Morgunblaðið - 03.12.1993, Blaðsíða 56
Gæfan fylgi þér
í umferðinni
SJOVAolffALMENNAR
MORGUNBLADW, KRINGLAN 1 103 REYKJA VÍK
SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3040 / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTl 85
FÖSTUDAGUR 3. DESEMBER 1993 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK.
Ekki rétt
að bæta kjör
þingmanna
og ráðherra
- segir forsætis-
ráðherra
DAYÍÐ Oddsson forsætisráðherra
telur ekki eðlilegt að ráðherrar
og þingmenn fái kjör sín bætt við
núverandi aðstæður. Komið hefur
fram hjá þingmönnum að þeir telji
eðlilegt að kjör þeirra verði leið-
rétt með hliðsjón af nýlegum úr-
skurði Kjaradóms um að dómarar
fái greiðslur fyrir yfirvinnu en
þingmenn njóta ekki slíkra
greiðslna.
„Það er enginn vafi á því að kjör
þingmanna og ráðherra hafa rýrnað
á undanförnum árum. En það hefur
hreinlega verið gert af ásettu ráði,
svo sem gagnvart ráðherrunum. Þeir
hafa sjálfír breytt regium um bíla-
hlunnindi sér í óhag, þeir hafa breytt
reglum um dagpeninga sér í óhag
og við verðum að vænta þess að
ráðherrar hafi gert þetta vísvitandi.
Þess vegna eigi ekki að bæta þeim
það upp og því tel ég ekki eðlilegt
að slíkir aðilar fái bætur á sínum
kjörum við þessar aðstæður," sagði
Davíð Oddsson við Morgunblaðið.
Fram hefur komið hjá formanni
Kjaradóms í Morgunblaðinu, að
launakjör þingmanna verði sjálfsagt
skoðuð í náinni framtíð. Þá var fyrir
skömmu haft eftir Finni Ingólfssyni
alþingismanni, að þar sem búið væri
að leiðrétta launakjör dómara lægi
beinast við að endurskoða laun þing-
manna enda bæri Kjaradómi að taka
tillit til launaþróunar.
Sjá bls. 28: „Úrskurðir..."
------♦ ♦ ♦ ---
Aldrei fleiri
útlendingar
í nóvember
ERLENDIR ferðamenn sem
komu til Islands í nóvember urðu
fleiri en nokkru sinni fyrr í þeim
mánuði eða alls 7.267 en í fyrra
voru þeir 4.843. Fjölgunin er
rösklega 2.400 manns eða um
50%. Magnús Oddsson, ferða-
málastjóri, sagði að hann teldi
markaðs- og kynningarstarf um
heimsóknir til íslands utan há-
annatímans vera að skila sér, því
engar ráðstefnur eða fjöldafund-
ir voru í mánuðinum.
Af þessum ríflega sjö þúsund
útlendingum höfðu um þúsund eins
dags viðdvöl á leið til Bandaríkj-
anna. Ef þeir eru ekki taldir með
varð aukning „hefðbundinna"
ferðamanna engu að síður veruleg
eða 27% miðað við sama mánuð í
fyrra. Ferðamenn fyrstu 11 mán-
uðina eru 151.473 eða 13.474 fleiri
en í fyrra og er það aukning um
tæp 10%.
Sjá Daglegt líf bls. 1.
■ A
Mannbjörg varð þegar Dröfn strandaði í Hestfírði í Isafjarðardjúpi
Dröfrfé 44;straatlar
við Tjaldtanga um
kl. 15.00 í gær
'BÐUjngar-<ís,
vík •
---\ ’
Hnífsdalur^
ísafjörður) /
Morgunblaðið/Snorri Snorrason
Strandstaður
RÆKJUBÁTURINN Dröfn frá
ísafirði strandaði við víkina
austan megin við Tjaldnes, yst
á nesinu undan fjallinu Hesti.
Býlið Folafótur var á nesinu
norðan við Hest. Á minni mynd-
inni er rækjubáturinn Dröfn ÍS
við bryggju. Hann er enn á
strandstað og óvíst hvort tekst
að bjarga honum.
-T”
Skipveijar segjast ekki
hafa verið í neiimi hættu
Bolungarvík.
RÆKJUBÁTURINN Dröfn ÍS 44 frá ísafirði strandaði við Fola-
fót utanvert í Hestfirði í Isafjarðardjúpi um klukkan 15 í gær.
Tveir menn voru á bátnum og komust þeir í land með línu með
aðstoð björgunarsveitarmanna úr Súðavík sem komu til aðstoðar
á björgunarbát sínum. Guðmann Guðmundsson skipstjóri sagði
að þeir hefðu fengið aðstoð strax og allt hefði farið vel. Við vor-
um ekki í neinni hættu, sagði hann.
