Morgunblaðið - 03.11.1993, Qupperneq 16
16
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 1993
Stefna í heilbrigðis-
niáluin barna og ungl-
inga er nauðsynleg
eftirHerthu W.
Jónsdóttur
Þegar rætt er um vistun sjúkra
barna og unglinga, er oft spurt
hver sé stefna heilbrigðisyfirvalda
og oft án þess að fá svör. Nokkur
undanfarin ár hafa þáverandi heil-
brigðismálaráðherrar verið spurðir
um slíka stefnu. Á haustfundi
hjúkrunarforstjóra og hjúkrunar-
framkvæmdastjóra, þ. 22. okt. sl.,
var núverandi _ heilbrigðis- og
tryggingamálaráðherra, Guðmun-
ur Arni Stefánsson, spurður hvort
hann hefði áætlanir um stefnu í
heilbrigðismálum barna og ungl-
inga. Hann svaraði að svo væri
ekki en ræddi síðan um stöðu
barnadeiidanna.
Mjög brýnt er að stjórnvöld
vinni heildarstefnu í heilbrigðis-
málum barna og unglinga. Þar er
átt við forvarnir til að hindra sjúk-
dóma og slys, sem skóla og heilsu-
gæslustöðvar gætu séð um að
hluta, sem og úrlausnir vegna
veikinda og slysa, þar með talin
aðstaða á sjúkrahúsum.
Þau 36 ár sem liðin eru frá því
fyrsta barnadeildin var opnuð á
Landspítalanum hefur ekki verið
mótuð ákveðin stefna varðandi
sjúkrahúsvistun barna og ungl-
inga. Síðan hafa tvær barnadeildir
verið opnaðar, ein á Landakoti og
önnur á Fjórðungssjúkrahúsinu á
Akureyri. Þessi ár hafa skapast
vissar hefðir fremur en stefna
varðandi verkaskiptingu, en þó
mjög ómarkvisst. Bamadeildirnar
tvær hér á höfuðborgarsvæðinu
hafa skipt með sér bráðavöktum
þannig að Barnaspítali Hringsins
á Landspítala hefur sinnt z/3 af
vaktabyrði hvers mánaðar, en
bamadeildin á Landakoti ‘A . Nú,
þegar talað er um að flytja bama-
deildina frá Landakoti, er mjög
brýnt að skoða gaumgæfilega hvar
hagkvæmast er að koma þeirri
starfsemi fyrir. í þeirri umræðu
verður að hafa í huga- hagsmuni
skjólstæðinganna út frá þjóðhags-
legu sjónarmiði, þannig að hag-
kvæmni og sparnaður sé í fyrir-
rúmi. Ennfremur þarf að horfa til
framtíðar.
Kvenfélagið Hringurinn hefur
barist fyrir því svo áratugum
skiptir að sérhannaður barnaspít-
ali verði byggður, og nú hefur
Stjórnarnefnd Ríkisspítala ákveðið
að barnaspítali verði byggður á lóð
Landspítala á ámnum 1994-
1997. Undirbúningur er kominn
vel af stað og því skiptir miklu
máli að allir taki höndum saman
og sameinist um að flýta byggingu
bamaspítala svo hægt sé að veita
börnum og unglingum þá bestu
sjúkrahúsþjónustu sem völ er á.
Þangað til sá draumur rætist, að
sérhannaður barnaspítali verði að
vemleika, má færa rök fyrir því
að Barnaspítali Hringsins taki að
sér bráðavaktir höfuðborgar-
svæðisins og aðra nauðsynlega
sérhæfða þjónustu, í stað þess að
byggja upp stóra deild á Borgar-
spítala eins og rætt hefur verið
um.
Vistun sjúkra barna
Varðandi aðstöðu og vistun
sjúkra barna eru tvö megin mark-
mið sem eiga vaxandi fylgi að
fagna víða erlendis:
1. Forðast í lengstu lög að barn
leggist á sjúkrahús, þ.e. veita
læknismeðferð utan sjúkrahúss og
bjóða upp á heimahjúkrun eða
meðferð á göngudeildum.
2. Stytta sjúkrahúsdvöl eins og
hægt er, sé ekki komist hjá inn-
lögn.
