Morgunblaðið - 20.10.1993, Page 27

Morgunblaðið - 20.10.1993, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 1993 27 Opið bréf til Guðmund- ar Ama Stefánssonar eftir Þorgeir Rúnar Kjartansson Af yfirgengilega marggefnu til- efni finn ég mig knúinn, sem al- mennur borgari, til að senda þér, háæruverðugur heilbrigðisráð- herra, línu sem jafnframt er ætluð öðrum til íhugunar, og því birt þjóðinni. Ástæða þess að bréfið er stflað akkúrat á þig er sú, að lengi vel gekk sú þjóðsaga um landið að Guðmundur Árni Stefánsson væri í heiðarlegri kanti þess mislita söfnuðar sem kenndur er við flokk alþýðunnar. En eins og við vitum báðir hlaut það rykti sviplegan enda. Það eru m.a. tildrög og eðli þessara ömurlegu endaloka orðst- írs sem ég vil hjala við þig um í nokkrum orðum ef þú hefur vinnu- frið eða samvisku til að lesa til enda. Og vonandi líka hugsa mál- ið rúmlega til botns, en reyna ekki að veija auman málstað með ábyrgðarlausu „ábyrgðar“tauti. Ég ætla reynar ekki að fjalla nema aukreitis um persónulega veikleika af því tagi sem koma fram í biðlaunasukki og óheppileg- um mannaráðningum (og enn ól- ánlegra yfirklóri yfir hvort- tveggja), heldur vil ég spjalla um önnur og stærri þjóðfélagsmál. Um er að ræða nokkur grundvall- aratriði sem snerta beinlínis líf þitt, líf mitt og líf annarra sam- ferðamanna okkar og -kvenna, - auk afkomendanna. Umræðuefnið er jafnaðarstefn- an. Sú stefna sem gerir ráð fyrir því að t.d. barnakennari suður með sjó skuli njóta sambærilegrar umb- unar og virðingar og hver annar forstjóri, hvort sem hann starfar í Trygginga- eða Hyglingastofnun ríkisins eða hvaða skúmaskoti sem vera skal. Og enginn skal hafa rétt á að traðka á öðrum, segir sú blíða og ágæta stefna. Þegar stefna þessi kom fram á íslandi með því að ákafir og ærleg- ir menn stofnuðu stjórnmálaflokk og alþýðusamtök árið 1916, bjó ein meginkennd að baki. Hún er meðfædd manneskjunni og er því enn í fullu fjöri: Rættlætiskennd heitir sú. Skyldu menn varast að misbjóða henni gróflega. Sú öfluga kennd gat af sér á sínum tíma plagg sem kom frá stofnendum flokksins þíns. Og segir þar m.a.: ... ætlum vér að gera fátæktina útlæga úr landinu, og koma á svo almennri velmegun að hvert mannsbarn sem fæðist hér á landi (feitletranir ÞRK) hafi tækifæri til að þroska og full- komna alla góða og fagra hæfi- leika ... í sömu yfirlýsingu segir líka: ... viljum vér koma því til leiðar að hér á landi verði aðeins ein stétt, þ.e. starfandi menntaðir menn. Óskaplegar fögur hugsjón, ekki satt? Og í sláandi mótsögn við allar þær „nauðsynlegu aðgerðir“ sem í nafni „ábyrgðar" hafa verið að auka fátækt, ranglæti og stéttaskiptingu í samfélagi okkar í seinni tíð. Allsendis er þessi jafn- aðarhugsjón óskyld þeirri ókristi- legu siðblindu sem hin svokallaða fijálshyggja hefur smitað út frá sér og knýr nú margan hugleys- ingjann til óhæfuverka. Og þá erum við komnir að kveikju þessa bréfs. Það er eðli huglausra manna að ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur. Svo vill til að Gunnarsholt er einn