Morgunblaðið - 03.11.1993, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 03.11.1993, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 1993 Einar Guðgeirs- son — Minning bærast í brjóstum okkar á þessum vegamótum, en þar segir: Hin langa þraut er liðin, nú loksins hlaustu friðinn, og allt er orðið rótt, nú sæll er sigur unninn og sólin björt upp runnin á bak við dimma dauðans nótt. Fæddur 12. júní 1920 Dáinn 27. október 1993 Nú eru þau horfin yfír í móðuna miklu sem á sínum tíma stofnuðu Blindrafélagið. Þeirra starf var bæði fómfúst og gjöfult. Einar sem við kveðjum nú var einn þeirra og sá sem síðastur kveður þennan heim. Þetta fólk ásamt þeim sem síðar bættust í hópinn vann af stórhug fyrir bætt- um hag blindra og sjónskertra. Þau brutu blað í sögu blindra á íslandi, unnu sleitulaust að eigin málefnum og létu hvergi deigan síga og má undrun sæta hve vel gekk en það var ekki baráttulaust. Þau hafa reist sér minnisvarða sem stendur um ókomin ár. Það er ótrúlegt hve bjart- sýnin var mikil. Þau réðust í að byggja hús, eignuðust þar sinn sama- stað og aðsetur fyrir starfsemi sína og atvinnutækifæri með stofnun Blindravinnustofunnar. Þetta var sem ævintýri. Án góðra vina og þátt- töku landsmanna allra hefði þetta ekki tekist. Margir lögðu hönd á plóginn, en framtakið var félags- mannanna sjálfra. Einar var dagfars- prúður maður og lét lítið yfir sér. Hann vann við burstagerð og oftast tók hann að sér ýmsar sérpantanir á burstum sem voru þá handídregnir og fórst vel úr hendi. Eftir að Blindravinnustofan vélvæddist vann hann sem fastur starfsmaður á hin- um ýmsu vélum á meðan heilsan leyfði. Hann er farinn að þynnast hópur- inn sem fyrst fluttist inn í Hamra- hlíð 17. En lífið heldur áfram, nýir félagsmenn fylla hópinn, ótrúlegar framfarir og nýjungar líta dagsins Ijós og tækifærin sem til boða standa eru fleiri en á árdögum þeirra sem stofnuðu félag til að ýta sínum eigin málefnum úr vör. Við sem enn störf- um í Hamrahlíð 17 og þekktum Ein- ar þökkum honum góð kynni og hans framlag til málefna blindra og sjónskertra á íslandi. F.h. starfsmanna og vina í Hamra- hlíð 17, Dóra. Þegar einhver þeirra mörgu vina minna, sem ég hef kynnst í Blindra- félaginu, gengur yfir móðuna miklu, hugsa ég ávallt til þeirrar stundar, þegar sumir þeirra gengu fram fyrir skjöldu og stofnuðu Blindrafélagið fyrir rúmri hálfri öld. Það hefur þurft mikinn kjark til slíkra hluta og um leið bauð þetta fólk almenningsálit- inu birginn. Blint fólk hafði til þess tíma verið nokkuð afskipt og ákveðin neikvæð ímynd var stundum dregin upp af því í bókmenntum. Sem betur fer breyttust viðhorfin og forsjár- hyggjan vék að mestu, en er því miður enn við lýði, t.d. hjá einsaka ráðamanni þessa lands. Þótt mikill sigur hafí unnist við stofnun Blindra- félagsins gerðu stofnendur þess sér ljóst að stöðugt þyrfti að vera vak- andi yfir hagsmunum þeirra, sem standa að félaginu. Einar Guðgeirsson, sem lést í síð- ustu viku var einn stofnenda Blindra- félagsins. Hann er sá síðasti úr þeirra hÓDÍ, sem kveður þennan heim. Þeg- Erfidrykkjur Glæsileg kaffi- hlaðborð fcdlegir sídir og mjög gpð þjónustít Upplýsingar ísínia22322 FLUGUEIDIR HlTEL LOFTLEIIIR ar Einar var drengur á Hellissandi, eitthvað á 10. ári, varð hann fyrir því að reka hurðarloku upp I annað augað á sér. Honum varð