Morgunblaðið - 03.11.1993, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 03.11.1993, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 1993 SH og Tikkoo Corporation stofna fyrirtæki á Indlandi Samstarfsverkefni um veiðar og vinnslu á túnfiski SÖLUMIÐSTÖÐ hraðfrystihúsanna og Tikkoo Corporation, sem er í eigu indversks kaupsýslumanns, hafa undirritað samning um stofnun samstarfsfyrirtækis á Indlandi um veiðar og vinnslu á 50 þúsund tonnum af túnfiski á ári, sem indversk stjórnvöld hafa lofað til handa samstarfsfyrirtækinu innan efnahagslögsögu Ind- lands. Félagið mun hefja starfsemi sína á næstu vikum, ef öll til- skilin leyfi fást, en samningurinn er háður samþykki indverskra stjórnvalda. SH og Tikkoo Corporation munu eiga 50% hlutafjár hvor aðili en gert er ráð fyrir að hlutafé verði er frá líður 4 milljónir Bandarikjadala. Fyrir um ári hafði Hambros bankinn í London samband við SH og spurði um möguleika þess að það aðstoðaði einn viðskiptavina bankans við að byggja upp fyrir- tæki sem gerði út á túnfisk í Ind- landshafi. Samningaviðræðum lauk svo í seinustu viku með undirritun samnings sem felur m.a. í sér að Sölumiðstöðin leggi fram ýmiss konar tækniþekkingu, stjórni út- gerðarþætti fyrirtækisins, hafi með höndum gæðastjórnun í fyrirtæk- inu og sjái um alla markaðssetn- ingu. Hafa indversk stjórnvöld lagt mikla áherslu á að fyrirtækið reisi verksmiðju er sjóði niður túnfisk og verður unnið að undirbúningi þess á næstu mánuðum. í upphafí verður leitað eftir kaupum eða leigu á einu eða tveimur skipum til að hefja veiðarnar. Auðug túnfiskmið „Við höfum verið að reyna að nýta okkur ýmis tækifæri til að auka veltu félagsins og við teljum að þetta verkefni falli vel að starf- semi okkar og muni hjálpa okkur við að ná öðrum tækifærum af svipuðu tagi annarsstaðar ef vel gengur. Ekki er eftir miklu að slægjast hér innanlands fyrir þann rekstur sem við höfum sérhæft okkur í í þeim þrengingum sem hér eru. Það er því mjög eðlilegt að við sækjum á erlend mið eins og við höfum reyndar gert í vaxandi mæli á seinustu misserum," sagði Friðrik Pálsson, forstjóri SH. Að mati vísindamanna eru auðug túnfiskmið innan 200 mílna lög- sögu Indlands, sem hafa að mestu verið ónýtt frá þvi um 1970. Verð- mæti túnfísks er nú nálægt 1.000 dollarar tonnið. „Þetta er tilraunaverkefni en ef vel gengur, sem við vonumst til, þá gæti þarna verið um talsvert stórt fyrirtæki að ræða,“ sagði 7 T m ■ J Samningar undirritaðir FRÁ undirskrift samnings SH og Tikkoo Corporation um sam- starfsverkefni um túnfiskveiðar í Indlandshafi. Á myndinni eru f.v. Friðrik Pálsson, forstjóri SH, Ravi Tikko, eigandi Tikkoo Corporation, Jón Ingvarsson, stjórnarformaður SH og Ólafur B. Ólafsson, varaformaður samtakanna. Friðrik. Hann sagði einnig að tækniráðgjafar við þetta verkefni nokkrir íslenskir starfsmenn bæði hér heima og erlendis. myndu væntanlega starfa sem í » I w VEÐUR VEÐURHORFUR I DAG, 3. NOVEMBER YFIRLIT: Yfir sunnanverðri Skandinavíu er 1022ja mb hæð og 1028 mb hæð yfir NA-Grænlandi. 