Morgunblaðið - 03.11.1993, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 03.11.1993, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 1993 Nýjar bækur Kvennagaldur eftir Björgúlf Ólafsson KVENNAGALDUR heitir nýút- komin bók eftir Björgúlf Ólafs- son. Höfundur þessarar Reykja- víkursögu er 31 árs að aldri og hefur áður sent frá sér tvær skáldsögur, unglingabókina Hversdagsskó og skýjaborgir 1989 og Síðustu sakamálasög- una 1990. í fréttatilkynningu segir m.a.: „Kvennagaldur er skemmtisaga. Hún segir frá nokkrum skólasystk- inum úr menntaskóla, fólki á besta aldri og flestum á uppleið í borgar- lífinu — eða svo virðist við fyrstu sýn. Aðalpersónan Kjartan er þjóð- kunnur, einhleypur og umtalaður, hefur komið víða við í fjölmiðla- heiminum og auk þess mikið kvennagull og - nýtur kvenhylli sinnar í ríkum mæli. í samkvæmi hjá tveimur bekkj- arsystkinanna tekur atburðarásin í ástamálum Kjartans þó óvænta stefnu svo að bæði hann og aðrir ruglast í ríminu. Og niðurstaðan verður óvænt svo að ekki sé meira sagt. Bekkjarsystkini Kjartans koma Björgúlfur Ólafsson hér einnig mikið við sögu, bráðlif- andi persónur, dæmigert nútíma- fólk. Bókin er 215 bls. og er prent- uð hjá Steinholti. Bókin kostar 2.874 kr. Snæfellsnes 10153 Skemmtilega staðsett jörð í Helgafellssveit. Ágætis byggingar. Jörðin á land að sjó. Sauðfjárbúskapur. Full- virðisréttur 280 ærgildi. Grásleppu- og silungsveiði. Ágætis jörð til búskapar eða fyrir félagasamtök. Glæsi- legt útsýni. Jörðinni tilheyra eyjar. f^^FASTEIGNA M MIÐSTÖÐIN 62 20 30 SKIPHOLTI50B - 105 REYKJAVÍK SÍMI 622030 - SÍMBRÉF 622290 FASTGGNASAIA VITASTÍG I3 Ránargata. 2ja herb. góö íb. á 2. hæö 56 fm. Fallegar innr. GóÖ lán áhv. frá byggj. 2,9 millj. Verð 4,6 millj. Freyjugata. 2ja herb. íb. á jarðhæð 43 fm í tvíbhúsi. Góð lán áhv. frá byggsj. 2,2 millj. Hraunbær. 2ja herb. íb. ca 55 fm á 3. hæð. Áhv. húsnl. 3,5 millj. Suðursv. Verfi 5,6 millj. Hverafold. 2ja herb. falleg íb. á jarðhæð 56 fm auk stæðis í bílgeymslu 26 fm. Fallegar innr. Gðð lán áhv. Verð 5,9 millj. Grettisgata. 3ja herb. fal- leg íb. á 1. hæð 67 fm. Húsið er mikiö endurn. Góð lán áhv. Verð 5,8 millj. Stóragerði. Falleg 3ja herb. íb. 83 fm á 4. hæð. Suöur- svalir. Fallegt útsýni. Hlíðarhjalli. 3ja herb. fal- leg íb. á 3. hæö 97 fm. Stórar svalir. Parket. Fallegar innr. Áhv. húsnlán 4,9 millj. Kringlan. 3ja herb. glæsil. íb. á 2. hæð í lágu fjölbhúsi. Mögul. á 10 fm garðstofu. 26 fm bílskýli. Stórar suöursv. Parket. Sérinng. Verð 8,9 millj. Hraunbær. 3ja herb. falleg íb. 85 fm á 2. hæð. Suöursv. Falleg sameign. V. 6,7-6,8 m. Álfheimar. 4ra herb. falleg íb. á 3. hæö 100 fm mikið end- urn. Stórar suðursv. Áhv. byggsj. 2,4 millj. Lyngmóar. 4ra herb. falleg íb. 92 fm auk bílsk. Parket. Fal- legt útsýni. Áhv. húsbr. 4,9 millj. Ákv. sala. Verö 8,1 millj. Kleppsvegur. 4ra herb. íb. á 1. hæö 94 fm. Góöar suö- ursv. Makaskipti mögul. á stærri eign í sama hverfi. Spóahólar. 4ra herb. íb. 95 fm á 3. hæö í þriggja hæöa húsi. Þvherb. í íb. Verð 7,5 millj. Blöndubakki. 