ekki kom- ið til augnlæknis fyrr en þremur mánuðum seinna og þá var augað orðið ónýtt og skemmd komin í hitt. Hann sá dálítið á unglingsárum, en svo þvarr sjónin alveg. Það má því nærri geta hvílíkt afall þetta hefur verið fyrir hann. Á þeirri tíð voru samgöngur ekki eins og nú og ekki var brugðist eins fljótt við hlutunum eins og hægt er að gera með tækni og hraða nútímans. Þegar Einar var 13 ára gamall lá leið hans í Blindra- skólann í Reykjavík, en Blindravina- félag íslands hafði skömmu áður stofnað hann. Einar undi þar í tvö ár og hóf síðan störf hjá Blindraiðn. Þegar Blindravinnustofan hóf rekstur árið 1941, fluttist Einar þangað og vann þar ævistarf sitt, allt fram til ársins 1989, að heilsan brast skyndilega. Einar gekk aldrei heill til skógar. Hann ræddi lítið um veikindi sín, en örlögin reyndust hon- um þungbær. Hann tranaði sér ekki fram, var hógvær og mikill einfari. Hefði öll sú aðstoð, og hvatning, sem nú er hægt að fá, verið fyrir hendi þegar Einar var unglingur, er líklegt að örlagaþræðir hans hefðu spunnist á annan hátt. Einar sat í stjóm Blindravinnu- stofunnar um árabil og reyndist oft tillögugóður þar. Þegar ákveðið var að taka í notkun tölvustýrðar vélar á Blindravinnustofunni, sagðist Ein- ar ekkert geta haft á móti því, svona væri þróunin. Hann kynnti sér hlut- ina og lagði á þá eigið mat. Þegar Blindrafélagið hélt upp á hálfrar aldar afmæli sitt árið 1989, var Einar Guðgeirsson einn þeirra, sem gerðir voru að heiðursfélögum. Hann var þá kominn á Hrafnistu. Nútíðin var að mestu horfin, en hann spurði mikið um gamla vini sína, sem hann bar mikinn hlýhug til. Sumir voru á fallnir frá, en aðrir lifðu. Hann var eins og margir, sem fá þennan óminnissjúkdóm, óöruggur og kvíðinn. Blindrafélagið á mönnum eins og Einari margt gott að þakka. Hann lagði krafta síha alla í þágu félagsins og málefna þess. Við, sem munum Einar, minnumst hans með þakklæti og virðingu. Fyrir hönd Blindrafélagsins, sam- taka blindra og sjónskertra á íslandi. Gísli Helgason. Vegferð móðurbróður míns í Iif- enda lífí er lokið og er líklegt að hann hafí verið sæll með að vistar- skiptin drógust ekki lengur. En Ein- ar var haldinn erfiðum sjúkdóm síð- ustu þijú árin er gerði honum ókleift að fylgjast með umhverfí sínu. Fyrir orð móður minnar, Katrínar Guðgeirsdóttur, eru þessi minning- arorð um kæran bróður færð í letur. Nokkrar Ijóðlínur í sálmi eftir Valdi- mar Briem lýsa vel tilfinningum er Fyrst sigur sá er fenginn, fyrst sorgar þraut er gengin, hvað getur grætt oss þá? Oss þykir þungt að skilja, en það er Guðs að vilja, og gott er allt, sem Guði er frá. Einar fæddist í húsinu Vindheim- um á Hellissandi 12. júní 1920, fimmta bam þeirra hjóna Guðgeirs Ögmundssonar húsasmiðs og sjó- manns og Svövu Einarsdóttur. En þau eignuðust átta börn. Elst var Katrín Sigurveig en hún dó í bemsku úr berklaveiki, þá Aðal- heiður Olga er giftist Sigmundi Ey- vindssyni sjómanni í Reykjavík (lát- inn), Guðmundur hárskeri (látinn) eftirlifandi kona hans er Elín Einars- dóttir, María giftist Tjörva Kristjáns- syni sjómanni í Keflavík (látinn), þá Einar, Árni sem er húsasmiður hans kona er Olga Guðmundsdóttir, Katr- ín Sigurveig (eftir látinni systur sinni) giftist Árna Bergmann Þórð- arsyni (látinn) var tvíkvæntur, fýrri kona hans var Ólöf Kristinsen, en eftirlifandi