Morgunblaðið - 03.12.1993, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 03.12.1993, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. DESEMBER 1993 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. DESEMBER 1993 29 JMtogtmiftifrife Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Ritstjórnarfulltrúi Árvakur h.f., Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Björn Vignir Sigurpálsson. Kringlan 1, 103 Reykjavík. Símar: Skiptiborð 691100. Auglýsingar: 691111. Áskriftir 691122. Áskriftargjald 1400 kr. með vsk. á mánuði innanlands. í lausasölu 125 kr. með vsk. eintakið. Stýríng á neyzlu mjólkurafurða Akvörðun fimmmanna- nefndar um breytta verð- lagningu mjólkurafurða hefur vakið hörð viðbrögð neytenda og þeirra sem láta sig heilsu- far þjóðarinnar varða. Ástæð- an er sú að með verðstýringu er ætlunin að fá fólk til að neyta fituríkari mjólkurafurða en fyrr og eyða þannig smjör- fjalli, sem er sem óðast að hlaðast upp. Miðstýring í verð- lagningu mjólkurafurða þrífst enn í skjóli einokunaraðstöðu, því samkeppnin er engin í verði eða gæðum. Fimmmannanefnd hefur það hlutverk að ákveða heild- söluverð á búvörum. Nýtt kerfi í verðlagningu mjólkurafurða, sem nú hefur komið til fram- kvæmda, byggist á því að bændur fái meira greitt fyrir eggjahvítuinnihald mjólkur en fítu. Afurðastöðvarnar munu framvegis miða við það að 75% verðsins verði fyrir eggja- hvítuinnihald en 25% fyrir fitu í mjólkinni. Rökin eru þau að birgðir af fítu séu orðnar vandamál. Á því byggist ákvörðun fimmmannanefndar að smjör lækki í verði um 28,2%, nýmjólk, léttmjólk og rjómi um 1,5% og feitasti brauðosturinn um 1,8%. Aftur á móti hækkar undanrenna um 37,8%, skyr um 23,3%, fjörmjólk um 3% og fítulítill ostur um 9,3%. Þessi verðbreyting er mjög mikil og bitnar illa á þeim sem hafa vanið sig á að neyta fítu- lítilla mjólkurvara, t.d. undan- rennu, hvort sem er af heilsu- farsástæðum eða fjárhagsleg- um. Neytandinn á engan ann- an kost, ef hann vill halda áfram að drekka undanrennu, en að borga uppsett verð, þar sem engin er samkeppnin. Langmesta lækkunin er á smjöri, sem bætir samkeppnis- stöðu þess verulega við annað viðbit, og er það gert með til- vísan til fituinninhalds. Hins vegar lækkar ijómi óverulega, þrátt fyrir mikla fítu. Rjóminn er ekki í samkeppni við neina sambærilega vöru á markaðn- um eins og smjörið. Það er kannski skýringin á því að fimmmannanefnd telur ekki ástæðu til að lækka ijómann meira, þrátt fyrir fítuinnihald- ið, sem er helzta röksemdin fyrir verðbreytingunni. Ákvörðun fímmmanna- nefndar gengur þvert á mann- eldisstefnu íslendinga, sem Alþingi markaði árið 1989, en hún miðar að því að draga úr fítuneyzlu. Guðmundur Þor- geirsson, hjartalæknir og for- maður Manneldisráðs, segir vegna ákvörðunarinnar að verið sé að beina neyzlunni yfír í fituríkari afurðir sem sé mjög óheppileg þróun. Af heilsufarsástæðum og mann- eldissjónarmiðum eigi að stilla fituneyzlu í hóf. Um 40% af hitaeiningum í fæðu íslend- inga séu fíta, en stefnt sé að því að koma henni niður í 35% að minnsta kosti. „Það er hreinlega verið að gera