Morgunblaðið - 10.10.1993, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 10.10.1993, Qupperneq 22
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. OKTOBER 1993 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. OKTOBER 1993 23 jltargtiitÞlafrife Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Ritstjórnarfulltrúi Árvakur h.f., Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Björn Vignir Sigurpálsson. Kringlan 1, 103 Reykjavík. Símar: Skiptiborð 691100. Auglýsingar: 691111. Áskriftir 691122. Áskriftargjald 1400 kr. með vsk. á mánuði innanlands. í lausasölu 125 kr. með vsk. eintakið. Ræða Majors TJæða Johns Majors, forsætis- ráðherra Breta, á flokksþingi Ihaldsflokksins í fyrradag, var um margt athyglisverð, sérstaklega þó sá boðskapur hans, að tímabært væri að hverfa aftur til hinna gömlu gilda. Orðrétt sagði John Major: „Það er kominn tími til að taka upp gömlu grundvallargildin á ný. Kominn tími til að hverfa aftur til upprunans. Til sjálfsaga og löghlýðni, aftur til tillitssemi til annarra." Þessi sjónarmið eiga víðar við en í Bretlandi. Þau eiga t.d. við hér á íslandi. Um og upp úr 1970 urðu miklar breytingar á almenn- um viðhorfum fólks til lífsstíls og lífshátta. Margt af því hefur verið rakið til hinnar svonefndu ’68 kyn- slóðar. Hvort sem það er réttmætt eða ekki er staðreyndin hins vegar sú, að á þessu tveggja áratuga tímabili hefur mörgum gömlum hefðum verið varpað fyrir róða. Sumir segja, að fólk hafl orðið fijálslegra í lífsháttum sínum en aðrir vilja kenna það sama við laus- ung. Fyrir rúmum þijátíu árum tíðk- uðust þéringar í Menntaskólanum í Reykjavík, rúmum áratug síðar voru þær nánast horfnar úr tal- máli þjóðarinnar. Að sumu leyti voru þær eitt af sérkennum hins gamla þjóðfélags og hvarf þeirra úr daglegu máli til marks um nýja og breytta tíma. Klæðaburður fólks varð fijálslegri en að sumra mati ekki við hæfí. Samskipti kynj- anna urðu fijálslegri, sem að mati annarra ýtti undir eyðnifaraldur- inn. Sambúð fólks án hjónabands komst í tízku en jafnframt hefur skilnuðum fjölgað. Fjölmiðlarnir breyttust en að margra mati of mikið. í stað þess, að lítið var sagt, var of mikið sagt. Upp úr 1980 voru áhrif ’68 kyn- slóðarinnar í rénun en tímabil svo- nefndra uppa tók við, þar sem allt var hægt. Engin takmörk virtust fyrir því, hvað hægt var að lifa hátt. A fyrri áratugnum var í tízku að vera illa klæddur, á seinni ára- tugnum voru dýr föt, dýrir bílar, dýr ferðalög og dýr hús í öndvegi, að ekki væri talað um gífurleg fjár- málaumsvif, þar sem fyrirtæki gengu kaupum og sölum fýrir milljarða dollara án þess að kaup- endur ættu krónu. Samdrátturinn í efnahagslífi Vesturlanda hefur orðið til þess, að menn hafa komizt í jarðsam- band á ný eftir milljarðaumsvif uppatímabilsins, sem engar raun- verulegar forsendur voru fýrir og helztu tákn þess ýmist eignalausir eða á bak við lás og slá. Vaxandi ofbeldi og glæpir hafa vakið upp harðar spumingar um uppeldi bama og unglinga, heimilishætti og umhverfi allt á viðkvæmum uppvaxtarárum. Nýr skilningur ér að vakna á gildi hefðbundins §öl- skyldulífs. Af þessum sökum hittir John Major í mark, þegar hann hvetur til þess, að við hverfum til hinna gömlu