Morgunblaðið - 03.11.1993, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 03.11.1993, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 1993 Minning Einar Bjarnason fv. aðalvarðstjóri Fæddur 16. maí 1934 Dáinn 18. október 1993 Það var árið 1991 sem við kynnt- umst Einari og Sigrúnu, samhentum hjónum, sem voru reiðubúin ti! að gera gott hjónaband enn betra. Við kölluðum okkur Hjóna-bandið. Til- viljun réði því, að einmitt við völd- Tt' umst saman í þennan hóp. Það kom strax í ijós, að Einar var fróður um flest, sem um var rætt. Mörg kvöld höfum við setið saman og spjallað um ýmis málefni. Af alúð miðlaði hann okkur af reynslu sinni og var umburðarlyndur gagnvart skoðun- um annarra. Nú hefur skarð verið höggvið í hópinn, því að Einar hefur kvatt þennan heim. Það hendir okkur öll að hitta á lifsleiðiílni einstakling, sem hefur djúpstæð áhrif á okkur. Stundum dvína þessi áhrif, en það kemur líka fyrir að þau vaxa og þróast í vin- áttu. Sú vinátta, sem við eignuð- umst með þeim Einari og Sigrúnu hefur vaxið og dafnað. Við teljum það gæfu okkar að hafa kynnast Einari og öðlast vináttu hans og trúnað. Þegar við kynntumst Einari, hafði hann þegar tekið þann sjúkdóm, sem nú hefur lagt hann að velli. Einar tók krabbameininu eins og öðru mótlæti með þolinmæði og af æðru- leysi. Jafnvel þegar stutt var til kveðjustundar, einkenndi tryggð og yfirvegun allt hans far. Hann talaði blátt áfram um þau vistaskipti, sem hann ætti í vændum. Og við hlustuð- um á þennan mann, sem hafði til að bera meiri þroska og kjark en við öll. Það var eins og hann væri að tala kjark í Sigrúnu og okkur hin. Eitt er víst, að aldrei kenndum við sjálfsvorkunnar eða trega í frá- sögn hans. Eftir því sem af Einari dró var sem Sigrún öðlaðist meiri styrk. Gagnkvæm umhyggja þennan tíma var aðdáunarverð. En hann talaði líka um sveitina sína og lífs- hlaup sitt. í hvert sinn sem hann lagði eitthvað til málanna, hlustuð- um við. Oft fannst okkur, að allt lægi ljóst fyrir, þegar hann hafði útskýrt eitthvað frá sínum sjónar- hóli. Einar gaf okkur meira lífsnesti en hann hefur eflaust órað fyrir. Hann hafði reynslu og þroska langt umfram okkur hin og við nutum góðs af því. Slíkir mannkostir eru gersemi og við stöndum í þakkar- skuld við hann. Það hefur verið aðdáunarvert að fylgjast með þeim Einari og Sigrúnu þessi síðustu ár. Þau voru svo sam- hent, svo miklir mátar, svo einlæg hvort í annars garð. Sigrún hefur misst mikjð. Hún hefur misst sinn besta vin, en hún á minninguna um góðan dreng, sem var hennar lífs- förunautur. Einar átti sér eftirlætiskafla í ritn- ingunni. Hann talaði um, að sér þætti Kærleiksóðurinn úr 1. Korintu- bréfí eitthvað það fallegasta, sem ritað hefði verið. Okkur langar til að kveðja hann með kafla úr Kær- leiksóðnum: Kærleikurinn er langlyndur, hann er góðviljaður. Kærleikurinn öfundar ekki. Kærleikurinn er ekki raupsaraur, hreykir sér ekki upp. Hann hegðar sér ekki ósæmilega, leitar ekki síns eigin, hann reiðist ekki, er ekki langrækinn. Hann gleðst ekki yfir óréttvísinni, en samgleðst sannleikanum. Hann breiðir yfir allt, trúir öllu, vonar allt, umber allt. Kærleikurinn fellur aldrei úr gildi. Megi minning Einars lifa í hugum okkar, björt og hlý. Agnes og Grétar, Erla Björk og Björn, Hallý og