Morgunblaðið - 20.10.1993, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 1993
7
Rekstur embættis sýslumannsins í Reykjavík á þessu ári
Útgjöldin fara um 15 millj-
ómr króna fram úr áætlun
SÝNT þykir að útgjöld embættis sýslumannsins í Reykjavík fari að
minnsta kosti 15 milljónir króna fram úr heimildum fjárlaga í ár en
alls námu heimildir 110 miiljónum króna. í frumvarpi til fjáraukalaga
fyrir árið 1993 kemur fram, að ráðið hafi verið bæði í tímabundin
og föst störf sem ekki hafi verið veitt framlag til í fjárlögum. Jón
Skaftason sýslumaður segir að fjárveiting til embættisins hafi verið
gersamlega vanáætluð.
í fjáraukalagafrumvarpinu segir,
að fjárþörf embættisins hafi verið
vanmetin í áætlun dómsmálaráðu-
neytis við undirbúning fjárlaga og
skýri það að hluta framúraksturinn.
Þá hafi ófyrirséð barnsburðar- og
veikindaleyfi leitt til aukins launa-
kostnaðar.
Engar ráðstafanir
„í þriðja lagi hefur verið ráðið
bæði í tímabundin og föst störf sem
ekki var veitt framlag til á fjárlög-
um. Þótt ljóst hafi verið hvert stefndi
frá því snemma á árinu hefur hvorki
ráðuneytið né embættið gripið til
ráðstafana ,til að draga úr hallanum.
Morgunblaðið/Helga Jónasdóttir
Jólasöngvar á hausti
Ein af þrautunum í þrautagöngunni fólst í því að ganga í kringum grenúré og kyrja jólasöngva.
Þrautaganga á Tálknafirði
Tálknafirði.
FYRIR skömmu var haldin svokölluð þrautaganga á vegum
Iþróttanefndar Grunnskóla Tálknafjarðar. Um 60 börn og full-
orðnir tóku þátt í göngunni og varð þetta hin mesta skemmtun.
Þátttakendum var skipt upp í með svuntu og kökukefli í hendi.
sex hópa og átti hver hópur að
leysa hinar ýmsu þrautir á leið-
inni. Fyrsta þrautin fólst í því að
ganga á sundfitum upp brekku
Aðrar þrautir voru m.a. að telja
gangstéttarhellur fyrir framan eitt
íbúðarhúsið, búa til tjald úr salt-
poka, aka með farþega í innkaupa-
kerru, ganga í kringum grenitré
og kyija jólasöngva og síðast en
ekki síst að etja kappi í slöngu-
róðri í sundlaug Tálknafjarðar.
Allir voru sigurvegarar í lokin
en verðlaunin voru góð hreyfing
og skemmtun.
- Helga.
Ginnti tvær
ungar telp-
ur upp í bíl
ÓKUNNUR maður ginnti tvær
ungar telpur í Hafnarfirði upp
í bíl sinn á Hvaleyrarholti á
sunnudagskvöld með því að
lofa þeim þúsund krónum ef
þær sýndu sér hvar golfvöllur-
inn í bænum væri. Móðir ann-
arrar telpunnar frétti strax
af atvikinu frá leikfélaga
hennar sem ekki hafði fengist
upp í bílinn og ók hún strax
að golfvellinum og fann þar
telpurnar í bíl mannsins.
Konan tók telpumar úr bílnum,
að sögn lögreglu, hellti sér yfir
manninn og fór heim áður en hún
hringdi á lögreglu. Telpurnar sak-
aði ekki og að sögn lögreglu er
ekki talið að maðurinn hafi sýnt
þeim nokkra áreitni áður en móðir-
in kom að.
Maðurinn, sem er talinn 20-24
ára gamall, var horfinn þegar lög-
reglan kom að golfvellinum. Leit
bar ekki árangur og ekki er vitað
hvert var skráningamúmer bíls
mannsins sem var hvítur japanskur
„station“-bíll að talið er.
og Ijúffeng t£/A
iILé>rcíc)ar-
21.-24. október
Villibráðarhlaðborð okkar um síðustu helgi vakti
mikla hrifningu og við þökkum frábærar viðtökur.
Nú endurtökum við leikinnl
Gestgjafi verður Rúnar Guðmundsson matreiðslumeistari.