allægsti garður landsins, þó holt heiti. ARNAÐ HEILLA Barna og Qölskylduljósmyndir HJÓNABAND. Gefín voru saman í hjónaband þann 21. ágúst sl, í Víðistaðakirkju af sr. Sigurði H. Guðmundssyni, Bjamey Inga Bjarnadóttir og Einar V. Hansson. Heimili þeirra er að Grýtubakka 28, Reykjavík. HJÓNABAND. Gefin voru saman í hjónaband þann 14. ágúst sl. í Dómkirkj- unniafsr. Jakobi Ágústi Hjálmars- syni, Hulda Brá Magnúsdóttir og Lj6sm. Rut Lárus Guðbjartsson. Slíkt hefur reyndar verið gert áður. T.d. árið 975 þegar harðindi gengu yfir ísland. Það var áður en kærleiksboðskapur kristninnar náði að eggja hina meðfæddu rétt- lætiskennd til uppreisnar gegn fúlmennsku valdsins. Þá gengu „heilbrigðisráðherrar“ þeirrar tíð- ar í að hrinda öldruðu fólki og öryrkjum fyrir björg, - og hafa eflaust náð fram „verulegri hag- ræðingu og sparnaði". Við vitum ekki hve margir týndu lífi. Við getum ekki séð fyrir í smá- atriðum þær hörmungar sem hljót- ast af því að Guðmundur Árni Stefánsson tekur sér vald til að kæfa ómetanlegt líknarstarf sem unnið er hérlendis. Að sjálfsögðu með velþóknun Davíðs Oddssonar og ríkisstjórnar hans, ekki má gleyma því. Við höfum reyndar ekki heldur neina nákvæma stati- stík yfir alla þá mannlega niður- lægingu og niðurbrot sem leitt hefur af öðrum ráðstöfunum sem þessir gáfumenn hafa gripið til í nafni heilbrigðis. En slíkum upp- lýsingum má þó safna, t.d. með ítarlegum viðtölum við fólk sem starfar í návígi við líf og dauða, - og væri nú ekki þjóðráð að Hafnarfjarðarbær veitti upphæð sem samsvarar ógreiddum bið- launum til atvinnulausra fræði- manna til að vinna slíkt þarfaverk? Og svo minnst sé á heilsukorta- óráðið þá er það svo augljóst af- sprengi villuráfandi ranglætis- kenndar að óþarfí ætti að vera að Þorgeir Rúnar Kjartansson „Og þá erum við komn- ir að kveikju þessa bréfs. Það er eðli hug- lausra manna að ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur. Svo vill til að Gunnarsholt er einn allægsti garður lands- ins, þó holt heiti.“ eyða mörgum orðum að því. Þó má kannski spyija: Ertu búinn að reikna út Guðmundur hversu mörg mannslíf og hve miklar þjáningar munu græðast á þeim sparnaði? Ef svo er, vertu þá svo vænn að birta tölur. En áður en þú gerir það skaltu fara vandlega yfir í huga þér, hvort sé raunverulegra, misfalsaðar tölur eða lifandi manneskjur, þetta ótölulega fyrir- bæri sem við erum öll; þú, ég, Karl Steinar, öryrkjarnir í rassvas- anum hans, skömmin í hjartarót- inni, ristilbólgan, tárin, slefan og hikstinn. Pældu þetta í botn kallurinn. Vissulega hafa öll mál margar hliðar og fjölmarga kanta, að ekki sé talað um fletina. En eitt er víst: Að fyrr eða síðar mun heilbrigð réttlætiskennd smella á þeim sem týndu dómgreind sinni undir pressu pappírsvinnu og stressi sið- lausrar „stjórnunar" í vondum fé- lagsskap. Þessi kennd mun mæta þeim mönnum sem höfðu valdið og töldu ranglega að þjóðfélagið hefði ekki efni á að virða sjálfa undirstöðu þeirra trúarbragða sem opinberlega áttu að heita ríkjandi. Og því er það rétt að þú hafir á bakvið