Jörgen, Hlíf og Ólafur. Það var eitt kvöld, að mér heyrðist hálfveg- is barið. Ég hlustaði um stund og tók af kertinu skarið. Ég kallaði fram og kvöldgolan veitti mér svarið. Hér kvaddi Lífið sér dyra og nú er það farið. (Jón Helgason.) Þegar ég heyrði að Einar Bjarna- son hefði fengið útkail til hinstu ferð- ar kom þetta í ljóð upp í huga minn. Þegar litið er um öxl virðist tíminn afstæður. Ekki sýnist svo langt síðan við vorum í barnaskóla í Fundarhús- inu í Lóni, fyrir rúmum átta áratug- um og kom öllum til nokkurs þroska. Einar var borinn og barnfæddur Reykvíkingur, en ólst upp austur í Lóni hjá þeim sæmdarhjónum Krist- ínu Jónsdóttur og Stefáni Jónssyni bónda og hreppstjóra í Hlíð. Naut hann mikillar ástúðar og umhyggju á því heimili. Minntist hann fóstur- foreldra sinna með mikilli hlýju. Mér er ekki til efs að hann hafi numið fræði og frásagnarlistj sem var í hávegum höfð þar. A barnsaldri hafði hann lesið Islendingasögurnar spjaldanna á milli og numið innihald þeirra. Um tvítugsaldur las hann undir Iandspróf utanskóla, sem hann þreytti síðan á Laugarvatni og stóðst með ágætum. Þótti það nokkurt af- rek. Stephan G. Stephansson segir um menntunina: Ég gat hrifsað henni af hratið, sem hún vék mér. Meðan lúinn makrátt svaf, meðan kátur lék sér. Einar var mjög víðlesinn og virt- ist erfítt að koma að tómum kofan- um hjá honum. Hann var einnig vel hagmæltur en bar það ekki á torg. Um tuttugu og fímm ára aldur greip hann útþrá. Hann fór til Ameríku. Ekki líkaði honum vistin þar, og hvarf heim aftur eftir tveggja ára dvöl. Hóf hann þá störf hjá lögregl- unni í Reykjavík og starfaði þar á fjórða áratug, seinast sem aðalvarð- stjóri þar til hann hætti störfum sökum heilsubrests fyrir tveim árum. Allt starf hans einkenndist af sam- viskusemi og heiðarleika. Hann lærði verk sín að vanda og verða engum til meins. Þá væri þjóðinni borgið ef þúsundir gerðu eins. (Davíð Stefánsson.) Hann vann hug þeirra sem kynnt- ust honum. Ekki með látum heldur með hógværð og traustvekjandi yfir- bragði. Það var gott að leita til hans. Hann átti erfítt með að segja nei. Slíkan mann er gott að hafa nálægt sér. Hann bætir veröldina. Hann hafði einlægan áhuga á velferð barna sinna. Hann vildi ekki vera í skuld við neinn. Eftir að hann varð veikur, heim- sótti ég hann oft. Eitt sinn sagði ég: „Hvað segirðu?“ „Ég segi allt gott,“ sagði hann. Þá hrukku út úr mér ljóðlínur eftir Örn Arnarson: Það er ekki íslenskur siður að æpa í gleði og sorg. Honum var gefið andlegt þrek, sem sterkir stormar lífsins gátu ekki brotið og entist það til hinstu stund- ar. Eiginkona hans, Sigrún, reyndist honum traustur iífsförunautur og sterk stoð á erfiðum tímum. Nú hefur Einar lagt í sína hinstu för til landsins þar sem eilíft ríki Guðs bíður hinna dyggu þjóna. Hann hélt öruggur í þá för. Veginn þang- að þekkti hann. Hann vissi að Jesús Kristur hafði fundið eina færa vaðið yfir móðuna miklu. Síst vil ég tala um svefn við þig. Þreyttum anda er þægt að blunda og þannig bíða oæili stunda. Það kemur ekki mál við mig. Flýt þér vinur í fegra heim. Kijúptu að fótum friðarboðans fljúgðu á vængjum morgunroðans meira að starfa Guðs um geim. (Jónas Hallgrímsson.) Eiginkonu, börnum, barnabörnum, heimilisfólkinu á Hlíð og Hraunkoti í