neyt- endum erfítt fyrir að taka skynsamlegar ákvarðanir þeg- ar þeir velja sér vörur,“ segir formaður Manneldisráðs. Jóhannes Gunnarsson, for- maður Neytendasamtakanna, segir: „Miðstýrð verðlagning hef- ur hvergi skilað sér í góðu til neytenda og nú á tímum er mjög fátítt að sjá svo gríðar- legar verðsveiflur á vörum, eins og nú hefur gerst í mjólk- uriðnaðinum. Ég tel að þetta muni kalla á viðbrögð neyt- enda og út frá manneldissjón- armiðum hlýtur þetta að vera slæm ákvörðun. Fijáls sam- keppni er besta tryggingin fyrir því að verð myndast með þeim hætti að tekið sé ná- kvæmt tillit til kostnaðar." Miðstýring í verðlagningu á ekki rétt á sér almennt talað, en verst er hún að sjálfsögðu þar sem einokun ríkir. Verð- lagning á að sjálfsögðu að fara eftir tilkostnaði við fram- leiðslu og markaðssetningu vörunnar. Frjáls samkeppni er það eina sem tryggir neytend- um lægsta verð og mest gæði vörunnar. Enda hafa lands- menn uppskorið ríkulega, þar sem samkeppni ríkir á mark- aðnum, eins og dæmin sanna. Allt sem truflar eðlilega sam- keppni á markaðnum er af hinu vonda. Verðbreytingin á mjólkurafurðum sýnir hugs- unarhátt einokunarkerfísins og í þessu tilfelli er hún óhæfa, því hún er ákveðin til að knýja neytendur til neyzlu á fítu sem er skaðleg heilsu þeirra að mati vísindamanna. Stjórnvöld eiga að taka í taumana með þeim aðferðum sem þau hafa yfir að ráða. Það er óviðun- andi með öllu að þeir sem standa fyrir þessum verð- breytingum komist upp með þær. AF INNLENDUM VETTVANGI GUÐMUND SV. HERMANNSSON Lagagrundvöllur Kjaradóms og kjaranefndar Urskurðir eiga ekki að raska almennu launakerfi NÝLEGUR úrskurður kjaranefndar um grunnlaunahækkun presta og úrskurður Kjaradóms um yfirvinnugreiðslur til dómara hafa vak- ið hörð viðbrögð samtaka launafólks. Þannig telur forseti Alþýðusam- bands íslands að þjóðarsáttin í atvinnu- og kjaramálum sé í hættu verði ekki snúið af þeirri braut að kjör einstakra embættismanna séu bætt með þeim rökum að um leiðréttingar sé að ræða. Forsætisráð- herra leggur hins vegar áherslu á að þessir úrskurðir skapi ekki fordæmi fyrir aðrar stéttir. Með kauphækkun til presta sé verið að laga starfskjör þeirra að þróun sem orðið hafi hjá aðilum á borð við ASI og Bandalag starfsmanna ríkis og bæja á undanförnum árum og Iögin um Kjaradóm og kjaranefnd geri ráð fyrir að tekið sé mið af almennu ástandi á vinnumarkaði. Hér á eftir verður fjallað um hlutverk Kjaradóms og kjaranefndar og þær forsendur sem eru fyr- ir úrskurðum þeirra. Lögum um Kjaradóm var breytt um síðustu áramót í kjölfar þess að sett voru bráðabirgðalög um dóminn sumarið 1992. Bráðabirgða- lögin voru sett eftir úrskurð dómsins um verulegar breytingar á kjörum þeirra embættismanna sem heyrðu undir dóminn. í bráðabirgðalögun- um sagði að Kjaradómur skyldi taka tillit til stöðu og þróunar kjaramála á vinnumarkaði svo og efnahags- legrar stöðu þjóðarbúsins og af- komuhorfa þess. í ljósi þessara laga felldi Kjaradómur nýjan úrskurð þar sem launabreytingarnar voru teknar aftur. í nýju lögunum var ákvæði um stofnun kjaranefndar sem er eins- konar undirdómur