Morgunblaðið - 20.10.1993, Síða 44
NÝÚTGÁFA! ALÞJÓÐLEGT
[3Á SJMáJMiflr
ÍNÆSTA
BANKAEÐA
SPARISJÓÐI
VISA ISLAND
MORGUNBLADID, KRINGLAN 1 103 REYKJA VÍK
SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3040 / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTl 85
MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 1993 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK.
Lausn á
deilu um
_ spilakassa
SAMKOMULAG náðist í gær-
kvöldi í deilu Háskóla Islands
og fjögurra landssambanda um
rekstur spilakassa. Samkomu-
lagið náðist á fundi Guðjóns
Magnússonar formanns Rauða
kross íslands og Þóris Einars-
sonar stjórnarmanns í Happ-
drætti Háskóla Islands. Þórir
vildi á miðnætti ekki greina frá
efnisatriðum samkomulagsins
og sagði að það yrði fyrst kynnt
dómsmálaráðherra. Báðir aðil-
ar hefðu verið ánægðir með
samkomulagið.
Happdrættin SÍBS og DAS vilja
aðild að viðræðum um rekstur
spilakassa á borð við þá sem Há-
skólinn hyggst reka hérlendis und-
ir nafninu Gullnáman.
Sigurður Ágúst Sigurðsson,
framkvæmdastjóri DAS, kveðst
telja eðlilegt að fá aðild að viðræð-
um milli HHÍ og samtakanna fjög-
urra sem hafa rekið spilakassa í
sameiningu og þeir fái að reka
peningahappdrætti og spilakassa á
jafnréttisgrundvelli. Sigurður Ág-
úst segir að einkaleyfi HHÍ á pen-
ingahappdrætti standist eingöngu
gagnvart flokkahappdrættunum
SÍBS og DAS, því jafnvel erlendar
þjóðir séu komnar inn á markaðinn
og borgi vinninga út í peningum.
„Það hlýtur hver maður að sjá að
það er ekki lengur hægt að troða
okkur um tær,“ segir Sigurður.
Hög'gmyndir
Rodins á
Kjarvalsstöðum
YFIRLITSSÝNING á verk-
um franska myndhöggvar-
ans Auguste Rodin verður
opnuð á Kjarvalsstöðum
næstkomandi laugardag, 23.
október. Borgarstjórinn í
Reykjavík, Markús Örn Ant-
onsson, opnar sýninguna
formlega klukkan 16.00. Að-
spurður um verðmætin sem
Kjarvalsstaðir hýsa nú, sagði
Gunnar Kvaran, forstöðu-
maður Kjarvalsstaða, að
verk Rodins væru tryggð
fyrir tvo og hálfan milljarð
íslenskra króna.
Rodin til íslands
Morgunblaðið/Þorkell
TVEGGJA og hálfs milljarðs króna verðmæti voru tekin upp úr kössum á Kjarvalsstöðum í gær. Hér
virða Gunnar Kvaran forstöðumaður og Kristín Guðnadóttir safnvörður fyrir sér eina styttuna.
Rodin er talinn einn merkasti
myndhöggvari allra tíma. Á sýn-
ingunni sem kemur frá Rodin-
safninu í París, verða 62 högg-
myndir og 23 ljósmyndir af lista-
manninum og umhverfi hans.
Þar á meðal eru sýnd mörg
heimsþekkt verk, líkt og Hliðið
að Víti, Hugsuðurinn, Kossinn,
Borgaramir frá Calais og
Balzac. Viðstaddur opnunina
verður Jacques Vilain, forstöðu-
maður Rodin-safnsins í París.
Að sögn Gunnars Kvaran er
þetta einn stærsti listviðburður-
inn á Kjarvalsstöðum fyrr og
síðar. „Það má segja að Picasso-
sýningin hér fyrir nokkrum
árum hafi verið af svipaðri
stærð,“ segir Gunnar, „en á
móti kemur að hún var ekki yfir-
litssýning."
Breyta þyrfti lögum
Þorsteinn Pálsson dómsmála-
ráðherra segir að breyta þyrfti lög-
um til að veita happdrættum SIBS
og DAS leyfi til peningahapp-
drættis því þau hafi aðeins leyfi
XHi\ vöruhappdrættis, en nú liggja
fyrir í ráðuneytinu umsóknir frá
SÍBS og DAS um rekstur spila-
kassa af sama tagi og HHÍ hefur
óskað eftir að setja upp. Ráðuneyt-
ið geti af þeim sökum ekki veitt
slíkt leyfi. Þorsteinn sagðist í gær-
dag ekki sjá ástæðu til að DAS
og SÍBS fengju aðild að þeim við-
ræðum sem þá stóðu yfir vegna
fyrrgreindra lagaforsendna.
Sjá bls. 23: „Neitar...“
St. Jósefssystur standa ekki í vegi fyrir sameiningu Landakots og Borgarspítala
Stefnt er að sameiningu
spítalanna um áramótin
ST. JÓSEFSSYSTUR standa ekki lengur í vegi fyrir sameiningu Landa-
kotsspítala og Borgarspítala og er nú stefnt að því að sameina spítal-
ana um næstú áramót. Segja systurnar að ekki sé hægt að reka Landa-
kot með óbreyttum hætti, eins og samningur um reksturinn kveður
á um, með þeim fjárveitingum sem spítalanum eru ætlaðar.