Lóni, öðrum vinum og vandamönn- um votta ég dýpstu samúð. Minningin um góðan dreng lifír. Arnór Þórðarson. Kær vinur er kvaddur í dag. Okkur langar í örfáum orðum að minnast Einars Bjarnasonar fyrrver- andi aðalvarðstjóra hjá Lögreglunni í Reykjavík. Einar lést hinn 18. októ- ber síðastliðinn á heimili sínu eftir hetjulega baráttu við illvígan sjúk- dóm. Einar naut frábærrar umönn- unar og ástúðar eiginkonu, fjöl- skyldu og starfsmanna heimahlynn- ingar, sem hann mat mikils. Þess urðum við áskynja er við heimsóttum hann fyrir um það bil mánuði síðan og áttum saman góða stund. Eins og fram hefur komið var Einar aðal- varðstjóri í lögregluliði Reykjavíkur, og unnum við undir hans stjórn um tíma. Einar var gæddur sérstökum stjórnunarhæfíleikum og gat laðað fram hjá flestum þeirra bestu eigin- leika. Hann var einstaklega rólegur og yfirvegaður og gæddur góðri kímnigáfu, enda sóttist fólk eftir að vinna undir hans stjórn. Hlýleiki hans og mannlegheit gagnvart öllum sem á vegi hans urðu voru hans aðalmerki. Hann dvaldist til ýmissa félags- og trúnaðarstarfa fyrir lög- reglumenn og ávallt sýndi hann skarpskyggni og réttsýni í öllu því sem hann tók sér fyrir hendur. Við vorum einar af fyrstu konunum sem ráðnar voru til starfa í Lögreglunni í Reykjavík. Það var ekki alltaf auð- velt að vera kvenmaður í karlastétt, en alltaf áttum við tryggan stuðning og hvatningu frá Einari í öllum málum. Lögreglan í Reykjavík hefur misst mikilhæfan starfskraft og verður sæti hans vandfyllt. Við höfum hér aðeins dregið upp stutta lýsingu á mannkostum Einars. Minningarnar hrannast upp á sorgarstundu, en þær geymum við í hugum okkar. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem) Elsku Sigrún, börn og aðrir ást- vinir, megi góður guð gefa ykkur styrk á erfiðum tímum. Björg og Laufey. Við skulum sól sömu báðir hinsta sinn við haf líta, lítt mun þá leið þeim er ljósi í móti vini studdur af veröld flýr. (Jónas Hallgrímsson.) Þetta Ijóð, „Við sólsetur", kom mér oft í hug þegar Einar, oft sár- þjáður sjálfur, sat við hlið félaga síns og vissu báðir að örstutt var ófarið æviskeið. Þarna sátu þeir tveir og ræddu hið ókomna og þeir sem á hlýddu voru meiri menn á eftir, því að þær gjafir sem þar voru gefnar veittu frið og huggun, því að þeir tveir voru tilbúnir að takast á við það sem þeirra beið. Ég þakka Guði fyrir að hafa átt Einar að vini, blessuð sé minning hans. Ég bið Guð að blessa Sigrúnu og börn þeirra. Elín. Vinur minn og félagi, Einar Bjarnason, er látinn langt um aldur fram, eftir hetjulega baráttu við ill- vígan sjúkdóm. Ég átti því láni að fagna er ég gekk í iögregiulið Reykjavíkur fyrir 26 árum að starfa á sömu vakt og Einar. Varð okkur vel til vina og bundust fjölskyldur okkar góðum vináttuböndum sem aldrei bar skugga á. Minningarnar þyrlast upp og margs er að minnast frá liðnum árum. Er við félagarnir ásamt Krist- leifi Guðbjörnssyni og Kristni Osk- arssyni fórum í laxveiðitúra vestur í Dali og í Barðastrandarsýslu. Var þetta áiitlegur hópur sem ferðaðist saman sumar eftir sumar með allan bamahópinn ýmist í tjöldum eða í veiðihúsum. Var þá oft glatt á hjalla. Mikill kraftur og bjartsýni var hjá Einari er við stofnuðum heild- verslunina Eskifell ásamt konum okkar og Ólafi Steinsen. Rúmu ári síðar