975 mb lægð um 1000 km suður af Reykja- nesi þokast norð-norðaustur, lægðardrag liggur norður um Grænlands- haf og NA um Grænlandssund. SPÁ: SA-átt, viðast kaldi eða stinningskaldi. Rigning eða súld sunnan- lands og vestan, dálítil súld við SA- og A-ströndina en þurrt á Norður- og NA-landi. Hlýtt verður áfram, einkum norðanlands og á Vestfjörðum. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á FIMMTUDAG: Allhvöss SA-átt, með rigningu sunnan- og austanlands, en úrkomulitlu í öðrum landshlutum. Hiti 6 til 10 stig. HORFUR Á FÖSTUDAG: Sunnan- og SV-átt, allhvöss sunnan- og vestan- lands, en heldur hægari annars staðar. Sunnan- og vestanlands verða slydduél en úrkomulaust norðan- og austanlands. Hrti 1 til 5 stig, HORFUR Á LAUGARDAG: Sunnan hvassviðri vestantil á landinu, en mun hægari NA- og austanlands. Rigning eða skúrir um sunnan- og V-vert lafndiö, en að mestu þurrt norðan- og austanlands. Hiti 3 til 7 stig. Nýir veðurfregnatímar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 19.30, 22. 30. Svarsími Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600. o & Heiðskírt Léttskýjað f r r * f * f f * f f f f f * f Rigning Slydda Hálfskýjað * * * * * * * * Snjókoma :Á Skýjað Alskýjað * V V Skúrir Slydduél V Él Sunnan, 4 vindstig. Vindörin sýnir vindstefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. 10° Hitastig Súld Þoka V "'l FÆRÐA VEGUM: oa 17.301 gæo Greiðfært er um alla þjóðvegi landsins, en víða er unnið að vegagerð og getur vegur á þeim stöðum verið grófur og seinfarinn og eru öku- menn beönir að gæta varúðar og aka samkvæmt merkingum. Um færð á hálendinu er ekki vitað. Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftii liti í síma 91-631500 og ígrænnilfnu 99-6315. Vegagerðin. VEÐUR VIÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma Akureyri Reykiavfk hltl 10 ð veður alskýjað skúr Bergen 6 skýjað Heleinki 3 rlgning Kaupmannahöfn 7 hálfskýjaö Narssarssuaq +4 skýjað Nuuk +2 skýjað Oaló 1 léttskýjað Stokkhólmur B léttskýjað Þórshöfn 7 alskýjað Algarve 18 heiöskfrt Amsterdam vantar Barcelona 17 rigning Berlín 7 mlstur Chicago 2 alskýjað Feneyjar 14 þokumóða Frankfurt 6 mistur Glasgow 8 skýjað Hamborg 6 mistur London 7 mistur LosAngeles 14 þokumóða Lúxemborg 5 þokumóða Madríd 11 skýjað Malaga 18 skýjað Mallorca 20 léttskýjað Montreal 6 skýjað New York 3 heiðskírt Orlando 8 iéttskýjað París 10 skýjað Madeira 20 skýjað Róm 17 alskýjað Vín 5 aiskýjað Washington 1 léttskýjað Winnipeg 0 snjók. á sfð.klst. IDAG kl. 12.00 Heimild: Veöurstofa lelands (Byggt á veöurspó kl. 16.15 í gœr) Ekkí verði ráð- ið í lausa stöðu seðlabankastj óra RÍKISSTJÓRNIN mun á næstunni leggja fram sljórnarfrumvarp um að ekki verði ráðið i stöðu seðlabankastjóra sem losnar um næstu áramót þegar Tómas Árnason seðlabankasfjóri Iætur af störfum vegna aldurs. Að sögn Sighvats Björgvinssonar viðskiptaráðherra er þetta gert til að festa ekki í sessi núna um miðjan vetur þriðja bankastjóra Seðlabankans, þegar verið sé að endurskoða gildandi lög um bankann frá grunm. Sighvatur sagði í samtali við Morgunblaðið að við endurskoðun laga um Seðlabankann yrði meðal annars tekin ákvörðun um það hvort rétt væri að fækka seðla- bankastjórum og hafa hann bara einn og síðan aðstoðarbankastjóra eins og gert væri í nálægum lönd- um. „Eg vil ekki í þeirri stöðu taka ákvörðun um ráðningu nýs seðla- bankastjóra og festa hann í sessi sem þriðja,“ sagði Sighvatur. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins lagði fulltrúi Alþýðubanda- lagsins í bankaráði Seðlabankans fram tillögu þess efnis fyrir hálfum mánuði að staðan yrði ekki aug- lýst, en að sögn Ólafs Ragnars Grímssonar formanns Alþýðu- bandalagsins er það í samræmi við fyrri tillögu Alþýðubandalagsins um að einn bankastjóri verði í Seðlabankanum. Sú tillaga hafi ekki verið afgreidd og því hefði þingflokkur Alþýðubandalagsins samþykkt að leggja fram frumvarp um að lögunum um Seðlabankann yrði breytt þannig að ekki yrði ráð- ið í þriðju bankastjórastöðuna um áramótin. „Eg kynnti þá hugmynd á þriðju- Góð síldveiði í Berufjarðarál SILDVEIÐI hefur gengið vel á miðunum í Berufjarðarál en mik- ill straumur hefur gert bátunum erfitt fyrir að undanförnu. Mest- ur hluti síldarinnar sem veiðist fer í vinnslu og er útlit fyrir að takist að vinna upp í samninga á vertíðinni. Rúmlega 30 skip stunda nú síldveiðarnar. Þórshamar GK landaði 300 tonn- um á Neskaupstað í gær. Jón Ey- ijörð skipstjóri sagði að mikill straumur gerði bátunum erfítt fyrir við veiðarnar en þó fengjust góð köst inn á milli. Hann sagði að veiðar hefðu gengið mun betur með nót en flottrolli, en þrir bátar stunda mT sTIHvéiðaF méð~fIöíEfönr daginn í síðustu viku, fyrst Stein- grími Hermannssyni og síðan Davíð Oddssyni, og tjáði forsætisráðherra að við myndum flytja þetta frum- varp en værum tilbúnir til þess að mæla með því að ríkisstjórnin flytti það því það myndi greiða fyrir fram- gangi málsins á þinginu,“ sagði Olafur Ragnar. -----» ♦ ♦-- íbúar í Grafarvogi Söluturni og bensínstöð mótmælt NOKKRIR foreldrar í Grafarvogs- hverfi hafa staðið fyrir undir- skriftarsöfnun þar sem mótmælt er fyrirhuguðum söluskála og bensinstöð við Gagnveg. Þar er samkvæmt skipulagi gert ráð fyr- ir útivistarsvæði. Hafa 1.920 manns skrifað undir mótmælin og þar af eru 1.800 íbúar Grafarvogs á kosningaraldri. Bent er á að í nú verandi skipu- lagi sé vel séð fyrir allri þeirri þjón- ustu sem verið sé að þröngva inn á nýtt skipulag. Þar að auki séu bensínstöðin og söluturninn mjög óheppileg fyrir umferðarkerfið og að umferð muni aukast mjög um Gagnveg og Fjall- konuveg. í næsta nágrenni sé þétt íbúðabyggð, íþróttamiðstöð, grunn- skóli, hjúkrunarheimili og dagheim- ili. Þá segir, „Aukin bílaumferð skap- ar stóraukna umferðarhættu fyrir gangandi umferð, sérstaklega við skólann og íþróttahúsið, en þaðan mun leið bamanna örugglega liggja yfír Gagnveg í söluturninn innan um umferð bensínstöðvarinnar. Ekki verður séð að sölutum og bensínstöð styrki fallegt náttúrulegt umhverfi á Hallsholti. Þaðan nær grænt íþrótta- og átivistarsvæði alla leið niður að sjó.«ið .Grafarvog sem mun rofna ef þessi starfsemi verður að veruleika.“ h f I I I I I I h

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.