Kjaradóms og tók við hluta af hlutverki Kjaradóms áður. Kjaradómur, sem skipaður er fimm dómendum, á framvegis að ákveða laun forseta Islands, þingfar- arkaup og önnur starfskjör alþingis- manna, launakjör ráðherra, hæsta- réttardómara, héraðsdómara, bisk- ups íslands, ríkisendurskoðanda, ríkissáttasemjara, ríkissaksóknara og umboðsmanns Alþingis. Kjara- nefnd sem skipuð er þremur mönn- um, þar af tveimur sem Kjaradómur tilnefnir, á að úrskurða um starfs- kjör ýmissa forstöðumanna ríkis- stofnana og presta. Bæði Kjaradómur og kjaranefnd eiga samkvæmt lögunum að gæta þess að starfskjör sem ákveðin eru séu í samræmi við laun í þjóðfélag- inu hjá þeim sem sambærilegir geti talist með tilliti til starfa og ábyrgð- ar. Enn fremur skuli Kjaradómur taka tillit til þróunar kjaramála á vinnumarkaði. Kjaradómur og kjara- nefnd eiga að taka mál til meðferðar þegar þurfa þykir og ætíð ef orðið hafi verulegar breytingar á þeim launum sem höfð eru til viðmiðunar. Þá eiga Kjaradómur og kjaranefnd að meta að minnsta kosti einu sinni á ári hvort tilefni sé til breytinga á starfskjörum sem þeir ákveða. Umdeildar reglur í lögunum segir, að Kjaradómur skuli setja kjaranefnd meginreglur um úrskurði nefndarinnar. Þetta hefur Kjaradómur gert og í þeim reglum segir meðal annars, að nefndin skuli gæta þess sérstaklega að úrskurðir hennar raski ekki þeim grunni sem Kjaradómur setur. Aður en úrskurður kjaranefndar sé kveð- inn upp með formlegum hætti skuli hann kynntur Kjaradómi og líti dóm- urinn svo á, að niðurstöður nefndar- innar raski því samræmi sem lögin krefjast, geti hann innan 15 daga beint rökstuddum tilmælum til nefndarinnar um að hún taki ákvörð- unina til umfjöllunar og ákvörðunar á ný. Þetta gerðist í síðasta mánuði þegar Kjaradómur bað kjaranefnd að taka ákvörðun sína um launakjör presta til umijöllunar á ný. Formaður kjaranefndar, Guðrún Zoega sem einnig situr í Kjaradómi, hefur látið í ljós þá skoðun að kjara- nefnd eigi ekki að þurfa að bera- sín mál undir Kjaradóm .og með þessari skipan mála geti Kjaradómur ekki aðeins seinkað ákvörðunum kjara- nefndar, heldur sé hætt við því að mál komist í sjálfheldu, ef Kjara- • dómur sendir mál ítrekað aftur til nefndarinnar. Þorsteinn Júlíusson, formaður Kjaradóms hefur lýst því yfír, að kjaranefnd taki að sjálfsögðu ákvörðun um það með hverjum hætti hún fjalli um tilmæli Kjaradóms, en úrskurðarvaldið sé alfarið kjara- nefndar. Prestar lakar settir Eftir að lögum um Kjaradóm var breytt í lok síðasta árs hefur hann aðeins fjallað um eina starfssétt, það er dómara. í þeim úrskurði var ákveðið að dómarar skuli frá 1. des- ember fá greiddan ákveðinn fjölda yfírvinnutíma fyrir alla yfírvinnu og óreglulegan vinnutíma vegna þess að vinnuframlag dómara Hæstarétt- ar hefði aukist sem og starfsálag héraðsdómara. Hins vegar var ekki talið tilefni til að hækka laun dóm- ara vegna dagvinnu enda hefur eng- in hækkun orðið á grunnkaupi á almennum vinnumarkaði frá því bráðabirgðalögin um Kjaradóm voru sett á síðasta ári. Kjaranefnd kvað síðan upp form- legan úrskurð um starfskjör presta í byijun þessarar