Morgunblaðið - 03.11.1993, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 1993
23
Fjölmenni á tón-
listardegi í Garði
Garði. ^ ^
TÓNLISTARSKÓLANEMAR á Suðurnesjum komu saman í nýja
íþróttahúsinu okkar í tilefni tónlistardags. 600-700 manns komu
á tónleikana víðs vegar að af Suðurnesjum.
Mikill fjöldi upprennandi tónlist-
armanna tók þátt í flutningi tón-
listarinnar sem að mestu voru ís-
lenzk verk. Samkomunni lauk með
fjöldasöng við undirleik hljóm-
sveitar tónlistarskólanna.
Nokkur þúsund manns hafa far-
ið í gegnum íþróttahúsið frá því
það var opnað. Hefir verið uppá-
koma fiest kvöld þar sem sýndar
hafa verið flestar íþróttagreinar
og hafa áhorfendur verið mjög
margir öll kvöldin. Fjöldi manns
hefir notfært sér sundlaugina en
ekki hefir verið borgað fyrir afnot
af mannvirkjunum þessa fyrstu
viku.
Forsvarsmenn hússins og
byggðarlagsins eru að vonum kátir
þessa dagana en vonast er til að
heimamenn nýti sér húsið til hins
ýtrasta.
- Arnór
Morgunblaðið/Arnór
Tónlistarfólk framtíðarinnar
BÖRNIN skipuðu veglegan sess á Tónlistardögum sem Suðurnesjamenn héldu í Garðinum.
Athugasemdir Rík-
isendurskoðunar
Ekki hlut-
verk Land-
græðslunn-
ar að stunda
hrossarækt
LANDGRÆÐSLA ríkisins hefur
haft telq'ur og gjöld vegna hrossa
í hennar eigu en samkvæmt forða-
gæsluskýrslu frá nóvember 1992
voru 62 hross I eigu Landgræðsl-
unnar. Ríkisendurskoðun telur að
það samrýmist ekki hlutverki
landgræðslunnar að stunda
hrossarækt og hefur beint því til
landbúnaðarráðuneytisins að taka
mál þetta til athugunar.
Ríkisendurskoðun yfírfór bókhald
Landgræðslunnar i mars sl. og gerði
ýmsar athugasemdir. í skýrslu um
endurskoðun ríkisreiknings kemur
fram að nú þegar sé búið að bæta
úr ýmsu sem athugasemdir voru
gerðar við. Ríkisendurskoðun gerði
m.a. athugasemdir við að land-
græðslan fór 25 millj. kr. fram úr
flárheimild síðasta árs fyrst og
fremst vegna stofnkostnaðar án
heimilda.
Gerðar voru athugasemdir við að
einungis hluti af aðkeyptum akstri
stofnunarinnar hafi verið í þágu
stofnunarinnar en að öðru leyti hafi
verið um að ræða akstur starfs-
manna til og frá vinnu. Gerð var
athugasemd við að starfsmönnum
væri greitt fyrir akstur umfram
1.000 km. á ári, án þess að fyrir
lægju samningar um akstur og að
greiðslur til starfsmanna vegna akst-
urs til og frá vinnu væru ekki sam-
kvæmt kjarasamningum. Þá taldi
Ríkisendurskoðun að ekki væri sam-
ræmi í greiðslum fyrir afnot af hús-
næði í eigu Landgræðslunnar og
dæmi væru um að ekkert væri greitt
fyrir afnotin.
----♦ » ♦---
Vörur með 4%
kjötinnihaldi
án vörugjalds
Landbúnaðarráðherra telur að
niðurstaða viðræðna við EB um
landbúnaðarmál sé viðunandi fyrir
Islendinga. Jón Helgason, Fram-
sóknarflokki, gerði fyrirspurn til
landbúnaðarráðherra á Alþingi
varðandi þetta efni og hvernig
hefði tekist að standa vörð um
hagsmuni landbúnaðarins.
I svari Halldórs Blöndals landbún-
aðarráðherra kom fram að enn hefði
ekki verið gengið frá öllum atriðum
í þessum viðræðum en í heild virtist
niðurstaðan viðunandi fyrir íslend-
inga. Hann sagði að EB hefði gert
kröfu um að vörur með allt að 10%
kjötinnihaldi yrðu án vörugjalds en
íslendingar viljað miða við 1%. Gerð
hefði verið málamiðlun um að kjöt-
innihaldið mætti vera 4% sem hann
taldi að varla myndi skaða íslenska
hagsmuni.
Núer
tvöfaldur
Saðast var
haiin
80325.000kr.
Spilaðu með fyrir kl. 4
á miðvikudaginn!