Morgunblaðið - 03.11.1993, Page 51
KNATTSPYRNA
KR - Snæfell 92:85
íþróttahúsið Seltjamarnesi, Úrvalsdeildin í
körfuknattleik, þriðjud. 2. nóvember 1993.
Gangur leiksins: 0:2, 10:4, 16:16, 21:16,
25:26, 36:32, 46:36, 50:41, 53:51, 57:59,
68:70, 75:70, 81:72, 85:76, 89:79, 92:85.
Stig KR: Davíð Grissom 25, Hermann
Hauksson 19, Mirko Nikolic 16, Ólafur
Ormsson 12, Guðni Guðnason 11, Tómas
Hermannsson 6, Lárus Ámason 3.
Stig Snæfells: Ghip Entwistle 33, Kristinn
Einarsson 20, Bárður Eyþórsson 18, Hreið-
ar Hreiðarsson 7, Hjörleifur Sigurþórsson
3, Atli Sigurþórsson 2, Sverrir Þór Sverris-
son 2.
Dómarar: Bergur Steingrímsson og Krist-
inn Óskarsson. Sluppu fyrir hom.
Áhorfendur: Um 300.
Tindastóll - Valur 101:76
Sauðárkrókur:
Gangur leiksins: 0:6, 11:6, 19:11, 25:21,
31:31, 33:34, 37:36, 45:39, 60:44, 68:44,
79:54, 86:67, 95:72, 101:76.
Stig Tindastóls: Ingvar Ormarsson 30,
Robert Buntic 28, Páll Kolbeinsson 17, Hin-
rik Gunnarsson 15, Ómar Sigmarsson 5,
Björgvin Reynisson 3, Garðar Halldórsson
3.
Stig Vals: Brynjar Karl Sigurðsson 30,
Guðni Hafsteinsson 23, Pranc Booker 6,
Guðmundur Guðjónsson 5, Ragnar Þór
Jónsson 3, Bjarki Guðmundsson 3, Bergur
Emilsson 3, Bjöm Steffensen 2, Daniel
Galvez 1.
Dómarar: Ámi Freyr Sigurlaugsson og
Kristján Möller dæmdu mjög vel.
Áhorfendur: Tæplega 600.
Handknattleikur
Stjarnan- KR....................19:15
Ásgarður, íslandsmótið í handknattleik, 1.
deild kvenna, þriðjud. 2. nóvember 1993.
Gangur leiksins: 7:0, 7:2, 9:3, 12:5, 16:6,
16:10, 18:12, 19:15.
Mörk Stjömunnar: Ragnheiður Stephen-
sen 6, Una Steinsdóttir 5, Hmnd Grétars-
dóttir 3, Herdís Sigurbergsdóttir 3, Guðný
Gunnsteinsdóttir 2.
Varin skot: Nína Getskó 18 (þaraf 3 til
mótheija), Sóley Halldórsdóttir 2.
Utan vallar: 2 mínútur
Mörk KR: Edda Garðarsdóttir 5, Anna
Steinsen 4, Laufey Kristjánsdóttir 3, Brynja
Steinsen 1, Nellý Pálsdóttir 1, Sigríður
Pálsdóttir 1.
Varin skot: Vigdís Finnsdóttir 8, Bryndís
Einarsdóttir 6/1.
Utan vallar: 2 mínútur.
Dómarar: Kjatan Steinback og Ólafur H.
Steingrimsson.
Knattspyrna
Evrópukeppni féiagsli&a
Seinni leikir í 2. umferð:
Karlsruhe, Þýskalandi:
Karlsruhe - Valencia (Spáni)........7:0
Schmitt (29., 34., 59., 63.), Schuetterle
(37.), Schmarov (46.), Bilic (90.). 25.000.
■Karlsmhe vann 8:3 samanlagt.
Istanbul, Tyrklandi:
Besiktas - Ajax Amsterdam...........0:4
Jari Litmanen (19., 71., 74.), Stefan Pett-
ersson (77.). 27.000.