sneri ég mér að öðru, en Einar rak fyrirtækið áfram til ársins 1983 með miklum dugnaði á oft erfiðum tímum. Einar var mikill vinnuþjarkur enda stór fjölskylda að sjá fyrir, þannig urðu vinnustaðirnir oftast tveir og jafnvel þrír. En sjaldan var langt í glettni og gaman hjá Einari. Einhvetju sinni er við Einar ásamt Birni Sigurðssyni vorum að rífa úr nýbyggingu og hreinsa timbrið, hafði Éinar á orði að þegar hann færi yfir móðuna miklu vildi hann hafa með sér kú- bein, sköfu og naglbít því að aldrei væri að vita nema hann fengi vinnu hinum megin við að rífa og hreinsa. Af sínum alkunna dugnaði byggði Einar sér einbýlishús í Stuðlaseli í Breiðholti og bjó þar ásamt fjöl- skyldu sinni í nokkur ár, en seldi þá húsið og keypti hæð í Mávahlíð. Kona Einars, Sigrún Holdahl, hef- ur staðið sem klettur við hlið manns síns í gegnum árin og annast hann í' hans miklu veikindum á heimili þeirra þar til yfir lauk. Ég og fjölskylda mín vottum Sig- rúnu, börnum, tengdabörnum og barnabörnum innilega samúð og biðjum góðan guð að styrkja þau í þeirra miklu sorg. Guðmundur Guðveigsson. „Þegar þú ert sorgmæddur skoð- aðu þá aftur huga þinn og þú munt sjá, að þú grætur vegna þess, sem var gleði þín.“ (Kahil Gibran). Alltaf er verið að minna okkur á það sem við vitum samt öll að bíður okkar allra - dauðann, sem er svo nálægur en þó svo órafjarri. Þá vilja minningarnar leita á hugann og svo fór þegar ég frétti lát Einars sem ég er búin að þekkja frá því að ég man eftir mér. Einar ólst upp hjá ömmu minni á Hlíð í Lóni frá barnæsku og margar stundirnar var hann búinn að hafa ofan af fyrir litlu stelpunni sem kom í heimsókn að Hlíð til ömmu sinnar. Var stundum dvalið i nokkra daga og var þá gjarnan farið í litla búið fyrir ofan tún og búið þar með kýr og kindur. Alltaf fékk ég að vera með í Ieik, þó að eldri bræður mínir bættust í hópinn og var þá margt skemmtilegt gert sem minningin geymir. En svo liðu árin og alltaf var jafn gott að hittast. Ég mun aldrei gleyma því eftir að ég var flutt til Reykjavíkur, þeg- ar Einar kom á vinnustað minn, við heilsuðumst og hann sagði allt g-ott að frétta þótt hann væri þá orðinn mikið veikur. Svo tók hann utan um mig eins og í gamla daga í kveðju- skyni. Þó áttum við eftir að hittast aftur og tala saman í síma, en þessa kveðju á ég sérsaklega eftir að’ geyma í huga mínum. Kæri vinur, þessi fátæklegu orð eru mín hinsta kveðja og þakkir til þín. Við erum eins og önnur strá, enduðum lífs að fetum fyrir dauðans fóllum ijá, flúið ekkert getum. (Júlíana Jónsdóttir) Mínar innilegustu samúðarkveðj- ur til Sigrúnar og fjölskyldu. Guðný Egilsdóttir. Vinur! Það er kominn 18. október, Esjan faldar hvítu en þú hefur tekið dót þitt í klif, dregið tjaldhæla þína úr jörð og ert lagður í ferð. Ég sit hér einn. Hugur minn reik- ar austur að Hlíð í Lóni en þar búa í ársbyijun 1935 hjón, komin yfír fímmtugt, sem eru að ljúka því mikla dagsverki, að koma níu barna hópi til manns. Þá kemur til þeirra beiðni um það, hvort þau geti veitt skjól ungum sveini, sem þarfnist skjóls. Það hefur löngum verið trú á Is- landi, að þar sem hjartarúm væri þar væri líka húsrúm og i apríl 1935 ertu kominn austur í Hlíð ellefu mánaða gamall. Kominn til þessara hjóna, sem nutu þeirrar gæfu að vera af þeirri