Samkvæmt þessum markmið-
um er ljóst að aukinn skilningur
er á því að barni líður best í eigin
umhverfi og er öruggast með sín-
uin nánustu skyldme'nnum.
Á ráðstefnu um Heilbrigði
barna 2000 (Child Health 2000),
er haldin var í Vancouver í Kanada
á síðasta ári, var mikið rætt um
stuðning við fjölskylduna, fræðslu
til foreldra og barna, heimahjúkr-
un, eða það sem kallað hefur ver-
ið „frá sjúkrahúsi til samfélags“.
Þar var einnig rætt um sérhæfingu
í hjúkrun og Hospice fyrir börn,
svo unnt væri að veita hjúkrun í
umhverfi barnsins.
Hertha W. Jónsdóttir
„Það væri skref aftur á
bak ef peningar væru
settir í að byggja upp
stóra sérhæfða deild
fyrir börn á Borgarspít-
ala og bygging Barna-
spítala tefðist. Því skul-
um við ekki láta slíkt
gerast, heldur vinna að
stefnu í heilbrigðismál-
um barna og unglinga
sem stuðlar að einni
sterkri sjúkrastofnun.“
Á Barnaspítala Hringsins hefur
mörg undanfarin ár verið unnið
markvisst að þeim megin mark-
miðum sem áður hafa verið nefnd
og starfseminni breytt til að aðlag-
ast nýjum viðhorfum. Deildum
hefur verið breytt í 5-daga deild,,
opin mánudag til föstudags, þar
sem miðað er við stuttar innlagn-
ir, og hinsvegar dagdeild, þar sem
einungis er um að ræða vistun frá
morgni til síðdegis. í undirbúningi (
er frekari útfærsla á slíkum
rekstri, þar sem fleiri og fleiri
geta notfært sér hana. Ennfremur
hafa hjúkrunarfræðingar veitt
fræðslu í skólum og leikskólum
um einstök sjúkdómstilfelli. Þó (
þetta sé enn í litlum mæli er þó
verið að mæta þörfinni og vinna
að hugtakinu „frá sjúkrahúsi til
samfélags". Fræðslan er m.a. til
að auka meðferðarheldni og koma
í veg fyrir endurinnlagnir. Á þessu
ári var enn bætt við þjónustuna
og opnað bókasafn fyrir foreldra,
þar sem völ er á sérstaklega völdu
efni um ýmsa sjúkdóma.
Barnaspítali — sterk
sjúkrastofnun
íslendingar geta verið mjög
stoltir af þeirri þróun sem hefur
orðið í barnalækningum og barna-
hjúkrun hér á landi og á það við
um allar barnadeildir landsins. Það
sem skiptir mestu máli er sú
menntun, starfsreynsla, þekking
og mannkærleiki sem starfsfólk
barnadeilda býr yfír. .
Það sem okkur vantar er betra \
húsnæði. Nýr barnaspítali er í far-
vatninu. Við skulum því flýta okk-
ur hægt nú þegar verið er að tala
um að flytja barnadeildina á
Landakoti í húsnæði í B-álmu
Borgarspítala, sem upphaflega var
hannað fyrir aldraða.
Fyrir þetta húsnæði hafa lands-
menn greitt háar upphæðir í
Framkvæmdasjóð aldraðra í þeirri
góðu trú að það kæmi öldruðum
að gagni. í þessu millibilsástandi
þar til nýr barnaspítali rís er eðli-
legast að skipta verkum á skyn-
samlegan hátt. Nú þegar eru mörg
börn innlögð á Borgarspítala af
Framleiðni sjávarútvegs
er mun meiri en í öðr-
um atvinnugreinum
Athugasemdir vegna viðtals við Harald Sumarliðason
Framleiðni sjávarútvegs
eftir Halldór G.
Eyjólfsson
Á undanförnum árum hefur
hlútfall sjávarútvegs í vöruútflutn-
ingi þjóðarinnar aukist á nýjan
leik og er nú orðið rúm 80% vöru-
útflutningstekna þjóðarinnar, sjá
nánar mynd 1. Þessi þróun hefur
átt sér stað á sama tíma og afla-
samdráttur hefur orðið. Aflasam-
drátturinn hefur verið mestur í
þorski, en þess má geta að verð-
mæti þorskafla hefur verið
40-45% af heildarafla lands-
manna. Árangur fyrirtækja í sjáv-
arútvegi á undanförnum árum er
því enn athyglisverðari samanbor-
ið við aðrar atvinnugreinar.