■Ajax vann 6:1 samanlagt.
Antwerpen, Belgíu:
Antwerpen - Salzburg (Austurríki)...0:1
Wolfgang Feiersinger (84.). 6.500.
■Salzburg vann 2:0 samanlagt.
Iraklio, Gríkklandi:
OFI Crete - Atletico Madrid (Spáni).2:0
Nikos Mahlas (51.), George Tsifoutis (64.).
13.000.
■OFI vann 2:1 samanlagt.
Leverkusen, Þýskalandi:
Leverkusen - Panathinaikos (Grikklandi)l:2
Kirsten.(83.).r.Saravakos.(6..sisp.),.GeQrgia-
dis (66.). 15.000.
■Leverkusen vann 5:3 samanlagt.
Tórínó, Ítalíu:
Juventus - Kongsvinger (Noregi).....2:0
Andreas Möller (27.), Fabrizio Ravanelli
(68.). 8.000.
■Juventus vann 3:1 samanlagt
Budapest, Ungverjalandi:
MTK Budapest - Mechelen (Belgiu)....1:1
Zoltan Kovacs (59.) - Carlos Pereira (10.).
1.500.
■Mechelen vann 6:1 samanlagt.
■Þessi leikur var númer 11 á Eurotips-get-
raunaseðlinum og þar sem sölukerfið lokar
ekki fyrr en kl. 15.55 í dag verður fjölmiðl-
aspá frá fjómm löndum látin skera úr um
hvaða tákn gildir.
Engiand
Mánudagur:
Úrvalsdeild:
West Ham - Man. City................3:1
(Burrows 3., Chapman 29., Holmes 70.) -
(Curle 85. - vsp.). 16.605.
í kvöld
Handknattleikur
1. deild karla:
Garðabær: Stjarnan - FH.....20
Höllin: KR-Valur............20
Varmá: UMFA-KA..............20
Vfkin: Víkingur-ÍBV.........20
Akureyri: Þór - Selfoss..20.30
1. deild kvenna:
Höllin: Ármann - Haukar...18.15
Seltjarnames: Grótta - Fram.20
Valsheimili: Valur-FH........18
Körfuknattleikur
Bikarkeppnin:
Strandgata: Haukarb - UBK....19.45
Seljaskóli: ÍR-Reynir.......20
Seljaskóli: Léttir-UMFNb..21.30
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 1993
Morgunblaðið/Sverrir
Davíð Grissom ver hér skot frá þjálfara Snæfellinga, Kristni Einarssyni.
KRvirðist
á réttrí leið
Skúli Unnar
Sveinsson
skrifar
ÞEGAR dregið var í riðla í Úr-
valsdeildinni f körfuknattleik
töldu menn við fyrstu sýn að
B-riðill væri mun erfiðari og
sterkari en A-riðill. í gærkvöldi
voru fyrstu leikirnir þar sem
leikið er á milli riðla og þá sigr-
uðu liðin úr B-riðli og renndu
þar með stoðum undir grun
manna um að sá riðill væri
sterkari. KR-ingar lögðu efsta
lið A-riðils, Snæfell, 92:85, og
á Sauðárkróki sigraði Tinda-
stóll lið Vals 101:76.
KR-ingar virðast vera á réttri
leið því í gærkvöldi lék liðið
ágætlega á köflum og góð stjómun
af bekknum, þar
sem Lazlo Nemeth
ræður ríkjum, hafði
mikið að segja.
Hann lét tvo úr byij-
unarliðinu hvíla lengi vel eftir að
ljóst varð að þeir ætluðu ekki að
ná sér á strik en setti þá síðan inná
á mikilvægum tíma í síðari hálfleik
og hrukku þeir þá heldur betur í
gang báðir tveir. Þetta voru þeir
Guðni Guðnason og Zerbinn Mirko
Nikolic.
