Morgunblaðið - 03.11.1993, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 1993
47
Hvað tilgangi þjónar
Ríkisútvarpið?
Frá Aöalheiði Jónsdóttur:
HVERS konar Ríkisútvarp vill ís-
lenska þjóðin hafa? — Vill hún sætta
sig við að pólitískir vindbelgir innan
stofnunarinnar reki þar linnulausan
j áróður gegn sjónarmiðum sem eru
andstæð þeirra eigin eins og marg-
sinnis kemur fram bæði í stjórnun
Þjóðarsálar á Rás 2 og umræðu-
þáttum í Sjónvarpi, þar sem stjórn-
lausir stjómendur vaða elginn og
virðast fjarri því að skilja hlutverk
sitt, láta móðan mása og taka gjarn-
an stóran hluta þess tíma sem þætt-
inum er ætlaður til að viðra eigin
skoðanir, þótt þeirra hlutverk sé
aðeins að hafa með að gera stjórn-
unina? — Ég læt nægja að benda
hér á þátt, sem mig minnir að héti
því furðulega nafni: Á sauðkindin
Island?
Án þess að ég ætli að segja mik-
j ið um þennan þátt, þá var nafnið
ekki fáránlegra en flest það sem
stjórnandinn hafði fram að færa.
» Svo er að sjá sem á Sjónvarpinu
sé orðin óviðunanleg yfirstjórn
þessara mála og víst er um það að
■ mikið hefur því hrakað í seinni tíð.
Margir menn innan stofnunarinnar
hafa stjórnað mjög vel þáttum og
ég hygg að ýmsir þeirra starfi þar
enn en hvers vegna er þeim haldið
til baka og í þeirra stað teknir glam-
urgosar sem tekst að gera þættina
afkáralega, þó að þar séu mættir
menn, sem hafa bæði vilja og getu
til að stuðla að góðum og fræðandi
þætti?
En burt séð frá þessu öllu væri
gaman að vita hvaða tilgangi á að
þjóna þáttaröð, sem mig minnir að
nefndist: Þjóð í hlekkjum hugar-
farsins og virtist eiga að sýna þjóð-
inni í spegil fortíðar og kostaði víst
um 12 milljónir að framleiða, að
vísu horfði ég ekki á þennan saman-
setning, en hefi ýmislegt um hann
heyrt.
Er ætlast til að litið sé á þetta
sem sagnfræðilegar heimildir? —
Ef svo er verður það að kallast al-
varlegt mál. — Eftir því sem sagt
var um þessa þætti eru þar nafn-
greindir ýmsir menn, sem sagðir
eru hafa framið grimmdarlegustu
níðingsverk. — Eru ekki lágmarks-
kröfur að fram séu lagðar öruggar
sannanir fýrir slíkum sögum? Það
hefir mér skilist að ekki sé gert,
svo að slíkt hlýtur þá að skoðast
sem tilhæfulausar gróusögur.
Gróa á Leiti þótti ekki sérlega
geðsleg sögusmetta, en sú Gróa
sem þarna fer með söguburð sýnist
þó margfalt skaðlegri og illvígari,
þar sem ráðist er að látnum mönn-
um og nöfn þeirra ötuð slíkum sví-
virðingum.
Væri ekki höfundi þessara þátta
mestur greiði gerður með þvi að
þurrka þá út? Væri það ekki líka
heppilegast fyrir Sjónvarpið? Varla
eykur það hróður þess að hafa
stuðlað að framgangi þessa verks
og tekið það til sýninga. Mörgum
fannst víst nóg komið á því kær-
leiksheimili, þótt ekki bættist þetta
við — um þá hluti hefur margt ver-
ið rætt og ritað og skal ekki fjölyrt
um hér. En það mega þeir vita sem
hlut eiga að máli, að þjóðin hlýtur
að skilja hvar hundur liggur graf-
inn, þótt allt eigi að vera í myrkrun-
um hulið.
Kannski hefði Ríkisútvarpið gott
af að losa sig við allt sem veldur
meinsemdum í stofnuninni, án þess
mun varla því óhugnanlega gjörn-
ingaveðri sem þar hefír ríkt um tíma
linna ... Þjóðin á kröfu á að Ríkisút-
varpið sýni óhlutdrægni og geri
ekki mannamun og það er „hið
versta mál“ ef stjórnmálaflokkar
geta komið í veg fýrir það ... Þá
er alveg eins gott að lofa einkavæð-
ingunni að fá þett'a allt fýrir lítið
eða ekkert eins og þeir heiðursmenn
hafa lengi þráð. Það getur þá
kannski lent í sama pakka og Stræt-
isvagnar Reykjavíkur!
AÐALHEIÐUR JÓNSDÓTTIR,
Kaplaskjólsvegi 55,
Reykjavík.