viku. Þar kemur fram, að nefndin taldi efnisleg skil- yrði fyrir hendi til að taka starfskjör prestastéttarinnar til endurskoðun- ar. Launakjör presta hafi verið borin saman við launakjör þeirra ríkis- starfsmanna sem að áliti nefndar- innar gætu talist sambærilegir með tilliti til starfa og ábyrgðar. Við þennan samanburð hafí komið í ljós að prestar væru lakar settir og því væri óhjákvæmilegt að hækka grunnlaun presta, þótt svigrúm til slíks væri nokkuð skert, með hliðsjón af úrskurði Kjaradóms um að grunn- laun dómara hækki ekki. Þessi úrskurður hefur valdið nokkurri ólgu meðal samtaka launa- fólks. í Morgunblaðinu á miðvikudag segir Ögmundur Jónasson formaður Bandalags starfsmanna ríkis og bæja, að í framhaldi af ákvörðun kjaranefndar um launahækkun til presta, sé eðlilegt að ríkið sé sjálfu sér samkvæmt og bjóði öðrum ríkis- starfsmönnum samsvarandi hækk- anir. Benedikt Davíðsson forseti Al- þýðusambands íslands segir í sama blaði, að á grundvelli kerfis- um kjaraákvarðanir, sem byggt hafí verið upp utan samninga aðila vinnu- markaðar sé verið að bæta kjör ein- stakra hópa embættismanna um tugi prósentna með þeim rökum að um leiðréttingar sé að ræða og allt bendi til þess að fleiri hópar muni fylgja í kjölfarið. Ef ekki verði snúið af þessari braut sé ljóst að þjóðarsátt- inni hafí verið fórnað. Þegar þetta var borið undir Davíð Oddsson forsætisráðherra, sagði hann að lögin sem Kjaradómur og kjaranefnd byggi störf sín á, gangi út frá því að ekki sé verið að raska hinu almenna launakerfí. „Ég skil rökstuðning kjaranefnd- ar þannig, að verið sé að laga starfs- kjör presta að þeirri þróun sem orð- ið hefur hjá aðilum á borð við BSRB og ASÍ á undanfömum árum en ekki þar umfram. Þess vegna held ég að þessi sérstaka ákvörðun hafí ekki efnisbreytingu í för með sér eða sé fordæmisskapandi fyrir aðra í þjóðfélaginu. Það var raunar svo, að lögin sem sett voru í tilefni af úrskurði Kjara- dóms á sínum tíma [bráðabirgðalög- in sumarið 1992] gáfu ákveðna smugu varðandi dómara og presta en síður fyrir aðra. Kjaradómur og kjaranefnd starfa ekki í umboði rík- isstjórnarinnar eða í samráði við hana, þannig að ríkisstjórnin er ekki að marka neiná stefnu í þessum efn- um og fær þessa niðurstöðu eins og aðrir gegnum tilkynningar dómsins og nefndarinnar," sagði Davíð Odds- son. Skattalagafrumvarpið felur í sér 7-18% innflutningstoll á olíur og feiti Skerðir samkeppnisstöðu innlenda smjörlíkisins Gert er ráð fyrir að tollar á feiti og olíur verði almennt á bilinu 7-18% frá og með næstu áramótum ef frumvarp fjármálaráðherra um breyting- ar á skattamálum nær fram að ganga, en vörur þessar eru tollfrjálsar í dag. Auk þess er gert ráð fyrir að innflutningur á smjörlíki verði leyfð- ur frá og með sama tíma og að tollur á útlendu smjörlíki verði 70-90%. Áætlaðar viðbótartekjur ríkissjóðs vegna þessa eru taldar um 20 milljón- ir kr. Árni Gunnarsson, framkvæmda- stjóri rekstrarfélagsins Sólar hf. segir að með þessu sé ekki aðeins verið að vega að rótum innlendrar framleiðslu á smjörlíki og hollu viðbiti, heldur sé einnig gert að engu það