Morgunblaðið - 03.12.1993, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 03.12.1993, Blaðsíða 55
GOLF KNATTSPYRNA / ARSÞING KSI MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FOSTUDAGUR 3. DESEMBER 1993 Atli skodar hjá Bodö/Glimt Atla Einarssyni, knattspyrnu- manni ur Fram, hefur verið boðið að koma til norska félagsins Bodö/Glimt og líta þar á aðstæður með hugsanlegan samning í huga. Atli staðfesti þetta í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi. „Eg bíð í rauninni bara eftir að þeir hafi samband og staðfesti þetta. Líklga fer ég út um miðjan desember," sagði Atli. Forráða- menn félagsins höfðu fyrst sam- band við Atla þegar þeir voru hér á landi vegna samninga við Val vegna Antony Karls Gregory. I norsku deildinni mega þrír erlendir leikmenn leika í hveijum leik og ætlaði Bodö/Glimt að fá rússneskan leikmann sem þriðja útlending til viðbótar þeim Krist- jáni Jónssyni og Antony Karli. Félagið hefur nú hætt við að fá Rússann og vill fá Atla í hans stað. „Ég fer og lít á aðstæður hjá þeim, það kostar ekkert, en það segir ekkert um hvort ég ætla að semja við félagið," sagði Atli i gærkvöldi. ÚRSLIT Eðlilegt Það voru sett íjögur heimsmet á fyrsta degi á heimsmeist- aramótinu í sundi í 25 metra laug sem fram fer á Mallorka. Kínveijar settu þijú þessara meta og sagði Zhou Ming, einn þjálfara Kínveija, að þetta sé eðlilegt og komi ekki á óvart. „Við bjuggumst við þessu. Þetta er fyrsta heimsmeistara- mótið í stuttri laug og árangur- inn hefur ekki verið góður tii þessa þannig að það mátti búast við miklu metaregni," sagði Ming. KNATJSPYRNA KEILA KNATTSPYRNA SKIÐI SUND Handknattleikur 2. deild karla: Fram - Fylkir..............29:25 UBK - Grótta...............26:22 Fjölnir - ÍH............. 26:29 Körfuknattleikur EM félagsliða: Leverkusen: Leverkusen - Guildford Kings.105:57 Þetta var í A-riðli og stigahæstir urðu Abd- ul Shamsid-Deen hjá þeim þýsku en hann gerði 24 stig. Hjá breska liðinu var Tracy Pearson stigahæstur með 17 stig. HM í sprettsundi Keppt er í 25 metra laug á Matlorka á Spáni. 4x200 m fiugsund kvenna: Kína PHeimsmet Astralía ,.7:52.45 .7:56.52 „8:02.99 4x100 m boðsund karla: „3:32.57 •Heimsmet Spánn „3:36.92 „3:37.27 400 metra Qórsund kvenna: „4:29.00 ■Heimsmet Allison Wagner (Bandaríkjunum)... „4:31.76 „4:37.50 400 m fjórsund karla: ..4:10.41 Sergei Mariniux (Moldovíu) Petteri Lehtinen (Finnlandi) 100 m flugsund kvenna: Le Jingyi (Kína) BHeimsmet „4:11.96 „4:12.33 53.01 53 39, Karen Pickering (Bretlandi) 200 m flugsund kvenna: 54.39 ..2:08.51 ..2:09.08 ..2:09 40 200 m flugsund karla: ..1:45.21 ..1:45.53 .1:45.53 HTveir urðu jafnir í 2. sæti og fengu báð- ir silfur. 