Morgunblaðið - 03.12.1993, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 03.12.1993, Blaðsíða 46
46> MORGUNBLA.ÐIÐ FÖSTUDAGUR 3., DESEMBER 1993 félk i fréttum ÚTGÁFA Upplestur við undirleik djassista TONLIST Söngvarinn og lagasmiðurinn Valgeir Guðjónsson hélt upp á innreið sína á nýjan vettvang, ritvöllinn, sl. þriðjudagskvöld á Sólon Islandus. Þar las hann upp úr skáldsögu sinni Tvær grímur, sem nýkomin er út hjá Máli og menningu. Upplesturinn fór fram við undir- leik tveggja djassista, Þóris Bald- urssonar og Tómasar R. Einars- sonar. Þótti viðstöddum skemmtilegt hvernig tónlistin og textinn mögn- uðu hvort annað upp. Morgunblaðið/Sverrir Valgeir Guðjónsson ræðir hér við Sigvalda Júlíusson útvarpsþul og Vilhjálm Ragnarsson kvikmyndaframleiðanda. Frændsystkinin Guðrún Pétursdóttir og Thor Vil- hjálmsson höfðu gaman af því að hittast og hlusta á upplestur Valgeirs. STOR-HARMONIKU DANSLEIKUR í Ásbyrgi á Hótel íslandi í kvöld (inngangur að austanverðu) Hijómsveitin NEISTAR ásamt| söngkonunni HJÖRDÍSI GEIRS og félagar úr HARMONIKUFÉLAGI REYKJAVÍKUR halda uppi dúndrandi fjöri frá kl. Aðgangseyrir kr. 800. Sími 687111 onhf UH g^klavtlur Þeir andans menn (f.v.) Sveinn Þórisson, Halldór Guðmundsson, Guðmundur Andri Thorsson, Haligrímur Helgason, Arni Ósk- arsson og Hrafn Jökulsson höfðu um margt að spjalla. Dúettar Franks Sinatra Gamla brýnið Frank Sinatra hefur sent frá sér disk sem ber heitið „Duets“, sem útleggst auðvitað sem dúettar. Sinatra, sem er nú 77 ára gamall og hefur ekki sent frá sér efni um árabil, syngur þekkt lög með enn þekkt- ari söngvurum. Þar má nefna Bono, Gloriu Estefan, Carly Sim- on, Arethu Franklin, Barbru Strei- sand og Julio Iglesias. Diskurinn hefur vakið gífurlega athygli og selst eins og heitar lummur. Hann fær aftur á móti ekki sérstaklega góða dóma og er ekki síst kennt um frammistöðu mótsöngvara gamla mannsins. Þannig er mál vexti, að það lætur afar hátt í meðsöngvurunum og mönnum blandast ekki hugur um að poppararnir hafi meiri áhuga á því að heyra í eigin rödd heldur en að láta hana falla að rödd Sinatras og þar með að heild- ardæminu. Og ekki bætti úr skák, að þó um dúetta sé að ræða, þá voru ýmsir af mótsöngvurunum alls ekki í sama stúdíói og Sinatra og hafa menn kallað plötuna enn einn tæknisigurinn. Bono var til að mynda í hljóðveri í Dyflinni. Aretha Franklin var í Detroit, Carly Simon í Boston. Fyrir vikið var erfitt um vik að samræma Frank Sinatra með hljóðnemann. söng stjarnanna og niðurstaðan í mörgum tilvikum þykir hafa orðið sú að gæðin séu lítil. Ekkert fær því þó breytt, að ótalmargir aðdáendur Franks gamla Sinatra eru yfir sig ánægð- ir með að fá að hlýða á hann á ný með þessum hætti. COSPER ©PIB ........ i. YlSSS COSPER Þetta er skrítið; þeim mun heppnari sem ég er í spilum, þeim mun heppnari er ég í ástum. Þorvaldur Halldórsson Gunnar Tryggvason ná upp góðrí stemmningu OPIÐ FRA KLUKKAN 1 9:00 - 03:00 DANSSVEITIN ásamt Evu Ásrúnu Albertsdóttur Opiðfrá kl. 22-03. Borðapantanir í síma 68 62 20
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.