Félagsmálaráðherra segir að laga þurfi skólakerfið að nýjum atvinnuháttum
Huga þarf að lengra skóla-
ári og styttra stúdentsnámi
FÉLAGSMÁLARÁÐHERRA segir að huga verði að því hvernig
fslendingar geti lagað skólakerfið að breyttum atvinnuháttum þar
sem skólanemar geti ekki lengur treyst á vinnu 3-4 mánuði á sumri.
Alvarlega þurfi að huga að því að lengja skólaárið og stytta að
sama skapi tímann til stúdentsprófs.
t í ræðu við upphaf þings Verka-
mannasambands Islands í gær-
kvöldi sagði Jóhanna Sigurðardótt-
ir félagsmálaráðherra að menn
verði að horfast í augu við þá stað-
reynd að aukinn hagvöxtur og
framleiðsla, sem hugsanlega sé
framundan í hinum vestræna
heimi, skili sér ekki samsvarandi
í aukinni atvinnu eða atvinnuör-
yggi launafólks. Það helgist af
tæknivæðingu og tækniframförum
sem dragi úr þörf á mannafla.
Nýr hugsunarháttur
„Við þurfum því að stórefla alla
starfsmenntun í landinu og gefa
gaum að nýjum og breyttum vinnu-
aflsaðgerðum. Við þurfum líka að
huga að því hvernig við getum
stytt vinnutímann án þess að laun-
in skerðist samfara tæknivæðing-
unni. Við þurfum að huga að því
hvernig við getum aðlagað okkar
skólakerfi að breyttum atvinnu-
háttum, þar sem skólanemar hafa
getað treyst á vinnu 3-4 mánuði á
sumrin, en þar þurfum við_ að búa
okkur undir breytingar. Ég held
að við þurfum alvarlega að fara
að huga að því að lengja skólaárið
og þá að sama skapi stytta tímann
til stúdentsprófs. Állar þær breyt-
ingar sem við erum að sjá í efna-
hags- og atvinnuumhverfinu, ekki
bara hér á landi heldur annars
staðar, krefst nýs hugsunarháttar
í efnahags- og atvinnulífi okkar,“
sagði Jóhanna.
Tilkynnt var á Landakoti í gær,
að samkomulag hefði tekist milli
systra St. Jósefsreglu og yfirstjórnar
Sjálfseignarstofnunar St. Jósefsspít-
ala um að gera nauðsynlegar breyt-
ingar á skipulagsskrá Sjálfseignar-
stofnunarinnar, svo hraða megi fyrir-
hugaðri sameiningu Landakotsspít-
ala og Borgarspítala. Þannig geti
sameiningin tekið gildi um næstu
áramót ef samkomulag verður um
það milli stjórna beggja spítalanna.
Starfsfólk haldi vinnu
Á síðasta ári iýstu St. Jósefssystur
yfir andstöðu við sameiningu spítal-
anna. „í samningi okkar við Sjálfs-
eignarstofnunina stendur að spítalinn
verði áfram rekinn í sama formi og
við höfum rekið hann. Því vildum við
ekki breyta á síðasta ári. En nú hef-
ur verið svo lítil fjárveiting til Landa-
kots að ekki er hægt að halda áfram
með sama hætti. Þess vegna hefur
afstaða okkar breyst," sagði systir
Emanuelle, talsmaður St. Jósefs-
systra, við Morgunblaðið. Hún sagði
að þremur deildum hefði verið lokað
á spítalanum og starfsfólk þar ekki
fengið áframhaldandi vinnu. „Við
vonum að með þessu móti geti starfs-
fólkið á Landakoti haldið vinnunni,"
sagði systir Emanuelle.
Undanfarna mánuði hafa viðræður
farið fram milli samstarfsnefnda
stjórnar sjúkrastofnana Reykjavík-
urborgar og yfirstjórnar Sjálfseign-
arstofnunarinnar um leiðir til að taka
upp nána samvinnu Borgarspítala og
Landakotsspítala og stefna að sam-
einingu þeirra í árslok 1996 þegar
samningur systranna og Sjálfseign-
arstofnunarinnar rennur út.
„Við höfum.látið St. Jósefssystur
fyigjast mjög náið með viðræðunum
og eftir skoðanaskipti sem urðu milli
yfírstjómar og systranna á fundi í
lok ágústmánaðar um stefnumótun
tóku systurnar fyrri afstöðu sína til
endurmats,“ sagði Höskuldur Ólafs-
son formaður yfirstjómar Sjálfseign-
arstofnunar St. Jósefsspítala við
Morgunbiaðið.
Barnadeild flutt
Þann 20. ágúst var heilbrigðisráð-
herra send greinargerð um stöðu við-
ræðnanna og kom þar meðal annars
fram að hagkvæmt væri að flytja
barnadeild Landakots til Borgarspít-
ala og öldrunarlækningar Borg-
arspítala til Landakots.
Höskuldur sagði, að þrátt fyrir
lægri fjárveitingu stefndi í að legu-
dagar á Landakoti yrðu um 40 þús-
und á árinu á móti 43 þúsund í fyrra.
„Okkur sýnist þó að reksturinn ætli
að standast íjárveitingar á þessu
ári,“ sagði Höskuldur.