kona hans er Agnes Jó- hannesdóttir. Ekki verður sagt að lífsbaráttan hafí farið mjúkum höndum um þessa ijölskyldu í miðri heimskreppunni á Sandi. Atvinnan stopul, sjómennskan og fiskvinnan var þrældómur, mannskaðar daglegt brauð í rysjótt- um vetrarveðrum. Osjaldan stóðu mæðumar á bökkunum, með bömin í eftirdragi og biðu eftir mönnum í land. Margir fórust í lendingunni, fjölskyldunni aðsjáandi. Konumar þræluðu í fískinum liðlangan daginn, síðan sóttur mór til að kynda upp kotin, matreiða í börnin og þvo þvotta. Guðgeir var í sjómennsku á vertíðum og við smíðar í annan tíma um allar trissur. Svava vann í fískin- um ásamt elstu börnum sínum er þau uxu grasi eða þaú voru send í vinnu eða í vist. Á meðan urðu þau yngri að bjarga sér. Börnin vöndust vinnu frá fyrstu tíð. Kröpp kjörin fóru illa með fólkið. Fjögur bamanna fengu berkla, eitt dó eftir fjögurra ára.legu á Landakoti. Móðirin dó ung frá ungum börnum sínum farin að kröft- um. Guðgeir var sonur Ögmundar Jó- hannessonar í Görðum á Hellissandi, nefndur skáld og handlæknir, og konu hans Maríu Árnadóttur. Þau voru ættuð af norðanverðu Snæfells- nesi og úr eyjunum. Svava var elsta bam Einars Þorkelssonar þingskrif- ara Eyjólfssonar prófasts á Staðar- stað, sem var barnabarn Margrétar Bogadóttur (systir Benedikts Boga- sonar ættföður Staðarfellsættarinn- ar) og manns hennar Jóns Þorláks- sonar prests og skálds er síðar kenndi sig við Bægisá. Eiginkona Þorkels var Ragnheiður Pálsdóttir af „Síðu- prestaætt". Einar varð fyrir slysi níu ára er leiddi til þess að hann missti sjónina alveg 12 ára gamall. Þetta slys var sá örlagavaldur í lífí Einars að hann varð skyldilega háður öðram, einkum Jens Hjaltalín Þor- valdsson — Minning Fæddur 4. febrúar 1931 Dáinn 20. október 1993 Elsku frændi minn hann Jenni er dáinn. Það kom eins og reiðarslag þegar dóttir hans hringdi í mig mið- vikudaginn 20. október síðastliðinn og sagði að pabbi sinn væri dáinn. Ég átti erfitt með að trúa því, því að kvöldið áður hafði ég farið að heimsækja hann á St. Jósefspítala og þá var hann mjög hress að vanda og var að tala um það við Hrefnu konu sína og Steinu dóttur sína að hann ætlaði jafnvel að fara út í göngutúr daginn eftir. En það fór á annan veg. Allar mínar minningar um Jenna frænda eru góðar og yndislegar og alltaf þegar við hittumst þá var glettnin ekki langt undan. Og ég ásamt öllum mínum góðu ættingjum áttum góðar stundir á ættarmóti í Stykkishólmi í ágústmánuði síðast- liðnum. En sérstaklega vil ég þakka Jenna frænda fyrir hvað hann var góður við móður mína og föður og sérstak- lega föður minn sem er að mestu bundinn við hjólastól. Og minning- arnar um góðan frænda mun ég ávallt geyma í hjarta mínu. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem.) Elsku Hrefna, börn, tengdabörn, afabörn, mamma mín og Ragna frænka. Mikill er ykkar harmur, en góðar minningar gleymast ei. Linda frænka. systkinum sínum. Ámi bróðir hans fylgdi honum allar ferðir í æsku. Tónlistin var Einari mikil huggun, eignaðist hann bæði dragspil og mandólin er hann lék á. Árið 1934 er hann 14 ára farinn að heiman og kominn á blindraskóla sem var starfræktur á Elliheimilinu Grund. Þar bjó hann uns hann flutt- ist í Ingólfsstræti og síðar á Grand- arstíg 11 þar sem vinnustofa Blindra- félagsins var til húsa. Einar var einn af stofnfélögum