gilda. Þjóðfélagstilraunir hippanna og síðar uppanna mis- tókust. Sá lífsstíll og þeir lífshætt- ir, sem hvor hópurinn um sig boð- aði hefur reynzt á sandi byggður. Það ertímabært, að heilbrigð skyn- semi og hefðbundnir lífshættir ráði ferðinni á nýjan leik. Ef við horfum til vandamála samfélags okkar um þessar mund- ir, er kreppan í efnahagsmálum lítilvæg í samanburði við kreppuna í mannlífínu, sem birtist okkur í vaxandi ofbeldi á götum Reykja- víkur og í mynd ungrar stúlku, sem liggur meðvitundarlaus á spítala eftir tilefnislausa árás jafnaldra hennar. Andsvarið við þessari ugg- vænlegu þróun hlýtur að vera ein- mitt það, sem forsætisráðherra Breta hvetur til, að hverfa aftur til upprunans, til sjálfsaga og lög- hlýðni, til tillitssemi til annarra. Að leggja stóraukna áherzlu á mikilvægi hinnar hefðbundnu fjöl- skyldu og hefðbúndins fjölskyldu- llfs í daglegu lífi fólks. Að leggja stóraukna áherzlu á aga í uppeldi bama og unglinga, á aga og reglu- semi í skólum landsins, á aga og reglusemi í opinberu lífí. Óhætt er að fullyrða, að það er jarðvegur fyrir boðskap af þessu tagi, hvort sem er á Bretlandi, Is- landi eða annars staðar. Þess vegna er ekki ólíklegt, að ræða Majors boði upphaf nýrrar og heil- brigðrar íhaldssemi í daglegu lífí fólks á Vesturlöndum. Og búast má við, að það séu umskipti, sem þorri almennings I þessum löndum fagnar. Fáir hafa haldið uppi andófi gegn lífsháttabyltingum síðustu tveggja áratuga. Kaþólska kirkjan þó mest, lúterska kirkjan að ein- hveiju leyti. Núverandi páfi kaþ- ólsku kirkjunnar hefur gegnt hér þýðingarmiklu hlutverki. Báðar þessar stofnanir geta átt dijúgan hlut að því á næstu árum að koma vestrænum lýðræðisþjóðfélögum í réttan farveg á nýjan leik. Opinberar umræður hér á Is- landi markast mjög af vandamál- um efnahags- og atvinnulífs. En aðrir þættir í þjóðlífi okkar kalla á aukna athygli og þá ekki sízt vaxandi ofbeldi og orsakir þess. JÓHANN • Hjálmarsson bendir á í íslenzkri nútímaljóðlist að Steinn Steinarr segi mikilvægan sannleika um sjálfan sig og við- leitni sína, þegar hann skrifaði 1942 grein um Þorvald Skúlason í Helga- fell „sem lýsti næmum og óvenju- lega giöggum skilningi á þessum áhrifamikla listmálara". í þessari athyglisverðu grein segir Steinn að lítið borð, tvær sítrónur, rauðbrún skál, hvítt ljós sé „allt í einu risið upp og farið að lifa lífínu sterkara og raunverulegra en nokkru sinni áður“. Það er einmitt þannig sem Steinn raðar myndtáknum sínum upp í Tímanum og vatninu án þess þó að þessar myndir þurfí endilega að vera veruleikinn sjálfur. Það er miklu frekar persónuleiki höfundar- ins sem hefur tekið sér bústað í þessum myndum - eða þessari hug- arveröld skáldsins - svoað niður- staða Steins sjálfs sé umskrifuð og hann bætir við, Manni finnst maður aldrei fyrr hafa komizt svona ná- lægt hlutunum. í Tímanum og vatn- inu er einstæð nærvera við hringrás eilífðarinnar. En þá einnig við per- sónuleika höfundarins „sem hefur tekið sér bústað" í ljóðmyndinni. ÞAÐ ER RÉTT SEM • Eysteinn Þorvaldsson hefur haldið fram að Dymbilvaka er tíma- mótaverk í íslenzkri ljóðagerð. Hún á rætur í þeim módemisma sem við nefnum súrrealisma eða symból- isma, eða þá expressjónisma, en þó