Morgunblaðið - 03.11.1993, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 03.11.1993, Blaðsíða 1
64 SIÐURB/C STOFNAÐ 1913 250. tbl. 81. árg. MIÐVIKUDAGUR 3. NOVEMBER1993 Prentsmiðja Morgunblaðsins Jeltsín vill þrískiptingu ríkisvaldsins Sakar ráðherra um ofríkishneigð Moskvu. Reuter. BORÍS Jeltsín Rússlandsforseti lýsti í gær fullum stuðningi sínum við þá stefnu að greina beri vandlega miili löggjafar- valdsins, þingsins og framkvæmdavaldsins eða ríkisstjórnar- innar í landinu. Er talið að hann vilji með þessu draga úr ótta þeirra sem telja forsetann vilja auka svo nyög völd embættisins að hann verði nær einvaldur. Skipting ríkisvaldsins í tvo áður- nefnda þætti auk dómsvaldsins er undirstaða lýðræðis- og réttarríkis á Vesturlöndum en á sér enga hefð í Rússlandi. Jeltsín sakaði nokkra ónafngreinda menn í stjórn sinni um ofríkishneigð og lýsti áhyggjum vegna þess að enginn hefði í reynd neitt eftirlit með framkvæmdavald- inu þar til kosið yrði í desember. Forsetinn hefur skipað nefnd sem á að sjá til þess að allir flokkar fái jafn mikinn aðgang að fjölmiðlum fyrir kosningarnar en stuðnings- menn hans hafa verið sakaðir um að misnota ríkisfjölmiðlana. Dagblaðið Pravda, hið dygga málgagn sovéska kommúnista- flokksins um áratuga skeið, kom aftur út í gær eftir að hafa verið bannað frá því í októberuppreisn- inni. „Segið öllum að við munum ekki skipta út sannfæringu okkar. Við erum trú bestu hefðum Prövdu, vettvangs vinstrimánna og stuðn- ingsmanna sósíalískra gilda“, sagði í blaðinu. Yfirvöld í Moskvu hafa bannað útifundi á byltingardaginn, 7. nóvember, af ótta við að til rysk- inga komi milli kommúnista og andstæðinga þeirra. ---------------------- Deilt um brott- flutning hersins Taba. Reuter. FULLTRÚAR Palestínumanna ákváðu í gær að fresta viðræðum við Israela um brottflutning ísra- elsks herliðs frá Gaza-svæðinu. Áður höfðu þeir hafnað tillögu ísraela og sagt hana vera fremur um tilfærslu herliðsins en ekki um algeran brottflutning eins og Palestínumenn krefjast. „Við vísum öllum tillögum á bug, snúist þær ekki um algeran brott- flutning ísraelsks herliðs frá Jeríkó og Gaza,“ sagði Nabil Shaath, aðal- samningamaður Palestínumanna. Palestínska samninganefndin var í gær á förum frá Taba í Egypta- landi þar sem fundurinn var haldinn og ætlaði að hitta Yasser Arafat, leiðtoga PLO, Frelsissamtaka Pal- estínumanna, í Túnis. Sagt er, að Arafat hafi reiðst mjög tillögum ísraela og óttist, að þeir ætli ekki að standa við samkomulagið um takmarkaða sjálfstjórn Palestínu- manna á Gaza og í Jeríkó. Beikon notað til lækninga Chicago. Reuter. LÆKNAR við Aðalsjúkrahús Massachusetts í Boston sögðu frá því í gær að þeir hefðu beitt gömlu læknisráði indíána til að lækna mann sem var með orma undir húðinni. Lokkuðu læknarnir ormana út með hráu beikoni. Maðurinn, sem er 45 ára, hafði verið á ferð í Costa Rica í Mið-Ameríku. Þegar hann sneri heim var hann með nokkur kýli víðs vegar um líkamann, sem hann taldi vera skordýra- bit. Kýlin stækkuðu sífellt og ollu manninum æ meiri sárs- auka. Þegar kýlin voru skoðuð nánar sást í litla hvíta orma í þeim miðjum. Læknar í Boston kynntu sér hvaða aðferðum heimamenn beita til að ná út ormunum og komust