Morgunblaðið - 03.11.1993, Page 25

Morgunblaðið - 03.11.1993, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 1993 25 De Benedetti yfirheyrður af saksóknara Hlutabréf Oliv- etti halda velli á mörkuðunum Róm. Reuter. ITALSKI kaupsýslumaðurinn Carlo De Benedetti sætti ströngum yfirheyrslum í gær en hann gaf sig fram við lögreglu í Mílanó í gærmorgun. Skömmu áður höfðu yfirvöld gefið út á hann hand- tökuskipun vegna meintrar aðildar að mútumálum og annarri spillingu. De Benedetti var þegar í gær fluttur frá Mílanó til yfirheyrslna í gömlu klaustri við ána Tíber, skammt frá Róm. Honum var sleppt úr fangelsi í gærkvöldi og færður stofufangelsi þess í stað. Hlutabréf í Olivetti-fyrirtækinu, sem hann stjórnar, lækkuðu nokkuð á verðbréfamörkuðum í gærmorgun en réttu á ný úr kútnum. Lögmenn De Benedettis gerðu sér í gærkvöldi vonir um að hann þyrfti ekki að eyða nóttinni í fanga- klefa. Auðjöfurinn fór sjálfur á fund saksóknara fýrir nokkrum mánuð- um og viðurkenndi að hafa beitt mútum til að fá opinbera embættis- menn á sitt band, hann hefði orðið að gera það sama og allir aðrir fjár- málamenn á Ítalíu. Auk heimsþekktra stjórnmála- Drengir fyrir rétti MYNDATAKA er ekki leyfð við réttarhöld yfir hinum ungu banamönnum James Bulger en myndin sýnir hvernig sakamannabekkurinn lítur út með augum teiknara. Réttarhöldin yfir ungum banamönnum James Bulger Sakbomingamir kenna hvor öðmm um ódæðið manna hafa nokkrir af fremstu kaupsýslumönnum landsins nú orð- ið rannsókn á spillingarmálum að bráð og hafa sumir þeirra fyrirfarið sér. Meðal þeirra var fyrrverandi forstjóri Feruzzi-samsteypunnar, Raul Gardini. Olivetti-fyrirtækið, sem átt hefur í miklum fjárhagserfiðleikum að undanförnu, er hluti samsteypu sem De Benedetti stjórnar. Er hún met- in á 10 milljarða Bandaríkjadollara, um 700 milljarða króna. Sérfræð- ingar segja að fjárfestar muni fyrst verða órólegir ef De Benedetti þurfi að sitja lengi inni. Hann gerði Oli- vetti, sem áður var þekkt fyrir rit- vélaframleiðslu sína, að risafyrir- tæki í tölvuiðnaði. í samsteypunni eru fjölmiðlar á borð við La Repubblica, er birti ítar- lega frétt um handtökuskipunina, einnig fjármálafyrirtæki og verk- smiðjur. Að sögn La Repubblica varaði saksóknari við því að De Benedetti myndi ef til vill reyna að eyðileggja sönnunargögn í málinu sem hann ætti yfir höfði sér. London. Daily Telegraph. RICHARD Henriques saksóknari hélt því fram í gær við rétt- arhöld yfir tveimur 11 ára drengjum í bænum Preston í norð- urhluta Englands, að þeir hefðu af ráðnum hug ginnt tveggja ára pilt, James Bulger, frá móður sinni í verslunarhúsi í Liver- pool 12. ferbúar sl. og síðan murkað úr honum lífið. Hefðu þeir gert sér fulla grein fyrir hugsanlegum afleiðingum verkn- aðarins. „Burtséð frá aldri þeirra er því haldið fram að það hafi verið ásetningur beggja að drepa James eða að minnsta kosti að meiða hann mjög alvarlega. Og þeir vissu báðir að misgjörð þeirra var alvarleg," sagði Henriques. Saksóknarinn krafðist þess að drengirnir yrðu dæmdir til lífstíð- arhegningar. Þar sem þeir eru ekki orðnir 15 ára er samkvæmt breskum lögum aðeins hægt að dæma þá til fangavistar að ákæru- valdinu takist að sannfæra kvið- dóm um að piltarnir hafi fyrirfram gert sér fulla grein fyrir því að þeir væru í þann mund að fremja alvarlegan glæp. Vegna aldurs