í viðtali við Morgunblaðið síð-
astliðinn sunnudag segir Haraldur
Sumarliðason formaður nýstofn-
aðra Samtaka iðnaðarins: „Því
miður hefur geysileg sóun verið
stunduð í sjávarútveginum og hún
hefur ekki aðeins verið þeirri at-
vinnugrein erfið heldur hefur hún
komið sérstaklega illa niður á iðn-
aðinum.“ Þegar undirritaður las
fyrrnefnt viðtal átti hann erfítt
með að átta sig á hvað hinn ný-
kjömi formaður væri að fara og
þá sérstaklega hvað hann ætti við
með tilvitnuninni hér að ofan.
Staðreynd málsins er nefnilega sú
að sjávarútvegur hefur á undan-
förnum árum náð langtum meiri
framleiðniaukningu en iðnaðurinn
„Þegar litið er á fram-
leiðni fjármagns kemur
í ljós að framleiðni-
aukningin í sjávarút-
vegi hefur aukist um
4%, en minnkað um 40%
hjá iðnaði, að frátalinni
stóriðju. Þegar litið er
á árangur þjóðfélagsins
í heild þá hefur fram-
leiðni fjármagns
minnkað um 14%.“
og á það bæði við, um framleiðni
mælda í fjármagni og vinnuafli.
Þjóðhagsstofnun hefur reiknað
Halldór G. Eyjólfsson
út framleiðni vinnuafls og fjár-
magns undanfarin 18 ár fyrir mis-
munandi atvinnugreinar, sjá mynd
2 og 3. Niðurstöður þessara út-
reikninga sýna að framleiðni
vinnuafls í sjávarútvegi á tímabil-
inu 1973-1990 hafi aukist um
58%, en í iðnaði er aukningin 39%
og í verslun er framleiðniaukning-
in 20%. Þegar litið er á framleiðni
fjármagns þá kemur í ljós að fram-
leiðniaukningin í sjávarútvegi hef-
ur aukist um 4%, en minnkað um
40% hjá iðnaði, að frátalinni stór-
iðju. Þegar litið er á árangur þjóð-
félagsins í heild þá hefur fram-
leiðni ijármagns minnkað um 14%.
Þessar tölur staðfesta að sjávar-
útvegurinn hefur staðið sig afar
vel miðað við aðrar atvinnugrein-
ar. Fullyrðingar Haraldar Sumarl-
iðasonar um geysilega sóun í sjáv-
arútveginum eiga því ekki við rök
að styðjast, ef mið er tekið af
öðrum atvinnugreinum.
Núllstefnan
Á undanförnum árum hefur
sjávarútvegurinn búið við núll-
stefnu. Með núllstefnu er átt við
þá stefnu stjórnvalda að skrá
gengið þannig að sjávarútvegur-
inn sé rekinn án hagnaðar að
meðaltali. Þetta hefur verið gert
með því skammta íslenskum út-
flutningi og þar með sjávarútveg-
inum tekjur, sem fást af sölu þess
erlenda gjaldeyris, sem fengist
hefur með sölu vara á erlendum
markaði. Með þessu móti hafa
stjórnvöld gefið neyslunni (inn-
flutningnum) meira svigrúm en
framleiðslunni. Ein af megin af-
leiðingum núllstefnunnar er sú að
skuldir hafa hlaðist upp hjá sjávar-
útvegsfyrirtækjum og eru þær nú
um 110 milljarðar. Núllstefnan
i
í
I
Verðmaeti vöruútflutnings 1980 - 1992
Hlutfallsleg skipting í %
100
Mynd 1
Framleiöni fjármagns
Vísltölur 1973 = 100
«3fin*M0o>o-Nn>tin'Ot'000>i
hhr'hl'C-hOOCOCCOOCOMCCOOOOCOI
O'O'CTvQ'O'ýO'CöO'O'CöO'b'O'J'
Heimild; Þjóöhagsstofnun
Mynd