Morgunblaðið - 03.12.1993, Page 15

Morgunblaðið - 03.12.1993, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. DESEMBER 1993 15 Fötluð hús! eftir Ragnar Gunnar Þórhallsson Frá sjónarmiði þeirra, sem erfitt eiga með að komast um vegna hreyfihömlunar, þýðir takmörkun á aðgengi að og í húsum og um- hverfi glötuð tækifæri í daglegu lífi. Slæmt aðgengi að menntastofnun- um og vinnustöðum hefur mjög afgerandi áhrif á möguleika hreyfi- hamlaðra til að vera sjálfbjarga og verða sér úti um menntun og starf, sem hugur og geta stefnir til. Að baki húsbyggingum liggja ríkar hefðir, sem í áranna rás taka breytingum. Oft hefur tíska í húsa- gerðarlist haft miður góðar afleið- ingar ef tekið er mið af aðgengi. Hús eru gerð til að standa lengi og hýsa nokkrar kynslóðir frá vöggu til grafar og eru því varla einkamál eins eða neins. Mörg af gömlu íbúðarhverfunum í Reykjavík eru á þann veg að ekki ein einasta íbúð í þeim er aðgengileg eins og hreyfihamlaðir í húsnæðisleit hafa komist að raun um. Þar eiga tröpp- ur og stigar stærstan hlut að máli eins og t.d. í Norðurmýrinni í Reykjavík. í þessu ágæta hverfi eru nokkrar íbúðir í hverju húsi og eru húsin byggð þannig að ýmist þarf að ganga niður tröppur til að kom- ast í neðstu íbúðina eða upp tröpp- ur til að komast í næstu íbúð fyrir ofan. Ekki ein einasta íbúð í hverf- inu er þannig úr garði gerð að hægt sé að aka barnavagni eða hjólastól inn í íbúðina af götu held- ur þarf að klöngrast upp og niður tröppur. Mörg fleiri atriði hafa áhrif á aðgengi húsa svo sem þröskuld- ar, breidd dyraopa og fleira. Tröppur og stigar Tröppur eða stigar hafa ekki allt- af verið sett í og við hús af brýnni þörf heldur oft meira til að skapa ákveðið útlit og ímynd virðuleika og háleitra markmiða. Undarleg- ustu dæmin um notkun á tröppum má þó finna við aðalinnganga að ýmsum sjúkrastofnunum þjóðarinn- ar, en þangað eiga gjarnan erindi eins og von er fatlaðir, sjúkir og slasaðir. Til að komast inn í Borgar- spítalann um upphaflegan aðalinn- gang liggur leiðin fyrst upp tíguleg- ar tröppur áður en komið er að útihurð. Þegar inn er komið tekur við dálítill pallur og síðan taka við enn aðrar tröppur upp á við og er þá loks komið að aðalmóttöku spít- alans og mögulegt að komast í lyftu til frekari áfangastaða innan húss. Það skal tekið fram að á Borgarspít- alanum sem og á mörgum öðrum sjúkrahúsum hafa verið gerðar end- urbætur og breytingar, sem gera öllum kleift að komast leiðar sinn- ar. Einmitt um þessar mundir standa yfir slíkar breytingar á aðal- inngangi Sjúkrahúss Akraness, sem kosta munu um 30 milljónir króna. Kostnaður við breytingar til að bæta aðgengi í gömlum byggingum getur verið verulegur, en ef hugsað Ragnar Gunnar Þórhallsson „Þegar framkvæmdirn- ar eru skoðaðar virðist ekki hafa verið haft í huga að bæta aðgengi fatlaðra á«svæðinu með það að leiðarljósi að all- ir eigi greiðan aðgang í umræddar stofnanir og um nánasta um- hverfi.“ er fyrir góðu aðgengi við hönnun og byggingu húsa verður umfram- kostnaður í mörgum tilfellum næsta lítill. Raunar er alls ekki rétt að nefna umframkostnað í þessu sam- bandi því aðgengi fyrir alla að hús- Sprúttsalaleiðarinn eftir Leif Sveinsson í leiðara Mbl. laugardaginn 27. nóvember er furðuleg forystugrein, sem ég leyfi mér að gera nokkrar athugasemdir við. Leiðarahöfundur hvetur til þess, að virða að vettugi 5 ára gamla reglugerð um áfengis- auglýsingar. Telur hann að menningarauki mikill sé að vínkynningum á veit- ingahúsum og bjórhátíðum. Það verður að segjast eins og er, að íslendingar eru vanþróuð þjóð hvað snertir umgengni við áfengi. í siðuðum þjóðfélögum eins og Ítalíu, þar sem ég er kunnugastur, er rauð- vín t.d. hluti af máltíðinni, á borðum stendur ávallt rauðvínsflaska, gjarn- an í stærra lagi (2lk lítra). Af henni fær heimilisfólk sér venjulega