jafnframt í hefðbundinni íslenzkri ljóðagerð einsog augljóst má vera (stuðlar og óreglulegt rím). Það mætti Til sanns vegar færa að hún sé einsog drótF- kvæðin, finngálknuð ljóðlist að nútíma- hætti. En hún minnir jafnframt á særingar éða galdur; hún er hugleiðsluljóð úr draum- kenndri martröð að ég hygg - og þá að hætti lífsháskans sem við upplifðum í svartnætti kalda stríðs- ins. Það er aðvísu vitnað í sálm í Dymbilvöku en hann er hvergi til nema í kvæðinu því skáldið orti sjálfur þetta sálmabrot sem er í flokknum. Það hefði Eliot ekki gert, heldur hefði hann vitnað í sálm sem skírskotandi heimild og þá til að vekja hughrif eða grun sem heimild- in byggi yfír en ekki endilega yrkis- efnið sjálft einsog í Dymbilvöku og raunar einnig í Tímanum og vatn- inu. En þar er aðferðin einnig svip- uð og Eliot óviðkomandi. Annað- hvort skynja menn þessi íslenzku kvæði eða ekki; skilja þau með til- fínningunum. Óg þannig eru þau auðskilin án þess þó unnt sé að skíra þau eftir formúlum eða orða- bókum. Þau eru tilfinningaljóð. Umhverfí Tímans og vatnsins eru ástin, tíminn, guð og eilífðin. Um- hverfi Dymbilvöku eru mörk lífs og dauða; og okkur grunar landslag dauðans. Uggur mannsins og ör- vænting andspænis háskalegu og hrikalegu landslagi tilfinninganna. Dymbilvaka er sprottin úr sama umhverfi og skáldsaga Hannesar Sigfússonar, Strandið, það skiptir höfuðmáli og skýrir kvæðið. Og á það hefur Hannes Sigfússon sjálfur lagt áherzlu í samtali okkar. I kvæðinu búa váleg tíðindi-umhverf- isins sem verður einhverskonar táknmynd eða leiktjöld um líf okkar og ferðalag um þau örlög sem okk- ur eru búin. Og þá eru engin leik- tjöld magnaðri en umhverfi Reykja- nessvita. Jafnvel það sem á að bera elíotsk- um áhrifum einna helzt vitni í Dymbilvöku, Svona upp með þig það er glas, er einsog Hannes hefur sagt mér misskilningur hans á orð- um Eliots í The Waste Land, II kafla, A Game of Chess: HURRY UP PLEASE IT’S TIME, en það er brezkt knæpufflál og Eliot sækir það þangað. Sverrir Hólmarsson segir líka í útleggingu sinni Klárið úr glösunum, við lokum(!) Það er þannig ekki endilega glas lífs og dauða einsog í Djrmbilvöku; aðvísu ættað úr sjómannamáli: það er kom- ið glas, er sagt um vaktaskipti um borð í skipi. Bæði Steinn Steinarr og Hannes Sigfússon höfðu aðvísu lesið The Waste Land, en Ijóð þeirra eru ekki á nokkurn hátt einskonar elíotismi í íslenzkum búningi, heldur flytja þau nýtt tungutak inní íslenzka ljóðlist sem á rætur í aldagamalli hefð einsog augljóst má vera, og myndmálið og þó umfram allt hin nýja áferð er eins heimatilbúin og hún er óvænt. En erlend áhrif eru að sjálfsögðu hvatinn að nýbreytn- inni einsog ávallt hefur verið þegar endurnýjun hefur orðið á gamalgró- inni menningu okkar. M (meira næsta sunnudag) HELGI spjoll REYKJAVÍKURBRÉF Laugardagur 9. október IMORGUNBLAÐINU í DAG, laugardag, fjallar Valtýr Sig- urðsson, héraðsdómari og for- maður Dómarafélags íslands, um launakjör dómara og hvern- ig að ákvörðunum um laun dóm- ára er staðið. í grein Valtýs er vikið að mikilvægi þess, að dóm- stólar séu sjálfstæðir og hann segir m.a.: „Enginn dregur í efa, að mikill árangur hefur náðst hér á landi á stuttum tíma og sýnilegt sjálfstæði