hagræðingar- starf sem verið hefur í undirbúningi í fyrirtækinu til að mæta væntanleg- um innflutningi á tilbúnu smjörlíki. „Verði tillögurnar að veruleika, þurrkast út á einni nóttu öll þessi vinna og hvort tveggja myndi gerast í senn, að framleiðslukostnaðarverð myndi hækka og söluverð lækka. Miðað við núverandi innflutning á olíum og feiti myndi fyrirtækið greiða um 9 milljónir kr. í innflutningstolla. Með 15-18% tolli á hráeftii til iðnað- ar, er samkeppnisstaða innlendra framleiðenda skert sem því nemur, og innlendir framleiðendur beittir bæði órétti og ójafnræði gagnvart erlendum framleiðendum. Tollur á hráefnin er því óskiljanlegur, auk þess sem hann skerðir samkeppnis- stöðu á léttu viðbiti á borð við Léttu, Létt og laggott og Sólblóma gagn- vart mjólkurfitu, sem er andstætt nútíma manneldis- og heilsusjónarm- iðum. Kostnaðarverð algengustu ís- lensku smjörlíkistegundanna mun hækka um tæp 14% á sama tíma og innflutningur verður leyfður á sam- keppnisvörum," segir Árni. Sól hf. hefur leitað til Verslunar- ráðs íslands og Félags íslenskra iðn- rekenda í þeirri von um að þau beiti sér fyrir því að stjórnvöld falli algjör- Iega frá fyrirhuguðum tollum á hrá- efni til iðnaðar enda er allur smjörlík- isiðnaðurinn hér á landi í húfi, að sögn Árna, sem jafnframt bætir við að samkeppnisstaða létta viðbitsins gagnvart smjöri hafi versnað til muna í gær þegar íslenskt smjör var lækk- að í einu vetfangi um heil 28,2%. A Brynjólfur Helgason, aðstoðarbankastjóri Landsbanka Islands Stendur meira upp á aðra en okkur að lækka vextina 79,3 ma.kr. Alm. útlán banka og sparisjóða Reikningsstaða 71,5 ma.kr. Innistæður í bönkum og sparisjóðum Relkningsstaða 31. okt. 1993 Samtals: 154,0 ma.kr. 1,5 UTLAN Yfirdr.lán, 90% nýt. Viðsk.víxlar, 2 m. Víxillán, 2 mán. Alm. skuldabr.lán Afurðalán Verðtryggð lán INNLÁN 24-30 m. verðtr. HH 4<8 Skiptikj. óverðtr. H 3,2* Skiptikj. verðtr. H 2,7’ Ób. sérkj. óverðtr. 11,7* Ób. sérkj. verðtr. 11,0’ Alm. bækur -0,6% | Alm' Raun- ávöxtun banka og sparísjóða m.v. 1,1% verð- lagsspá 22. nóv. '93 (1/9'93-1/3’94) •geturhætóað Yfirlit yfir skiptingu innlána og útlána bankakerfisins eftir einstökum útlánaformum samkvæmt tölum í lok októbermánaðar og raunávöxtun einstakra inniáns- og útlansforma 22. nóvember samkvæmt upplýsing- um í Hagtölum mánaðarins sem Seðlabanki Islands gefur út. Miðað er við áætlaða sex mánaða hækkun lánskjaravísitölu frá september til mars. BRYNJÓLFUR Helgason, aðstoð- arbankastjóri Landsbanka Is- lands, segir að það sé alveg rétt að óverðtryggðir útlánsvextir séu háir um þessar mundir en það standi meira upp á þær banka- stofnanir sem hafi látið vextina elta verðbólgutoppinn síðla sum- ars að lækka vextina en Lands- bankann. Hann hafi ekki hækkað vextina í sama mæli og aðrir og sé þrátt fyrir það ennþá með lægstu vextina. Baldvin Tryggva- son, sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Reylgavíkur og nágrennis segist gera ráð fyrir að nafnvextir lækki á næstunni, þótt hann geri ráð fyrir að menn fari sér hægt í þeim efnum til að koma í veg fyrir þenslu. Brynjólfur sagði að það væri