eitt glas með máltíð. Notkun áfengis utan máltíða hefi ég eigi orðið var við á ítölskum heimilum. Þarna er aldagömul hefð á ferð- Höfugar afurðir Virðing borgaranna fyrir lögum er mikilvæg í rétt- arríki, því án þess heldur laus- ung innreið sína og þá er stjórn- leysi á næstu grösum. Alþingi og stjórnvöld þurfa því að gæta þess að fella brott gömul og úrelt lög og reglugerðir, sem stangast á við viðteknar venjur og siðferði hvers tíma. Engum sr greiði gerður með lögum og reglum, sem eru hafðar að háði og spotti í þjóðfélaginu. Gott dæmi um þetta er reglugerð um bann við áfengisauglýsing- í frá ársbyijun 1989. Þar gir m.a.: „Hvers konar auglýsingar á jngi og einstökum áfengis- tegundum eru bannaðar. Enn- fremur er bannað að sýna eyzlu eða hvers konar aðra eðferð áfengis í auglýsingum )a upplýsingum um annars1 —þjáuus Leifur Sveinsson inni. Vín eru seld í hverri matvöru- búð og þykir ekkert sérstakt við það. II Hjá okkur íslendingum er um- gengni við áfengi með þeim hætti, að þjóðarskömm er að. Unglingar byrja að neyta áfengis 12-14 ára og þá vaknar spurningin: Af hveiju sækjast þeir eftir neyslu svo snemma? Það er vegna þess, að hinir fullorðnu hafa þetta fyrir unglingum í tíma og ótíma. Myndir af veislum hins opinbera, afmæli broddborgara, ekki mú birta myndir af neinu tilefni, nema kampavínsglös séu á lofti. Svo kölluð menningarmálanefnd Reýkjavíkurborgar hefur haft forystu um þessa vínúðun og svo langt hefur þetta gengið á Kjarvalsstöðum, að ekki er friður að skoða málverk eða hlýða á ljóð fyrir þessum kampavínsberserkjum, sem þangað er boðið. III Forseti íslands, Vigdís Finnboga- dóttir, hefur mikið beitt sér fyrir ræktun lands og lýðs, eins og hún hefur nefnt átak sitt. Því urðu menn forviða, er hún heiðraði fatlaða Ólympíufara í fyrra með boði að Bessastöðum. Þar var áfengi á boðstólum. Markús Örn Antonsson borgar- stjóri hefur eigi sinnt ábendingum mínum og fleiri um að hætta áfengisveitingum á vegum borgar- innar. Láti hann sér ekki segjast fljótlega, munum vip andstæðingar vínúðunar hvetja Árna Sigfússon borgarfulltrúa til að gefa kost á sér sem borgarstjóraefni. Hann er ein- lægur bindindismaður. IV 16 ára stúlka vann bjórkeppni á Akureyri. Það var á bjórhátíð. Leið- arahöfundur Mbl. frá 27. nóvember ætti ekki að verða sér meira til skammar en orðið er, er hann dá- samar bjórhátíðir. Hreinsunardeild Akureyrar þurfti að ræsa út auka- vakt eftir hátíðina. Allur bærinn var ein samfelld æla. V Vonandi villast handlangarar sprúttsala og umboðsmenn vín- framleiðenda ekki oftar inn á rit- stjórn Morgunblaðsins. Nóg er samt. Höfundur er lögfræðingur. næði ekki síst því sem byggt er fyrir fé almennings á auðvitað skil- yrðislaust að vera aðgengllegt öll- um þegnum landsins. Frá því að íbúðarhverfi í Norður- mýri reis fyrir mörgum áratugum hefur vissulega orðið framþróun í sambandi við aðgengi nýrra húsa og umhverfis. Þó er langt frá því að þeir aðilar sem tengjast hús- byggingum gefi aðgengismálum nægan gaum. Oft vantar á að að- gengismálin séu hugsuð til enda. Sem dæmi um velheppnaðar breyt- ingar á aðgengi mætti nefna aðal- inngang Hagstofu íslands þar sem gerð hefúr verið skábraut, sett upp handrið og rafstýrð opnun á úti- hurð. En hvar er að finna sérmerkt bílastæði fyrir fatlaða? Eru opinberar stofnanir fyrir alla? í Hafnarhúsinu og Tollhúsinu sem staðsett eru milli Tryggvagötu og Geirsgötu í Reykjavík næst Reykjavíkurhöfninni gömlu eru nokkrar opinberar stofnanir í þrengslum ' miðbæjarins. í þessar stofnanir eiga á ári hverju þúsundir borgara; almenningur og starfsfólk fyrirtækja, margvísleg erindi enda eru þar saman komnar á litlu svæði gjaldheimtan, skattstjóri, tollstjóri, ríkistollstjóri, lögreglustöð, félags- málaráðuneytið og samgönguráðu- neytið. í mörgum tilvikum á fólk ekki annarra kosta völ en að