kynslóð, sem skildi að hin æðsta hamingja var ekki í því fólgin að alheimta daglaun að kveldi og að vel unnið starf fæli í sér vinnu- laun okkar. Austur í Hlíð rennur þú síðan upp sem fífill í túni, umvafinn þeirri menningu, sem íslenskt sveitaheim- ili mátti besta veita. Sjö ára gamall veit ég að þú hafðir lesið allar bæk- ur heimilisins og lestrarfélags sveit- arinnar, margar þeirra tvisvar, en þær voru geymdar í Hlíð. Ég heyri þig fara með spurningar þínar til fósturforeldranna og skynja hve nærfærnum höndum þau fara um þann efnivið, sem þeim hafði verið fenginn og skynja hvernig þau fara að því að skapa úr honum þann dreng sem veit að manngildi er betra en auðgildi. Ég veit líka að heima í Hlíð lest þú undir próf og færð á iandsprófi á Laugarvatni hæstu ein- kunn, sem þar hafði þá verið gefín. Árið 1959 hleypir þú svo heim- draganum og heldur burt frá Hlíð. Árið eftir ertu kominn út í hinn stóra heim. Heim, sem hlaut að valda þér vonbrigðum og sársauka, þegar þú skildir á hvaða gildum hann var byggður, hve tónn hans var falskur og hvílík sveitamennska það þótti þar, að manni bæri að gæta bróður síns. í ársbyrjun 1962 ertu síðan kominn heim aftur og 1. júní það ár hefur þú síðan störf sem lögreglu- þjónn í Reykjavík, trúr þeirri sann- færingu Hlíðardrengsins, að það að greiða götu annarra og vera skjól þeim, sem minna mættu sín, í því fælust verklaun. Nokkrum mánuðum seinna var ég staddur á lögregluvarðstofunni og átti í deilu við einn félagann. Mér varð á í hita deilunnar að beita brandi orðsins ódrengilega. Þá stóðu á mér vopn. Hæglátur nýliði á vakt- inni minni blandaði sér í orðaskiptin og veitti þeim, sem halloka fór. Drengurinn frá Hlíð í Lóni var mættur á staðinn. Uppfrá þessu urð- um við kunningjar, síðan félagar og vinir. Ég heyrði þig segja löngu síðar, að þegar þú hefðir komið í lögreglu- liðið þá hefði það verið barið lið og hrætt lið. Þú sagðir að þér hefði fundist það ævintýri líkast að í því skyldi þá vera einn maður, sem þorði að segja skoðun sína og veija sann- færingu sína hvenær sem var og við hvern sem var. Þú sagðir líka við mig, að ég hefði snúið þér og gert þig að vinstri- manni. Þetta hvort tveggja, af þér sagt, yljaði mér oft og mikið þó að ég viti í dag að það síðarnefnda var ekki rétt. Þú varst aðeins trúr upp- lagi þínu og uppeldi að standa með þeim, sem á var níðst. Ég þekkti þig vel og vissi því þegar þú fórst að sinna félagsmálum og tókst að þér formennsku í stéttarfélaginu okkar hve gífurlegt kappsmál þér var að fá bættan hag þeirra, sem við lökust kjör bjuggu og aukin laun þeirra, sem minnst höfðu í askana að láta. Ég vissi líka að þegar þú varst skipaður varðstjóri og síðan aðalvarðstjóri þá varð þitt aðals- merki hversu varfærnum höndum þú fórst um hvern þann, sem var minni máttar og löngun þín til þess að verða að liði olnbogabarni og utangarðsmanni, Það hafa mörg vötn runnið til sævar. Við sátum saman einn vormorgun eftir að sá gestur var kominn tii þín, sem við vissum báðir að ekki færi án þín. Við ræddum margt. Ég man að þú spurðir mig, hvort það hefði aldrei hent mig þegar ég var ungur heima í sveitinni, þegar það var vor og sól, allt greri og iðaði af lífí en loftið ómaði af fuglasöng;

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.