al- veg rétt sem fram kom í Morgun- blaðinu í gær hjá Jóni Sigurðssyni, seðlabankastjóra, að erfíð afkoma bankanna vegna mikilla útlánaaf- skrifta ylli því að nafnvextir lækk- uðu ekki, en vísaði því á bug að fákeppni væri um að kenna. Hann sagði að fimm prósentustiga munur á vöxtum verðtryggðra og óverð- tryggðra skuldabréfa væri of mikill og myndi jafnast út en vildi ekkert fullyrða hvort það yrði fyrir eða eftir áramót. Sex mánaða verð- tryggingartímabilið frá 1. júlí til ársloka ylli erfiðleikum, þar sem innistæður í Landsbankanum væru að verulegu leyti verðtryggðar. Um áramótin tækju gildi reglur um tólf mánaða verðtryggingartímabil og þá væri uppi ný staða. Brynjólfur sagði að þó þessi mun- ur á vöxtum verðtryggðra og óverð- tryggðra skuldabréfa sem kæmi fram i Hagtölum mánaðarins virtist mikill væri hann það ekki í raun varðandi lán tekin í Landsbankan- um, þar sem verðbólguhækkun milli ágúst og september hefði verið mjög mikil og þá hefðu raunvextir óverð- tryggðra lána verið mjög lágir. Ætla mætti að munaði rúmu einu prósentustigi á vöxtum verðtryggðs og óverðtryggðs skuldabréfaláns á síðari helmingi þessa árs frá miðju ári til ársloka. „Líklegt að menn fari sér hægt“ Aðspurður sagðist Baldvin Tryggvason ekkert vilja fullyrða um það hvort vextirnir lækkuðu á næsta vaxtabreytingardegi 11. desember eða ekki, en í nóvemberhefti Hag- talna mánaðarins kemur fram að verulegur munur er á raunávöxtun verðtryggðra og óverðtryggðra lána. Baldvin sagði að þarna væri um að ræða vexti af lánum af ýmsu tagi sem væru yfirleitt til skamms tíma. Aðspurður hvort tæplega fimm prósentustiga munur að lág- marki á verðtryggðum lánum og óverðtryggðum væri ekki óeðlilega mikill sagði hann að það kynni að vera eins og sakir stæðu, en það væri í sjálfu sér ekkert óeðlilegt að það væru eitthvað hærri vextir á skammtímalánum því mikið af þeim væru yfirdráttar- og neyslulán. Fólk færi yfir á hlaupareikningum eða greiðslukortum og þyrfti síðan að skuldbreyta. „Ég get ekki beint séð að maður eigi að lækka mikið vexti á slíkum lánum og örva fólk til að fara yfír á reikningum sínum,“ sagði Baldvin. Hann sagði að verðtryggðu lánin væru yfírleitt til langs tíma og það væri eðlilegt að þau væru með lægri vöxtum en neytendalán til skemmri tíma. Neytendalán væru yfírleitt dýrari erlendis heldur en tíðkaðist hér á landi og það væri engin ástæða til þess að lækka mikið vexti á lánum sem væru beinlínis til þess fallin að auka þenslu. Neytendur um verðbreytingar mjólkurvara Breyta ekki neyslu sinni NOKKRIR neytendur mjólkurafurða sem Morgunblaðið ræddi við í gær voru á einu máli um að þeim þætti verðbreytingar á þeim gegna furðu því þær stríddu gegn manneldissjónarmiðum nútimans sem boði minni neyslu fituríkrar fæðu, en fimmmannanefnd, er ákveður verð á búvörum í heildsölu, ákvað verðbreytingar sem kynntar voru á miðvikudag. Þeir neytendur sem Morgunblaðið ræddi við voru almennt á þeirri skoðun að þeir hygðust ekki breyta neyslu sinni á mjólkurvörum þrátt fyrir verðbreytingar og neyta áfram fituminni vara, en í Morgunblaðinu á miðvikudag kom fram að ein