Morgunblaðið - 20.10.1993, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 1993
33
Stretsbuxur
kr. 2.900
Mikið úrval af
allskonar buxum
Opiö ó laugardögum
kl. 11 - 16
Nýbýlavegi 12, sími 44433.
Morgunblaðið/Arni Sæberg
Strákarnir, lengst til vinstri er Rúnar og við hlið hans Arnar með sína síðu ljósu lokka. Þeir eru
umkringdir aðdáendum sínum.
POPP
„Strákarnir“ árita
geisladiska
Strákarnir, eða „The BOYS“ eru
staddir hér á landi um þessar
mundir eins og sjá mátti í þættin-
um „Á tali“ með Hermanni Gunn-
arssyni í síðustu viku. Strákarnir,
sem heita Arnar og Rúnar Hall-
dórssyni eru geypilega vinsælir í
Noregi og í nýlega norsku blaði
var því slegið fram að þeir hefðu
selt þar í landi 75.000 kassettur
og geisladiska. Hvar sem þeir
koma þar í landi flykkjast ólmir
aðdáendur að þeim. Á föstudaginn
voru þeir bræður staddir í Kringl-
unni þar sem þeir árituðu geisla-
diskinn. Ósagt skal látið hvort að
„Strákaæði" á norska vísu sé í
uppsiglingu hér á landi, en hins
vegar fór ekki á milli mála að
þeir eiga sér marga aðdáendur
hérlendis og eins og sjá má á
meðfylgjandi mynd skipa ungar
stúlkur veglegan sess í aðdáenda-
hópnum.
Verðlaunamyndin
D
iiii
Ein af bestu myndum ársins 1993
Þessi umdeilda mynd hefur alls staðar hlotið frábæra dóma
og góða aðsókn.
Víða hafa mótmæli risið upp eftir sýningar á myndinni og
komið til óeirða.
í sumum borgum hefur myndin verið bönnuð.
ROMPER STOMPER er:
RAUNSÆ,
ÖGRANDI,
SPENNANDI,
RUDDALEG,
ÁHRIFARÍK,
DJÖFULLEG,
HF.IÐARLEG,
RIID,
RAFMÖGNUÐ,
ótrUleg,
VILLIMANNSLEG,
HRÁ, SNJÖI.L.
TfMABÆR,
HNEYKSLANDI,
BRJÁLUÐ,
FRÁBÆR.
HASKOLABIO
SÍMI611213
BRJOST
Claudiu gengur illa
fyrir dómstólunum
Það lítur ekki vel út með mála-
ferli þau sem ofurmódelið
Claudia Schiffer stofnaði til er
spænskur ljósmyndari náði mynd-
um af henni brjóstaberri í sumar-
leyfi með ijölskyldu sinni í sólar-
löndum í sumar. Hún krafði fyrst
Spánveijann um 400 milljónir
króna í skaðabætur og reyndi að
fá dómstól til að samþykkja lög-
bann, en allt kom fyrir ekki. Mynd-
irnar birtust fyrst í spænsku viku-
blaði, en síðan hafa þær flætt yfir
Evrópu og Vesturheim og mörg
blöð hafa ekki hikað við að slengja
myndunum á forsíðuna.
Claudia getur enn lifað í von-
inni að hæstiréttur sjái aumur á
sér, en lögfróðir menn telja þó að
ástæða til bjartsýni sé ekki rík.
Fyrirsætan telur að myndbirtingar
af þessu tagi geti skaðað ímynd
sína, auk þess sem í margmilljóna-
samkomulagi hennar við ákveðið
snyrtivörufyrirtæki er sérstaklega
kveðið á um að hún sýni ekki barm
sinn. Er talin vera hætta á því að
Claudia missi nú samning þennan.
Forsendur dómsins fyrir sýknu
Ijósmyndarans voru að það væri
að bjóða hættunni heim að
spranga um svo gott sem nakin á
almannafæri. Ekki svo að skilja
að fyrirsætan hafi verið innan um
múg og margmenni. Hún var að
sleikja sólina á snekkju fjölskyld-
unnar. En það er kunnara en frá
þurfi að segja að aðdráttarlinsur
ljósmyndara eru margar hveijar
hin mögnuðustu tæki.
Hér er ein af
myndunum
frægu. Þessi
birtist á
kápu þýska
vikuritsins
Bunte.
dOHSlSOd
Jakkar, buxur, bolir. Góðar vörur, gott verð
Pöntunarsími 91-673718.
Opið virka daga 10-18. Laugardaga 10-14.
PÓS TVEFtSL. UNIN
SVANNI
Stangarhyl 5
Pósthólf 10210 • 130 Reykjavfk
Sími 91-67 37 13 • Telefax 67 37 32
Q LJ
Fallar hf.
SALA - LEIGA
Dalvegur 24
s. 4 2322 64 1020