Fyrri hálfleikur einkenndist af
miklum hraða og hræðilega mörg-
um mistökum. Bæði lið léku stífan
varnarleik en engu að síður komust
leikmenn í góð skotfæri sem misfór-
ust. Síðari hálfleikur var mun betur
leikinn og jafnræði var allan tím-
ann. KR-ingar voru reyndar full
bráðir á stundum og þá skipti Lazlo
með góðum árangri. Sóknirnar urðu
lengri og markvissari og undir lokin
héldu þeir knettinum enda Snæfell
aðeins búið að fá á sig fimm villur
og KR hélt því boltanum þó gestirn-
ir gerðust brotlegir.
Chip Entwistle var yfirburðar-
maður á vellinum. Hann er gríðar-
lega snöggur inni í teignum og
þegar hann fær boltann og kemst
á ferðina stoppar hann fátt. Bárður
lék vel í fyrri hálfleik en var í
strangari gæslu í þeim síðari. Krist-
inn stóð vel fyrir sínu. Snæfellingar
hittu áberandi vel úr vítaskotum
og trúi ég að aðeins tvö slík skot
hafi misfarist. Hjá KR var Grissom
mjög góður. Ólafur kom sterkur
inná og Hermann lék mjög vel í
fyrri hálfleik.
Annar sigur Tindastóls
Guðni Hafsteinsson var með
tvær þriggja stiga körfur fyr-
ir Val á fyrstu sekúndunum gegn
Tindastóli í gær-
kvöldi, en þá tóku
heimamenn við sér
og skoruðu 11 stig
í röð. Þeir héldu
uppteknum hætti fram í miðjan
fyrri hálfleik, léku sterka vörn og
tóku Frane Booker úr umferð, sem
varð til þess að Valsmenn náðu
engum tökum á leiknum fyrr en
Tindastólsmenn slökuðu á í vörn-
inni. Þá léku gestirnir reyndar mjög
vel og komust yfir með Brynjar
Karl Sigurðsson fremstan í flokki.
Ekkert gekk hjá Valsmönnum
eftir hlé og eftir fimm mínútur var
ljóst hvert stefndi, en þá hafði
Tindastóll náð 20 stiga forskoti.
Lið Tindastóls small saman að
þessu sinni og fagnaði öðrum sigri
sínum í deildinni. Ingvar Ormarsson
átti stórleik, en allt liðið var mjög
gott.
Guðni Hafsteinsson og Brynjar
Karl Sigurðsson stóðu einir uppúr
hjá Val.
Björn
Bjömsson
skrifar frá
Sauöárkróki
Sigurjón ífimmta sæti
Siguijón Arnarsson úr GR dvelur
í vetur í Flórída þar sem hann
æfír golf og tekur þátt í atvinnu-
mannamótum sem áhugamaður. Sig-
uijón tók í síðustu viku þátt í fyrsta
mótinu og varð í fimmta sæti.
„Þetta er allt mjög spennandi og
skemmtilegt og árangurinn í fyrsta
mótinu ýtir aðeins undir sjálfstraust-
ið. Ég lenti aldrei í neinum erfíðleik-
um, utan einu sinni þegar kalla varð
á dómara og hann dæmdi boltann
minn útaf. Það kostaði mig tvö
högg,“ sagði Siguijón í samtali við
Morgunblaðið.
Siguijón tekur þátt í mótaröð sem
nefnist Golden Coast Pro Golftour
og er á West Palm Beach svæðinu.
Fyrsta mót hans var á velli sem heit-
ir Matrin Downs og er 6.300 metra
langur par 72 en erfiðleikastuðull
(SSS) hans er 74. Sigutjón lék báða
dagana á 74 höggum og lenti í 5.
sæti af 25 keppendum. Hefði hann
verið atvinnumaður hefði sætið gefið
tæpar 30 þúsund krónur.