4ra herb. íb. á 3. hæö 116 fm auk herb. í kj. Glæsil. útsýni. Góö sameign. Boöagrandi. 4ra herb. fal- leg íb. 92 fm auk bílskýlis. Lyfta. Húsvörður. Gervihnsjónvarp. Fráb. útsýni. Gufubaö í sameign. Áhv. húsbréf 4,7 millj. Hraunbær. 5 herb. falleg endaíb. 138 fm á 3. hæð. Áhv. húsbr. 3,9 millj. Parket. Suöursv. Þvhús í íb. Laus. Frostafold. 6 herb. íb. á 3. hæö, 138 fm í lyftuhúsi. Tvenn- ar svalir. Bílskýli. Góö lán áhv. Verð 11,5 millj. Makask. mögul. á sérbýli í sama hverfi. FÉLAG Ifasteignasala Gunnar Gunnarsson, lögg. fasteignasali, hs. 77410. Nýjar bækur ■ Skálholtsútgáfan, útgáfu- félag þjóðkirkjunnar, hefur gefið út bókina „Táknmál trúarinnar" — leiðsögn um tákn og myndmál kristinnar trúar og tilbeiðslu. í bókinni segir höfundur, sr. Karl Sigurbjörnsson, meðal annars: „Allt okkar líf er umlukið táknum. Allt frá skírninni og til þess er þijár rekur moldar falla á kistulokið er trú okkar tjáð með allskyns tákn- rænu atferli. Það er eðlilegur og sjálfsagður hluti af tilveru okkar og samskiptum, rammi sem settur er um líf okkar og trú. Tákn mæta okkur hvar sem er. Þau blasa við augum og kalia eftir athygli okkar, bera boðskap, leið- beina, áminna, upplýsa. Ein mynd, eitt tákn ber boð og segir meira en mörg orð. Tákn er líka eitthvað sem við höfum um hönd til að gæða orð okkar lífi og áherslu, það er atferli sem við beitum þar sem orða er vant, eða engra orða er þörf. Oft er hið ósagða, hið orð- lausa mál blæbrigðaríkara og skýr- ara en ótal orð.“ Þessari bók er ætlað að vera handbók og leiðarlýsing. Hún er kærkomin hjálp bæði til að auka næmi og innsýn í leyndardóma fagnaðarerindisins um Jesú Krist og til þess að auka skilning á þann boðskap sem fluttur er í helgihaldi og listum kirkjunnar að fornu og nýju. Bókin er 168 bls. að stærð. Teikningar í bókinni er eftir höfund bókarinnar, sr. Karl Sig- urbjörnsson, kápuhönnun var í höndum Ernst Backman auglýs- ingastofu, ljósmyndir i bókinni eru teknar af Ivari Brynjólfs- syni, Jóhönnu Björnsdóttur og Snorra Snorrasyni. Umbrot var í höndum Skerplu en prentun Steindórsprent - Gutenberg. Bókin kostar 2.480 kr. ■ Út er komin hjá Félagsvís- indastofnun og Sagnfræðistofn- un Háskóla íslands bókin Islensk þjóðfélagsþróun 1880-1990. Rit- gerðir í ritstjórn Guðmundar Hálfdánarsonar og Svans Krist- jánssonar, kennara við Háskóla Islands. í fréttatilkynningu segir m.a.: „í bókinni íjalla átta höfundar um ýmsa þætti í þróun íslensks þjóðfé- lags á tímabilinu frá síðari hluta 19. aldar fram til nútímans. Þar birtast yfírlitsgreinar eftir ýmsa sérfræðinga á sviði sagnfræði og félagsvísinda byggðar á nýjustu rannsóknum á uppruna og þróun nútímasamfélags á íslandi. Saman mynda greinarnar aðgengilegt yfir- lit yfír þá fræðilegu endurskoðum sem átt hefur sér stað á íslensku þjóðfélagi á síðustu árum og geta því nýst öllum þeim sem vilja taka rökstudda afstöðu til samfélags- mála nútímans. íslensk þjóðfélagsþróun 1880- 1990 skiptist í níu kafla. Guðmund- ur Hálfdánarson fjallar um þjóðfé- lagsþróun á 19. öld og setur