Morgunblaðið - 20.10.1993, Page 4

Morgunblaðið - 20.10.1993, Page 4
4 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 1993 Myndmark skýtur úrskurði til áfrýjunarnefndar Kæra húsleitarheim- ildina til Hæstaréttar MYNDMARK, samtök myndbandaútgefenda, hefur skotið úr- skurði samkeppnisráðs um ólögmæta viðskiptahætti á mynd- bandamarkaðnum fyrir áfrýjunarnefnd samkeppnismála. Þá hafa samtökin kært til Hæstaréttar húsleitarheimild sem Samkeppnis- stofnun fékk og notaði til leitar í húsnæði Myndmarks. Stefán Unnarsson fram- kvæmdastjóri Myndmarks sagði í gær að samtökin hafí ákveðið að kæra húsleitarheimildina til Hæstaréttar á þeim forsendum að Samkeppnisstofnun og samkeppn- isráð hafi verið búin að rannsaka þetta mál og fella sinn úrskurð. Ekkert að fela „Þessir aðilar voru ekki með neina rannsókn í gangi þegar þeir gerðu þessa húsleit. Það var því ákveðið í dag að kæra þetta til Hæstaréttar," sagði Stefán. „Það er mjög einkennilegt að daginn eftir að okkur er birtur úrskurður samkeppnisráðs skuli vera gerð húsleit. Við áttum okkur ekki á því hvað er þarna á seyði. Samtökin viðurkenna ekki að þau hafi stundað ólöglega starfsemi og við munum bíða og sjá hvað kemur út úr því máli,“ sagði Stef- án. Hann sagði að fulltrúar Sam- keppnisstofnunar hefðu komið vel fram í húsleitinni og notið allrar aðstoðar starfsmanna hjá Mynd- marki, „enda teljum við að við höfum ekkert að fela. Við viljum að menn skoði hvað þessi samtök snúast um en þetta tiltekna mál er það eina sem þótt hefur frétt- næmt um Myndmark. Markmið samtakanna er að stuðla að því að auglýsa upp myndbandið sem miðil. Verðákvarðanir einstakra félagsmanna eru algjörlega í þeirra höndum,“ sagði Stefán. Forsvarsmenn Samkeppnis- stofnunar vildu ekki tjá sig um málið í gær. VEÐUR I/EÐURHORFUR I DAG, 20. OKTOBER YFIRLIT: Yfir Norður-Grænlandi er 1.030 mb hæð en minnkandi lægðar- drag fyrir norðaustan land. SPA: Hægviðri, þurrt og bjart um mikinn hluta landsins í fyrramáiið, en þegar kemur fram á daginn þykknar í lofti suðvestanlands, og síðdegis má búast viö rigningu um allt landið vestanvert. Frost verður um land alit í nótt, en á morgun hlýnar smám saman, fyrst suövestantil. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR A FIMMTUDAG, FÖSTUDAG OG LAUGARDAG: Suðiæg eða suðvestlæg átt, stundum talsverður strekkingur. Vætusamt sunnanlands og vestan en úrkomulítið norðaustanlands. Hlýtt um allt land, einkum á Norður- og Austurlandi. Nýir veðurfregnatímar: 1.30,,4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 19.30, 22. 30. Svarsfmi Veðurstofu Islands — Veðurfregnir: 990600. Q Hk Ö Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað V ^ V Skúrir Slydduél Él r r r * / * / / * / r r r r * r Rigning Slydda * * * * * * * * Snjókoma Sunnan, 4 vindstig. Vindörin sýnir vindstefnu og fjaðrimar vindstyrk, heil fjóður er 2 vindstig.^ 10° Hitastig V Súld = Þoka stig.. FÆRÐA VEGUM: (Kl. 17.30 fgær) Þjóðvegir landsins eru flestir í góðu ásigkomulagi og greiðfærir. Dálítið hefur snjóað á Vestfjörðum, Norðurlandi og Austfjörðum, og er því nokkur hálka á vegum og þá einkum á fjallvegum á þessum svæðum. Hálendisvegir og -slóðir hafa verið nokkuð greiðfærir en búast má við að hálka og snjór sé kominn þar að einhverju leyti núna, en þær leiðir eru ekki skoðaðar og engar upplýsingar hafa fengist um þær. Víða er unnið við vegi og eru vegfarendur beðnir um að fara eftir merkingum á þeim vinnusvæðum. Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631500 og ígrænnilínu 99-6315. Vegagerðin. VEÐUR VÍÐA UM HEI kl. 12.00 í gær að ísl. tín hiti véður Akureyri 0 snjóél Reykjavik 0 léttskýjað Björgvin 8 skúr Helslnki 8 skýjað Kaupmannahöfn 8 léttskýjað Narssarssuaq 5 rigníng Nuuk 3 vantar Ósló 8 skýjað Stokkhólmur 10 skýjað Þórshöfn 7 rigning Algarve 22 léttskýjað Amsterdam 8 heiðskírt Barcelona 17 alskýjað Berlfn 8 heiðskírt Chicago 12 þokumóða Feneyjar 16 skýjað Frankfurt 8 léttskýjað Glasgow 10 skýjað Hamborg 8 heiðskírt London 10 léttskýjað Los Angeles 14 heiðskirt Lúxemborg 7 skýjað Madríd 16 léttskýjað Malaga 21 léttskýjað Mallorca 20 skýjað Montreal 2 skýjað New York 11 léttskýjað Orlando 21 þokumoða París 9 skýjað Madelra vantar Róm 26 léttskýjað Vín 7 rigning Washington 14 rigning á sið. klst. Winnipeg 0 léttskýjað / / / / / / / / / / ÍDAGkl. 