Morgunblaðið - 10.10.1993, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ ATVINNA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 10. OKTÓBER 1993
31
ATVIN N MMAUGL YSINGA R
Umboðsmenn
óskast
Bolungarvík, Grundarfjörður, Reyðarfjörður
og Fáskrúðsfjörður.
Upplýsingar í síma 691113.
flfanngiiitlMUifeffr
Framkvæmdastjóri
Handknattleikssamband íslands óskar að
ráða framkvæmdastjóra til starfa. Viðkom-
andi þarf að geta hafið störf fljótlega.
Framkvæmdastjóri er ábyrgur fyrir öllum
daglegum rekstri sambandsins (erlendum
samskiptum - markaðsmálum - fjármála-
stjórnun - samskiptum við aðildarfélög og
stuðningsfyrirtæki).
Leitað er að drífandi og kröftugum einstakl-
ingi með þekkingu á rekstri og félagsmálum.
Góð tungumálakunnátta er algjört skilyrði.
Laun samningsatriði.
Allar nánari upplýsingar fást á skrifstofu
Guðna Jónssonar.
Umsóknir er tilgreini aldur, menntun og
starfsreynslu sendist Ráðningarþjónustu
Guðna Jónssonar, Tjarnargötu 14, Reykja-
vík.
Umsóknarfrestur er til 18. okt. nk.
QlÐNT ÍÓNSSON
RÁÐCJÖF & RÁÐN I N CARÞJ ÓN Ll STA
TJARNARGÖTU 14, 101 REYKJAVÍK, SÍMI62 13 22
íslenska saltfélagið hf.
Vaktstjóri
og viðhaldsmaður
í f ramleiðsluiðnaði
íslenska saltfélagið hf. á Reykjanesi óskar
nú þegar að ráða vaktstjóra í framleiðslu-
deild og viðhaldsmann í viðhaldsdeild
fyrirtækisins.
Verksmiðjan framleiðir matarsalt og nýþróað
heilsusalt með eimingu á jarðsjó. Framleiðsl-
an er samfelld allan sólarhringinn alla daga
vikunnar og er unnð á 12 tíma vöktum.
Vaktstjórar bera ábyrgð á afköstum og gæð-
um framleiðslunnar hver á sinni vakt. Það
er því nauðsynlegt að viðkomandi setji sig
inn í framleiðsluferilinn- og aðferðir auk
uppþyggingu vélbúnaðarins.
Þá þurfa vaktstjórar einnig að geta skipulagt
og tekið virkan þátt í verkefnum vaktarinnar.
Ennfremur munu vaktstjórar taka þátt í
uppbyggingu fyrirbyggjandi viðhaldskerfis.
Verksmiðjan samanstendur af lögnum, tönk-
um, eimingarkerfum, dælum, lokum, skilvind-
um, stýribúnaði og þurrkurum auk búnaðar
til þurrvinnslu á salti.
Bæði störfin krefjast menntunar sem svarar
til vélstjóra og a.m.k. 5 ára starfsreynslu við
tilsvarandi störf, auk þess sem viðhaldsstarf-
ið krefst rafsuðuþekkingar.
Tungumálakunnátta er mjög æskileg.
Við bjóðum sjálfstætt starf í ungu og kraft-
miklu fyrirtæki sem hefur umtalsverða vaxt-
armöguleika.
Skriflegar umsóknir sendist fyrir 20. okt. til:
íslenska saltfélagið hf.,
pósthólf 174,
230 Keflavík.
Skrifstofa KSÍ
Knattspyrnusamband íslands auglýsir laus
til umsóknar tvö störf á skrifstofu KSÍ.
1. Um er að ræða fullt starf sem felst í þátt-
töku í öllu starfi er varðar þjónustu við
knattspyrnuhreyfinguna, starf með stjórn
og nefndum KSÍ auk almennra skrifstofu-
starfa samkvæmt nánari skilgreiningu þar
um.
2. Um er að ræða 80% starf (vinnutími
9.00-15.00) sem felst í þátttöku í öllu
starfi er varðar þjónustu við knattspyrnu-
hreyfinguna, starf með stjórn og nefndum
KSI auk almennra ritarastarfa samkvæmt
nánari skilgreiningu þar um.
Æskilegt er að umsækjendur hafi þekkingu
á störfum knattspyrnuhreyfingarinnar,
reynslu í skrifstofustörfum, hafi starfað við
tölvur og hafi góða kunnáttu í ensku og einu
Norðurlandamáli.
Frekari upplýsingar um störfin gefur Snorri
Finnlaugsson, framkvæmdastjóri KSÍ, í síma
814444.
Umsóknum skal skila til auglýsingadeildar
Mbl., merktum: „KSÍ - 12123“, í síðasta lagi
20. október nk.
KSÍ.
Deildarstjóri
Þekkt þjónustufyrirtæki á sviði sjávarútvegs
óskar að ráða deildarstjóra.
Starfið:
★ Rekstur deildarinnar.
★ Sölu- og markaðsmál.
★ Innkaup og samningagerð.
Hæfniskröfur:
Leitað er að aðila sem kann að koma vöru
og þjónustu á framfæri.