þar fram endurmat á sjálfstæðisbaráttu 19. aldar, Gísli Ágúst Gunnlaugsson fjallar um fólksfjölda og byggðaþró- un 1880-1990, Magnús S. Magnús- son um efnahagsþróun á íslandi 1880-1990, Jón Gunnar Gijetars- son um upphaf og þróun stéttskipts samfélags á íslandi, Sigurður G. Magnússon um alþýðumenningu á íslandi 1850-1940, Gunnar Helgi Kristinsson um valdakerfið fram til Viðreisnar, Svanur Kristjánsson um stjómmálaflokka, ríkisvald og sam- félag 1959-1990 og að lokum á Stefán Ólafsson tvær greinar í bók- inni, þar sem hann gerir annars vegar grein fyrir almennum kenn- ingum um félagsgerð nútímaþjóðfé- laga og fjallar hins vegar um þróum velferðarríkisins á íslandi í saman- burði við önnur vestræn riiri. Dreifingu og sölu bókarinnar annast Félagsvísindastofnun og Sagnfræðistofnun Háskóla Is- lands. Bókin er til sölu á almenn- um markaði í takmörkuðu upp- lagi. Bókin kostar 3.640 kr. ■ Fjallganga eftir Tómas Guðmundsson er komin út hjá Almenna bókafélaginu. í fréttatilkynningu segir: „Tómas Guðmundsson þarf ekki að kynna landsmönnum, bækur hans og Ijóð hafa unnið sér stað í hjörtum lands- manna. Ljóðið Fjallganga eftir Tómas hefur sennilega skemmt fleiri íslendingum sl. 60 ár en nokk- urt annað íslenskt kvæði. Og hér skipta hvorki aldur né kynslóðabil máli, barnið hefur jafngaman af kvæðinu og hinn roskni, sá sem fæddur er eftir miðja þessa öld bros- ir við lestur þess ekki síður en kyn- slóð skáldsins gerði. Ljóðið er með öðrum orðum óháð tíma og rúmi, fjallar af listrænum léttleika um fastan fylgifisk mannlegs eðlis. Ennfremur segir: í bókinni Fjall- ganga hefur myndlistarkonan Erla Sigurðardóttir gert listrænar mynd- ir af sinni alkunnu snilld. Þær sýna okkur, auk hins stórbrotna lands- lags, unga manninn sem leggur á fjallið andstuttur af ákafa, en hið hrikalega umhverfí skelfir hann, kemst þó upp á tindinn og síðan klakklaust heim en Iiggur í martröð „margar næstu nætur“. Hælist svo af afrekum sínum löngu seinna. Fjallganga er prentuð hjá Odda og er 34 síður. Hún kostar 995 krónur. ■ Út er komin hjá Almenna bókafélaginu skáldsagan Banvæn kvöð eftir Friedrich Diirrenmatt. í fréttatilkynningu segir: „Efni skáldsögunnar er sakamál. Barns- morð er framið — kynferðisafbrot að því er virðist. í upphafi rann- sóknar málsins gerir lögreglan skyssu sem dregur dilk á eftir sér. Málið lendir fyrir tilviljun í höndum færasta lögreglumannsins á þessu svæði, Matthai að nafni og hann byijar rannsókn sína af sinni al- kunnu snilld. En fátt er hörmulegra en mistök þess, sem aðrir treysta og þá ekki síst fyrir þann sem þau gerir. Sá sem tekur starf sitt alvarlega og finnur fyrir ábyrgð þess, gefst ekki upp þótt það kosti fórnir. Og upp koma svik um síðir — hér ekki síður en endranær — en of seint. Og grátlegt er til þess að vita hversu nálægur Matthai var markinu. Höfundur bókarinnar, Friedrich Dúrrenmatt, er einn þekktasti höf- undur Svisslendinga á þessari öld, nú nýlátinn. Á íslandi hafa áður komið út tvær af skáldsögum hans og hafa þijú af leikritum hans ver- ið