Blindrafélagsins og var í stjóm þess um árabil. Hann var helsti hvatamað- ur að byggingu félagsins í Hamra- hlíð og starfaði ötullega að uppbygg- ingu félagsins þar, meðan kraftar og heilsa leyfðu. Er fjölskylda mín bjó í næsta húsi við blindraheimilið við Grandarstíg og Einar naut daglegs fæðis og þjón- ustu heima. Var hann einn af heimil- isfólkinu. Segja má, að ég hafi alist upp með Einari sem heimilismanni. Ég var sem grár köttur á vinnustof- unni og hverjum manni kunnugur. Þótti mér jafnan sérkennilegt að sjá Einar vinna við hættulegar trésmíða- vélar í burstagerðinni sem sjáandi væri. Félagið hefur í ríkum mæli notið hæfíleika Einars, s.s. stjórn- semi hans, færni í handverki og ekki síst listfengi hans. Einar var fastur fyrir í skoðunum og skapmaður er nýttist honum í lífsbaráttunni og í framgangi félagsins. Á þessum áram uppgötvaði ég hversu sjálfstæður hann var, og óháður öðram þrátt fyrir fötlun sína. Hún hvarf. Það gustaði af honum á vinnustaðnum á þessum árum. Það hefur eflaust ver- ið erfítt að reka fyrirtæki þá sem nú. Á yngri árum mínum fóram við Einar í marga leiðangra, Einar þurfti að hitta fólk og var ég hafður með til fylgdar. Við þessu hlutverki tóku síðar systkini mín yngri. Einar var mikið á ferðinni, sótti systkini sín og vini heim reglulega og tók virkan þátt í kjörum þeirra með því að setja sig inn í alla hluti. Hann var gleðskaparmaður í góðra vina hópi og glöggur á skemmtilega hluti. Hann hafði jafnan skoðanir á þjóðfélagsmálum þó hann væri e.t.v. full íhaldssamur fyrir minn smekk. Hann var réttandi hjálparhönd þar sem hann kom því við. Hann naut mikilla vinsælda því hann þekkti fjölda fólks og systkini hans áttu auðvelt með að verða honum að liði þannig að það yrði enginn var við það. Það gekk svo eðlilega fyrir sig. Þau systkin létu sér öll sérlega annt um Einar, enda hafði hann af svo miklu að miðla. Það var mikil og góð guðsgjöf að fá að njóta samvista við Einar þessi ár, kynnast skapfestu hans og sterkri sjálfsímynd ásamt óbilandi trú á, að þeir félagarnir í Blindrafélaginu gætu brotist áfram. Fólkið á vinnu-. stofunni var samvalinn og sterkur hópur. Þangað komu rithöfundar og skáld og lásu úr verkum sínum bæði birtum og óbirtum og fram fóru rök- ræður um verkin. Þessi skóli sem ég þarna naut, hefur reynst mér geysi- lega mikilvægur og hefur haft áhrif á viðhorf mín um alla ævi síðan. Kristbjörn Árnason, Katrín S. Guðgeirsdóttir. Eftir fjögurra ára sjúkdómslegu er Einar Guðgeirsson látinn. Hann fæddist 12. júní 1920 á Hellissandi, sonur Guðgeirs Ögmundssonar og Svövu Einarsdóttur. Þar ólst hann upp meðal sjö systkina: Katrín (1911-1925), Aðalheiður (1913), Guðmundur (1915-1987), ' María (1918), Árni (1923), Katrín (1926) og Hrafnkell (1928-1977). Síðla hausts árið 1929 varð Einar fyrir því slysi að reka annað augað upp í klinku eða hurðaijárn. Til að byija með voru honum gefnir augn- dropar við ákverkanum. Vegna sam- gönguörðugleika dróst fram yfír ára- mót að fara með hann til augnlækn- is sem var á St. Jósefsspítala í Hafn- arfirði. Snemma vors var augað síðan tekið. Fór hann nú aftur vestur á Hellissand en sá þá aðeins birtuskil. Hitt augað var þá einnig orðið sýkt. Þessi atburður og atburðarás réðu lífshlaupi hans. Næstu þijú árin var hann fyrir vestan í eins konar bið- stöðu. Ýmislegt var þá