dómstólanna er meira en áður. Hins vegar má leiða að því líkur, að við séum enn eftirbátar nágranna- þjóðanna í kröfum til dómstólanna. Þannig erum við nú fyrst að taka á ýmsum grund- vallaratriðum er varða sjálfstæði dómstól- anna, sem fyrir löngu eru útrædd annars staðar. Sem dæmi má nefna, að íslenzkir hér- aðsdómarar eru eflaust þeir einu í Evrópu og þótt víðar væri leitað, sem fá greidda yfirvinnu fyrir dómstörf, sem samið er um við framkvæmdavaldið (20 klst). Til þess hefur verið gripið til þess að draga úr misræmi varðandi launakjör dómara. Þess er krafízt að dómarar varðveiti sjálfstæði sitt í starfi. Sú krafa útilokar þá að miklu leyti frá aukastörfum. Til þessa verður að taka tillit, þegar launakjör dómara eru ákveðin. I nágrannaríkjum okkar er það grund- vallarregla, að heildarlaunakjör dómara séu ákveðin af þinginu sjálfu eða af sér- staklega skipuðum dómi. Krafan um sýni- legt sjálfstæði dómstólanna útheimtir slíkt fyrirkomulag og þá sérstaklega að láuna- kjör dómara séu fyrirfram og skýrlega ákveðin og í samræmi við þann sess, sem dómsvaldið á að skipa. Svo virðist, sem íslenzk launapólitík þoli illa slíkt fyrir- komulag. Því hafa tilraunir svo sem með Kjaradómi til að ákveða dómurum heildar- laun þar sem tekið er tillit til vinnuálags, farið út um þúfur.“ Valtýr Sigurðsson víkur síðan að úr- skurði Kjaradóms fyrir rúmu ári, sem dæmdi stjómmálamönnum og nokkrum æðstu embættismönnum verulegar kjara- bætur, ákvörðun ríkisstjómar um setningu bráðabirgðalaga til þess að tryggja, að sá úrskurður kæmi ekki til framkvæmda og segir síðan sérstaklega um þátt fjölmiðla: „í þessari leiksýningu allri var þáttur fjöl- miðla aumkunarverður. Hvergi var gerð tilraun til að komast að efni og rökum Kjaradóms og velta þeirri spumingu fyrir sér, hvort dómendur hefðu átt annarra kosta völ án þess að bijóta lögin, sem þeir áttu að starfa eftir.“ Og loks segir formaður Dómarafélagsins: „Alþingi hefur hins vegar falið Kjaradómi það verk að ákvarða launakjör dómara í samræmi við þá stöðu, sem dómsvaldinu er ætlað að gegna, sem einn handhafi ríkisvaldsins. Dómarar vænta þess, að Kjaradómur standi undir þeirri ábyrgð og hafí kjark til að sinna lagaskyldu sinni.“ Þau sjónarmið, sem Valtýr Sigurðsson lýsir í grein sinni og hér er vitnað til í stuttu máli em athyglisverð bæði að því er varðar það málefni almennt, sem hann íjallar um en einnig í ljósi nýlegra upplýs- inga um þá ákvörðun dómara í Hæsta- rétti íslands að ákveða sjálfum sér launa- greiðslur vegna yfirvinnu. Allt það, sem héraðsdómarinn segir um nauðsyn á sjálf- stæði dómstólanna er rétt. Það er kannski til marks um, að lýðveldi okkar er ungt og að stofnanir þess þurfa tíma til að þró- ast og festa sig í sessi, að sú þrígreining ríkisvalds, sem gert er ráð fyrir í stjómar- skránni hefur í raun verið heldur loðin og þokukennd. Alveg sérstaklega virðist framkvæmdavaldinu hafa tekizt á fyrstu áratugum fullveldis og síðar lýðveldis að ná til sín ítökum langt umfram það, sem teljast verður eðlilegt gagnvart löggjafar- valdinu en dómsvaldið hefur starfað í skugga bæði framkvæmdavalds og lög- gjafarvalds. Ekki eru mörg ár síðan þing- menn byijuðu að sýna viðleitni til að endur- heimta þau