12.00 Heimild: Veðurslofa íslands (Byggt ó veöurspá kl. 16.15 í gœr) Morgunblaðið/Sturla Páll Sturluson Með refaskott EGILL Ibsen Oskarsson heldur hér á skottunum af refunum tveim- ur sem hann skaut í Kvíanesdal í Súgandafirði. Rebbi 1á í valnum en ijúpurnar sluppu Suðureyri. RJÚPNAVERTÍÐIN er gengin í garð og skotveiðimenn flykkjast til fjalla í fiðurleit. Ekki er þó gefið að rjúpa fáist í hverri veiði- ferð og margir þurfa að snúa tómhentir heim. Egill Ibsen Óskarsson var einn margra skyttna sem gengu á fjöll í Súgandafírði fyrstu daga veiði- tímabilsins. Þijár rjúpur náðust fyrsta daginn en þrátt fyrir að hafa engri tjúpu náð annan dag- inn kom hann ekki tómhentur heim af ljalli því að í stuttri göngu upp í Kvíanesdal í Súgandafirði skaut hann tvo refí. Egill sagðist hafa séð tvo refí að leik í dalnum og hafí honum tekist að skjóta þá báða með 22 cal. riffli sem hann hafði meðferð- is. Aðspurður sagðist Egill þó ekki ætla að hafa refasteik á jóla- borðinu i ár heldur stefna á að ná ijúpum fyrir lok veiðitímabils- ins. - Sturla Páll. Eftirlitsskrifstofa ríkisskattstjóra Kvikmyndahúsin komi upp sjóðvélúm EFTIRLITSSKRIFSTOFA ríkis- skattstjóra hefur nýlega sent for- svarsmönnum kvikmyndahúsa bréf þar sem þeim eru gefin fyr- irmæli um að koma upp sjóðvél- um í kvikmyndahúsunum. Að sögn Ragnars Gunnarssonar, for- stöðumanns eftirlitsskrifstofunn- ar, á þetta bæði við um miðasölur og sælgætissölur, en hann sagði fullnægjandi ástand vera til stað- ar í einhveijum kvikmyndahús- anna hvað þetta varðar. Hann sagði að kannað yrði í næsta mánuði og þarnæsta hvort farið hefði verið að þessum fyrirmæl- um. Ragnar sagði að árið 1992 hefði farið fram athugun á vegum emb- ættis ríkisskattstjóra á fyrirkomu- lagi söluskráningar í kvikmynda- húsum. í framhaldi af því verið teknar upp viðræður við forsvars- menn þelrra þar sem óskað var eft- ir tillögum frá þeim um aðrar leiðir jafn góðar og sjóðvélar, en ekkert hefði komið út úr þeim viðræðum. í framhaldi af því hefði síðan um- rætt bréf verið sent forsvarsmönn- um kvikmyndahúsanna fyrir skemmstu. „Ef þeir sinna ekki þessum fyrir- mælum okkar þá er staðan sú að þeir eru með ófullnægjandi tekju- skráningu, og þá er heimild til að áætla þeim virðisaukaskatt,“ sagði Ragnar. Hann sagði að alltaf kæmi upp annað slagið tilfelli þar sém skrán- ing væri ófullnægjandi hjá einstaka fyrirtæki, og væri þá reynt að finna bestu lausnina hveiju sinni. -----*_*_«----- Rannsókn vegna sím- hótana lokið RANNSÓKN vegna meintra símhótana í garð sómölsku stúlkunnar Amal Quase er lok- ið. Símtöl til hennar voru rakin af Pósti og síma. Nokkrir ein- staklingar könnuðust við að hafa hringt í stúlkuna en ekki að hafa hótað henni. Amal Quase lagði síðsumars fram kæru og kvaðst hafa orðið fyrir ónæði og hótunum í gegnum síma. Að sögn rannsóknarlögregl- unnar verður ekki frekar aðhafst í þessu máli og hefur Amal Quase verið gerð grein fyrir því. Skíðasvæðið í Bláfjöllum Arskort kosta 10.000 kr. BLÁFJALLANEFND endur- skoðaði gjaldskrá fyrir Blá- fjallasvæðið á fundi sínum í gær. Við endurskoðunina hækkar árskort fyrir fullorðna í lyftur á svæðinu úr 9.500 í 10.000 eða um 5,26%. Gjaldskrá fyrir Bláfjallasvæðið var síðast hækkuð í október árið 1991. Árskort barna kosta í vetur 4.700 kr., dagskort fullorðinna 900 kr., dagskort barna 350 kr., hálfsdagskort fullorðinna 750 kr. og hálfsdagskort bama 300 kr. Dagskort í byijendalyftur kostar 200 kr., æfingakort 4.200 kr., átta miða kort fyrir fullorðna 600 kr. og átta miða kort fyrir börn 350 kr. Bláfjallanefnd leggur til við sveitarstjórnir að hætt verði sölu á átta miða kortum barna og full- orðinna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.