Morgunblaðið - 20.10.1993, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 1993
21
Eftirlits-
flugyfir
Mogadishu
SKYTTA á banda-
rískri þyrlu horfír yfír
höfuðborg Sómalíu,
Mogadishu. Um 40
bandarískar þyrlur
taka þátt í eftirlitsflugi
Sameinuðu þjóðanna
sem fer fram allan sól-
arhringinn. Friðar-
gæsluliðar SÞ koma
nú í veg fyrir að íbúar
borgarinnar Baidoa
verði á ný hungri og
ættflokkabardögum
að bráð, að sögn
starfsmanna erlendra
hjálparstofnana og
ættarhöfðingja Sóm-
ala. Fyrir ári dóu um
400 manns daglega í
Baidoa af áðurnefnd-
um orsökum.
Reuter
Lenín á flakk eða
undir græna torfu?
Til hinstu hvílu?
Borgarstjórinn í Moskvu hefur lagt til að Lenín verði grafinn í
Pétursborg en lík hans hefur verið til sýnis í grafhýsi í Kreml í
um sjötiu ár.
Moskvu, Bonn. Reuter.
BORGARSTJÓRINN í Moskvu,
Júrí Luzhkov, hefur lagt áætl-
un fyrir Borís Jeltsín, Rúss-
landsforseta, um að koma
Rauða torginu í fyrra horf. Það
felst meðal annars í því að
grafa jarðneskar leifar Leníns
og fjarlægja hina gríðarstóru
rauðu stjörnu af turnum
Kremlar. Þá hefur þýskur
kaupsýslumaður boðið Borís
Jeltsín Rússlandsforseta eina
milljón marka fyrir að fá leyfi
til að sýna lík byltingarheljunn-
ar Leníns annars staðar en í
Moskvu.
Í hugmynd borgarstjórans er
gert ráð fyrir að lík Leníns verði
lagt til hinstu hvílu Volkovskíj-
kirkjugarðinum í Pétursborg en
ekki er ljóst hvort grafhýsið verð-
ur rifið. Líkum hefur verið leitt
að því að Jeltsín muni leggja
áætlunina til við þingið eftir kosn-
ingar í desember og í Daily Te-
legraph er fullyrt að innan fárra
vikna muni Jeltsín gefa út tilskip-
un um að Lenín verði jarðaður.
Ennfremur vill borgarstjóri
Moskvu að í stað stjörnunnar á
Kreml verði sett upp hefðbundin
rússnesk tákn, mögulega tvíhöfða
örn, tákn Rússlandskeisara. Þá
er lagt til að styttur af þjóðhetjum
Rússa, Kuzma Mínín og Dmitri
Pozharskíj, verði settar upp á
Rauða torginu að nýju.
Lenín til sýnis
Þýski kaupsýslumaðurinn Pal
Bercovic segist í samtali við síð-
degisblaðið Biid vilja sýna Lenín
í besta safni Kölnar. Að því loknu
væri hægt að fara með hann um
allan heim. Segist hann þegar
hafa fengið tilboð frá New York
og Washington.
Berkovic óttast ekki að erfítt
yrði að viðhalda líkinu í núver-
andi ástandi. Auk þess að smyija
það reglulega yrði að geyma það
í kulda og myrkri. „Við munum
passa hann vel. Virðingu Leníns
verður viðhaldið. Hann verður
hluti af sýningu, með tónlist og
myndum, um sögu Sovétríkj-
anna,“ sagði Berkovic.
Úkraínumenn
vílja halda
kjarnaflaugum
Kiev. Reuter.
LEONID Kravtsjúk, forseti Úkraínu, ásakaði Vesturlönd í gær
fyrir að hafa ekki boðið Ukraínumönnum aðstoð til að afvopnast.
Sagði Kravtsjúk yfirvöld ekki sjá sér annars úrkosta en að halda
hluta af þeim kjarnaflaugum sem eru í landinu frá tímum Sovét-
ríkjanna. Flaugarnar verði hins vegar teknar úr skotstöðu og þeim
ekki lengur beint að Bandaríkjunum. Um er að ræða 46 SS-24
kjarnaflaugar.
„Við höfum beðið um hjálp en
í stað hennar eru okkur sett skil-
yrði. Við viljum vera án kjarna-
vopna en til þess þurfum við hjálp,“
sagði Kravtsjúk og vísaði til óska
Úkraínumanna um að START-1
og samningur um bann við út-
breiðslu kjarnorkuvopna verði
staðfestir. Sagði hann að um leið
og það hefði verið gert myndu
Úkraínumenn halda áfram eyði-
leggingu 130 SS-19 flugskeyta.
Hins vegar gætu þeir aðeins tekið
SS:24 flaugar úr skotstöðu.
í júlí studdi Kravtsjúk ákvörðun
þingsins um að lýsa eldflaugarnar
„þjóðareign" á sama tíma og verið
var að flytja þær til Rússlands til
eyðileggingar. Þingið hefur marg-
oft tafíð staðfestingu afvopnunar-
sáttmálanna og hefur Kravtsjúk
krafíst þess að Vesturlönd geri
öryggisráðstafanir vegna hans. Þá
hefur hann sagt boð Bandaríkja-
manna um 175 milljóna dollara
fjárveitingu til að hreinsa geymslu-
staði eldflauganna vera fáránlegt
og afþakkað það. Rússland, Hvíta-
Rússland og Khazakstan hafa
staðfest afvopnunarsáttmálann.
Kravtsjúk mun hitta bandaríska
utanríkisráðherrann Warren Chri-
stopher að máli eftir fjóra daga
er ráðherrann verður á ferð um
fímm fyrrverandi lýðveldi Sovét-
ríkjanna.
BETRIX ELLEN BETRIX
® I kynnir BI0M0IST
BIÖ M0IST er kremlína fyrir þurra húð.
Blö MOIST inniheldur áhrifarík efni úr náttúruiegum lípíðum,
sjávarþörungum og A og E vítamín.
BIÖ MÖIST verndar húðina gegn veðri og vindum og
styrkir hana gegn rakamissi í óblíðu veðurfari hér á landi.
BIÖ M0IST og húðin viðheldur eðlilegum raka sínum og
heilbrigðu útliti.
Útsölustaðir:
Clara Kringlunni- Clara Austurstræti - Jamí Laugavegi 15 - Soffía Hlemmtorgi -
Holts Apótek - Gullbrá Nóatúni 17 - Snyrtivöruversl. Glæsibæ - Andorra Hafnartirði
- Apótek Keflavíkur - Krisma ísafirði - Hilma Húsavík - Snyrtihúsið Selfossi.
PENNUSAGA I FREMSTU
Hofundur Blóðfjötra hefur skipað sér í fremstu rö5 spennusagnahöfunda heims og hafa fyrri
bækur hans náð miklum vinsældum hér á landi. Sagan gerist í framandi umhverfi á Seychell-
eyjum austan við Afríku og segir frá tveimur einmana og reynslulitlum manneskjum sem
sannarlega öðlast nýja sýn á lífið. A sjó og landi eiga sér stað spennuþrungnir atburðir,
ástarævintýri og flókin samskipti ólíkustu persóna.
^ - .. „„ cjceinutföcg
..
spennubok... lesnmgu eri nce„jUlegt lesa „
(Kolbrén