völd og áhrif, sem löggjafar- valdinu er ætlað að hafa og það er líka fyrst á síðustu árum, sem þess sjást merki, að dómarar gera tilraun til að undir- strika sjálfstæða stöðu sína í ríkiskerfínu. Hér er ákvörðun um launakjör auðvitað grundvallaratriði. Fram að þessu hafa dómarar sennilega liðið fyrir það, að vera undir sama hatti og stjómmálamenn og æðstu embættismenn. Víða um lönd em störf dómara mjög vel launuð, þótt stjórn- málamenn og æðstu embættismenn séu illa launaðir á mælikvarða þeirra launa, sem greidd em í einkageiranum víðast á Vesturlöndum. Þess vegna má færa rök að því að eina raunhæfa leiðin til að undir- strika sjálfstæði dómstólanna með ákvörð- un um launakjör dómara sé, að sú ákvörð- un verði tekin af þinginu sjálfu eða sérstak- lega skipuðum dómum, eins og Valtýr Sig- urðsson segir, að sé meginreglan í nálæg- um löndum. í grein sinni víkur formaður Dómarafé- lagsins að hlut fjölmiðla í umræðum um Kjaradóm fýrir rúmu ári og telur hann „aumkunarverðan". Þar sem Morgunblaðið gekk hart fram í gagnrýni á úrskurð Kjara- dóms og kröfugerð um, að honum yrði hnekkt með einum eða öðrum hætti, hlýt- ur blaðið að taka þessi ummæli til sín að einhveiju leyti. Hver voru meginrökin fyr- ir afstöðu Morgunblaðsins sumarið 1992? Þau voru þessi: Frá því, að svonefndir þjóð- arsáttarsamningar voru gerðir í febrúar 1990 hefur sú krafa verið gerð til al- mennra launþega í landinu, að þeir taki á sig umtalsverða kjaraskerðingu og marg- víslegar byrðar til þess í senn að kveða niður óðaverðbólgu, sem í áratugi hafði hijáð landsmenn og tryggja, að þjóðin kæmist út úr þeirri kreppu, sem skall á á miðju ári 1988 og hefur harðnað og dýpk- að síðan. Launþegar hafa tekið á sig þung- ar byrðar og versnandi afkomu af þeim sökum. Ef úrskurður Kjaradóms um veru- lega launahækkun stjðmmálamanna og æðstu embættismanna hefði staðið óhreyfður var grundvellinum kippt undan þessari sátt á vinnumarkaðnum, verkalýðs- hreyfíngin hefði farið í hörð átök til þess að tryggja félagsmönnum sínum sambæri- lega kjarabót og efnahagsmál þjóðarinnar komist í uppnám. Er þetta „aumkunarverð" afstaða? Tæp- lega er hægt að halda því fram með nokkr- um rökum. Fremur má segja, að þessi afstaða byggist á heilbrigðri skynsemi. En Valtýr Sigurðsson telur, að fjölmiðlar hafí ekki Qallað um þá spurningu, hvort Kjaradömur hefði átt annarra kosta völ án þess að bijóta lög. A móti má spyija, hvort úrskurður Kjaradóms hafi ekki í raun byggzt á því sem kalla mætti „póli- tíska túlkun" á þeim lagaákvæðum, sem um var að ræða, þ.e. mati dómenda, sem tæpast verður talið að byggist á bókstafs- túlkun skýrra fyrirmæla í lögum og að í því „pólitíska" mati hafí dómendur í Kjara- dómi reynzt í furðulitlum tengslum við þjóðfélagslegan veruleika. Launa- ákvörðun Hæstaréttar GREIN VALTÝS Sigurðssonar er líka umhugsunar- verð í ljósi þeirrar ákvörðunar dómara í Hæstarétti að ákveða sjálfum sér launagreiðslur vegna aukinnar yfirvinnu í kjölfar þess, að úr- skurði Kjaradóms fyrir rúmu ári var breytt eða öllu heldur nýr úrskurður kveðinn upp. Hér skal ekki dregið í efa, að dómar- ar í Hæstarétti hafí farið að lögum í þess- um efnum. Kannski má segja, að þeir hafi fundið „gat“ í lögum til