Laust eftir klukkan 15 í gær
tilkynnti Loftskeytastöðin á
ísafirði til björgunarmiðstöðvar
Slysavarnafélags íslands að
Dröfn væri í vandræðum með bil-
aða vél á Hestfirði. Á meðan á
samtalinu stóð kallaði skipstjórinn
í Loftskeytastöðina og sagði að
báturinn væri strandaður undan
eyðibýlinu Foiafæti. Björgunar-
sveit Slysavarnafélagsins í Súða-
vík, Kofri, var kölluð út og héldu
menn úr henni á staðinn, bæði á
bát og bíl. Norðaustan 8-9 vind-
stig voru á strandstað og talsverð-
ur sjór. Gunnlaugur Torfason,
einn þriggja manna úr Súðavík
sem voru á björgunarbátnum,
sagði að aðstæður hefðu ekki ver-
ið góðar til björgunar. Sagði hann
að þegar þeir hefðu rennt upp
með Dröfn hefðu þeir ekki náð
að halda bátnum á öldunni þannig
að honum hefði hvolft undir þeim.
Þeim hafi þó tekist að komast upp
í •fjöru með bátinn enda komnir
nálægt landi.
Björgun gekk vel
„Björgun mannanna gekk mjög
vel fyrir sig. Þeir hentu til okkar
spotta og fóru eftir honum í land,“
sagði Gunnlaugur. Lögreglan á
ísafirði ók á bíl eins langt og
hægt er að komast en um klukku-
tíma gangur var fyrir mennina
þangað. Þeir fóru með lögreglu-
bílnum til Isafjarðar og þar voru
teknar af þeim skýrslur í gær-
kvöldi.
Ljóst er að báturinn er eitthvað
brotinn og óvíst hvort hægt verð-
ur að bjarga honum. Ekki var
unnt að eiga við það í gærkvöldi.
Bjargaði Harry Eddom
Guðmann Guðmundsson er
þaulkunnugur á þessum slóðum,
er frá Kleifum í Seyðisfirði. Árið
1968 fórst togarinn Ross Cleve-
land í ofsaveðri á ísafjarðardjúpi
og bjargaði Guðmann, þá fimmtán
ára gamall, Harry Eddom, eina
skipveijanum sem komst Iífs af
úr slysinu.
Gunnar.
Morgunblaðið/Þorkell
Jólatrésala að hefjast
LANDGRÆÐSLUSJÓÐUR verður 50 ára á árinu 1994, en hann var stofn-
aður samhliða lýðveldinu. Hann hefur aflað sér tekna með sölu jólatrjáa
og hefst salan nú um helgina í Suðurhlíð við Fossvogskirkjugarð. Til
sölu verður rauðgreni, stafafura og blágreni úr Borgarfjarðardölum og
reitum á Suðurlandi. Skógræktarfélag Reykjavíkur er einnig að hefja sína
sölu og var myndin tekin er verið var að undirbúa hana í Fossvogi í gær.
Á myndinni eru Auður Jónsdóttir og Steinunn Reynisdóttir, starfsmenn SR.
Meint mismunun í tollaálagningu á jurtaolíu
Lægri tollur vegna
Osta- og smjörsölu
UM áramót leggst 15% tollur á innflutning jurtaolíu ef stjórnar-
frumvarp til laga um breytingar í skattamálum, eða bandormur-
inn svokallaði, hlýtur samþykki. Undantekning frá þessu er sojaol-
ía en aðeins verður lagður 7% tollur á hana. Gunnlaugur Þráins-
son, skrifstofusljóri Innnes hf., sem er einn stærsti innflytjandi
jurtaolíu hérlendis, kveðst sannfærður um að ástæðan fyrir því
að þessi tegund jurtaolíu falli í stakan tollaflokk sé sú að hún er
eitt af meginhráefnum I Smjörva, Léttu og laggóðu og Klípu frá
Osta- og smjörsölunni, sem flytur þessa olíu inn sjálf. „Neyslu er
stýrt í skjóli einokunar í landbúnaði og stjórnvöld taka þátt í leikn-
um með því að leggja tolla á innfluttar samkeppnisvörur og mis-
muna notendum á jurtaolíu með því að draga sojaolíuna út úr,“
segir Gunnlaugur.
Gunnlaugur segir að verið sé
að breyta verðhlutföllum á íslensk-
um landbúnaðarafurðum innbyrðis
eins og verðbreytingarnar á mið-
vikudaginn sýni og einnig sé verið
að reyna að flytja neyslu fólksins
frá hollum olíum til feitrar mjólk-
urvöru sem sé andstætt manneld-
issjónarmiðum. „Ég tel þetta af
sömu rót runnið og það hangi allt
á sömu spýtunni enda án vafa
ákveðið á sama stað,“ segir Gunn-
laugur.
Hann segir að tollabreytingin
skekki samkeppnisstöðu jurtaolíu-
innflytjenda og smjörlíkisframleið-
enda gagnvart innlendum land-
búnaðarvörum. Á sama tíma og
tollabreytingin verður mun virðis-
aukaskattur lækka og segir Gunn-
laugur þá lækkun ekki nægilega
mikla til að vega upp tollinn, sem
leiði til 5-6% hækkunar á verði
jurtaolíu hérlendis.
Sjá fleiri fréttir á miðopnu.