Morgunblaðið - 03.11.1993, Page 40

Morgunblaðið - 03.11.1993, Page 40
40 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 1993 Mats Sjölander og Mikael Öster undirbúa rétti kvöldsins í eldhúsi Hótel Holts. Hér eru þeir að útbúa hörpudisk með trufflum og öðru góðgæti. MEISTARAKOKKAR Sýnishom af matseðli Westra Piren á Holtinu Tveir af matreiðslumeisturum hins þekkta sænska veitinga- staðar Westra Piren í Gautaborg, Mikael Öster og Mats Sjölander, hafa þessa vikuna séð um matargerð- ina á Hótel Holti. Hefur gestum ver- ið boðið upp á sjö rétta máltíð með víni á vægu verði. Þeir segja þessa rétti vera gott sýnishom af þeirri matargerð, sem stunduð sé á Westra Piren. Hún sé hvorki sænsk né frönsk heldur einfaldlega „Westra Piren“. Veitingastaðurinn er staðsettur við mynni hafnarinnar í Gautaborg og var hann opnaður í mai 1990. Öster- íjölskyldan, sem á Westra Piren, hefur einnig rekið Tanums Gastgi- veri og fleiri staði um árabil. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem meðlimur Öster-íjöiskyldunnar er gestakokkur á íslandi. Steinar Öster, faðir Mikael, var í því hlutverki á Naustinu fyrir um tíu árum. Þetta er líka í fjórða skipti sem Mikael kemur til Islands þó að þetta sé í fyrsta skipti sem hann sé hér gesta- kokkur. COSPER Hættu nú! Annars fáum við aldrei aftur frímiða! „Þetta hefur lengi verið í deigl- unni. Vigdís Finnbogadóttir hélt móttöku á Westra Piren skömmu eftir að við opnuðum og þá vorum við með aðeins ístensk áhrif í matar- gerðinni. Við höfum þar. að auki átt samstarf við Hótel Holt í gegnum Relaix & Chateux. Það er mjög mikil- vægt að veitingastaðir sem eiga í samskiptum séu í svipuðum gæða- flokki en bæði við og Holt erum „gourmet“-veitingahús,“ segir Öster. Michelin-stjarna 1992 Westra Piren fékk hina eftirsóttu Michelin-stjömu árið 1992 og hélt henni áfram á þessu ári. Einungis sjö staðir í Svíþjóð eru nú með stjörnu, þ.a. tveir til viðbótar í Gauta- borg og fjórir í Stokkhólmi. Staðirn- ir vom fleiri fyrir nokkrum árum en Öster segir efnahagskreppuna hafa haft töluverð áhrif á sænsk veitinga- hús. Það sé of dýrt fyrir flesta að haida háum gæðaflokki á þessum tímum og því sé megináherslan á góða, einfalda og tiltölulega ódýra rétti. „Við opnuðum hins vegar í miðri kreppunni og höfum því miðað allt við það ástand frá upphafi. Á þessu ári hefur reksturinn gengið framúrskarandi vel og var fullbókað á hveiju einasta kvöldi frá bytjun maí til loka september. Bókunarfyr- irvarinn í sumar var tvær vikur ef fólk vildi fá borð.“ Öster segir erfitt að skilgreina matarstefnu Westra Piren sem hefð- bundna eða ekki hefðbundna. Matar- gerð í háum gæðaflokki byggi ávallt á ákveðnum grunni en sé jafnframt í stöðugri þróun. „Við höllum okkur auðvitað í átt að Frakklandi enda er uppruni svo margra hluta í matar- gerð þaðan kominn. Hins vegar leggjum við einnig áherslu á sænsk hráefni og hugsunarhátt. Þannig næst mun betri árangur en ef maður reynir að apa eftir algjörlega frönsk- um stíl sem hugsanlega á ekki við að öllu leyti.“ Hann segir hugmyndina á bak við kokkaskipti vera að læra hvor af öðrum en einnig að gefa gestum kost á að reyna eitthvað nýtt. í síð- ustu viku sáu tveir af matreiðslu- meisturum Hótel Holts, þeir Eiríkur Ingi Friðgeirsson og Hallgrímur Þor- láksson, um matargerðina á Westra Piren og var það ! annað skipti sem þangað komu gestakokkar. íslenskir kokkar í Gautaborg „Mér finnst líka mjög áhugavert að fá að gestakokka hér á Holti. Maturinn sem ég hef fengið í þau skipti sem ég hef borðað hér hefur verið frábær,“ segir Mikael Öster. Hann og Eiríkur Ingi voru sam- mála um að það hefði tekist mjög vel til er matreiðslumeistarar Holts sáu um matargerðina á Westra Pir- en. Uppákoman hafði verið vel kynnt í fjölmiðlum og var aðsókn því ágæt. Svo vildi til að um svipað leyti var verið að opna sýningu á verkum Erró í borginni og kom hann ásamt Sigríði Snævarr, sendiherra íslands í Svíþjóð, og fuiltrúum úr íslensku og sænsku listalífi í kvöldmat síðast- liðinn laugardag. VERSLUN McEnroe opnar listhús Tennisleikarinn John McEnroe hefur sett á stofn listhús í Soho á Manhattan sem ber nafnið „The John McEnroe Gall- ery“. Listhúsið er að vísu ennþá bara opið samkvæmt beiðni, en áætlað er að það verði opnað fyrir almenning snemma árs 1994. John McEnroe starfar nú við tenni- slýsingar í sjónvarpi, en kannski verð- ur hann virtur listsaii innan árs. Tennisleikarinn, sem hef- ur safnað listmunum und- anfarin fimmtán ár, hefur nýverið tekið sjö mánaða námskeið í fræðunum. Með- al þess sem hann hefur lært er hvernig eigi að reka listhús og hvemig þekkja eigi verðmæta muni frá eft- irlíkingum. Kiwanis-menn sem lögðu leið sína á jökulinn. Morgunbiaðið/Aifons KIWANIS-HREYFINGIN Heimsfor setinn heim- sækir Olafsvík Arthur Svanberg heimsforseti Kiwanis-hreyfingarinnar, eig- inkona hans og fýlgdarlið komu til Ólafsvíkur fyrir skömmu, þar sem félagsmenn Kiwanis-klúbbsins Korra tóku á móti þeim. Haldið var beint á Snæfellsjökul, þrátt fyrir að ekki viðraði vel. Var af þeim sökum ekki hægt að fara alla leið á toppinn. Arthur átti engin orð til að lýsa hrifningu sinni og sagði í samtali við Morgunblaðið að þrátt fyrir leiðindaveður myndi hann aldrei gleyma þessari ferð. Að jöklaferðinni lokinni buðu Kiwanis-menn til hádegisverðar á heimili Ómars Þórhallssonar forseta Korra. Var boðið upp á íslenskan mat og kunnu hinir erlendu gestir vel að meta veitingarnar, en meist- arakokkurinn Þórður B. Ríkharðs- son sá um matseld. Alice og Arthur Svanberg kappklædd við upphaf ferðar sinnar á Snæfellsjökul. I

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.