að því að þeir bera á sér hrátt kjöt eða svínafitu í sólarhring til að lokka ormana út. Sneiðar af beikoni voru, því settar yfir öll kýlin og innan þriggja stunda höfðu ormarnir flutt sig yfir í beikonið, sem var tekið af sjúklingnum án nokk- urra erfiðleika. Leitað huggunar Reuter ÖRVÆNTINGARFULL bosnisk kona leitar huggunar eftir að hafa verið nauðgað af króatiskum her- mönnum. Króatar hafa hrakið um 150 múslima frá heimilum sinum og hafa þeir leitað skjóls hjá sænsk- um friðargæsluliðum í borginni Vares. Króatar og Serbar leita lausnar á deilunni um Krajina-hérað Leynilegar fríðar- viðræður í Noregi Tvísýnar kosningar í New York DAVID Dinkins, borgarstjóri í New York, kemur út úr kjörklefa í gær en þá fóru fram borgarstjórnarkosningar í fjölmörgum borgum í Banda- ríkjunum. Einnig voru fylkisstjórakosningar í New Jersey og Virginíu. Mjótt er á mununum milli demókratans Dinkins og keppinautar hans, repúblikanans Rudolphs Giulianis. __ Genf, Ósló, Zagreb. Reuter. ÓNEFNDIR embættismenn í Genf fullyrtu í gær að leynileg- ar viðræður Króata og Serba um Krajina-hérað færu fram í Noregi og að stefnt væri að því að Slobodan Milosevic, leið- togi Bosníu-Serba, og Franjo Tudjman, forseti Króatíu, hitt- ust í Ósló síðar í vikunni. í gær bauð Tudjman Serbum sjálf- stjórn í Króatíu og krafðist þess jafnframt að viðræður um frið í Bosníu yrðu teknar að nýju upp í Genf. Fulltrúi norska utanríkisráðu- neytisins sagðist ekki geta tjáð sig um fullyrðingar þess efnis að friðar- viðræður færu fram í Noregi. Menn á vegum ráðuneytisins hefðu ekki tekið þátt í þeim. Heimiidarmenn fyrir fréttinni segja að Knut Vollebæk, fulltrúi Stoltenbergs, og þýskur sendifulltrúi, Geert Ahrens, stýri viðræðunum. Eftir að Norðmenn hýstu leyni- legar viðræður ísraela og Frelsis- samtaka Palestínumanna hafa streymt óskir til þeirra um aðstoð í friðarviðræðum víðs vegar um heim, meðal annars frá Súdan og Gvatemala. Franjo Tudjman sagði í gær Kró- ata vera reiðubúna að leggja fram tillögur um sjálfstjórn Serba í Kraj- ina-héraði í Króatíu innan 15 daga. Serbar hafa hingað til neitað að taka þátt í viðræðum um sjálfstjórn Krajina og krefjast algers aðskiln- aðar við Króatíu og stofnun lýðveld- is. Ásökuðu þeir Tudjman um að hafa grafið undan viðræðunum í Noregi með því að kreijast þess að héraðið verði áfram hluti af Króatíu. Reuter Vændishús fyrir friðargæsluliða? Sameinuðu þjóðirnar (SÞ) munu á næstunni rannsaka sannleiksgildi fullyrðinga um að friðargæsluliðar hafi á síðasta ári sótt vændishús sem Serbar höfðu neytt konur frá Bosníu og Króatíu til að starfa í. Frétt þessa efnis birtist í bandarísku dagblaði á mánudag. -------♦ ♦ ♦ Mikið hvass- viðri glæðir skógarelda Los Angeles. Reuter. MIKIÐ hvassvirði blés nýju lífi í skógareldana sem geisað hafa í Suður-Kaliforníu í viku. Tæp- ur tugur húsa brann og urðu nokkur þúsund manns að yfir- gefa heimili sín vegna eldanna. Slökkviliðsmenn töldu að þeim hefði tekist að slökkva skógareld- ana en í gærmorgun hvessti veru- lega og tóku þeir sig upp að nýju norð-vestur af Los Angeles, nærri Malibu og Woodland Hills. Bárust glæður með vindinum og kveiktu í skraufþurrum gróðri.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.