Morgunblaðið - 03.12.1993, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 03.12.1993, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. DESEMBER 1993 Hæstiréttur dæmir um skipan í lektorsstöðu við HÍ árið 1985 Meimtamálaráðherra braut jafnréttislög HÆSTIRÉTTUR staðfesti í gær þá niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavík- ur að Sverrir Hermannsson fyrrum menntmálaráðherra hafi gerst brotlegur við ákvæði laga um jafna stöðu og jafnan rétt karla og kvenna þegar hann veitti Matthíasi V. Sæmundssyni en ekki Helgu Kress lekt- orsstöðu i íslenskum bókmenntum við heimspekideild Háskóla Islands í desember 1985. I dómi Hæstaréttar segir að þau ákvæði fyrr- greindra laga sem deilt var um í málinu yrðu þýðingarlítil nema þau séu skýrð svo að konu skuli veita starf ef hón er að minnsta kosti jafnt að því komin og karlmaður sem um starfið sækir enda séu fáar konur á starfssviðinu. I dóminum kemur fram að bæði Helga og Matthías hafi verið vel hæf til starfsins en tekur ekki afstöðu til þess hvort hafi verið hæfara eins og Héraðsdómur hafði gert. Matthías og Helga voru þau tvö sex umsækjenda sem dómnefnd mat hæfust til að gegna stöðunni. Helga, skipaður dósent í almennri bókmenntafræði,' þótti hafa meiri og víðtækari reynslu en Matthías sem háskólakennari og fræðimaður og var mælt með að hún yrði valin til starfsins. Á fundi í heimspeki- deild fékk Helga langflest atkvæði umsækjenda. Menntamálaráðherra setti Matthías engu að síður lektor. Helga kærði stöðuveitinguna til Jafnréttisráðs sem komst að þeirri niðurstöðu að brotið hefði verið gegn því ákvæði jafnréttislaga, sem banni atvinnurekendum að mis- muna starfsfólki eftir kynferði, með því að sniðganga Helgu. Hún ósk- aði eftir að málið yrði lagt fyrir dómstóla. Málinu var í tvígang vís- að frá Héraðsdómi áður en efnis- dómur féll árið 1990. Hvorki í Hæstarétti né Héraðs- dómi var fallist á þá sýknukröfu lögmanna ríkisins að sett hafi verið þá í stöðuna tímabundið og að Helga hafi fyrir skipað dósents- stöðu við heimspekideild enda hafi staðan sem sótt var um verið á öðru fræðasviði. Helga gerði einnig kröfu um 500 þúsund króna miskabætur á hendur ríkissjóði en að mati Hæstaréttar höfðu ekki verið leiddar líkur að því að Helga, sem nú er prófessor við Háskóla íslands, hafi orðið fyrir miska vegna ákvörðunar ráðherra um skipun í stöðuna og því var þeirri kröfu hafnað. Ríkissjóði var hins vegar gert að greiða henni samtals 300 þúsund krónur í máls- kostnað fyrir héraði og Hæstarétti. VEÐUR VEÐURHORFUR I DAG, 3. DESEMBER YFIRLIT: Yfir Faxaflóa er 968 mb lægðardrag, sem grynnist, en um 250 km NA af Langanesi er 960 mb lægð, sem þokast norður. Yfir Græn- landi er heldur vaxandi 1.028 mb hæð. SPÁ: Hvöss norðanátt um vestan- og norðanvert landið en annars held- urhægari. Snjókoma um norðanvert landið. Smáól vestanlands en ann- ars þurrt. Kólnandi veður. