Morgunblaðið - 03.11.1993, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 03.11.1993, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 1993 5 Úthlutun leyfa til krókaveiðibáta árið 1990 UMBOÐSMAÐUR Alþingis segir í áliti frá 5. október síðastliðnum að ekki hafi verið gætt jafnræðis og samræmis er Rakkanesi HF 193 var synjað um veiðileyfi árið 1990. Mælist hann til þess að sjávarútvegsráðuneytið taki það til athugunar á ný hvort veita eigi veiðileyfi fyrir bátinn. Eig- andi hans er Garðar H. Björgins- son og sagðist hann í samtali við Morgunblaðið ekki skilja hvers vegna ráðuneytið svaraði ekki enn ósk sinni um leyfi þótt mán- uður væri liðinn frá því álit um- boðsmanns kom fram. Arni Kol- beinsson ráðuneytissljóri í sjáv- arútvegsráðuneytinu sagðist í samtali við Morgunblaðið í gær vænta þess að niðurstaða í mál- inu lægi fyrir seinna í vikunni. Garðar kvartaði til umboðsmanns Alþingis hinn 26. júní 1992 yfir því að samgönguráðuneytið og Sig'i- ingamálastofnun ríkisins hefðu synjað vélbáti hans, Rakkanesi HF 193, um haffærisskírteini 18. ágúst 1990. Hefði þessi niðurstaða leitt til þess, að sjávarútvegsráðuneytið gerði það að skilyrði fyrir veitingu veiðileyfis að sambærilegur bátur hyrfi úr rekstri. Samkvæmt 1. mgr. 5. gr. 1. 38/1990 um stjórn fiskveiða skyldi gefa nýjum bátum undir 6 brl kost á veiðileyfi, ef smíði þeirra hefði hafist fyrir gildistöku laganna, þ.e. 18. maí 1990, og haffserisskírteini Leigutekjur af embætt- isbústöð- um hækka LEIGUTEKJUR ríkisins af emb- ættisbústöðum munu aukast verulega á næsta ári en ætlunin er að tekjunum verði varið til viðhalds eignanna. í svari Friðriks Sophussonar fjár- málaráðherra við fyrirspurn Einars K. Guðfinnssonar á Alþingi á mánu- dag um leigutekjur af embættisbú- stöðum kom fram að í reglugerð hefði verið fækkað undanþágum um leigugreiðslur. Leigutekjur ráðu- neytanna af embættisbústöðum hefðu verið um 28,3 milljónir króna árið 1992 en væru áætlaðar 55,7 milljónir 1994, og ykjust því um 96,7%. Leigutekjur af prestssetrum eru ekki með í þessum tölum. Frið- rik sagði að skipulega hefði verið unnið að gerð húsaleigusamninga vegna embættisbústaða allt þetta ár og væri leigutekjunum ætlað að standa undir viðhaldi bústaðanna. -----------» ♦ ♦----- Barðstrend- ingar hlynntir sameiningu Barðaströnd. UMDÆMANEFND hélt opinn fund með Barðstrendingum í Birkimel. Fundinn sátu milli 30 og 40 manns sem telja verður góða fundarsókn um miðjan dag. Guðmundur H. Ingólfsson setti fundinn og skýrði málin og gaf síð- an orðið laust. Urðu talsverðar umræður, sérstaklega um skólann og samgöngumál. Menn urðu nokk- uð fróðari eftir fundinn um samein- inguna og af þeim sem töluðu var greinilegt að meirihluti var hlynntur sameiningunni. verið gefið út innan þriggja mánaða frá þeim tíma, með öðrum orðum fyrir 18. ágúst 1990. Sjávarútvegs- ráðuneytið ákvað þó að veita veiði- leyfi tilteknum bátum, sem ekki höfðu fengið útgefið haffærisskír- teini fyrir 18. ágúst en bátur Garð- ars var ekki í þeim hópi. Segir umboðsmaður Alþingis mjög vafa- samt að smíði og frágangur sumra þeirra báta sem fengu leyfi hafi verið lengra komin en Rakkaness- ins. Svo virðist sem sumum bátun- um hafi verið meira áfátt en bréf Siglingamálastofnunar ríkissins til sjávarútvegsráðuneytisins frá 25. október 1990 gefur til kynna. „Er svo að sjá, að ófullkomnar upplýs- ingar í síðastgreindu bréfi hafi ver- ið lagðar til grundvallar ákvörðun- um ráðuneytisins," segir umboðs- maður. - frœðsla og þjónusta fyrir vaxandi fólk! CEORC OC FÉLACAR „Lengi býr að fyrsta banka!" Georg og félagar er þjónusta sem er sérsnibin fyrir yngstu kynsióbina, öll börn 12 ára og yngri. Georg er sparibaukur íslandsbanka og jafnframt „sérfrœbingur" í fjár- málum og umhverfismálum. Þau börn sem gerast félagar Georgs fá abstob og hvatningu vib ab spara og frœbslu um umgengni vib iandib okkar enda er nafnib Georg komib úr grísku og þýbir sá sem yrkir jörbina. Börnin uppskera vexti og verðlaun... ...strax vib inngöngu! Þab er spennandi fyrir börnin spara meb Georg og félögum. Til mikils er ab vinna þvíþau uppskera bœbi vexti og verblaun fyrir góba frammistöbu. Um leib og barnib gerist félagi Georgs í nœsta Islandsbanka fær þab sparibaukinn Georg, fallegt límmibaplakat og sérstaka sparibók. Allir félagar fá endurskinsmerki. Yngri börnin fá auk þess litabók meb myndum af Georg og þau eldri fá blýant og reglustiku. ...þegar baukurinn er tœmdur! Þegar barnib kemur ab láta tœma baukinn sinn í fyrsta skipti, fœr þab límmiba til ab setja á plakatib og óvæntan glabning frá Georg. í hvert sinn sem baukurinn er tæmdur eftir þab fær barnib nýjan límmiba. Plakatib fyllist því jafnt og þétt og innstœban vex. Þegar búib er ab fylla plakatib meb 5 límmibum sýnir barnib þab í bankanum og fœr sérstök verblaun. Þeir sem gerast félagar Georgs geta átt von á ýmsu óvœntu og skemmtilegu því Georg heldur góbu sambandi vib félaga sína. Góba skemmtun meb Georg og félögum! Ekkí var gætt jafn- ræðis og samræmis - S.J.Þ. xx-**

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.