Goð sambönd og tengsl í sjávarútvegi skil-
yrði ásamt reynslu af stjórnunarstörfum.
Hér er á ferðinni gott tækifæri, fyrir aðila
með frumkvæði, til að sýna árangur í starfi.
Nánari upplýsingar veitirTorfi Markússonfrá
k. 9-12 í síma 679595.
Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til
Ráðgarðs merktar: „Rekstrarstjóri" fyrir 16.
október nk.
RÁÐGAKÐURhf.
SIJÓRNUNAR OG REKSTRARRÁÐGJÖF
NÓATÚN 17 105 REYKJAVÍK SÍMI 686688
Byggingaverk-
fræðingur/
byggingatækni-
fræðingur
Fyrirtæki í Reykjavík með umfangsmiklar
verklegar framkvæmdir óskar eftir að ráða
byggingaverkfræðing/byggingatæknifræðing.
Starfið felst aðallega í áætlana- og samn-
ingagerð ásamt ýmsum verkefnum tengdum
framkvæmdum.
Hæfniskröfur eru að viðkomandi séu með
ofangreinda menntun, hafi starfað við verk-
legar framkvæmdir og séu með góða reynslu
af tölvunotkun (Windows; Word, Excel o.fl.).
Umsóknarfrestur er til og með 13. október nk.
Umsóknir sendist til skrifstofu Liðsauka,
sem opin er frá kl. 9-15, þar sem eyðublöð
fást.
Afleysinga- og ráðningaþjónusta
Lidsauki hf. f§®
Skólavördustig la - 101 Reykjavlk - Sími 621355
Aldraðir
- heimilishjálp
Tek að mér aðstoð við aldraða í heimahúsum
hálfan eða allan daginn.
Hef mikla reynslu í umönnun aldraðra.
Þeir, sem hafa áhuga, vinsamlegast hringið
í síma 74679 á kvöldin.
St. Franciskusspítalinn,
Stykkishólmi
Hjúkrunarfræðingar
Hjúkrunarfræðing vantar strax eða sem allra
fyrst á almenna hjúkrunar- og öldrunardeild.
Stykkishólmur er um 1250 manna byggðar-
lag þar sem periur breiðfirskrar náttúru glitra
í hlaðvarpanum.
í Stykkishólmi er einsetinn grunnskóli með
framhaldsdeild (tvö ár), kröftugum tónlistar-
skóla auk góðs leikskóla (4 tímar á dag).
Tiltölulega auðvelt er að fá dagmömmu.
Ný íþróttamiðstöð er í bænum og gefur hún
mikla möguleika á fjölbreyttri íþróttaiðkan.
Góður kirkjukór fyrir þá sem hafa áhuga á
slíku. Mikil eftirspurn er eftir fólki í almenna
vinnu (fyrir maka).
Húsnæði íboði
Góð laun
Hafir þú áhuga á skemmtilegu en oft krefj-
andi starfi í hinu fallega umhverfi okkar, þá
hafðu samband við Lidwinu (hjúkrunarfor-
stjóra) eða Róbert (framkvæmdastjóra)
í síma 93-81128.
Frá Háskóla íslands
Við heimspekideild eru eftirtaldar lektors-
stöður lausar til umsóknar:
Lektorsstaða f almennri bókmenntafræði.
Lektorinn þarf að geta annast kennslu í forn-
klassískum bókmenntum. Áætlað er að ráða
í stöðuna til þriggja ára frá 1. ágúst 1994
en um stöðuna gilda reglur um ráðningar í
sérstakar kennarastöður við Háskóla ís-
lands.
Lektorsstaða í almennum málvfsindum.
Lektorinn þarf að geta annast kennslu í hug-
myndasögu greinarinnar og samtímalegri
málgreiningu (hljóðkerfisfræði, beyginga-
fræði o.fl.). Áætlað er að ráða í stöðuna til
þriggja ára frá 1. ágúst 1994 en um stöðuna
gilda reglur um ráðningar í sérstakar kenna-
rastöður við Háskóla íslands.
Lektorsstaða f heimspeki. Æskilegt er að
umsækjendur hafi sérhæft sig í heimspeki
miðalda og trúarheimspeki. Áætlað er að
ráða í stöðuna til þriggja ára frá 1. ágúst
1994 en um stöðuna gilda reglur um ráðning-
ar í sérstakar kennarastöður við Háskóla
íslands.
Umsækjendur um ofangreindar stöður,
skulu láta fylgja umsóknum sfnum rækilega
skýrslu um vísindastörf þau eru þeir hafa
unnið, ritsmfðar og rannsóknir, svo og
námsferil og störf. Með umsóknunum
skulu send eintök af vfsindalegum ritum
og ritgerðum umsækjenda, prentuðum og
óprentuðum. Ennfremur er óskað eftir
greinagerð um rannsóknir, sem umsækjandi
hyggst stunda verði honum veitt staðan.
Laun skv. kjarasamningi Félags háskóla-
kennara og fjármálaráðuneytis. Umsóknar-
frestur er til 14. nóvember 1993 og skal
umsóknum skilað til starfsmannasviðs
Háskóla íslands, Aðalbyggingu við Suður-
götu, 101 Reykjavík.