Pennavinir
Tékkneskur 26 ára karlmaður
með áhuga á tónlist, sundi og list-
málun:
Miroslav Kacmar,
Prostejovska c.101,
Presov 08001,
Czechoslovakia.
Frá Ghana skrifar 23 ára stúlka
með áhuga á tónlist, póstkortasöfn-
un o.fl.:
Ellen Naana Quansah,
c/o Mr. Cassius Richard
Mends,
P.O. Box K43,
Cape Coast,
Ghana.
Sextán ára þýsk stúlka með
áhuga á körfubolta, tennis, badmin-
ton, ferðalögum, tónlist o.fl.:
Tanja Cornelissen,
Jakob-Kneip-Strasse 61,
40595 Diisseldorf,
Germany.
Frá Eistlandi skrifar 47 ára karl-
maður vill skiptast á frímerkjum,
mynt, orðum, heiðurspeningum og
póstkortum:
Andy Kirss,
P.O. Box 106,
EE 3300 Kuressaare,
Estonia.
Níu ára tékkneskur piltur með
áhuga á dýrum:
Jiri Bares,
DNV 102,
507 81 Lazne Belohrad,
Czech Republic.
Miðborgin enn
Frá Ásu Sigurðardóttur:.
Lögreglan í Reykjavík á mikið
undir því komið að hafa gott sam-
starf við almenning. Þess vegna
> ætti hún að láta sér vel líka þegar
borgarbúar segja skoðanir sínar.
Það lýsir alls ekki neinni óvild í
hennar garð, þvert á móti áhuga.
Merkileg þóttu mér orð rann-
sóknarlögreglumanns í sjónvarps-
I viðtali nýlega þess efnis, að spila-
kassar espi unglinga til hnupls o.fl.
afbrota. Þessu ætti að gefa gaum.
Einnig þau orð landlæknis að of-
beldi hafi nálega tvöfaldast eftir
tilkomu glæpamynda í sjónvarpi.
Þetta eru hlutir sem unnt er að
færa til betri vegar. Hins vegar
gagnar ekkert að herða lögregluað-
gerðir í miðborginni, beita kylfum,
táragasi og fjöldahandtökum, eins
og aðstoðar yfírlögregluþjónn bend-
ir réttilega á í Morgunblaðsgrein
26. október. Slíkar aðferðir kalla á
mótleik óknyttastrákanna, gijót-
kast, flöskubrot og annað verra.
Yfírvöld í London hafa ekki viljað
vopna sína lögreglu skambyssum,
þótt hún hafí orðið að þola misjafnt.
Lögregluliðið er skipað vel hæf-
um mönnum sem borgarbúar bera
traust til. Þó má sjá af blaðaskrifum
að ýmsir hafa efasemdir um
ómerkta lögreglubfla, falda sjón-
varpsskerma og símahleranir sem
gætu gengið of langt, þó að leyfðar
séu. Þetta minnir um of á gamalt
kerfí „austan tjalds“ sem viðkom-
andi þjóðir hafa hrundið af sér.
ÁSA SIGURÐARDÓTTIR,
Ljósheimum 9,
Reykjavík.
V
I
I
VELVAKANDI
LELEG
SÍMAÞJÓNUSTA
Gunna hringdi í Velvakanda
og var alveg öskureið yfír þeirri
símaþjónustu sem hún fékk hjá
fyrirtækinu íslenskum sjávaraf-
urðum á dögunum. Hún þurfti
að ná í tvo aðila þar og fékk
loðin svör um hvenær hægt
væri að ná í þá. Hún varð pirruð
á þessu og kvartaði yfír því við
símastúlkuna sem var að sögn
Gunnu frek og hortug og endaði
með því að símastúlkan skellti
á hana. Slíka framkomu átti
Gunna erfítt með að líða hjá
fólki í þjónustugeiranum.
ÍSKÓLA VANTAR
í HAGKAUP
Kári hringdi til að kvarta yfir
því að í Hagkaupum er afar
sjaldan hægt að fá sykurlaust
ískóla, en nóg er til af öðrum
sykurlausum gosdrykkjum.
Hann gerði sér 10 ferðir í Hag-
kaup í sumar og aldrei var þessi
vara til. Einnig finnst honum
furðu sæta hvað sumum merkj-
um er gert hærra undir höfði
en öðrum og nefndi hann kaffí
sem dæmi.
KURTEIS SÖLUBÖRN
í KOLAPORTINU
Einar fór í Kolaportið og var
yfír sig hrifín af börnum sem
þar voru að selja vörur í sölubás-
um, því þau voru svo kurteis og
yndisleg að eftir var tekið.