100 m flugsund karla: Mark Henderson (Bandaríkjunum). Rafal Szukala (Póllandi) 52.92 52.94 Astaá réttrí leið Varð önnur í svigi í Kiruna í Svíþjóð Asta S. Halldórsdóttir skíðakona frá ísafírði hafnaði í 2. sæti í svigi á Alþjóðlegu stigamóti í Kir- una í Svíþjóð í vikunni. Hún var með níunda besta tímann eftir fyrri umferð, en náði langbesta tímanum í síðari umferð. Sigurvegarinn Linda Vikström frá Svíþjóð fékk samanlagðan tíma, 1.50,55 mín. (52,40 í fyrri ferð og 58,15 í síðari), en samanlagður tími Ástu var 1.51,10 mín. (53,86 - 57,24), og hlaut hún 32,90 styrk- leikastig (FlS-stig) sem er besti árangur hennar stigalega séð, en átti áður best 35,59 stig. 79 kepp- endur tóku þátt í mótinu. Hún keppti einnig í svigi á sunnu- dag, en fór þá útúr brautinni í fyrri umferð og hætti. Á laugardag varð hún í 5. sæti í stórsvigi á sama stað og hlaut 52,00 stig, en átti áður best 55 stig. Amór 13. ísvigl Arnór Gunnarsson frá ísafírði keppti í svigi og stórsvigi í Noregi um helgina. Hann varð í 13. sæti í sviginu og hlaut fyrir það 52 stig, sem er veruleg bæting _því hann átti áður best 67,48 stig. í stórsvig- inu hafnaði hann í 20. sæti og bætti sig einnig stigalega þar, hlaut 63 stig en átti áður best 65,58 stig. Úlfar Jónsson hefur örugglega þurft að væta kverkamar þegar hitinn og spennan náði hámarki á lokasprettinum í Flórída þar sem hann sigraði á sínu fyrsta atvinnumannamóti. Fyrsti sigur Úlfars á atvinnumannamóti Ufar Jónsson náði í fyrradag langþráðu takmarki, að sigra á atvinnumannamóti í golfí. Keppnin fór fram í Panama í Florída og er í Emerald mótaröðinni. Úlfar fór á 141 höggi, einu höggi á undan næsta manni, og fékk 1.000 dollara í verð- laun eða um 72.000 krónur. Yfirbyggður völlur er helsta hagsmunamálið - segir Eggert Magnússon, formaður Knattspyrnusambandsins HAGNAÐUR Knattspyrnusambands íslands á starfsárinu er um 3,3 millj. krónur samkvæmt ársreikningum, sem verða lagðir fram á ársþingi KSÍ, en það verður á Hótel Loftleiðum um helgina og hefst kl. 17 í dag. Velta KSÍ var um 91 milljón og verkefnin mörg og viðamikil, en 48 landsleikir voru leiknir á árinu. Að sögn Eggerts Magnússonar, formanns KSÍ, er eitt helsta hags- munamál sambandsins að berjast fyrir yfirbyggðum knattspyrnu- velli, en eins er áfram lögð mikil áhersla á að fá stúku á Laugar- dalsvöll. Eggert sagði að staða KSl væri mjög góð þrátt fyrir óvenju- lega mörg og dýr verkefni.en hrein eign væri um 47 milljónir króna. Mikið starf hefði átt sér stað og nauðsynlegt væri að fylgja því eftir með því að reyna að bæta aðstöð- una. Yfirbyggðir vellir væru ofar- lega í hugum manna og fyrir skömmu var skipuð nefnd manna frá félögum á Norðurlandij Þór og KA á Akureyri, Dalvík, Olafsfirði og Húsavík, til að kanna hvort vilji væri fyrir hendi hjá þessum félögum til að byggja sameiginlegt knatt- spyrnuhús með stuðningi viðkom- andi sveitarfélaga. 38 tillögur til breytinga liggja fyrir þinginu, þar á meðal tillaga að nýrri reglugerð KSÍ um knatt- spyrnumót. 