„Það er rándýrt að taka þátt í
þessum mótum, ef ég hefði verið
atvinnumaður hefði þátttökugjaldið
verið rúmar 25 þúsund krónur þann-
ig að þetta stendur allt á endum.“
Sigurvegarinn fékk rúmar 86 þúsund
krónur í sinn hlut, en hann lék á 143
höggum.
Siguijón sagði gamlan draum vera
að rætast hjá sér. „Mig hefur lengi
dreymt um að prófa hvort ég gæti
eitthvað í golfí ef ég yrði erlendist í
einhvem tíma og nú er sá draumur
að rætast. Ég verð hér fram að ára-
mótum en ætla þá að fara upp til
Orlando því þar er meira um að vera.
Þetta er rosalega skemmtilegt og þó
þetta sé dýrt þá er kosturinn sá að
maður er að leika á frábærum völl-
um, sem maður kæmist varla á nema
svona því þeir eru flestir lokaðir fyr-
ir almenningi," sagði Siguijón sem
reiknar með að taka þátt í tveimur
mótum á mánuði í vetur.
Topplið Drott
tapaði íTyrklandi
Sávehof tapaði með 17 marka mun í Sviss
Sænsku handboltafélögin þijú
sem enn eru með í Evrópu-
keppninni riðu ekki feitum hesti frá
gmm leikjum sínum um
Frá Grétari helgina - töpuðu öll.
Þór Eyþórssyni Drott, sem er efst i
/ Sviþjóó sænsku deildinni,
tapaði fyrir tyrk-
neska liðinu Cabdjuam 31:29 í Tyrk-
landi og þykir það mikið áfall fyrir
sænskan handknattleik að tapa fyrir
tyrknesku liði, en Tyrkir hafa ekki
verið sterkir í handboltanum hingað
til.
Skövde tapaði fyrir Plock í Pól-
landi, 26:22 og Sávehof, sem lék til
úrslita um sænska meistaratitilinn í
fyrra, tapaði fyrir svissneska liðinu
Pfadi í Winthertur með hvorki meira
né minna en 17 marka mun, 31:14,
og er nánast úr leik.
Af sænsku deildarkeppninni er
það að frétta, að Drott er efst með
15 stig eftir 8 leiki, Sávehof er í
öðru sæti með 11 stig ásamt Irsta,
Skövde er með 10 stig, Lugi og
Saab með 8 og sænsku meistararnir
sjálfir í Redbergslid eru með 7 stig.
Sverrlr Sverrlsson
Sverrir
ILeiflur
Sverrir Sverrisson hefur
gengið frá félagaskiptum
úr Tindastóli í Leiftur, Olafs-
firði. Sverrir, sem er bróðir Eyj-
ólfs hjá Stuttgart, hefur verið
einn marksæknasti leikmaður
Tindastóls undanfarin ár, en
1991 lék hann alla leiki KA í
1. deild og gerði þá fjögur mörk.
Leiftursmenn, sem voru ná-
lægt því að vinna sér sæti í 1.
deild síðsumars, hafa misst Pét-
ur Marteinsson í Fram og óvist
er hvað Gústaf Ómarsson gerir,
en að öðru leyti halda þeir sama
mannskap og á liðinni leiktíð.
Þrír til
Spánar
Þrír íslenskir atvinnukylf-
ingar taka þátt í atvinnu-
mannamóti á Spáni dagana 17.
- 20. nóvember. Þetta eru þeir
Arnar Már Ólafsson, John
Drummond og Úlfar Jónsson.
Nokkur undanfarin ár hafa
golfkennararnir hérlendis tekið
þátt í móti sem þessu en nú
kemur Úlfar inn í liðið í fyrsta
sinn. Mótið er á sama tíma og
Evrópumót liða en þar keppir
sveit Keilis. í mótinu, sem fram
fer á La Manga skammt frá
Alicante, eru þrír í hverri sveit
og tveir telja á hveijúm hring.
KORFUKNATTLEIKUR
GOLF
HANDKNATTLEIKUR