þess að ákveða sjálfum sér þessar greiðslur og af þeim sökum hafí forsætisráðherra ekki átt annarra kosta völ en að skrifa upp á reikn- ingana. En hér kemur fleira til en bara spuming- in um það, hvort hæstaréttardómarar búi við sanngjörn eða ósanngjörn launakjör. Eitt skiptir öllu máli í starfí hæstaréttar- dómara: að gæta virðingar réttarins og tryggja með störfum sínum, að hann njóti fyllsta trausts landsmanna allra. Og í þessu samhengi má færa rök að því, að í sögu Hæstaréttar íslands hafí rétturinn ekki v Morgunblaðið/Golli orðið fyrir jafn miklu áfalli og vegna ofan- greindrar ákvörðunar dómaranna eða þeirra allra að einum undanteknum. Þótt dómarar í Hæstarétti íslands telji sig illa launaða og vinnuálag svo mikið, að réttmætt sé, að þeir fái auknar greiðsl- ur verða þeir auðvitað að vinna að breyt- ingum á launakjörum á þann veg, að ekki sæti gagnrýni. Það er óskiljanlegt og sýn- ir mikið dómgreindarleysi, að þeir skuli taka ákvörðun um að nýta sér „gat“ í lög- um til þess að tryggja sjálfum sér kjara- bætur eða greiðslur fyrir aukna yfirvinnu. Ef það hefði verið vilji löggjafarvaldsins að undirstrika sjálfstæði réttarins með þeim hætti, að dómarar skyldu sjálfír ákvarða laun sín, hefði það verið gert með afdráttarlausum hætti. En auðvitað hefur það aldrei verið vilji löggjafarvaldsins. Hér hafa hæstaréttardómarar misstigið sig illilega og satt bezt að segja verður ekki séð, hvemig komizt verður út úr því klúðri, sem þessi mistök dómaranna hafa leitt til. Það er veruleg hætta á því, að þessi ákvörðun loði lengi við réttinn og dragi úr trausti almennings til hans. Hæstiréttur Islands hefur nánast algerlega staðið utan við dægurdeilur í þessu landi og þannig á það -að vera. Nú hafa dómar- amir sjálfir fellt réttinn af þeim stalli og erfitt að sjá, hvemig hægt verður að rétta við hlut Hæstaréttar, sem stofnunar nema þá á löngum tíma. En þetta mál, svo og þau efnislegu rök, sem Valtýr Sigurðsson færir fram í grein sinni hér í blaðinu, ættu að verða til þess, að Alþingi taki þau mál, sem varða launa- kjör dómara almennt til nýrrar skoðunar og ákvörðunar. ÞAÐ ER ALVEG T Miuiakiör í lj’óst af því’ sem nú ljd.UIld.HJUI 1 er ^ornið fram um ríkiskerfinu ákvörðun hæsta- réttardómara um yfirvinnugreiðslur í kjölfar þess að fyrri úrskurði Kjaradóms sumarið 1992 var hnekkt, að opinberir starfsmenn una illa sínum hlut í launamálum. Raunar má það sama segja um stjórnmálamenn eins og glöggt kom fram í umræðum um þetta mál fyrir rúmu ári. Stjómmálamenn em yfírleitt illa launað- ir í nágrannaríkjum okkar. Þetta á við um bandaríska stjómmálamenn og þetta á við í flestum Evrópuríkjum. Alkunna er, að í Bandaríkjunum taka menn á sig miklar launalækkanir til þess að gegna störfum í opinberri þjónustu, hvort sem um er að ræða ráðherra eða þingmenn en þó ekki sízt ráðherra. Forseti Bandaríkjanna er ekki hálaunamaður og er þó valdamesti maður heims. Fyrir nokkmm mánuðum kom fram hér í Morgunblaðinu, að þingmenn og ráðherr- ar í Bretlandi em illa launaðir þegar borið er saman við einkageirann þar í landi og raunar eru launakjör þeirra í krónum talið ekki miklu betri en stjómmálamanna hér á Islandi. Sama sagan er víðast hvar í Evrópu, þó er það