sýnd hér við góðar undirtektir. Banvæn kvöð er prentuð hjá Prentbæ og er í íslenskri þýðingu Valgerðar Bragadóttur. Bókin er 167 síður og kostar 2.958 krónur. M Út er komin hjá Matar- og vinklúbbi AB bókin um spænska smárétti. Bókin er sú sjöunda sem kemur út hjá Matar- og vínklúbbn- um. í fréttatilkynningu segir: „Spænsk matreiðsla er eins og best gerist í heiminum, spennandi og fjölbreytileg, því hún einkennist m.a. af réttum sem hafa inni að halda síbreytileg efni sem unnið er úr á óteljandi vegu, sem hæfa sér- hveiju tilefni, smekk og mataræði. Bókin um spænska smárétti og spænska matreiðslu færir lesendum sínum það besta á þessu sviði: Ein- falda rétti sem bragðbættir eru með kryddjurtum, litríka og bragðríka kjötpottrétti með álíka ljúffengum grænmetistilbrigðum, auk léttra og fljótlagaðra rétta, sem grundaðir eru á hrísgijónum og þurrkuðum baunum, sem eru ákjósanlegir í ein- rétta máltíðir. Þar við bætast hlýj- andi, hressandi súpur og andstæður þeirra sem eiga vel við á sumarmat- seðlinum. Þar er spænsk matreiðsla byggist á einföldum hráefnum og á sér sterkar rætur í heimilismatreiðslu og einföldum sveitamat, er hún fyrst og fremst lystug og tilgerðar- laus. Efnin til hennar eru ódýr, bragðefni afdráttarlaus, uppskriftir auðveldar og framreiðslan hrein og bein án óþarfa sýndarmennsku. Allar uppskriftirnar eru mynd- skreyttar og hafa að geyma skýrar leiðbeiningar til að hjálpa lesendan- um að ná tökum á hinum ósvikna spænska bragðkeim." Bókin er 120 bls. og kostar 2.269 kr. Umbrot og filmu- vinnsla: Prentsmiðjan Oddi. Alfholt - hæð og ris Eigum til sölu efrl sérhæð og ris í klasahúsi alls 150 fm. Húsnæðið afhendist nú þegar fullbúið að utan og fokhelt að innan. Kjörið tækifæri fyrir lag- hentan að útvega sér rúmgott húsnæði á góðu verð. Verð 6,5 millj. Nánari upplýsingar hjá: Fasteignasölunni Ás, Strandgötu 33, 2. hæð, Hafnarfirði, sími 652790. 21150-21370 LARUS Þ. VALDIMARSS0N framkvæmdastíori . KRISTINN SIGURJÓNSSON, HRL. loggilturfasteignasau Til sýnis og sölu - eignir sem vekja athygli: í gamla góða vesturbænum 5-6 herb. efri hæð, allt sér. Góður bílskúr. Trjágarður. Þribýlishús, smíðaár 1967. Tilboð óskast. Ný endurbyggð - gott verð 4ra herb. íbúð neðarlega við Hraunbæ. Stórt og gott eldhús. Ágæt sameign. Vinsæll staður. Skammt frá KR-heimilinu 3ja herb. íbúð á 4. hæð. Risiö yfir íb. fylgir. Sameign að mestu end- urn. Langtímalán kr. 4,6 millj. Ódýr íbúð við Gunnarsbraut Einstaklíb. 2ja herb. í kj. Sérinng. Sérhití. Laus strax. Verð aðeins 3,5 millj. Á vinsælum stað á Högunum Glæsileg einstaklíb. 2ja herb. 56,1 fm. Allar innr. og tæki ný. Sérinng. Sérþvottaaöstaða. íb. er á 1. hæð, jarðh. í gamla miðbænum Ný og glæsileg lítil eins herb. íb. á 3. hæð. Gott sturtubað. Eldhúskrók- ur. Vinsæll staður. • • • Viðskiptum hjá okkur fylgir ráðgjöf og og traustar upplýsingar. Opið á laugardaginn. ALMENNA FASTEI6NASAIAN LAUGAVEG118 SÍMAR 21150 - 21370 V^terkurog k/ hagkvæmur auglýsingamióill!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.