111 fulltrúar eiga rétt til þingsetu, en sú breyting var gerð í fyrra að í stað þess að 150 félagsmenn væru á bak við hvern fulltrúa eins og var er einn fulltrúi fyrir hveija 200 félaga. Eggert Magnússon gefur áfram kost á sér sem formaður til næstu tveggja ára og er ekki gert ráð fyrir mótframboði. Samkvæmt regl- um KSI eiga fjórir menn að ganga úr stjórn, en þeir Guðmundur Pét- ursson, Jón Gunnlaugsson, Eggert Steingrímsson og Helgi Þorvalds- son gefa allir kost á sér áfram. Sama á við um varastjórnina, en Páll Bragason, Elísabet Tómasdótt- ir og Gunnlaugur Hreinsson gefa áfram kost á sér. Samfara ársþinginu verður ráð- stefna eftir hádegið á morgun um hæfileikamótun KSÍ. Flutt verða framsöguerindi og að þeim loknum fjalla umræðuhópar um málefnin, en niðurstöður þeirra verða síðan kynntar sameiginlega. Par vallarins, sem er 6.000 m langur, er 72 högg og fór Úlfar fyrri daginn á 73 höggum, fékk fimm skolla og níu fugla. Seinni dagurinn byijaði illa, en eftir að hafa farið fyrri níu holurnar á pari bætti hann um betur og endaði á 68 höggum. Þetta er besti árangur Úlfars í keppni á meðal atvinnumanna, en 15 keppendur tóku þátt í mótinu. Úlfar er nú í Orlando, þar sem hann æfir sig fyrir mót í Tommy Armour mótaröðinni, sem verður eftir helgi. Það er sterkara mót og fjölmennara, en keppnisdagar verða þrír. Jón setti glæsi- legt íslandsmet JÓN H. Bragason, íslands- meistari í keilu sem keppir fyr- ir Keiiufélag Reykjavíkur, setti glæsilegt íslandsmet i þriggja leikja seríu í deildarkeppninni í keilu í Öskjuhlíð.. Jón náði 751 pinna af 300 mögu- legum, eða 250,3 pinna að með- altali í leik (257 - 259 -235) og bætti gamla metið um 14 pinna. Hann fékk 26 fellur af 36 möguleg- um og fékk m.a. 13 fellur í röð, endaði fyrsta leikinn með átta fell- um og byrjaði annan á fimm fellum og er það óskráð met að sögn Jóns. Eldra metið í þriggja leikja seríu átti félagi hans Valgeir Guðbjarts- son og var það sett í október í fyrra. Jón hefur æft keilu frá því 1987 og æfír nú reglulega íjórum sinnum í viku. „Ég reikna með að þetta met verði ekki slegið á næstunni. Annars veit maður aldrei því keilan er á mikilli uppleið hér og margir góðir. Þetta skor þætti mjög gott á erlendum mótum, en þar þykir ágætt að ná 230 pinnum að meðal- tali í leik,“ sagði Islandsmethafinn. Jón hefur spilað vel í vetur og er með 205 pinna að meðaltali í 1. deild þar sem hann leikur með Lærlingum, sem urðu íslandsmeis- arar í fyrra. Hann sagði að sænsk- ur þjálfari hefði komið til landsins sl. haust með nýjar hugmyndir sem Morgunblaðið/Ámi Methafi JÓN H. Bragason kann lagið á kúl- unni. Hann náði 13 fellum í röð er hann setti íslandsmetið í þriggja leikja seríu í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð. menn hafa verið að þróa með sér. „Það hafa margir bætt sig mjög mikið eftir að Svíinn tók okkur í tíma,“ sagði Jón. Grasshopper efsl Einn leikur fór fram í svissnesku knattspyrnunni í gærkvöldi, Servette vann Xamax 1:0. Grasshopper er í efsta sæti með 28 stig eftir 20 leiki eins og Sion en hefur hagstæðara markahlutfall. í Frakklandi sáu sjö þúsund manns St. Etienne gera jafntefli við Nant- es 1:1 á sínum heimavelli. Gestirnir frá Nantes skoruðu eftir stundarfjórð- ung en heimamenn jöfnuðu á 66. mínútu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.