.
’Staðgreiðsluverð gildir ef ferð er greidd a.m.k. viku
fyrir brottför.
| EIÐRIBOR.GARAR
til Edinborgar
8 ógleymanlegir dagar frá
Staðgreiðsluverð m.v. tvíbýli á Mount
Royal hótelinu með morgunverði.
Allir skattar innifaldir.
Fararstjóri verður
Lilja Hilmarsdóttir
Vikuferð
til 7. nóvember
i yndislegn borg
t , r .. ■ Kynningarfundur um feröina veröur
w bjolbreyttar kynnisreroir uni Edinbom , _
og skosku Hálöndin <c-kki innffaliö í haldto"1 ™V.U.S.CTSYNAR húsinu
verð0 Lágmúla 4 miðvikudagskvöldið
13. október kl. 20.
★ Skemmtilegar samverustundir og
léttar gönguferðir.
★ Skoskt hátíðarkvöld.
I
★ Glaðværð og samheldni.
•Staðgreiðsluverð gildir ef ferð er
greidd a.m.k. viku fyrir brottför.
4 4
URVALÚTSÝN
\^^\0 ^\m Lágmúla 4: simi 699 300; við Austurvöll: sími 2 69 00;
í Haftiarfirði: sími 65 23 66; t'ið Ráðbústorg á Akureyri: sími 2 50 00
- og bjá umboðsmónnum um land allt.