„FRAMHJÁHALD“
Anna skrifaði Velvakanda og
sagði að í tilefni af margum-
ræddum sjónvarpsþætti um
framhjáhald, þar sem einn þátt-
takenda talaði um „framhjáhald
innan gæsalappa", spunnust
nokkrar umræður og
vangaveltur meðal starfsfólks á
skrifstofu geðdeildar Land-
spítalans að Kleppi og kom út
úr því eftirfarandi vísukorn:
Framhjáhöldin finnast enn
þótt fjarska mörgu spilli.
Gerið ekkert, góðir menn,
gæsalappa milli.
TAPAÐ/FUNDIÐ
Kápa tapaðist
RAUÐBRÚN ullarkápa var
tekin í misgripum á Fógetanum
aðfaranótt laugardagsins. Sá
sem kynni að hafa hana undir
höndum vinsamlega skili henni
á Fógetann eða hafí samband í
síma 642163.
Læða í óskilum
GRÁBRÖNDÓTT-hvít læða
fannst fyrir utan Laugarásvídeó
við Laugarásveg föstudaginn
29. október sl. Hún er mjög blíð
og greinilega heimilisköttur.
Eigandinn getur vitjað hennar í
síma 19425.
Brúskur er týndur
GULBRÖNDÓTTUR högni
tapaðist frá heimili sínu í
Hjálmholti mánudaginn 25.
október. Hann er níu mánaða,
eyrnamerktur og með bláa ól.
Finnandi vinsamlega hringi í
síma 677324.
—---—T— —--—
Enn um Breska togara
ogíslandsmið 1889-1916
Frá Gunnari H. Ingimundarsyni:
í Morgunblaðinu laugardaginn 16.
október sl. birtist leiðrétting við frétt
um útgáfu bókar á ensku, sem áður
hafði verið gefín út undir heitinu
Breskir togarar og íslandsmið 1889-
1916 eftir Jón Þ. Þór. Sú villa slædd-
ist þá inn að Fjölvi hefði gefið hana
út á íslensku 1982. Hið rétta er að
Hið íslenska bókmenntafélag gaf
bókina út í harðbandi árið 1982. Jafn-
hliða var bókin gefín út í kilju í ritröð-
inni Safn til sögu íslands og íslenskra
bókmennta, öðrum flokki, II, 3.
Báðar þessar útgáfur eru ennþá
fáanlegar hjá Bókmenntafélaginu, en
líklegt er að útgáfa kiljunnar hafí
farið fram hjá bókasöfnum og bóka-
söfnurum. Til frekari skýringar eru i
í öðrum flokki Safns til sögu íslands
ritin Njála í íslenskum skáldskap eft-
ir Matthías Johannessen ritstjóra,
11,1. (1958) og Nöfn íslendinga árið
1703 eftir Ólaf Lárusson prófessor,
II,.2. (1960). Auk þess má geta nýj- -
asta ritsins í þessum sama flokki, II,
4.; Mannanöfn á íslandi samkvæmt
manntölum 1801 og 1845, sundurlið-
uð tala þeirra eftir sýslum. Bjöm
Magnússon prófessor tók saman og
taldi (1993). Með þessu hefti er lokið
útgáfu annars bindis, annars flokks
þessarar ritraðar. Þess má geta að
ritröðin hefur komið óreglulega út í
síðan 1852.
GUNNAR H. INGIMUNDARSON
HANDSALI
>
ETVSaNVH
EIGENDUR HUSBREFA ATHUGIÐ
Söluverð húsbrcfa getur verið mismunandi.
Handsal hf. aðstoðar eigendur og seljendur húsbréfa við að
finna besta fáanlegt verð fyrir húsbréfin á hverjum tíma.
Leitið upplýsinga hjá húsbréfasölu Handsals hf.
HANDSAL HF.
LOGGILT VERÐBREFAFYRIRTÆKI • AÐILl AÐ VERÐBREFAÞINGIISLANDS
ENGJATEIGI 9 • 105 REYKJAVIK • SÍMI 686111 ■ FAX 687611
Efþærkoma...
...þá væri afleitt að missa af þeim.
...verður dvölin engu síðri, enda
varst þú hvort sem er ekki einn af þeim
sem trúðir á komu þeirra.
Hvernig sem fer...
, ...þá erum við tilbúin að takast á við það
sem að höndum ber.
s
Jarðarbúar, jafnt sem aðrar geimverur, verið
velkomin að njóta helgarinnar hjá okkur.
/ : • ' • .• ' .. ,v
Súkkat skemmtir föstudag og laugardag!
Ekki missa af fyrstu áætluðu komu geimvera
til jarðar, á Snæfellsjökul 5. nóvember 1993.
Vinsamlegast staðfestið pantanir.
HÓTEL BÚÐIR
Staðasveit á Snæfellsnesi, sími 93-56700