sakborninganna var fjölmiðlum einungis leyft að kalla þá barn A og barn B. Þeir eru ákærðir fyrir mannrán og morð og tilraun til mannráns því rétt áður en þeim tókst að ginna Bulger í burtu frá móður sinni, að sögn Henriques, tókst konu á síð- ustu stundu að koma í veg fyrir að þeir tældu jafn gamlan son hennar burt. Að sögn saksóknara námu pilt- arnir tveir Bulger á brott er móðir hans beið í biðröð í verslun. Streitt- ist hann stundum á móti á fjög- urra kílómetra göngu til morðstað- arins og létu þeir þá höggin dynja á honum og sögðu fólki sem undr- aðist framferði þeirra að þetta væri óþægur bróðir sem væri að óhlýðnast þeim. Henriques sagði líkkrufningu hafa leitt í ljós að pilturinn hefði verið laminn með múrsteinum og járnstöngum. Lífið hefði smám saman verið murkað úr honum. Hefðu piltarnir skilið líkið eftir síð- degis á járnbrautarteinum í hverf- inu Walton -og þar hefði lest ekið yfir það árla næsta dag. Mannrán- ið átti sér stað á föstudag en líkið fannst ekki fyrr en á sunnudag. Neita sakargiftum Sakborningarnir tveir neita öll- um sakargiftum. Skýrt var frá því á öðrum degi réttarhaldanna í gær hvernig þeir kenndu hvor öðrum um verknaðinn við yfirheyrslur hjá lögreglu. Á fyrstu dögum yfir- heyrslunnar eru þeir sagðir hafa logið að lögreglu og breytt fram- burði sínum ítrekað áður en þeir leystu frá skjóðunni. Fulltrúar félagsmálastofnunar Liverpool hafa fylgt drengjunum inn í réttarsalinn og setið við hlið þeirra þar en piltarnir eru vistaðir hvor á sínum stað á vegum stofn- unarinnar. í salnum sátu þeir hoknir með krosslagðar hendur og virtust ekki botna neitt í neinu. Þegar ákæra á hendur þeim var lesin sýndi A engin viðbrögð. Þeg- ar Henriques lýsti í smáatriðum meðferð þeirra á James Bulger byijaði B að kjökra og tók um handlegg fylgdarmanns síns og hallaði sér að honum. Foreldrar B hafa verið í réttarsalnum tvo fyrstu dagana. Sömuleiðis hefur Ralph Bulger, faðir hins myrta, verið við- staddur en kona hans, sem komin er átta mánuði á leið, ekki. —..--------- Ræður Deng Xiaopings Biðraðir við bókabúðir Peking. Reuter. NÝTT safn af mikilvægum ræð- um Deng Xiaopings, helsta valdamanns í Kína, kom í versl- anir í Peking í gær og var barist um ritið. „Langar biðraðir voru við allar helstu bókaverslanir höfuðborgarinnar, “ sagði opin- bera fréttastofan Xinhua. í ræðunum, sem nú voru að koma út og sumar í fyrsta sinn opinber- lega er m.a. fjallað um efnahagsum- bætur, framtíð Hong Kong, einnig þá ákvörðun stjómvalda kommún- ista að bijóta á bak aftur uppreisn- ina á Torgi hins himneska friðar árið 1989. Kvennagaldur er reykvísk ástarsaga sem gerist í nútímanum. Aðalpersónan, skarpgreindur fjölmiðlamaður á fertugsaldri, nýtur mikillar kvenhylli enda hefur hann hlotið viðurnefnið „eftirsóttasti piparsveinn landsins". í Ijós kemur hins vegar að ást hans er gædd meiri hita en úthaldi. í samkvæmi einu tekur atburðarásin óvænta stefnu og afleiðingarnar verða í samræmi við það. Við sögu koma nokkrar bráðlifandi persónur - dæmigert nútímafólk á besta aldri - sem í mörgum tilvikum mun orka kunnuglega á lesendur. <á ALMENNA BÓKAFÉLAGIÐ Kvennagaldurs, Björgúlfur Olafsson, er 31 árs Reykvíkingur. Hann hefur áður sent frá sér tvær skáldsögur sem báðar nutu mikilla vinsælda meöal íslenskra lesenda. <4 HF

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.