eyrað, heilbrigðisráðherra v góður, að í fyllingu tímans munu sagnfræðingar gera ódæðum sam- tíðarinnar býsna rækileg og hlut- læg skil. Undirbúningsvinnan er raunar hafín, ekki skortir heimild- ir og af nógu er að taka. Því má svo gauka að í lokin að fyrir næstum 800 árum var uppi einn nafni þinn sem fékk viður- nefnið „góði“ vegna fortakslausrar samlíðunar með þeim sem bágast áttu og linnulausrar baráttu fyrir réttindum þeirra til reisnar og lífs. Ekki þótti hann „ábyrgur í ríkis- fjármálum" þeirrar tíðar, en marg- ur átti honum líf og heilsu að launa og minning hans hefur um aldir’ verið þjóðinni dýrmætari en nokk- ur nútímajeppi. Viðumefnið var verðskuldað, ekki síður en ýmis tilbrigði and- hverfu þess, sem hljóta að koma upp í hugan þegar ofríkismenn taka flúmbrulegar stórákvarðanir öðrum til ógæfu og niðurrifs... Höfundur er sagnfræðingur. Barna og fjölskylduljósmyndir HJÓNABAND. Gefin voru saman í hjónaband þann 28. ágúst sl. í Fella- og Hólakirkju af sr. Guð- mundi Karli Ágústssyni, Aðalheiður Einarsdóttir og Björn Kjartansson. Heimili þeirra er í Dúfnahólum 4, Reykjavík. Reiðarslag fyrir Timman Skák Margeir Pétursson ANATÓLÍ Karpov sneri aftur óhagstæðri stöðu í vinning í fjórtándu einvígisskák sinni við Jan Timman. Þar með er Karpov kominn með þriggja vinninga forskot, 8Vi—5Vi og orðið nokkuð sýnt um úrslit. Enn á þó eftir að tefla tíu skák- ir í einvíginu. Eftir þriggja vikna hlé hófst seinni hluti þess á sunnudaginn í Djakarta i In- dónesíu. Sigurvegarinn verður lýstur heimsmeistari af alþjóða- skáksambandinu FIDE í sam- ræmi við lög þess, þrátt fyrir að Gary Kasparov sé ahnennt viðurkenndur á meðal skák- manna sem langsterkastur. Þeir Kasparov og Short vildu ekki tefla undir merkjum FIDE og Karpov og Timman eru vara- menn þeirra. Þetta svonefnda „FIDE heimsmeistaraeinvígi“ fór vel í gang, en síðan kom í ljós að verðlaunasjóðurinn var ekki nægilega tryggur. Hann er nú kominn niður í 50 milljónir króna, eða 30% af sjóðnum hjá Kasparov og Short í London. Taflmennska þeirra Karpovs og Timmans hefur versnað eftir því sem sífellt fleiri vandamál í sam- bandi við einvígishaldið hafa kom- ið upp á yfírborðið. Fjórtánda skákin var afar illa tefld. Karpov hafði hvítt og reyndi að endur- bæta taflmennsku sína frá því fyrr í einvíginu. I undirbúningi hans reyndist stór gloppa og Tim- man fékk mjög vænlega stöðu út úr byijuninni. En þá missti Hollendingurinn af traustri leið sem hefði gefið honum frábæra vinningsmögu- leika og í staðinn snerist taflið við. Karpov náði betra endatafli og þrátt fyrir nokkuð einkennilega taflmennsku á báða bóga innbyrti hann vinninginn ótrúlega auðveld- lega. Það er sama uppi á teningnum í þessu einvígi og í London. Þótt þeir Short og Timman fái sigur- vænlegar stöður út úr byrjuninni og hættuleg færi er sem Kasparov og Karpov gernýti möguleika sína á meðan vestrænir keppinautar þeirra kasta þeim sífellt á glæ. Fræðilega séð virðist Anatólí Karpov ekki hafa haft mikið fram að færa í þessu einvígi. Það er sárgrætilegt fyrir Timman að Karpov skuli vinna