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á LAUGARDAG OG SUNNUDAG: Norðaustanátt á Vestfjörð- um og á annesjum norðanlands en suðvestlæg eða breytileg átt annars staðar. Lengst af bjart veður suðaustanlands en él í öðrum landshlut- um. Yfirleitt frostlaust syðst á landinu og á Austfjörðum en annars vægt frost. HORFUR Á MÁNUDAG: Norðan- og norðaustanátt og heldur kólnandi. Él um norðanvert landið en bjart veður syðra. Nýir veðurfregnatímar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 19.30, 22.30. Svarsími Veðurstofu Islands - Veðurfregnir: 990600. o Heiðskírt r r r r r r r r Rigning & Léttskýjað * / * * r r * r Slydda Hálfskýjað * * * * * * * * Snjókoma A Skýjað Alskýjað V § V Skúrir Slydduél Él Sunnan, 4 vindstig. Vindörin sýnir vindstefnu og fjaörimar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig.^ 10° Hitastig V Súld = Þoka i«9-- FÆRÐA VEGUM: (Ki.i7.30fgær) Viðast á landinu er verulea hálka og éljagangur á heiöum vestanlands. Vegir eru þó yfirleitt færir. A Snæfellsnesi er þó orðið þungfært á fjallveg- um og sama er að segja um ýmsar heiðar á-Vestfjörðum, svo sem á hálsunum í Austur-Baröastrandastýslu og á Dynjandis-, Hrafnseyrar-, og Steingrímsfjarðarheiöum. Þá er ófært um Breiðadals- og Botnsheið- ar en þær verða mokaðar á morgun ef veður leyfir. I Isafjaröardjúpi er Eyrafjall ófært en fært út fyrir Reykjanes. A norðanveru austurlandi er Axarfjarðarheiði talin ófær. Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631500 og ágrænnilínu, 99-6315. . Vegagerðin. VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma Akureyrl Reykjavík hiti veður +2 alskýjað t-2 snjókoma Bergen 3 Helsinki +5 Kaupmannahöfn 1 Marssarssuaq +18 Nuuk Ósló Stokkhólmur Þórshöfn +15 +0 0 3 þrumuveður skýjað slydda heiðskfrt léttskýjað snjókoma kornsnjór haglél Algarve Amsterdam Barcelona Berlín Chicago Feneyjar Frankfurt Glasgow Hamborg London LosAngeles Lúxemborg Madrid Maliorca Montreal NewYork Orlando Paris Madelra Róm Vín Washlngton Winnipeg 17 9 14 0 7 9 3 9 3 12 14 3 11 18 17 +7 7 14 8 16 1$ +2 4 -5-6 skýjað heiðskírt snjókoma súld þokumóða súld skúr súld rigning skýjað súld léttskýjað heiðskírt iéttskýjað skýjað alskýjað léttskýjað Súld skýjað skýjað alskýjað skýjað alskýjað IDAG kl. 12.00 Heimild: Veðurstofa Islands (Byggt á veðurspá kl. 16.15 í gær) Morgunblaðið/Sverrir Franskir dagar MIKIÐ var um dýrðir við upphaf franskra daga í Hagkaupum í Kringl- unni, en þeir munu standa fram til 12. desember. Oskar Magnússon, forstjóri Hagkaupa, kynnti dagskrá dagana stuttlega við opnunina og að því búnu fluttu þeir Fran?ois Rey Coquais, sendiherra Frakklands á íslandi, og Össur Skarphéðinsson umhverfisráðherra stuttar ræður og franskur söngvari flutti lag. Rey-Coquais sýnir þeim félögum látbragðs- leik. Rannsókn á læsi íslenskra barna Böm sem lesa dagblöð eru duglegri í lestri TALIÐ er að miklu máli skipti fyrir lestrargetu íslenskra barna að dagblað komi reglulega á heimili þeirra, en mikill munur er á Iæsi þeirra barna sem lesa dagblöð daglega og þeirra sem lesa næstum aldrei dagblöð. Þetta er meðal niðurstaðna í alþjóðlegri rannsókn á læsi barna sem ísland tók nú þátt í í fyrsta skipti, en skýrsla um niður- stöður hennar er nýkomin út hér á landi. I skýrslunni kemur fram að um 77% heimila 9 ára barna fá dagblöð reglulega og um 87% heimila 14 ára barna. Bein tengsl eru milli þess hve oft unglingar lesa dagblöð og árangurs þeirra í lestri, en talið er að lestur dagblaða geti skýrt liðlega 4% af lestrarárangri 14 ára nemenda hér á landi. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að 29% íslenskra barna lesi dagblöð daglega og eru þau sem það gera duglegust í lestri. Níu ára stúlkur lesa oftar dagblöð en drengir og af þeim sem lesa dagblöð næstum daglega eru stúlkur 73% á móti 27% drengja. í hópi 14 ára nemenda lesa 16% aldrei dagblöð, en þeir ungiing- ar sem oftast lesa dagblöð eru mark- tækt betri í lestri en þeir sem lesa þau sjaldnar. Virðist lestur dagblaða örva lesskilning 14 ára nemenda meir en lestur bóka og tímarita. Heimiiisaðstæður virðast skipta máli fyrir læsi bama og kemur það fram í sambandi árangurs við íjölda bóka á heimilinu og að dagblöð ber- ist á heimilið. Einnig skiptir máli að börn horfí ekki úr hófí fram á sjón- varp og myndbönd. Þannig benda niðurstöður rannsóknarinnar til þess að óæskilegt sé að 14 ára nemendur horfí mikið fram yfír 3-4 klst. á dag, en 9 ára börn virðast aftur á móti geta horft á sjónvarp allt að 4-5 klst. án þess að það komi niður á árangri í lestri. Er áætlað að í þessum aldurs- hópi sé sjónvarps- eða myndbands- efni með texta æfing í lestri. Sjómenn á Sauðárkróki álykta gegn „kvótabraski“ ALMENNUR fundur sjómanna á Sauðárkróki hefur samþykkt ályktun gegn „kvótabraskinu" og lýsti stuðningi við baráttu sjómannasamtak- anna gegn því. Fundurinn var liður í fundarröð, sem samtök sjómanna hafa að undanförnu staðið að víða um Iand og var hann haldinn á fullveldisdaginn, fyrsta desember. Forystumenn sjómannasamtak- anna, þeir Óskar Vigfússon og Hólm- geir Jónsson frá SSI, Benedikt Vals- son frá FFSÍ og Helgi Laxdal frá VÍ, fluttu erindi á fundinum undir kjörorðinu „kvótabraskið burt - samn- inga strax“. Á fundinum mættu 20 sjómenn og var þar samþykkt svo- hljóðandi ályktun: „Fundur á vegum sjómannasamtakanna, haldinn á Sauðárkróki 1. des. 1993, lýsirfullum stuðningi við forystumenn samtak- anna í baráttu þeirra gegn kvóta- braski sem tröllríður hlutaskiptum sjómanna víðsvegar um landið. Fund- urinn hvetur jafnframt alla sjómenn til að snúa bökum saman í átökum þeim sem framundan kunna að vera.“ Síðara bindi Ódysseifs SÍÐARA bindi skáldsögunnar Ód- ysseifur eftir James Joyce er komið út í þýðingu Sigurðar A. Magnússonar. í kynningu útgefanda segir, að þetta sé eitt frægasta skáldverk 20. aldarinnar. Og um efni þess segir: „Það segir frá einum degi í lífí nokk- urra Dyflinnarbúa, nánar tiitekið 16. júní 1904, frá amstri þeirra, búksorgum, misdjúpum hugsunum og mismerkum athöfnum. En ein- hvern veginn tekst Joyce að flétta saman örlög þessa „venjulega“ fólks svo úr hefur orðið ný Hómers- kviða um þann eilífa ferðalang Ódysseif, í gervi auglýsingasafnar- ans Leopolds Blooms, og glímu hans við hinstu rök mannlegrar til- veru.“ Skáldagan Ódysseifur eftir Jam- es Joyce var fyrst gefín út í París árið 1922. Utgefandi er Mál og menning. Bókin er 385 bls., unnin í Prent- Sigurður A Magnússon smiðjunni Odda hf. Kápuna gerði Robert Guillemette. Verð 2.980 krónur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.