helsta ástæða verðbreytinganna væri sú að fitubirgðir í land- inu væru of miklar. Kaupendur sem rætt var við voru að raða í kerrur sínar úr mjólkur- vörukælinum í einni matvöruverslun Reykjavíkur og kváðust flestir horfa varúðaraugum á breytingarnar. „Ég kaupi bæði smjör og mjólk og er ánægð með lækkanir á smjöri en hefði viljað að léttmjólk og fjörmjólk lækkaði líka, því hún er heilsusam- legri. Heilsusjónarmið virðast ekki hafa verið höfð að leiðarljósi þegar þetta var ákveðið," segir Bjarney Erlendsdóttir en segist þó ætfa að kaupa fituminni vörur áfram. „Við kaupum mikið af mögrum mjólkurvörum á mínu heimili og mér finnst þetta miður,“ segir Hjör- dís Briem um verðbreytingarnar, „miðað við hollustuhætti í dag er þetta hlutfall óeðlilegt og samræm- ist ekki manneldissjónarmiðum. Þetta kemur sér illa fyrir heimilið." Hún kveðst þó ekki ætla að breyta innkaupum sínum og greiða frekar mismuninn. Hagkvæmara að kaupa undanrennuna „Þetta snertir mig lítið því ég nota aðeins um tvo mjólkurpotta á viku, en mér finnst samt óeðlilegt að lækka feitu vörurnar svona svakalega og hefði haldið að hitt væri skynsamlegra," segir Karen Ólafsóttir. „Það er alltaf slæmt þegar góðar vörur hækka í verði og þó að aðrar lækki eru hinar hollari, svo að þetta er ekkert sérlega sniðugt,“ segir Aðalbjörg Ingólfsdóttir sem ýtir á undan sér fullri innkaupakerru og þar af er mikið af hvers kyns mjólk- urvörum. Hún segír breytingarnar ekki endilega koma illa við sitt heim- ili „en það er auðséð að heilbrigðis- sjónarmið ráða ekki ferðinni og mér finnst því breytingin óeðlileg," segir hún. „Mér finnst verðbreytingarnar í einu orði sagt ömurlegar því það Bjarney Erlendsdóttir Áslaug Björnsdóttir Hjördís Briem Halldóra Þorgils- dóttir og sonur. Karen Ólafsdóttir Ragnar Guðmundsson hækkar allt sem ég kaupi mest af, s.s. undanrenna og skyr,“ segir Áslaug Björnsdóttir. „Ég held að þeir séu að reyna að komu út fitu- vörunni á kostnað hinnar og hugsa engan veginn um hollustuna. Það er samt hagkvæmara fyrir mig að kaupa undanrennuna heldur en feitu mjólkina eftir lækkun, því undan- rennan er enn þá ódýrari og þar að auki miklu hollari. Þess vegna kaupi ég hana auðvitað áfram.“ „Ég er auðvitað á móti verðbreyt- ingunni, því við borðum frekar fítu- minni vörur á mínu heimili. Ég breyti samt ekki innkaupunum þannig að ég býst við að þetta hækki matarreikninginn eitthvað. Neyslan breytist ekki þótt að verðið geri það,“ segir Halldóra Þorgilsdóttir. Fitan óholl „Við hjónin drekkum léttmjólk og ætlum ekki að breyta jþví,“ segir Ragnar Guðmundsson. „Eg vil frek- ar kaupa eitthvað sem ég vil og borga aðeins meira fyrir það, heldur en að kaupa eitthvað ódýrara sem ég vil ekki sjá. Það er fullt af fólki sem verður að passa sig á fitunni því það hreyfír sig ekki jafn mikið og það gerði á ungdómsárum. En þeir sem vilja selja vöruna eru að reyna að koma henni á framfæri því hún er minna notuð, enda engum hollt að borða of mikla fitu, og ég hlýt því að vera ósammála aðferðun- um sem eru notaðar til að koma þessari vöru út.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.