Morgunblaðið - 03.11.1993, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 03.11.1993, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 1993 7 Reykjavflflirhöfn Samið á grundvelli tveggja tilboða BORGARRÁÐ hefur samþykkt að tillögai stjórnar Innkaupa- stofnunar Reykjavíkurborgar að hafna öllum tilboðum, níu að tölu, í dýpkun gömlu hafnarinnar fyrir Reykjavíkurhöfn. Þess í stað er lagt tjl að gengið verði til samninga við Sveinbjörn Run- ólfsson sf. og Hagvirki-Klett hf. á grundvelli tilboða þeirra í verk- ið samtals að upphæð 84.851.424 krónur. . Níu tilboð bárust þar af tvö er- lend sem ekki buðu samkvæmt út- boðslýsingu. Lægst bauð Malbikun 71,19% af kostnaðaráætlun, þá Hafnarvirki - Snarafl hf., sem bauð 80,82% af kostnaðaráætlun og Sveinbjörn Runólfsson sf., bauð 92,72% af kostnaðaráætlun. Þá kom fráviksboð Hagvirkis-Kletts hf., 99,12% af kostnaðaráætlun og tilboð frá sama var 101% kostnað- aráætlunar. Frávikstilboð frá Hafn- arverki hf., var 116,65% af kostnað- aráætlun en næst í röðinni var til- boð frá Jóni H. Ólafssyni sem bauð 116,72% af kostnaðaráætlun. Þá bauð Hafnverk hf., 131,74% af kostnaðaráætlun og Istak hf., bauð 140,56% af kostnaðaráætlun. Farið yfir tilboð Þegar farið hafði verið yfir tilboð- in og upplýsingar bjóðenda verið skoðaðar var ákveðið að hafna öll- um tilboðum en ganga þess í stað til samninga við Sveinbjörn Run- ólfsson sf. um áfanga 1,2,5,6, og 7 og er samningsyerð 54.690.944 krónur og við Hagvirki-Klett hf. um áfanga 3 og 4 og er samnings- upphæðin 30.160.480 krónur. -----» ♦ '4-- Þjóðminjasafnið Leitað eft- ir reynslu manna af sögulegum atburðum í TILEFNI 50 ára afmælis lýð- veldisins hefur þjóðháttardeild Þjóðminjasafns íslands sent frá sér 83. spurningaskrá sína og ber hún heitið „Aðdragandi lýðveld- isstofnunar" en Þjóðminjasafnið hyggst á næsta ári setja upp sýn- ingu um áfanga í sjálfstæðisbar- áttunni í samvinnu við Þjóð- skjalasafn Islands. I skránni er einkum leitað eftir persónulegri reynslu manna af ýmsum atburð- um sem þessu tengjast, t.d. kon- ungskomum, Alþingishátíðinni, lýðveldiskosningunum og lýð- veldishátíðinni. Einnig er spurt um breytingar á fánanotkun, um tilhald 1. desember og 17. júní og um minjagripi og myndir, auk þess sem í skránni eru aukaspurningar um matseljur og kostgangara. Þar er leitað upplýs- inga um ýmislegt varðandi matsölu í þéttbýli þar sem konur tóku kost- gangara í fæði heim til sín. Þjóðminjasafn hvetur landsmenn til að leggja þessari söfnun lið og biður þá sem þekkja efnið eða er kunnugt um einhverja sem er fróð- ir um ofangreind atriði að hafa samband við safnið. Viðtöku upp- lýsinga veita Árni Björnsson og Hallgerður Gísladóttur! BRIMBORG FAXAFENI 8 • SINll 91- 685870 VOLVO 850 Sýning um helgina VOLVO BIFREIÐ SEM ÞÚ GETUR TREYST!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.