Morgunblaðið - 10.10.1993, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. OKTÓBER 1993
KVIKMYNDIR/STJÖRNUBfÓ hefur tekið til sýninga myndina Sleepless in Seattle með Meg
Ryan og Tom Hanks í aðalhlutverkum. Þetta er rómantísk stórmynd og ein mest sótta kvik-
mynd sumarsins vestanhafs enda hæfilegum skammti af léttleika blandað saman við rómantíkina
Ástín kviknaði
í útvarpinu
Til Seattle
Eftir konumissinn kveður Sam Baldwin (Tom Hanks) fjölskyldu og vini og heldur
ásamt syni sinum Jonah til Seattle að hefja nýtt líf.
VESTANHAFS er Sleepless in Seattle sögð
vera rómantískasta stórmynd ársins 1993. Þetta
er saga um óvenjulega ást sem kviknar í útvarp-
inu. Lengst af myndarinnar skilja mörg þúsund
kílómetrar elskendurna að; hann býr í Seattle
nyrst á vesturströnd Bandaríkjanna, hún í
Baltimore á austurströndinni. Þau hafa aldrei
sést, hún verður ástfangin þegar hún heyrir
hann í útvarpinu lýsa því hvernig allt er breytt
síðan konan hans dó. Myndin fjallar svo um
hvernig þau reyna að nálgast en farast hvað
eftir annað á mis þangað til loksins að leiðir
þeirra liggja saman — í bili að minnsta kosti.
Hann heitir Sam Baldw-
in, leikinn af Tom
Hanks. Eftir að hann missti
konuna flutti hann frá
Chicago ásamt 8 ára syni
sínum til Seattle þar sem
þeir feðgar ætluðu að byrja
nýtt líf. Það er ekki tilviljun
að Seattle varð fyrir valinu
því þar í borg er sagt að
lífið hafi á sér afslappaðri
blæ en í öðrum stórborgum
Bandaríkjanna, fólkið þar
er sagt síður áfjátt í starfs-
frama og efnisleg gæði en
fólk sunnar á ströndinni eða
í stórborgaklasanum Atl-
antshafsmegin. Seattle er
borg fjölskyldulífsins og
borgarblærinn í Seattle
spilar hér í fyrsta skipti
stóra rullu í stórri kvik-
mynd; borgin fer nánast
með áþreifanlegt hlutverk
líkt og New York og San
Francisco í ótal myndum
og til dæmis Baltimore í
myndum Barry Levinsons.
Það er einmitt í Balti-
more sem Annie Reed, sem
Meg Ryan leikur, er búsett
þegar hún heyrir Sam
Baldwin lýsa söknuði sínum
og einmanaleika í útvarpinu
á aðfangadagskvöld eftir
að sonur hans hefur hringt
inn í símaþátt hjá sálfræð-
ingi til að koma á framfæri
jólaósk sinni um nýja konu
handa pabba. Annie Reed
er blaðakona um þrítugt á
stóru dagblaði í borginni.
Hún er á beinni leið á
framabraut og trúlofuð og
í þann veginn að giftast.
Þegar hún heyrir í þessum
arkitekt í Seattle í útvarp-
inu þyrmir yfir hana og
henni finnst eins og þama
tali maður sem hún verði
að kynnast. Henni gengur
illa að bæla niður með sér
löngun til að kasta frá sér
öllu sem hún hefur byggt
upp til þessa og halda vest-
ur yfir Klettafjöllin í leit að
alvöru hamingju. Arkitekt-
inn er líka eitthvað efins
um hvemig hann á að taka
á málinu eftir að hann
kemst að hvaða afleiðingar
virðast ætla að fylgja hring-
ingu sonar hans til þjóðar-
sálarinnar.
Leikstjóri Sleapless in
Seattle heitir Nora Ephron,
farsæll handrits- og rithöf-
undur sem hér leikstýrir
annarri kvikmynd sinni auk
þess að leggja hönd á plóg-
inn við handritsgerðina.
