Morgunblaðið - 03.11.1993, Blaðsíða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 1993
STJÖRNUSPÁ
eftir Frances Drake
Hrútur
.(21. mars - 19. aprfl)
Ástin og vinafundir eru of-
arlega á baugi í dag. Félag-
ar eiga saman góðar stundir
og sumir eru í trúlofunar-
hugleiðingum.
Naut
(20. apríl - 20. maí) (f^
Fáguð framkoma er góður
kostur í viðskiptum og í dag
gefst þér gott tækifæri til
að skara fram úr. Fjárhag-
urinn fer batnandi.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Leggðu þig fram við vinn-
una í dag og ekki fresta til
morguns því sem unnt er
að ljúka við í dag. Kvöldið
verður ánægjulegt.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí) HÍ6
Fjölskylduböndin styrkjast í
dag og heimilislífið heillar.
Sumum berast góðar fréttir
varðandi íjármálin.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Það hentar þér betur í dag
að heimsækja vini en að
bjóða heim gestum. í kvöld
sinna ástvinir sameiginleg-
um hagsmunamálum.
Meyja
(23. ágúst - 22. september) Sk*;
Þú gætir hlotið viðurkenn-
ingu fyrir verk sem þú hefur
unnið og fengið tækifæri
sem lofar góðu fyrir fram-
tíðina.
Vog .
(23. sept. - 22. október)
Þú gætir fengið tækifæri til
að skreppa í áhugavert
ferðalag. Hafðu ekki óþarfa
áhyggjur af íjárhagnum í
dag.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóvember) HÍ0
Aðrir eru samvinnuþýðir í
dag og það tekst að ná ti-
lætluðum árangri. Þér tekst
loks að finna lausn á gömlu
vandamáli.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. desember) m
Þú átt góðar stundir með
ættingjum og ástvini í dag.
Þér berst boð í samkvæmi
sem lofar góðu og þú ættir
að þiggja.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Afskiptasamur vinur getur
va'dið leiðindum en þér
gefst frábært tækifæri til
að tryggja stöðu þína og
bæta fjárhaginn.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar)
Þú þarft að vera vel á verði
í vinnunni i dag. En frí-
stundimar bæta þér það upp
og sumir fara út að
skemmta sér í kvöld.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars) ’Sx
Einhver frestun getur orðið
á fyrirhuguðu ferðalagi. En
þér tekst að leysa gamalt
vandamál og horfur í pen-
ingamálum eru góðar.
Stjörnuspána á aó lesa sem
dœgradvöl. Spár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
vtsindalegra staðreynda.
DYRAGLENS
és V/L ZTANGASt'a l//£>
f>/e OAÓ FOfZVSTU FV&/
þeSSfíeeJ /
GRETTIR
TOMMI OG JENNI
SMÁFÓLK
Þú kláraðir ekki matinn þinn svo ég býst við að þú fáir
engan eftirrétt.
Og þú mátt ekki steikja sykurpúða i bakgarðinum
klukkan tvö um nótt!
BRIDS
Umsjón Guðm. Páll
Arnarson
Með tvo gjafaslagi á tígul má
aðeins gefa einn á tromp. Það er
einmitt aðalverkefni sagnhafa að
fara rétt í trompið:
Norður gefur; allir á hættu.
Norður
♦ Á10
V D42
♦ D109
+ ÁG873
Suður
♦ D87542
V ÁK85
♦ 65
♦ K
Vestur Norður Austur Suður
— 1 lauf 1 tígull 1 spaði
Pass 1 grand Pass 2 tíglar
Pass 3 lauf Pass 3 spaðar
Pass 4 spaðar Allir pass
Útspil: tígultvistur, 3. hæsta.
Austur drepur tfu blinds með
gosa, tekur ásinn og spilar kóngnum.
Sagnhafi trompar lágt og vestur
fylgir lit. Hvernig er best að spila?
Til að byija með er rétt að taka
laufkóng, svo hægt sé síðar að henda
hjarta niður í ásinn. En hvemig á
að spila spaðanum? Sé ekkert um
spil vamarinnar vitað, er rétta íferð-
in að spila spaða á tíuna. Lfkinda-
fræðin segir að það skili 5 slögum
á litinn í 47% tilvika. En nú hefur
austur sagt, svo kannski er senni-
legra að hann eigi kónginn. En það
er ekki þar með sagt að best sé að
taka á ásinn og spila tíunni sfðan
að drottningunni:
Norður
♦ Á10
V D42
♦ D109
♦ ÁG873
Vestur
♦ 963
V 106
♦ 742
4 D10654
Austur
4 KG
V G973
♦ ÁKG83
4 92
Suður
4 D87542
V ÁK85
♦ 65
4K
Austur myndi þá spila enn einum
tíglinum og upphefja spaðaníu vest-
urs.
Þessari ógnun má mæta með því
að fara inn í borð á hjartadrottningu
og spila spaðatíunni að drottning-
unni. Geyma spaðaásinn. Ef austur
hoppar upp með kónginn til að spila
tígli, stingur suður heima. Spaðaás-
inn gegnir síðan hlutverki bakvarðar
í borðinu.
Þetta gengi ekki ef austur ætti
KGx og vestur 9x. Þá yrði að taka
á ásinn fyrst. En þar eð austur hef-
ur sýnt 5 tígla, en vestur aðeins 3,
er líklegra að spaðatvíspilið sé f aust-
ur.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Pað var ekki fyrr en í sjöundu
umferðinni á HM landsliða að
fyrsta borðs manni Rússa, Vlad-
ímir Kramnik (2.710), tókst að
vinna skák. Hann hafði hvítt og
átti leik í þessari röð gegn Jesus
Nogueiras (2.580) frá Kúbu.
29. Rf5! - Had7
(Hleypir riddaranum til d6, en
bæði 29. - exf5, 30. Bxd5 og 29.
- gxf5?, 30. Dg5+ - Kh8, 31.
DÍ6+ - Kg8, 32. Hg3+ og mátar
voru lakari kostir.)
30. Rd6 - Bxa2, 31. Dxa2 -
Dh6, 32. Db2 - Dg7, 33. De2 -
Dh6, 34. Hdc3 - Dh4, 35. Hc4
- De7, 36. g3 - b5, 37. axb5 -
axbð, 38. Hf4 - f6, 39. Re4! -
fxe5, 40. Rf6+ - Kh8, 41. Rxd7
- exf4, 42. Rxb8
og hvítur vinnur mann og skákina.