að eiga sér stað í málefnum blindra og hlaut líf hans að fléttast inn í hagsmunabar- áttu þeirra. Stofnun Blindravinafé- lagsins hinn 24. janúar 1932 var fyrsti áfanginn í þessari baráttu. Éitt af forgangsverkefnum félagsins var að koma af stað kennsiu fyrir blinda, bæði í bóklegum og verkleg- um greinum. Sjötta október 1933 hóf Blindraskólinn starfsemi sína á Elliheimilinu Grand. Fimm nemendur vora í fyrsta árganginum. og var Einar svo lánsamur að vera einn þeirra. Annað verkefni félagsins var að starfrækja vinnustofu fyrir blinda og hóf Blindraiðn Blindravinafélags- ins starfsemi sína -á Elliheimilinu Grand einnig haustið 1933. Eftir tvo vetur í Blindraskólanum hóf Einar störf við burstagerð hjá Blindraiðn, fyrst á Laufásvegi 19 og síðan í Ing- ólfsstræti 16, þar sem hann bjó um árabil. Eins og nafnið segir til um var Blindravinafélagið ekki félag blindra heldur félag „filantrópa", sem gjarn- an vildu hafa forsjá fyrir blindum. Blindir vora ekki alveg sáttir við þetta hlutskipti, einkum þegar forsjá- in brast t.d. í öflun verkefna og hrá- efna. Hinn 19. ágúst 1939 leiddi þessi óánægja blindra til stofnunar Blindrafélagsins og var Einar einn af 13 stofnfélögum. Sat hann um árabil í varastjórn félagsins. Þessi klofningur náði einnig til Blindraiðn- ar en haustið 1941 var Blindravinnu- stofan stofnuð. Hóf hún skömmu síð- ar starfsemi sína að Laugavegi 97 og vann Einar þar frá upphafí og alveg þangað til hann tét af störfum árið 1989. Einar var til að byija með virkur í starfí hins nýja félags og þá einkum í húsnæðismálum þess. Hinn 28. desember 1942 lagði hann t.d. til að kosin yrði nefnd til að koma með tillögu að lausn húsnæðisvanda fé- lagsins, þar á meðal að haft yrði samband við Reykjavíkurborg til að útvega hentuga lóð. Þó að þetta framkvæði hafi ekki leitt til Hamra- hlíðarframtaksins var einu ári síðar ákveðið að festa kaup á húsinu núm- er 11 við Grundarstíg. Þangað fluttu síðan félagsmenn bæði búsetu og starfsemi sína smám saman, og komu sér fljótlega upp matsölu. A Grandarstígnum bjó Einar frá árs- byijun 1946 til 1961 en við vígslu blindraheimilisins í Hamrahlíð 17 fluttist hann þangað. Bjó hann þar þangað til hann veiktist árið 1989. Sama ár var Einar gerður að heiðurs- félaga Blindrafélagsins. Þessi upptalning segir harla lítið um persónuleika Einars. Undirritað- ur kynntist honum fyrst og fremst sem systkinabarn hans og þá í gagn- kvæmum heimsóknum. Þegar móðir mín átti leið til Reykjavíkur var ávallt komið við og stoppað á Grund- arstígnum. Voru slíkar heimsóknir vinsælar enda var Einar mjög bam- góður. í áratugi var hann einnig fast- ur gestur á heimili foreldra minna um páska og jól - og því mikilvægur hluti af hátíðahaldi okkar. Stundum hafði hann hljóðfæri með sér og feng- um við þá að leika á þau. Hann var einnig trúhneigður og var sennilega hlustað óvenjumikið á messur' þess vegna. Tengslin við Einar mynduðust þó einkum á okkar fjölmörgu göngu- ferðum um helstu götur Keflavíkur, sem þá voru ekki bara, mikið til án bílaumferðar heldur einnig án bund- ins slitlags. Það var því mikið vanda- verk að velja leið á milli hola og polla. Minnisstæðast við þessar ferð- ir var þó þögnin sem fylgdi þeim. Það heyrði til undantekninga að við spjölluðum saman. En það traflaði

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.