Einu sinni var Nora Ephron
þekktust fyrir að vera gift
Bob Woodward, blaða-
manninum sem afhjúpaði
Watergate-hneykslið asamt
félaga sínum Carl Bern-
stein. Það hjónaband gaf
Noru tilefni til að skrifa
bókina Heartbum sem síðar
var kvikmynduð með Jack
Nicholson og Meryl Streep
í aðalhlutverkum. Síðan
hefur Nora Ephron áunnið
sér orðspor sem einhver
virtasti handritshöfundur í
bandarískum kvikmynda-
iðnaði. Það orðspor byggir
á óskarsverðlaunatilnefn-
ingum fyrir handrit mynd-
anna When Harry Met Sally
frá 1989— þar sem Meg
Ryan sló fyrst í gegn að
heitið geti— en fyrsta stór-
myndin eftir handriti Ep-
hron var þó Silkwood frá
1983 með Meryl Streep í
titilhlutverki Karenar
Silkwood, baráttukonu fyrir
öryggi starfsmanna í kjam-
orkuverum, ásamt með He-
artbum.
Fyrsta tækifærið til að
leikstýra gafst Noru Ep-
hron í fyrra þegar hún kvik-
ásamt David S. Ward og
höfundi hugmyndarinnar
að sögunni, Jeff Arch.
Auk Seattle-bórgar,
aðalleikendanna Hanks og
Ryan og Nom Ephron má
ekki gleyma að geta kvik-
myndatökustjóra myndar-
innar, Svíans Sven Nykvist,
sem um ríflega 25 ára skeið
var aðalkvikmyndatöku-
maður Ingmars Bergmans
og hlaut m.a. Óskarsverð-
laun fyrir vinnu sína í
Fanny og Alexander. Meðal
annarra leikstjóra sem Ny-
kvist hefur unnið fyrir má
nefna Woody Allen, Lois
Malle, Paul Mazursky,
Philip Kaufman, Roman
Polanski og John heitinn
Huston. Nykvist hefur sjálf-
ur fengist við leikstjóm eins
og kunnugt er því kvik-
mynd hans Uxinn, þar sem
Max von Sydow og Liv Ull-
mann vom í aðalhlutverk-
um, var nýverið tilnefnd tl
óskarsverðlauna í flokki er-
lendra kvikmynda.
Tónlist, og þá ekki síst
rómantískar ballöður, leika
allstórt hlutverk í Sleapless
in Seattle. Aðallag myndar-
innar er When I Fall in
Love — gamall Nat King
Cole slagari ef rétt er mun-
að — en hér í flutningi Cel-
ine Dion og Clive Griffin.
Sú útgáfa hefur náð inn á
vinsældalista nýlega. Af
gömlum og nýjum stór-
söngvumm sem heyrist til
í myndinni má nefna Roy
Rogers, Ray Charles, Nat
King Cole, Carly Simon,
Gene Autry, Joe Cocker,
Louis Armstrong, Tammy
Wynette og Harry Connick
jr-
Baltimore er Annie Reed (Meg Ryan) far-
in að hugsa um að giftast, gámla góða kæ-
rastanum sínum þegar hún heyrir manninn
frá Seattle tala í útvarpinu.
myndaði handrit sitt og
systur sinnar Deliu að
myndinnj This is My Life,
með Julie Kavner, Samant-
ha Mathis og Dan Aykroyd
í aðalhlutverkum. Sú mynd
gekk bærilega en ekkert í
líkingu við hitt verkefni
hennar sem leikstjóra,
myndina sem er tilefni þess-
ara skrifa, Sleepless in Se-
attle. Eins og við var að
búast lagði Nora hér hönd
á plóg við handritsgerð
Ástmaður hafmeyju og eig-
inkona annarrar stjörnu
League of Their Own og um
þessar mundir er verið að
frumsýna mynd Jonathans
Demme, Philadelphia þar
sem Hanks leikur ásamt
Denzel Washington.