Haildór Gunnarsson (Þokkabót) leikur
á píanóið föstudags- og laugardagskvöld.
Njótið lífsins yfir úrvalsréttum
úr íslenskri náttúru.
Veitingahúsið Naust
Borðapantanir í síma 17759 ~ """ð 4n/
Brýnt er því að ráðuneytið treysti
betur áætlanagerð vegna embættis-
ins og komi á skilvirkari fjármála-
stjóm áður en sameining við sýslu-
mannsembættin í Kópavogi og Hafn-
arfirði fer fram á næsta ári,“ segir
í greinargerð með frumvarpinu.
Jón Skaftason sýslumaður sagði,
að vegna breytinga sem gerðar hefðu
verið árið 1992, þar sem embætti
sýslumannsins í Reykjavík var út-
víkkað verulega, hefði fjárveiting
fyrir árið 1993 verið nánast til bráða-
birgða og ekki hefði komið í ljós
fyrr'en eftir síðari athugun hver fjár-
þörfin var. „Fjárveitingin var ger-
samlega vanáætluð," sagði Jón.
Lagt er til í fjáraukalagafrum-
varpinu, að fjárheimild embættisins
verði aukin um 10 milljónir á þessu
ári gegn því að afgangur rekstrar-
hallans færist yfir áramót og að
dómsmálaráðuneytið sjái til þess að
unnið verði á honum með aðhaldi í
rekstri.
Lamb fæðist
í sláturtíð
ÆR BAR lambi á bænum Húsa-
túni í Haukadal í Dýrafirði á
fimmtudag. Mjög sjaldgæft er
að lömb fæðist á þessum tíma.
Að sögn Soffíu Jónsdóttur, sem
á kindina, vissi enginn að kindin
hefði borið fyrr en hún kom heim
túnið með lambið.
Soffía sagði að lambið væri vel
á sig komið og yrði það látið lifa
í vetur. „Ég trúði því varla þegar
mamma sagði mér að kindin hefði
átt lamb og fór að athuga þetta
með hálfum huga. Þetta er hrút-
lamb og var alveg sprellfrískt úti
á túni. Það er mjög óvenjulegt að
lömb fæðist á þessum tíma,“ sagði
Soffía í samtali við Morgunblaðið.
ITILEFNIAF OPNUN NYRRAR
UMBODSSKRIFSTOFU SL1
Hafnarfirdi bjódum vib
ÓTRÚLEGT VERD Á
30 FYRSTU SÆTUNUM
SEM ÞAR SEUAST TIL
1,1 ,AMn!
i.
! /y
Umboðsskrifstofa Samvinnuferða - Landsýnar í Hafnarfirði
erflutt að Bæjarhrauni 14. Af því íilefni bjóðum við sérstakt
opnunartilboð á Dublinarferð 23.-28. október:
t
Opnum kl. 9 í dagl
10 lurstti sætin áiFfWF5!
10 næstu sætiD á l
10 harnæstu sætin á
Innifalið í verði er flug, gisting á Burlington-hótelinu í
5 nætur, rútuferð til og fráflugvelli erlendis, íslensk
fararstjórn, skattar og gjöld.
Ath. Einungis verða seld 2 sæti á hvern viðskiptavin og
engar pantanir teknar í gegnum síma
Samviiiiiiiferðlr
Landsýn
QATIAS/*
EunocARD.
Reykjavflc: Austurstræti 12 • S. 91 - 691010 • Innanlandsferðir S. 91 - 6910 70 •
Símbréi 91 - 2 77 96 1 69 10 95 • Telex 2241 • Hótel Sögg við Hagatorg • S. 91 - 62 22 77 • Slmbrél 91 - 62 24 60
HatnarfJBrður: Bæjarhrauni 14 • S. 91 • 6511 55 Keflavik: Hafnargötu 35 • S. 92 -13 400 • Slmbrél 92 • 13 490
Akranes: Breiöargötu 1 • S. 93 ■ 1 33 86 • Slmbrél 93 -1 11 95 Akureyri: Ráðhústorgi 1 • S. 96 • 27200 • Slmbrél 96 -1
10 35 Vestmannaeyjan Vestmannabraut 38 • S. 98 -1 12 71 • Slmbréf 98 -1 27 92
J