dálítið mismunandi eft- ir löndum. Þetta á líka við um önnur Norð- urlönd, þótt það sé eitthvað mismunaftdi á milli landanna, við hvers konar kjör stjómmálamenn búa. I Bandaríkjunum er það algengt, að menn taki þátt í stjórnmálum ákveðinn tíma og hverfí svo til annarra og betur launaðra starfa. í Bretlandi tíðkast það einnig, að stjómmálamenn sérstaklega úr brezka íhaldsflokknum gegni störfum í einkageiranum, þegar þeir eru í stjómar- andstöðu. I nýútkominni bók um Edward Heath er frá því sagt, að'í rúman áratug frá því að hann var fyrst kjörinn á þing og þangað til hann tók við ráðherraemb- ættum í fyrsta sinn, bjó hann einn í lítilli skonsu í London, sem var svo lítil, að hann bauð aldrei nokkrum manni heim til sín. Þeir, sem velja þá leið hér á íslandi að taka þátt í stjórnmálum verða að ganga út frá því sem vísu, að í því getur falizt ákveðin fjárhagsleg fórn. Hið sama á í raun og veru við þá, sem gerast embættis- menn í ríkiskerfínu. Þeir verða líka að gera sér grein fyrir því, að þeir hafa valið leið, sem hvorki fyrr né nú eða í framtíð- inni var, er eða verður jafn vel launuð og þeir gætu hugsanlega átt kost á í einka- geiranum. Þetta byggist á þeirri einföldu staðreynd, að almenningur fylgist með æðstu stjómmálamönnum og embættis- mönnum gera kröfur um álögur og marg- víslegar byrðar, sem hinn almenni borgari verður að axla og ætlast þá til að forystu- mennimir gangi á undan með góðu for- dæmi. Það er hægt að ganga út frá því, sem vísu, að hvorki hér né annars staðar verður pólitískur friður um það að tryggja æðstu embættismönnum ríkisins og stjórn- málamönnum launakjör, sem æðstu starfs- menn einkafyrirtækja geta samið um við sína vinnuveitendur. í þéssum efnum er tímabært að menn geri það upp við sig, að viðbótarkjör er heldur ekki við hæfí að sækja með öðmm hætti. Það gildir einu, hvort um er að ræða yfírvinnu hæstaréttardómara, starfs- kjör æðstu embættismanna, þ.á m. stjóm- enda ríkisbankanna, í öðru formi en bein- um launagreiðslum, um þetta verða að gilda ákveðnar reglur, sem era á almanna vitorði. Hér gjósa t.d. hvað eftir annað upp deilur um bflakaup ráðamanna, sem á að vera hægt að komast hjá með því að setja skýrar og einfaldar reglur um ákveðna hámarksupphæð, sem veija má til bíla- kaupa vegna manna í æðstu embættum, svo að dæmi sé nefnt. Nú standa yfir miklar umræður um agaleysi meðal unglinga. En er agaleysið bara á götum Reykjavíkur að næturlagi? Er agaleysið ekki líka á toppnum í þjóðfé- laginu, þegar hvað eftir annað koma upp stórdeilur um hvernig staðið er að launa- ákvörðunum, hvemig staðið er að ferða- kostnaðargreiðslum, hvernig staðið er að bílakaupum hins opinbera o.s.frv.? Er ekki rétt að kröfur um aga nái til hárra sem lágra? „Þótt dómarar í Hæstarétti ís- lands teiji sig illa launaða og vinnuálag svo mikið, að rétt- mætt sé, að þeir fái auknar greiðslur verða þeir auðvitað að vinna að breyt- ingum á launa- kjörumáþann veg, að ekki sæti gagnrýni. Það er óskiljanlegt og sýnir mikið dóm- greindarleysi, að þeir skuli taka ákvörðun um að nýta sér „gat“ í lögum til þess að tryggja sjálfum sér kjarabætur eða greiðslur fyr- ir aukna yfir- vinnu.“ +

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.