Meg Ryan varð kvik-
myndastjama á einni nóttu
eftir að henni bauðst hlut-
verk Sallýjar í mynd Rob
Reiners, When Harry Met
Sally en handrit hennar
skrifaði einmitt Nora Ep-
hron, leikstjóri Sleepless in
Seattle. Fyrir það hlutverk
var Ryan tilnefnd til Golden
Globe verðlauna en hún hef-
ur einnig hlotið verðlaun á
Sundance-hátíðinni fyrir
leik í myndinni Promised
land á móti Kiefer Suther-
land.
Fram að When Harry Met
Sally var Meg Ryan lítt,
þekkt þrátt fyrir að hafa
komist vel frá hluverki sínu
í myndinni Top Gun þar sem
allt snerist um Tom Cruise.
Meg Ryan lærði blaða-
mennsku í NYU háskólan-
um í New York áður en hún
ákvað að reyna fyrir sér sem
leikari og fyrsta hlutverk
hennar var aukahlutverk í
myndinni Rich and Famous.
í dag er Meg Ryan gift
leikaranum Dennis Quaid
en hún hefur leikið á móti
honum í þremur kvikmynd-
um; D.O.A., Innerspace og
hinni glænýju Flesh and
Bone. Af öðrum aðalhlut-
verkum hennar má nefna
Presidio þar sem Sean
Connery var í aðalhlutverki
og mynd Olivers Stone um
The Doors með Val Kilmer
í hlutverki Jim Morrisons.
Hún leikur einnig á móti
Andy Garcia í nýrri mynd
sem heitir Significant Ot-
her.
RÉTT eins og aðalpersónur myndarinnar Sle-
epless in Seattle eiga aðalleikararnir, þau Tom
Hanks og Meg Ryan, rætur sínar að rekja hvort
til sinnar strandar Bandaríkjanna. Með réttu
má telja Tom Hanks meðal vinsælustu gaman-
leikara Bandaríkjanna og Meg Ryan hefur leik-
ið Stúlkuna í býsna mörgnm vel heppnuðum
myndum undanfarin ár. Þau hafa einu sinni
áður unnið saman, léku þá aðalhlutverk í mynd-
inni Joe and the Volcano.
Sleepless in Seattle er vin-
sælasta mynd sem Tom
Hanks hefur leikið í síðan
Big var gerð árið 1988.
Tom Hanks hafði starfað
með leikflokkum vítt
og breitt um Bandaríkin og
fengist við fjölbreytt verk-
efni, þ.á m. Shakespeare-
hlutverk á Broadway áður
en hann sneri sér að Holly-
wood vinnu. Sá kafli í lífi
hans hófst árið 1982 þegar
hann flutti til Los Angeles
til þess að leika í sjónvarps-
þáttum sem hétu Bosom
Buddies en þeir entust ekki
í sjónvarpi vestra nema í
eitt ár. Það kom þó ekki að
sök fyrir Hanks sem hafði
um þetta leyti tryggt sér
aðalhlutverkið í myndinni
Splash þar sem hann lék
mann sem fellur fyrir haf-
meyju.
Myndin sú borgaði sig og
gott betur og eftir það rak
hvert hlutverkið annað: Vol-
unteers, The Money Pit og
Nothing in Common svo
nokkrar mynda hans um
miðjan síðasta áratug séu
nefndar. Árið 1988 var gott
ár hjá Hanks. Gagnrýnend-
ur jusu hann lofi fyrir leik
sinn í Punchline og ekki síð-
ur í gamanmyndinni Big —
um litla strákinn sem verður
allt í einu stór — en fyrir
stórleik sinn í því hlutverki
uppskar hann sanngjama
óskarsverðlaunatilnefningu
og var valinn leikari ársins
af samtökum kvikmynda-
gagnrýnenda í Los Angeles.
Undanfarið hefur Hanks
m.a. leikið í myndunum
Turner and Hooch og A