öruggan sigur án þess að hafa einu sinni undir- búið sig sæmilega. En Hollend- ingnum hefur vegnað illa síðasta árið og þetta var það sem búist var við fyrirfram. Hvítt: Anatólí Karpov Svart: Jan Timman Drottningarbragð, Vínar afbrigðið I. d4 - Rf6, 2. c4 - e6, 3. Rf3 - d5, 4. Rc3 — dxc4, 5. e4 — Bb4, 6. Bg5 — c5, 7. Bxc4 — cxd4, 8. Rxd4 — Bxc3+, 9. bxc3 — Da5, 10. Rb5 — Rxe4!, 11. Bf4?! í áttundu skákinni lék Karpov 11. Dd4 sem Timman svaraði með stutt- hrókun og jafnaði taflið. En með bisk- upsleiknum hættir Karpov sér út á hálan ís. Það er alkunna að heims- meistaranum fyrrverandi er illa við að fórna peði og hann hlýtur að hafa leg- ið lengi yfir stöðunni með aðstoðar- mönnum sínum. II. - 0-0, 12. 0-0 - Rd7, 13. Rc7 - e5!, 14. Rxa8 — exf4, 15. Bd5 — Rdf6, 16. Bxe4 - Rxe4, 17. f3 t B h Það er hreint ótrúlegt að það taki hvít aðeins fimm leiki að snúa þessari vafasömu stöðu upp í hagstætt enda- tafl, - og það í sjálfu „heimsmeistara- einvíginu". Hér verður ekki betur séð en að Timman geti fangað riddarann á a8 með því að hafna peðsfórn hvíts og leika 17. - Rf6! 18. Db3! (Skást, því 18. Dd6 - Bd7, 19. Rc7 - Hc8, er alveg vonlaust) 18. — Dc5+, 19. Khl - b6! og næst Bb7 eða Dc6. Hvítur hefur aðeins takmarkaða jafnteflis- möguleika með hrók fyrir tvo létta menn. Það er erfitt að trúa öðru en að Timman hafi séð þetta, fremur hlýt- ur hann að hafa ofmetið möguleika „sína í framhaldinu. 17. - Rxc3?, 18. Dd6 - Rd5? Karpov fær betra endataf! eftir þetta linkulega undanhald. Eftir 18. — Be6, 19. Rc7 — Bc4, 20. Hfel (hótar máti I öðrum með 21. Dxf8+) 20. — Re2+, 21. Khl — Hc8, 22. Hadl er svarta mótspilið siglt í strand. Best virðist 18. - Rb5, 19. Dc5! - Bd7, 20. Hfdl - Bc6, 21. a4' - Dc3, 22. Df2! - Rd6 með óljósri stöðu, em síst lakari á svart. 19. Hfcl - Be6 Það kann að vera að Timman hafí yfírsést að 19. — Hd8 er svarað með 20. Hc5! (En ekki 20. De5 - Be6, 21. Rc7 - Db6+, 22. Khl - Rxc7, 23. Hxc7 Bxa2! eða, 23. Dxc7? - Hdl+) 20. - Hxd6 21. Hxa5 - Re3 (21. - a6? er slæmt vegna 22. Hdl) 22. Hxa7 - Hg6, 23. Khl og svartur hefur tæp- lega nægar bætur fyrir skiptamuninn. Nú þvingar Karpov fram betra enda- tafl. Hann er. öruggur með að vinna annað peðið til baka. 20. Rc7 - Rxc7, 21. Dxc7 - Dxc7, 22. Hxc7 - Bd5, 23. Hc5 - Be6, 24. Hc7 - Bd5, 25. Hc5 - Be6, 26. Ha5 - a6, 27. Hbl - Hc8, 28. h4 - Hc7, 29. Hb4 - Bc4, 30. Haa4 - Be6, 31. Hb6!? 31. Hxf4 kom einnig vel til greina. - h6, 32. a3 - g5, 33. Hab4 - a5, 34. Ha4 - gxh4, 35. Hxf4 - h3, 36. gxh3 - Bxh3, 37. Ha4 - Hc3?! Óvirkari vöm með 37. — Bd7, 38. Hxa5 — Bc6 var líklega betri. Nú koma hver mistökin á fætur öðru hjá Tim- man og eftir tímamörkin situr hann uppi með tapað tafl. 38. Hxb7 - Hxf3, 39. Hxa5 - Be6?, 40. Hbl - h5, 41. Hg5+ - Kf8 42. Hal! Báðir hvítu hrókamir eru komnir í óskastöður. 42. - h4, 43. a4 - f6, 44. Hg2 - Bd5, 45. Hd2 - Be4, 46. a5 - Hh3, 47. Ha4 - Bc6, 48. Hc4 - Hhl+, 49. Kf2 - Bb5, 50. Hc7 - Ke8, 51. Hd5 - Hbl, 52. Hh5 - Kd8, 53. Ha7 og Timman gafst upp.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.