sækja þessar stofnanir heim því fólk er að rækja opinberar skyldur sínar og skiptir þá auðvitað ekki máli hvort viðkomandi er fatlaður eður ei. Síðustu misseri hafa staðið yfir umfangsmiklar gatnagerðarfram- kvæmdir og breytingar á gangstétt- um og hafnarbakka Reykjavíkur- hafnar við Geirsgötu í samræmi við framtíðarskipulag svæðisins. Fram- kvæmdunum er að mestu lokið og kostuðu nokkur hundruð milljónir. Þær eiga að greiða fyrir umferð í gegnum miðbæinn og gera hann skemmtilegan fyrir sunnudags- göngutúra. Hagsmunir þeirra, sem sækja vinnu á svæðinu eða eiga þangað erindi á virkum dögum virð- ast ekki skipta miklu máli. Sú stefna virðist vera ríkjandi hjá borg- inni að leysa mikinn skort á bíla- stæðum í miðborginni með bíla- geymsluhúsum. Bílastæði við áður nefndar stofnanir eru mjög af skornum skammti og fjölgaði ekki við framkvæmdirnar. Bílastæði fyr- ir hreyfihamlaða eru yfirleitt ekki til staðar, en þó hafa 2 bílastæði verið sérmerkt fötluðum síðustu vikur. Gallinn er sá að ekki hefur verið hugsað fyrir því að gangstétt- arbrúnir hafi fláa svo unnt sé fyrir hjólastól að komast af bílastæðinu upp á gangstéttina við stæðið. í öllum tilvikum er a.m.k. eitt hátt þrep fyrir framan aðaldyr húsanna og að sjálfsögðu er myndarlegur þröskuldur til staðar. Hurðir í and- dyri hafa ekki opnun með raf- eða vökvastýringu og eru þungar. Hér virðist skorta markvissar aðgerðir til úrbóta alla leið. Bílageymsluhús og hreyfihamlaðir Bílageymsluhúsin geta verið ágæt, en þau henta í flestum tilvik- um ekki hreyfihömluðum. Er það einkum vegna þess að fjarlægð • þeirra frá þeim áfangastað þar sem reka skal erindi er of mikil. Maður á hækjum eða í hjólastól þarf að geta lagt bifreið sinni sem næst því húsi sem hann á erindi í. Hann á venjulegast erfitt með að komast leiðar sinnar um miðbæinn bæði vegna þess að víða eru brekkur og auk þess eru gangstéttarbrúnir og annar frágangur við götur ófull- nægjandi. Sköpun nýrra hefða Margir aðilar koma við sögu und- irbúnings, ákvarðanatöku og verk- legra framkvæmda eins og þeirra sem fram hafa farið við Geirsgötu á vegum Reykjavíkurborgar og Reykjavíkurhafnar. Nefna má þessa aðila: Borgarstjórn, borgar- verkfræðing, gatnamálastjóra; skipulagsfræðinga, verkfræðinga, umferðarnefnd, hafnarmálastjóra, verktaka og starfsmenn þeirra og stofnanir í þeim húsum, sem fram- kvæmdirnar snerta. Þegar framkvæmdirnar eru skoðaðar virðist ekki hafa verið haft í huga að bæta aðgengi fatl- aðra á svæðinu með það að leiðar- Ijósi að allir eigi greiðan aðgang í umræddar stofnanir og um nánasta umhverfi. Hvernig getur staðið á því? Ekki skortir ákvæði þar um í nýrri byggingarreglugerð, sem út kom í maí 1992. Ekki er líklegt að skortur sé á þekkingu og verkkunn- áttu aðila. Tvennt tel ég að hamli mest framþróun á sviði aðgengismála. Í fyrsta lagi fastheldni þeirra aðila, sem koma við sögu húsbygginga, á hefðir og venjur við frágang, útlit og gerð mannvirkja í ýmsu tilliti í stóru sem smáu. í öðru lagi skortir enn verulegan áhuga og skilning allra aðila. Lög og reglugerfiir bæta ekki aðgengi ein og sér, en hinsveg- ar er ekkert sem bannar það að bæta megi aðgengi umhverfisins og húsa hvað sem lögum og reglu- gerðum líður bara ef vilji og skiln- ingur er fyrir hendi. Skapa verður nýja hefð fyrir því að aðgengi fyrir alla er sjálfsagður og eðlilegur hlut- ur, en ekki sérstök greiðvikni við fatlaða. Þennan skilning verða allir sem málið varðar að öðlast ef raun- verulegur árangur á að nást í bættu aðgengi, sem getur haft úrslita- áhrif á möguleika fatlaðra til að lifa sjálfstæðu lífi. Höfundur situr í framkvæmda- stjórn Sjálfsbjargar, landssam- bands fatlaðra Og n„kkt„ddb4.b.»r=»inS«,b.bi»««»6» skápa meö 40% afslætti. eldhus- miðstöðin Lágmúla 6, sími 684910, fax 684914.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.